Morgunblaðið - 05.01.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.01.1965, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. janúar 1965 ina. Hann var stórhuga maður, sem alltaf stefndi fram á veginn. Hann var því sjálfkjörinn for- ingi, sem þjóðin treysti og trúði. Með óbilandi kjarki, drengskap og víðsýni tókst honum oft að Sameina sundruð öfl til dáða fyrir land vort og þjóð. Þegar lýsa á jafn stórbrotnum manni og Ölafur var, þá verða orð harla fánýt, þar eru það verk in sem fyrst og fremst tala sínu máli. Þó vil ég minnast á einn þátt í fari hans, sem ég varð alltaf var við og lýsir drengskap hans vel, en það var umhyggja hans fyrir öllum þeim er áttu við erfið kjör að búa. Þetta veit ég að allir hafa komizt að raun um, sem báru gæfu til að kynn- ast honum. Það kom oft í hlut hans að vinna að lausn erfiðra vinnu- deilna. Þar bar oft mikið á milli og sitt sýndist hverjum eins og gengur og gerist, en flestir verka lýðsleiðtogamir hafa gefið ólafi það orð, að við hann væri gott að tala og semja og ef hann leysti ekki hnútinn gerðu aðrir það ekki. Átti þetta jafnt við um and stæðinga í stjórnmálum, sem og samherja. í þessum málum kom fram ^ríkur skilningur Ólafs á því, að bæta lífskjör fólksins og tryggja að allir byggju við sem beztan hag. Og jafnframt hans ríku eig inleikar til að taka tillit til skoð ana annarra og sætta ólík sjónar mið. Sérstaklega minnist ég þó þess, hvað sjómennirnir áttu hug hans allan í þeirra áhættusama og erfiða starfi á hafi úti. Ég vil í nafni Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins þakka Ólafi forystuna og þann góða hug sem hann sýndi samtökum launafólks. Ástvinum hans flyt ég minar innilegustu samúðarkveðjur og bið Guð að vera með þeim í sorg þeirra. Gunnar Helgason. t TÆPLEGA tvítugur kynntist ég Ólafi Thors og fann þegar bjarn- ylinn af hans sterku persónu, eins og Ámi Pálsson komst eitt sinn að orði um Hannes Hafstein. Kraftur og hlýja fóru þar fágæt- lega sarnan. Þrótturinn í skapi, orði og atlhöfn vöktu í senn undr- un og áðdáun. Ylurinn hlýjaði um hjartarætur og kallaði fram þessa þægilegu kennd að þykja vænt um mann við fyrsta fund. Ólafi Thors var gefið sei'ðmagn persónuleikans í ríkum mæli. Fáa menn hef ég þekkt, er bjuggu sem hann yfir slíkum Ihæfilei'ka til þess að tala menn á sitt mál. En um leið var hon- um getfin ríkulega sú list að kunna að hlusta með gaumgæfni á viðmælendur sína. Kannske voru þessir eiginleikar tveir tvinnáðir saman. Nálægt 1930 fór vakningaralda eeskuifólks yfir ísland. í öllum stjórnmálafliokkium vom stofn- uð félög ungra manna, en fyrst þeirra var félag ungra Sj'álfstæð- ismanna í Reykjavík, Heimdall- ur. Þau samtök tóku upp baráttu fyrir ýmsum framfara- og félags- málum, sem þá voru ekki á stefnuskrá flokksins, og vildu beina honum í frjálslyndari átt en hann hafði áður fylgt. Það varð á næstu árum hlut- skipti Ólafs Thors, öðrum mönn- um fremur, að sveigja Sjálfstæð- isflokkinn til þeirrar áttar um- Ibóta og frjálslyndis, er æskan "oskaði. Þáð sýndi vitsmuni hans, og lagni, hversu vel þar tókst til. Við skírn hlaut hann nafnið Ólafur Tryggvason. Snorri Sturlu son segir í Heimskringlu um al- nafna hans, Ólaf Tryggvason Noregskonung, að hann hafi verið „allra manna glaðastur". Þau orð vom einnig sannmæli um Ólaf Thors. Fjörið og fyndn- Ólafur Thors býður Gullfoss hinn nýja