Morgunblaðið - 05.01.1965, Page 1
28 síður
Malaysía eflir varnirnar, þar eð
Indónesia hyggst segja sig úr SÞ
Göngum ef til vill í samtökin, þegar kjörtímabil
It/fialaysíu rennur út, segir talsnraður Indónesíu
Ólafur Xhors
Útför Ólafs Thors gerð
frá Dómkirkjunni í dag
Kuala Lumpur, New York,
f ÍDjakarta, 4. janúar.
# Stjórn Malaysíu kom saman
til sikymlifundar í dag: og að hon-
Wm loknum skýrði forsætisráð-
herra landsins, Abdul Rahman,
frá því, að varnir landsins yrðu
cfldar vegna hins hættulega á-
Btands, sem skapazt hefði, eftir
að Indónesíumenn lýstu því yfir
*ð þcir ætluðu að segja sig úr
Sameinuðu þjóðunum, vegna
|»ess að fulltrúi Malaysíu var
kjörinn í Öryggisráð samtak-
BJina.
# Ekki hafa Indónesíumenn
ennþá sagt sig formlega úr SÞ,
®g í aðalstöðvum samtakanna er
litið svo á, að þeir séu aðilar að
London, 4. jan. — (NTB)
BREZKA stórskáldið T. S.
Eliot lézt í kvöld á heimili
*ínu í London, 76 ára að aldri.
T. S. Eliot
Eliot var fæddur í St. Louis í
Missouri í Bandaríkjunum,
en forfeður hans fluttust til
800 þús. til
A.-Berlínar
um jóiin
Berlín, 4. jan. (NTB).
BÉMEF.GA 800 þús. V.-Berlín-
arbúar heimsóttu ættingja sína í
A.-Berlín um jólin og áramót-
In. Berlínarmúrinn var opnaður
fyrir slíkar heimsóknir 19. des.
e.l., en allir, sem fengu að fara
Inn í A.-Berlín, þurftu að hafa
eérstök vegabréf. Hver maður
mátti dveljast fyrir austan múr-
iim einn sólarhring i senn og
ffara þangaff tvisvar á timabil-
inu frá 19. des. til 3. jan., en
þá var múrnum lokað á ný. Verð
nr hann ekki opnaður aftur fyrr
en um páska og verður þá opinn
I bálfan noánuð
þeim, þar til borizt hafi skrifleg
úrsögn.
# Talsmaður Indónesíu hjá SÞ
sagði í dag, að Indónesíumenn
væru staðráðnir í að falla ekki
frá ákvörðuninni um að segja sig
úr samtökunum, en hugsanlegt
væri, að þeir gengju í þau aftur,
er kjörtimabil fulltrúa Malaysíu
í Öryggisráðinu rynni út eftir ár.
• Bretar senda nú aukinn liðs-
styrk til Malaysíu samkvæmt
samningi, sem gerður var í ágúst,
og Ástralíustjórn hefur ákveðið
að flýta umræðum um aukna
hernaðaraðstoð við Malaysíu,
vegna ástandsins, sem skapazt
hefur.
Að afloknum skyndifundi
Bandaríkjanna frá Englandi
á 17. öld. Eliot nam heim-
speki og málvísindi við Har-
vard-háskóla, Sorbonne-há-
skóla og háskólann í Oxford.
Hann settist að í Bretlandi
1914 og varð brezkur ríkis-
borgari 1927.
Að loknu nánfi starfaði
Eliot sem kennari í London,
en síðar hóf hann störf í
Lloyds hanka. Frístundir
sínar notaði hann til að yrkja
og skrifa bókmenntaritgerðir.
1915 birtist fyrsta ljóðið eftir
Eliot „The Love Song of J.
Alfred Prufrock“ og vakti
mikla athygli. Frægast verka
hans er ..The Waste Land.“
Eliot hlaut hókmenntaverð-
laun Nóbels 1948.
Sjá grein um Eliot inni í
hlaðinu.
Malaysíustjórnar í dag, lýsti Ab-
dul Rahman, forsætisráðherra,
því yfir, að svo gæti farið, ,að
stjórnin bæði SÞ um aðstoð til
þess að hamla gegn yfirgangi
Indónesíumanna. Hann skýrði frá
því að stjórnin hefði samþykkt
áætlun í fjórum liðum á fundi
sínum og væri hún, sem hér seg-
ir:
1) Að biðja bandamenn Malay
síu um að rannsaka ástandið ná-
kvæmlega og senda aukinn her-
styrk, ef nauðsyn bæri til.
2) Að skýra SÞ frá hve mikil
hætta Malaysíu stafaði af Indó-
nesíumönnum og árásum þeirra,
sem yrðu æ tíðari, og biðja sam-
tökin um aðstoð, yrði það nauð-
synlegt.
3) Að kalla fleiri menn til her
þjónustu og koma á fót fleiri
þjálfunarstöðvum í landinu.
4) Að undirbúa gagnaðgerðir,
sem gætu orðið nauðsynlegar til
að tryggja framtíð landsins.
Ef Indónesíumenn gera alvðru
úr að segja sig úr SÞ, eru þeir
fyrsta þjóðin, sem það gerir frá
stofnun samtakanna. Talsmaður
Indónesíu sagði í gær, að Indó-
nesíumenn litu ekki á sig sem
aðila að SÞ og teldu ákvarðanir
samtakanna ekki bindandi.
