Morgunblaðið - 05.12.1964, Blaðsíða 30
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. des. 1964
snilld og getu dönsku meistaranna
f GÆRKVÖLDI kepptu hinir
dönsku badmintonsnillingar, sem
hér eru gestir TBR, innbyrðis í
Valshúsinu. Fieiri en þeir 300
sem komu hefðu getað komizt
að til að sjá frábæra tækni þeirra
og snilld, sem ekki verður lýst
með orðum en allir gætu skemmt
sér við, jafnvel þó þeir hefðu
aldrei séð badminton áður. Síð-
ari sýningarkeppni þeirra verður
á sama stað kl. 3 í dag.
f dag leika þeir einliðaleik
Erland Kops heimsmeistari og
Henning Borch (þeir sem
siigruðu í gær) og Torben
Kops og Svend Andersen.
Loks verður tvíliðaleikur
milli Svend Andersen og Er-
lands Kops annars vegar og
Hennings Borch og Torben
Kops hins vegar.
★ Kynning
Kristján Benjamínsson einn
af stjórnarmönnum TBR setti
mótið oig rakti ágæta samvinnu
TBR við danska badminton-
menn og fagnaði því að nú loks
hefði TBR tekizt að fá fjóra
Víðfræga úrvalsmenn sam-
tímis hingað til að sýna það bezta
í íþróttinni.
Hann kynnti síðan hvern hinna
nafntoguðu gesta, litlar telpur
færðu þeim hverjum fyrir sig
blómvendi oig áhorfendur fögn-
uðu þeim forkunarvel.
+ Góður leikur
Síðan léku þeir bræðurnir
Torben Kops og Erland Kops,
sem er heimsmeistari í einliða-
leik. Það var skemmtileg og
hressileg viðureign og á köflum
stóðu áhorfendur, sem þó að
me4rihluta voru iðkendur bad-
mintons agndofa yfir frábærri
sniild þeirra og hæfni, ekki sízt
í bakhandarslötgum sem voru í
senn nákvæm og kröftug.
Viðureign bræðranna var
hörkuspennandi. Fyrst komst
eldri bróðirinn Erland í 4-0 en
„litli bróðir“ sem þó er stærri
að vöxtum, tók sig á og sneri
taflinu við og komst í 4-8. Síðan
var baráttan mjög jöfn uns
heimsmeistarinn tók forystuna
og vann fyrstu lotu með 15-12.
í annari lotu byrjaði Torben
Kops mjög vel og komst í 5-0,
og litlu síðar var staðan 9-1 hon-
um í vil. Þá fór nú að síga í
heimsmeistarann og hann jafn-
aði stöðuna á stuttum tíma, fyrst
í 9-8 og tók síðan forystu 9-12,
En það nægði honum ekki.
Snerpa yngri bróðursins var mik-
il og hann náði góðum tökum á
„návíginu“ við netið, jafnaði
metin tók forystu og vann lotuna
með 17-14.
Varð nú að taka úrslitalotu
og þar komu í ljós yfirburðir
heimsmeistarans. Hann breytti
stöðunni úr 1-1 í 11-1 og lék af
öryggi og snilld svo unun var á
að horfa. Hann vann lotuna 15-2
og þar með leikinn.
if Spennan vex
Síðan mættust Hennimg Borch
og Svend Andersen, ungur leik-
maður en eldsnöggur og skemmti
legur. Þeirra leikur var miklu
Þessir kunna að handleika badmintonspaða.
og Erland Kops. — Myndir Sveinn Þorm.
Frá v. Svend Andersen, Torben Kops, Henning Borch
írarnir æfðu í gær — sýndu
hraða en ekki mikla tækni
ÞETTA er lið írlandsmeist-
aranna í köruknattleik
Collegianas frá Beifast. Mynd-
in er tekin á æfingu í íþrótta-
húsi Háskólans í gærdag. ír-
arnir eru stórir og sterklegir
leikmenn, fljótir og harðir
af sér. Heldur virtist þó
skorta á tækni hjá þeim og
skot af löngu færi sáust varla
í þessum stutta æfingaleik
sem þeir léku, innbyrðis á
æfingunni í gær. Gera má ráð
fyrir að leikur þeirra vð ÍR
í dag verði mjög jafn og
skemmtilegur og vert er að
benda á að stórleikir í körfu-
knattleik eru ekki hversdags-
legur viðburður hér á íslandi,
svo að menn ættu að tryggja
sér miða í tíma.