velkominn af hafi úr fyrstu för. in leiftruðu. En alvaran og á- byrgðin stóðu föstum fótum, grunnmiúruð. Einlægar samú'ðarkveðjur sendi óg ástvinum Ólafs, en sjálfum honum fylgja þakkir og fyrirbænir, er hann gengur nú inn í fögnuð herra síns. Gunnar Thoroddsen. t FYRSTU kynni mín af Ólafi Thors voru í barnaskóla Hafnar- fjarðar á árunum 1899-1900, er hann var aðeins 7-8 ára gamall. — Hann vakti þá þegar athygli mína og annarra vegna þess hversu óvenjulega glaðvær, að- laðandi og drenglundaður hann var. — Það var upphaf vináttu okkar, sem aldrei síðar bar skugga á. að njóta skilnings hans og góðra ráða, er erfiðleika bar að hönd- um. —Ég dáist þó ekki síður að karlmennsku hans og æðruleysi, er hann sjálfur átti í höggi við andstreymi og sjúkdóma, og það til hinnstu stundar. Þegar ég sá hann síðast, með fullri rænu, í banalegunni, lék milt bros um andlit hans, er hann leit á mig , ég sá þá að hann vissi að kallið var komið. — Þannig bregðast hetjur við dauða sínum. Ólafur Thors var mikill gæfu- maður, sem unni þjóð sinni af heilum hug og bar igæfu til að standa sigursæll í fararbroddi í frelsisbaráttu hennar og síðar á mesta framfaraskeiði hennar. En mesta lán hans í lífinu hygg ég að hafi verið æskuástin hans, er entist til æviloka. Nokkrum árum síðar lágu leið- ir okkar saman, en þá í Mennta- skója Reykjavíkur, og loks þeg- ar ég hóf læknisstarf mitt hér í bæ, vorið 1016, hlotnaðist mér sú sérstaka ánægja að fá að verða heimilislæknir hans og hélzt það til hans hinztu stund- ar. í mínum augum var hann ævin lega glæsimennið og göfugmenn- ið, bæði í sjón og reynd, enda vakti persónuleiki hans, eins og kunnugt er, sérstaka athygli ekki aðeins hér á landi heldur og eigi síður meðal erlendra stórmenna og stjórnmálamanna er honum kynntust. — Gáfur hans voru leiftrandi og víðsýnin mikil svo að honum reyndist auðvelt að leysa á skömmum tíma hin erf- iðustu viðfangsefni, er sí og æ mættu honum á lífsleiðinni bæði í stjórnmálum og á öðrum svið- um. — Hann lét aldrei bugast undan þunga ábyrgðarinnar í starfi sinu sem stjórnmálamanns í fararbroddi, á meðan heilsan entist, né undan oft harkalagum árásum andstæðinga sinna, en ég undraðist oft með hve mikilli vinsemd og sanngirni hann talaði um mótherja sína í mín eyru. Hann var sannur mannvin- ur, er lét sér mjög umhugað um velferð hinna minnimáttar í þjóð félaginu og ég efast um að í hjarta sínu hafi hann átt einn einasta óvin. Hitt er eins víst að vinir hans og aðdáendur eru ótelj andi. — Það var mikið happ að fá að vera námn vinur slíks manns og þannig fá tækifæri til Frú Ingibjörgu, með sinni ein- dæma hjartahlýju og óbugandi jafnvægi á hverju sem gekk, mætti líkja við brimbrjót í öldu- róti hins daglega lífs hans. Heim- ili hans var hans kastali, í þess orðs fyllstu merkingu og í því andrúmslofti var gott að vera. Hann átti og miklu barnaláni að fagna. Við fráfall Ólafs Thors, hefir ekki aðeins eiginkona hans, börn, nánustu ættingjar og vinir mikils misst, heldur og þjóðin öll. En minningin um hinn glæsta foringja og mannvin mun aldrei fyrnast. Blessuð sé minning hans. Halldór Hansen. t ÓLAFUR . THORS fyrrurn for- sætisráðherra er horfinn af sviði íslenzkra stjórnmála. Fáir höfðu honum lengur háð þar glímiuma. Hann var á sjötug- asta og þriðja aldursári, er hann lézt — aldur. J.rseti Aiþingis var hann og hafði setið á 47 þinigium