Morgunblaðið - 26.07.1964, Blaðsíða 27
*
Sunnuctagur 2Í. júlí 1964 MORGJJNBLAÐIÐ
27
Ekkert nema erfiðið
AÐFARANÓTT föstudags var
borizt inn í Rúllu- og hleragerð-
ina á Klapparstíg 8. Þjófurinn
brauzt fyrst inn í verkstæði fyr-
irtækisins á neðstu hæð. Þaðan
braut hann sér leið upp á loft og
braut upp hurð að skriístofunni.
Þangað rogaðist hann með mikið
af verkfærum frá neðri hæðinni
og tók síðan til við að reyna að
logsjóða sundur peningaskáp.
Svo fór þó, að tilraunin mistókst,
og yfirgaf þjófurinn húsið, án
þess að hafa nokkuð upp úr
allri fyrirhöfninni.
—- Loftskeytastöð
Frh. af bls. 28
á Seyðisfirði, má segja, að hún
'komi að takmörkuðum notum,
enda beinast viðskipti skipa fyr-r
ir Austurlandi æ meir að Nes-
kaupsstaðar „Radíó". Normenn
og Englendingar, sem oft eru
fjölmennir hér fyrir utan, snúa
Bér einnig æ meir til þessarar
stöðvar.
Til dæmis um þá þjónustu, sem
loftskeytástöðin hér innir fyrir
síldarflotann, gat Haraldur þess,
að nú síðan um síðustu mánaða-
mót og til 24 þ.m. hefði loft-
Bkeytastöðin afgreitt 545 samtöl
frá skipum og í landi fyrir utan
allt annað. Hann sagðist vona,
að sjóm.enn fvrir Austurlandi
yrðu ánægðir með þessa bættu
jþjónustu. Hann gat þess einnig,
að á kvöldin er smærri símstöðv
arnar fyrir sunnan Neskaups-
stað lokuðu, þá gætu síldarradíó
in á hverjum þessara staða haft
samband við loftskeytastöðina
hér og hún annazt alla fyrir-
greiðslu fyrir þá.
Einnig sagðist hann vilja
leggja áherzlu á, hve geysilegt
öryggi þetta væri öllum sjófar-
enaum fyrir Austurlandi. Þarna
væri hlustvörður allan sólarhr-
inginn, stillt værr á neyðarbylgju
svo að ekki ætti að fara fram
hjá hlustverði, ef neyðarkall
kæmi frá slcipi út af Austfjörð-
um. „Það sem vantar nú, er betra
ihúsnæði", sagði Haraldur að lok
um..
Yfirmaður loftskeytastöðvar-
innar hér er Axel Óskarsson, en
auk hans þeir Hörður Stefánsson
og Friðrik Guðmundsson
Ásgeir
— Singapore
Framhald af bls. ll
að selja hverjum, sem hafa vill,
matvæli, en vegna útgöngubanns
ins er erfitt að gera sér grein
fyrir hve margir hafa orðið við
tilmælum þessum.
í gærkvöldi réðust 50 Kínverj-
ar í svörtum klæðum með hvít
bönd um handleggina á sveit úr
Singapore. Voru Kínverjarnir
vopnaðir kylfum, prikum og öðr-
um bareflum. Hermönnunum
tókst að hrekja árásarmennina
á fiótta. Ekki er vitað hvort nokk
ur særðist í átökum þessum.
Þjófurinn mun hafa búizt við
að hafa eitthvað upp úr krafsinu,
þar sem útborgunardagur var
daginn eftir og líklegt, að eitt-
hvað væri til í peningaskápnum.
Fyrir honum hefur því farið eins
og manninum, sem velti stein-
inum, er á var letrað: Mikið fær
sá er mér veltir. Hinum megin á
steininum stóð: Ekkert nema erf
iðið.
Útsvör /
Ketlavík
NIÐURJÖFNUN útsvára í Kefla
vík er nú lokið, og hefir útsvars-
skráin verið lögð fram.
Alls var jafnað niður í út-
svör og aðstöðugjöld 25,2 milljón
ir á 1385 einstaklinga og 76 fyrir
tæki.
Jafnað var niður samkvæmt
hinum nýja útsvarsstiga, frá
þeim stiga voru öll útsvör lækk
uð Um 800 krónur og síðan öll
um 10%, og allar bætur almanna
trygginga undanþegnar útsvars-
álagningu.
Hálft útsvar var lagt á þá sem
orðnir voru 65 ára og 70 ára og
eldri undanþegnir öllum álögum
þá voru öll útsvör 1000 krónur
og lægri felld niður.