Leikurinn hefst í íþrótta-
húsinu á Keflavíkurflugvelli
kl. 4 síðdegis og eru ferðir frá
BSÍ kl. 2.30.
fjörmeiri og fjölbreytilegri en
sá fyrri. Reyndi mjög á þá báða
í návígi og bakhöggum — og
reyndar allt þar á miili. Var frá-
bærri tækni þeirra og leikni oft
fagnað með hressilegu lófataki.
Fyrstu lotuna vann Andersen
með 15-12 eftir frábærlega
skemmtilegan leik af beggja
hálfu, en þó öllu nákvæmari af
Andersen.
Ekki minnkaði spennan í
keppni þeirra í annari lotu og
nú vann Borch með 15-11.
Úrslitalotan varð æsispenn-
andi keppni og sú bezta þetta
kvöld, þar sem báðir lögðu sig
fram, enda berjast þessir tveir
um sæti í landsliði Dana og
þangað komast engir aukvisar í
greininni.
Það mátti aldrei í úrslitalot-
unni á milli sjá, forystu höfðu
þeir til skiptis og þó Svend And-
ersen öllu oftar. Hann hafði t.d.
forystu 16-15 en á síðustu mín-
utum tókst hinum eldri og reynd-
ari Borch að trygigja sér sigur
18-16.
Keppni kvöldsins var frábær
og öllum þeim er á horfðu lengi
minnisstæð. Hún var svo jöfn og
tvisýn að ekki varð á betra kos-
ið hvað það snerti og þessir tveir
einliðaleikir stóðu til kl. 11. Þá
ætluðu þeir að taka tvíliðaleik en
frásögn af honum verður út-
undan í þessu, blaði tímans
veigna.
Niðurröðun
skíðumólu
í vetur
Skíðará'ð Reykjavíkur hefur nú
endanlega gengið frá keppnis-
skýrsilu sinni fyrir veturinn 1965,
og að öllu forfallalausu verða
skíðamótin veturinn 1966 sem
hér segir: 31. jánúar, Úrslit í
firmakeppni Skíðaráðs Reykja-
víkur. Keppni haldin í Hamra-
gili. Í.R. annast mótið. 6. febrúar,
Afmælismót K.R. í Sbálafelli.
7. febrúar, Stefánsmót, haldið í
Skálafelli K.R. sér um mótið.
21. febrúar, Reykjavíkurmót í
Jósefsdal. Ármann sér um mótið.
28. febrúar, Reykjavíkurmótið,
framhald. Ármann sér um mótið.
7. marz, Reykjavíkurmótið, fram.
hald. Ármann sér um mótið. 4.
apríl, Stórsvigsmót Ármanns,
haldið í Jósefsdal. Steinþórsmótið
er ekki búið að ákveða stað né
dag fyrir.
Undanrásin fyrir firmakeppni
Skíðaráðs Reykjavíkur mun eins
og undanfarin ár vera haldin við
skála félaganna, og aðeins úrslita
keppnin haldin sameiginlega.
Skíðaráð Reykjavíkur
Enshu
knuttspyrnan
ÚRSLIT leikja í ensku deildar-
keppninni, sem fram fóru sl. laug
ardag, urðu þessi:
1. deild:
Arsenal — Manchester U. 2-3
Aston Villa — Burnley 1-0
Blackburn — Fulham 2-0
Blackpool — N. Forest 0-2
Chelsea — West Ham 0-3
Leeds — W.B.A. 1-0
Leicester — Birmingham 4-4
Liverpool — Tottenham 1-1
Sheffield W. — Stoke 1-1
Sunderland — Everton 4-0
Wolverhampton — Sheff. U. 1-0
1. Manchester U. 32 st.
2. Chelsea 29 —
3. Leeds 28 —
Beztu badmintonmenn
okkar horfÖu agndofa á