Morgunblaðið - 01.03.1964, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. marz 1964
Frakkar hafa nýlega viður-
kennt kommúnistastjórnina í
Kína, og hafa löndin nú skipzt
á sendiherrum. Þetta er kín-
verski sendifulltrúinn í París,
Sung Chin-kuang.
OR ÝMSUM ÁTTUM
Miklar deilur hafa verið í Bandaríkjunum um sölu á hveiti til
Sovétríkjanna, og hafa hafnarverkamenn sums staðar neitað að
vinna að lestun skipanna, sem flytja hveitið. Engu að síður kom
fyrsta hveitiskipið, „Exilona“, til Odessa fyrir nokkru, og sést
hér á myndinni þegar verið var að losa það.
/.•. ..w. •••• -,Si,.........'S v
Þetta er kafbáturinn „Auguste Piccard“, en hann mun vera fyrsti kafbáturinn, sem smíðaður er til farþegaflutninga. Heitir kafbát-
urinn í höfuðið á manninum, sem teiknaði hann og hafði yfirumsjón með smíðinni, en Piccard er þekktur svissneskur eðlisfræðingur
og könnuður undirdjúpanna. Kafbátinn á að nota til neðansjávarsiglinga með farþega í Genfarvatni. Myndin var tekin þegar verið
var að flytja bátinn með járnbrautarvögnum frá smiðastöð Piccards í Monthey til Genfarvatns. Báturinn vegur 225 lestir.
Dr. Fazil Kutchuk, varaforseti Kýpur, og leiðtogi tyrkneskra
manna á eyjunni, ræðir hér við nokkra landa sína.
Erfiðlega gengur að skipa 12
manna kviðdóm í máli morð-
ingjans Jacks Rubýs, sem
myrti Lee Harvey Oswald. —
Fyrsti dómarinn var samþykkt
ur í síðustu viku. Var það Max
E. Causey, 35 ára starfsmaður
við rafmagnsfyrirtæki í Dallas.
m
& '■:■■■
Constantin Grikkjaprins gegnir nú störfum föður síns, Páls konungs, í veikindum hans.
Þetta er Lee Harvey Oswald með alvæpni. Myndina tók kona
hans, Marina Oswald, i apríl í fyrra við heimili þeirra í Dallas.
Heldur Oswald á rifflinum, sem álitið er að hann hafi notað til
að drepa Kennedy forseta með. Auk þess ber hann skammbyssu
í belti og heldur á dagblaði bandariskra kommúnista, „The
Militant".
MYNDIR