Morgunblaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 16
16 MORGU NBLAfílD Sunnudagur 26. júlí .1964 Jakop S. Kolbeinsson Minnlng HINN 19. þ. m. andaðist í Lands- spítalanum í Reykjavík, Jakob S. Kolbeinsson, frá Unaðsdal, fyrr- um bóndi á Skarði í Snæfjaíla- strönd. Foreldrar hans voru merkishjónin, Kolbeinn Jakobs- son, hreppstjóri í Unaðsdal og kona hans, Sigurborg Jónsdótt- ir, frá Bæjum. Árið 1919 gekk Jakob að eíga eftirlifandi konu sina, Símoníu Sigurðardóttur. Þremur árum síðar hófu þau bú- skap á kirkjujörðinni Skarði, sem er 12 hundruð að fornu mati. Þeim hjónum varð átta barna auðið og lifa sjö þeirra. Þau eru þessi, talin eftir aldri: Elzt er Bjarnveig, gift Kristjáni Frið- björnssyni, málarameistara. Þau voru lengi búsett á ísafirði, en eiga nú heima í Kópavogskaup- kaupstað. María, gift Bergþóri Alberts- syni, bílstjóra í Hafnarfirði. Hjartanlegar þakkir til allra frænda og vina, nær og fjær, sem minntust mín á sjötugsafmælinu, 11. júlí sL Guð biessi ykkur. Sigríður Soffía Þórarinsdóttir. t Bróðir okkar, PÉTUR ÞÓRIR ÞÓRARINSSON andaðist að heimili sínu, Eskihlíð 6A, 24. þessa mánaðar. Jóhanna Þórarinsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir. Útför eiginmanns míns og föður okkar, JAKOBS SIGURJÓNS KOLBEINSSONAR frá Unaðsdal, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 27. júlí kl. 10,30 f.h. — Athöfninni í kirkjunni verður út- varpað. Símonía Sigurðardóttir og böm. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁGÚST BENEDIKTSSON vélstjóri, verður jarðsurginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 28. júlí 1964 kl. 13,30. Þórdís Davíðsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Sigurborg, gift Halldóri Gísla- syni, verzlunarmanni í Kópa- vogi. Ása, dó í bernsku. Guðbjörg, gift Kristjáni Svein- björnssyni, vélstjóra í Súðavík í Álftafirði. Guðjóna, bjó lengi með Þór- arni Ólafssyni. Búsett í Reykja- vík. Kolbeinn, málari að iðn, giftur Jóhönnu Kristjánsdóttur. Búsett í Kópavogi. Sigurður, sem er yngstur syst- kina sinna og vélstjóri að mennt, enda stundað sjómennsku um allmörg ár, en er nú bílstjóri í Kópavogi. Kona hans er Ragn- hildur Aðalsteinsdóttir. Fyrir réttum þrjátíu árum var ég farkennari í Snæfjallahreppi, og kenndi þá á fjórum bæjum í sveitinni eins og oft hendir, þegar um farkennslu er að ræða. Einn þessara bæja var Skarð. Það voru fyrstu kynni mín af þeim hjónum, Jakobi sál. og Sínoníu og börnum þeirra. Hafa þau kynni haldizt síðan. Á Skarði var gamall torfbær að stofni til, sem Jakob hafði að vísu bætt og aukið verulega. Þrátt fyrir það var þetta þæg- indasnautt húsnæði og ófullnægj- andi fyrir stóra fjölskyldu, enda mun það hafa átt mestan þáttinn í því, að þau hjón brugðu búi á Skarði fáum árum síðar og fluttu þá til Isafjarðar um sinn, vorið 1939. Síðar keyptu þau húseign í Súðavíkurþorpi og áttu þar heima í allmörg ár, en nú um nokkurt skeið hafa þau verið bú- sett í Kópavogi. Þau eru örlög fjölmargra svo nefndra kirkjujarða, sem ekki hafa verið seldar einstaklingum, að fara í eyði. Meginorsök þess er yfirleitt sú, að framlag hins opinbera til húsabóta á jörðun- um sem jarðareiganda, er langt- um of lítið. Þó að Skarð sé lítil jörð og landþröng, þá var þar tvíbýli og jafnvel þríbýli áður fyrri, og auk þess áttu tómthúsmenn sér þar híbýli stundum, á svonefndu Hól- túni og í Naustavík, sem er skammt fyrir innan Skarð. Þetta þéttbýli, sem var víðar á Snæ- fjallaströnd um og fyrir sl. alda- mót, byggðist að langmestu leyti á útgerð árabáta og fiskiveiðum í Djúpinu. Jakob mun hafa alizt upp við mikla sjósókn hjá föður sínum, Kolbeini í Dal, sem um áratugi var formaður í Bolungarvík og við Gullhúsár, á eigin báti. Þegar Jakob var um ferm- ingaraldur, keypti faðir hans vél- bát, sem gerður var út frá