Framh. á bls. 27
ÚTFÖR Ólafs Thors, fyrrum for
sætisráðherra, verður gcrð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
og hefst athöfnin kl. 1,30. —
I í Morgunblaðinu í dag er hins
I látna leiðtoga og stjórnmála-
skörungs minnst, m.a. í ritstjórn-
argreininni „Leiðtogi kvaddur",
en affalgreinina skrifar dr. Bjarni
Benediktsson forsætisráffherra,
formaffur Sjálfstæðisflokksins.
Aðrir sem.skrifa kveðjuorð og
minningar um Ólaf Thors í blaðið
í dag eru: Árni Grétar Finnsson,
formaður Sambands ungra Sjálf
stæffismanna; Björgvin Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands íslands; Einar
Halldórsson, bóndi, Setbergi; —
Friðleifur I. Friðriksson, vörubif
reiðarstjóri; Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri; Gísli Jónsson, fyrrv.
alþingismaður; Gunnar Gunnars-
son, rithöfundur'; Gunnar Helga-
son, formaður Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins; ' Gunnar
Thoroddsen, fjármálaráðherra;
dr. Halldór Hansen yfirlæknir;
Hannibal Valdimarsson, forseti
ASÍ og formaður Alþýðubanda-
lagsins; Jóhann Hafstein, dóms-
málaráðherra; Jón Ásbjörnsson,
fyrrv. hæstaréttardómari; Jón
Pálmason, Akri, fyrrv. alþingis-
forseti; Jón Sigurðsson, Reyni-
stað, fyrrv. aliþingismaður; María
Maaek, formaður Sjálfstæðis-
kvennafél. Hvatar; Matthias Á.
Mathíesen, alþingismaður; Odd-
ur Andrésson, bóndi Neðra Hálsi;
Ólafur Bjarnason, bóndi, Brautar
holti; dr. Páil ísólfsson, tónskáld;
Pálmi Einarsson, landnámsstjóri;
Pétur Ottesen fyrrv. alþingismað
ur; Pétur Sigurðsson, formaður
Sjómarmadagsráðs, Sigurður Hall
dórsson, Akranesi; dr. Sigurðu
Nordal, prófessor; Steingrímur
Steinþórsson, fyrrum forsætisráð
herra; Steini Guðmundsson,
bóndi, Valdastöðum; Stvrmir
Gunnarsson, formaður FUS Heim
dallar; Sverrir Júlíusson, form.
Landssambands ísl. útvegsmanna
og frú Vigdís Jakobsdóttir, Kefia
vík.
Ólafur Thors var fæddur hinn
19. janúar 1892 í Borgarnesi, son-
ur hjónanna Thor Jensens, kaup-
manns þar og síðar stórútgerðar-
manns og bónda á Korpúlsstöð-
um og Lágafelli, og Margrétar
Þorbjargar Kristjánsdóttur fró
Hraunhöfn í Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi. Ólafur Thors kvæntist
eftirlifandi konu sinni Ingibjörgu
Indriðadóttur 1915, og eignuðust
þau 5 börn, og eru 4 þeirra á
lífi. Þau eru: Marta, gift Pétri
Benediktssyni, bankastjóra; Thor v
framkv.stjóri íslenzkra Aðalverk
taka s.f., kvæntur Stefaníu
Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra
Jónssonar frá Galtafelli; Ingi-
björg, gift Þorsteini Gíslasyni,
framkv.stjóra SH í New York,
Jónssonar fyrrum alþingismanns,
og Margrét, gift Þorsteini Jóns-
syni, flugstjóra, syni Snæhjarnar
bóksala Jónssonar. Son misstu
Iþau hjón, Thor að nafni, og iézt
hann þegar hann var 4ra ára
Framhald á bls. 2
Yfir 60 létust
|er kirkja hrundi
Mexikóborg 4. jan. (NTB)
SKÝRT var frá því í nött, aff
minnsta kosti 61 maffur hefði
látiff lífiff, er kirkja hrundi í
bænufn Rijo í Peublariki í
Mexikó í gær.
Ekki er kunnugt um orsa'k-
ir slv-sis þessa ,en það varð,
meðan verið var að vígja
kirkjuna, sem var nýibyggð.
Lögreglan rannsakar nú
rnálið og beinist rannsóknin
tfycrst og fremst að bróður
prestsins. Hann stá um bygg-
ingu kirkjunnar, en hefur ekki
réttindi, sem bygginigameisf-
ari. Hann var etkki í kirkj-
unni, er þakið hrundi. Daginn
áður en slysið varð voru fjar-
iægðir biáðil’oirg'ðaistólpar,
sem studdu þakið.
Presturinn var meðai! þeirra
sem létust er þak kirkjunnar
hrundi. Talið er að um 35
menn hafi slazast alvarlega.
Ekki er vitað nákvæmileiga hve
margir voru- í kirkjunni,
talið a'ð það hafi verið hátt
annað hundrað manns.
Björgunarsveitir voru send-
ar til Rijo frá Mexikóborg, um
160 km. vegalengd, til þess að
bjarga mönmum úr kirkjurúst
unum. Óttast er, að enn séu
nokkrir gratfnir undir þakinu
og lítil von er taJin um,
þeir séu á iífi.
en
á
að
T. S. Eliot látinn
r