Þeir einstaklingar, sem bera
yfir 50 þúsund krónur í útsvar
eru þessir:
Gunnlaugur Karlsson 100.400,00
Johann Ellerup 77.500,00
Sigurður Kristjánss. 63.500,00
Theodór Þorvaldsson 53.900,00
Magnús Bergmann 53.500,00
Björn Magnússon 50.000,00
Tvö fyrirtæki greiða yfir 50
þúsund í útsvar og eru það:
Fiskiðjan h.f. 254.300,00
Bræðslufél. Keflav. h.f. 75.700,00
Hæstu aðstöðugjöld greiða:
Kaupfélag Suðurnesja 504.000,00
Fiskiðjan s.f. 264.700,00
Keflavík h.f. 255.100,00
Hraðfrystihús K.víkur 178.000,.00
Jökull h.f. 177.900,00
Aðalstöðin h.f. ' 134.600,00
Álögð útsvör nema alls 20,9
milljónum og aðstöðugjöld 4,3
millj ónir.
— Sildin
Frh. af bls. 28
NESKAUPSTAÐ 25. júlí. — Hing
að komu í dag eftirtaldir bátar:
Guðný Jónsdóttir með 600 tunn-
ur, Guðbjörg ÍS 500, Faxaborg
300, Blíðfari 100, Slgurbjörg 80,
Hafrún NK 200, Eldey 400, Sif 50,
Svanur IS 200 Otur 300, Sigur-
von RE 500, Náttfari 400 mál.
Þessi síld veiddist mest í Reyð-
arfjarðardýpi. Hægur vindur er á
miðum, en talsverður sjór, svo að
síldin vill slást til í lestinni og
notast illa til söltunar. — Ásgeir.
Á fimmtudag fór blfreiff út af vegl skammt frá Bifröst. Valt bif-
reiffin og skemmdist mikið, en ekki varð slys á farþegum. Hér
sést kranabifreið ná bifreiðinni upp.
(Ljósm.: Jón Ingimarsson)
Iðniyrirtækí stofnað í
Fellshreppi eystrn
Flótti
AUSTUR-þýzkum túlki tókst
fyrir skömmu aff flýja frá
Aaustur-Berlín. Hann var aff
sýna ferðamönnum múrinn
milli borgarhlutanna, þegar
hann ákvað að reyna aff
stökkva yfir. Honum tókst
það og franskur ferðamaður,
var á gangi hinum megin múrs
ins tók mynd af flóttamann-
inum.
Lagarfelli 24. júlí.
NÝLEGA var stofnað í Fella-
hreppi á Héraði hlutafélagið yl-
ur til framleiðslu á einangrunar-
plasti. Stjórn félagsins skipa:
Vignir Brynjólfsson, Guðmundur
Magnússon og Þórarinn Pálsson.
Hófst framleiðslan fyrir skömmu.
Þeir framleiða ca. 10 rúmmetra
á dag og er það starf fyrir 3—4
menn. Tækin við framleiðsluna
eru heimasmíðuð, ýmist hjá
Steinþóri Eiríkssyni á Egilsstöð-
— Neyðarástand
Framhald af bls 1
ar unglingsins á lögreglumenn-
ina og kom til átaka. Fregnir af
atburði þessum bárust hundruð
um blökkuunglinga, sem voru að
skemmta sér á götudansleik í
nágrerfnihu og þyrptust þeir á
staðinn. Þar voru aðeins tveir
lögreglumenn fyrir, en þegar
blökkumönnum umhverfis þá
fjölgaði sendu þeir eftri auknum
liðsstyrk og 15 lögreglubifreiðir
komu með menn til aðstoðar. Til
mikilla átaka kom og köstuðu
unglingarnir grjóti að lögregl-
unni. Lögreglumennirnir sáu sér
ekki fært að berjast lengi við
þennan fjölmenna hóp, en reyndu
að dreifa honum með táragasi og
vatnsbunum, en allt kom fyrir
ekki. Var þá gripið til þess ráðs
að afgirða svæðið i>ar sem óeirð-
irnar fóru fram í von um að til
rofaði. En þá tóku unglingarnir
ða brjóta rúður í verzlunum og
vinna spjöll á vörum, sem voru
til sýnis í gluggunum. Herma
fregnir, að margir hafi haft ýms
an varnig á brott með sér t.d.
sjónvarpstæki, húsgögn og vín.
Brutu menn rúðurnar með hnef
unum og særðust margir.