Snæ- fjallaströnd. Eftir að Jakob varð fulltíða maður og meðan hann enn átti heima hjá föður sínum í Unaðsdal, stundaði hann mest sjóróðra, en er hann fór að búa á Skarði, varð því eigi við kom- ið á sama hátt og fyrr, utan lítils háttar haust og vor, meðan róið var frá Gullhúsám. Skarð er eins og fyrr getur hlunnindalaus og landlítil jörð, þrátt fyrir hundraðatöluna, sem byggist á gömlu mati og þeirri aðstöðu til sjósóknar, er þá var svo mikilsverð. Jakob sá því fram á það, að hann gat ekki framfleytt því búi á jörðinni, sem að hans áliti nægði fjöl- skyldunni til framfærslu. Hann brá því á það ráð um mörg ár, meðan hann hjó á Skarði, að gerast togarasjómað- ur á vetrum hjá frænda sínum, hinum kunna aflamanni, Jóni Birni Elíassyni, skipstjóra á tog- aranum Surprise. Jakob heitinn var maður ör- lyndur, opinskár og hreinskilinn, og sagði jafnan meiningu sína um menn og málefni umbúða- laust og án vafninga. Hann var einstakur dugnaðarmaður, sem aldrei féll verk úr hendi á meðan hann var heill heilsu. Sjálfsagt hafa mörg búskapar- árin á Skarði verið erfið og reynt á þrekið til hins ítrasta, við lé- leg húsakynni og samgönguerfið- leika, sem þeir þekkja bezt er muna snjóflóðin í Eyjarhlíð. Þeir, sem kynnzt hafa baráttu- sögu íslenzkra einyrkja, eins og hún var til skamms tíma, vita það líka manna bezt, að heill fjölskyldunar hvxldi eigi síður þungt á herðum húsfreyjunnar, sem auk annara starfa varð að hafa forsjá og forsagnir á öllu, bæði úti og innij þegar bóndinn var langdvölum að heiman við sjó, til þess að afla heimilinu nauðsynlegra tekna. Kynna minna við Jakob heit- inn Kolbeinsson og fjölskyldu hans, minnist ég með þakklæti í huga. Eftirlifandi konu hans, börnum þeirra og öllum öðrum aðstandendum votta ég innilega samúð mína. 23. júlí 1964 Jóhann Hjaltason. Jarbýtan sf. Til leigu: Jarðýtur 12—24 tonna. Ámokstursvélar (Payloader) Gröfur. Sími 35065 og eftir kl. 7 — sími 15065. Jarðaríör konu ininnar, LAUFEYJAR JÓNATANSDÓTTUR sem andaðist 17. þ.m., fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28 þ m. kl. 1,30 e.h. — Fyrir mína hönd, barna og tengtíabarna. Emil Björnsson. Útför eiginmanns míns og föður, JÓHANNESAR BACHMANN JÓNSSONAR Vesturgötu 63, Akranesi, er lézt 22. júli si , fer fi am frá Akraneskirkju, mið- vikudaginn 29. júlí kl. 2 e.h. — Blóm afbeðin, en þeim er vilja minnast hans er bent á sjúkrahús Akraness. Steinunn Ólafsdóttir, Ólafur J. Bachmann. Faðir minn, GRÍMUR J. SIGURÐSSON Framnesvegi 48, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 3 e h. Sigurður Snæland Grímsson og aðstandendur. Við þökkum innilega öllum ættingjum og vinum nær og fjær fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för konu minnar og móður okkar, INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR Kristjón Sigtryggsson, Margrét, Skúli og Sigurður Sivertsen. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför ARNHILDAR JÓNASDÓTTUR Friðgeir Axfjörð og börn. María Sigfúsdóttir, Jónas Friðriksson og systkinin. TtfEIB TBHBSIBYC6BIB TAUHUS12M GAROINAL MEST SELDI FORDBÍLLINN Á ÍSLANDI j V-4 vél og framhjóladrif, sem skapar óviðjafnanlega aksturshæfileika, í snjó, á maiarvegum og hraðakstursbrautum. Vegna framhjóladrifsins er slétt gólf og því meira rými fyrir farþega en í nokkrum öðrum þii í þessum stærðarflokki. Heimsmethafi í 300.000 km þolraunaakstri. ŒUKOSOÐtt. CORTINA Fáanlegur með gírskiptingu í gólfi eða á stýri, með heilum frambekk eða stólum. Eini Fordbíllinn í þessum stærðar- flokki, sem fáanlegur er með sjálf- skiptum gírkassa. Margfaldur sigurvegari í fjölmörgum. aksturskeppnuiíí. JAFNAN FYRIRLIGGJANDI © aitiifr 3 KR. KRISTJÁNSSDN H.F. D fl Ifl SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI-3 53 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.