Eftir að lögreglan hafði gefizt
upp í viðureigninni við óróasegg
iina, var lýst nyaðaráílandi í
Rochester og skömmu síðar
komu 200 lögreglumenn þangað
frá nærliggjandi svæðum. Var
þá hafizt handa á ný um að reyna
að koma á lögum og reglu, en
það virtist ætla að verða erfitt.
Eftir að óeirðirnar hófust í
blökkumannahverfinu, kom til
átaka víða annarsstaðar í Rochest
er. Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum, að hvítir unglingar
hefðu notað sér ringulreiðina og
rænt verzlanir.
um eða á staðnum, nema mótið,
sem plastið er steypt í. Það smíð-
uðu þeir Sigmundur Lúðvíksson
Barmahlíð 6 og Trausti Gíslason
Bugðulæk 10 Reykjavík.Steypu-
mótið hefir reynzt framúrskar-
andi vel. Húsnæðið er lítið og
frumstætt, tækjunum komið fyr-
ir í bragga. Barnið vex en brók-
in ekki“ segir gamall málsháttur.
Betra að notast við lélegt hús-
næði meðan starfsemin er að
mótast og byggja yfir hana þeg-
ar betur er séð yfir þörfina, auk
þess sem mikil fjárfesting í upp-
hafi hefir orðið mörgu fyrirtæk-
inu fjðtur um fót eða hreinn
banabiti. Þegar er farið að nota
eystra einangrunarplast frá Y1
hf. — J. P.
Sýslufundur V-
Skaftafellssýslu
SÝSLUFUNDUR Vestur-Skafta-
fellssýslu var haldinn í Vík í
Mýrdal dagana 14.—16. júlí. Á
fundinum var fjallað um ýms
mál, sem snerta V.-Skaftafells-
sýslu og Suffurland í heild.
Samþykkt var að V.-Skaft.
gerðist aðili að byggingu og
rekstri sjúkrahús á Selfossi fyr-
if Suðurland.
Þá voru rædd rafmagnsmál, og
áleit sýslunefndin, að almenn
rafvæðing mundi stuðla mjög að
því að draga úr fólksflóttanum
frá sveitunum, og í því sambandi
beindi sýslufundurinn þeirri
áskorun til raforkumálaráðherra
og raforkumálaráðs, að hefja sem
fyrst undirbúning og framkvæmd
ir að rafvæðingu sveitanna aust
an Mýrdalssands.
Kosnir voru þrír menn í hafn-
arnefnd til þess að vinna að því
ásamt Rangæingum, að höfn
verði gerð við Dyrhólaey. Þessir
voru kosnir í hafnarnefnd: Ein-
ar Oddsson, sýslumaður, Jón
Gíslason, fyrrv. alþingismaður og
Hálfdán Guðmundsson, verzlun-
arstjóri.
Niðurstöðutölur áætlunar um
tekjur og gjöld sýslusjóðs V.-
Skaft. fyrir árið 1964 nema kr.
586,375,15.
— Fréttaritari.
U Tant í föðut-
landi sínu
U THANT, framkvæmdastjórí
Sameinuðu þjóffanna, kom i dag
til föffurlands síns, Burma, í
fyrsta skipti frá því aff hann tók
viff embættinu. Þaff er stjórn
Burma, sem býður framkvæmda-
stjóranum í þriggja daga heim-
sókn til landsins og mun hann
m. a. ræffa við Ne Win hershöfff-
ingja.
Á flugvellinum í Rangoon
sagði U Thant, að viðræðurnar
við hershöfðingjann myndu fyrst
og fremst snúast um SA-Asíu.
Fréttamenn spurðu U Thant um
nýafstaðnar viðræður hans við
de Gaulle Frakklandsforseta og
vildu vita hvort framkvæmda-
stjórinn hefði sömu skoðanir á
málefnum SA-Asíu og forsetinn.
U Thant sagðist aðeins geta svar-
að þessu með því að segja, að
þeir hefðu verið sammála um að
leita bæri friðsamlegrar lausnar
deilumálanna.
Meðal þeirra, sem tóku á móti
U Thant á flugvellinum í Rang-
oon, var áttræð móðir hans, Daw
Aye Thant og aðrir meðlimir
fjölskyldu hans. U Thant heils-
aði móður sinni innilega og
gamla konan var svo hrærð, að
hún kom ekki upp orði þegar
sonur hennar spurði hana hvem-
ig henni liði.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæsta réttarlögmaffur
Þórshamri við Templarasund
Sími 1-11-71
Áki Jakobsson
hæstaréttarlögmaður
Austurstræti 12, III. næð.
Símar 1593P og 38055