auk þess sem yfir stóð. Má því með sanni seigja, að óvenju lengi entist honum fjör og þrek í því eitraða návígi á- takanna og stjómjmálabaráttunn- ar, sem svo mörgum íslenzikum stjórnmálamanni heflur áður orð ið að aldiurtila. Lífsgleðin var Ólafi Thors ó- brigðulll förunautur. Hann var maður hins hispurglauisa hressi- leika - gæddur óvenj'ulegum um gengnishæifileikum. Með gáska í fasi og gamamsömu tilsvari tókst honum oft að þoka moll- unni til hliðar í einu vetfangi, er fundum bar saman. Ég verst því ekiki að viitna til þeirra orða Ftornólfs, er hann við hafði um annan íslenzkan höfð- úigja fyrr á tíð: „Bæði af honum gustur geðs og gerðarþokki stóð.“ Að Óijafi Thors er mikill sjón- arsviptir £ sölum Alþingis, og ís- lenzkt samfélag er fasmiklium persónuleika fátækara. Um þetta held ég, að menn verið aimennt sammála. En hjá því gat ekki farið, að Ólafur Thors væiri umdeildur maður. Þó var það áreiðanlega meira stjórnmálamaðurinn en persónan sjálif, sem deilt var um. Hans ileiðir í stjórnmélum, ‘ voru leiðir þeirra hagsmuna- hópa og stétta, sem Sjá'lfstæðis- flokkurinn er fulltrúi fyrir. Og í sínum flokki hygg ég, að hann hafi verið mikill mannasættir enda sýnt yfirburðahæfileika til I að halda ósaimsitæðum öflum saman. Um þá hlið mannsins ræði ég ekki. Við vorum fulltrúar and- stæðra hagismuna og stétta á Al- þingi. Það var því hlið andstæð- ingsins en ekki samlherjans, sem að mér sneri. Og hvernig var þá Ólafur Thtors, sem pólitLskur andstæð- ingur? Óneitanlega harður andstæð- ingur. En hitt brást sjaldan, að hann væri þrátt fyrir allt skemmtilggur andstæðingur. 111 skeyttur gat hann verið, en ekki heiptrækinn. Hann gat hræsinis laust tekið í hönd andstæðingi sínum eftir harða viðureign, að- eins ef honum fannst hann ekki leiðiniegur. Dj úphyggjumaður held ég, að Ólafur hafi ekki verið, en hann var fljótur að átta sig, laus við sjálfbirgin.gsskap, fús á aS taka till.it til annarra og sáttfús. Þassir eiginileikar held ég, að ibafi orðið honum heilladrjúgir á lífsleiðinni og átit verulegan þátt í farsæld hans í störfum á stjórnmálasviðinu. Tvær leifturmyndir að lokum. Það var á þinginu 1946 undir umræðum um hitamiál í Eifri- deild Alþingis. Éig hafði aðeins verið fáa daga á þingi og var- aði mig ekki á þrengslunum í Aiþingishúsinu. Ég reis úr sæti nokkuð snöggt og skaut stó num aftur um leið. Finn ég þá, að ég hef rekið stólinn allharkalega í einhvern, sem við veg.ginn stóð fyrir aftan mig. Hálfbilt várð mér, er ég sá, að þetta var Ó'laf- ur Thors forsætisráðherra. En hann var hinn hressasti og sagði: „Þetta var þá fyrsti áreksfcurinn okkar“. Sá ég, að 1/Jnum líkaði stórum vel, en mér varð ekki orðfall beldur, svaraði að bragði: „Og vonandi ekki sá síðasti." Hitt atvikið, sem ég vil minn- ast, varðar þvingunarlagafrum- verpið í fyrrahaust. Þá voru um ræður harðar og hiti í mönnum. Var ég þar ekki bamanna bezt- ur í garð forsætisráðlharra og stjórnarinnar. En það skal játað, aö þá fannst mér til um Ólaf Thors, er hann sýndi það pó.i- tísika þor og þá manndómslegiu sáttfýsi, að taka frumvarpið aft- ur og bjóða að setjast heldur að samningaborði. Slikt spor heifði enginn póilitískur heiguill, né heiptrækið smámenni stigið. Og þetta var einn seinasti stór atburðurinn ‘ í pólitískri ævi Ólafs Thors. Skömmu síðar steig hann í seinasta sinn úr stóli for- sætisráðiherra. Einn valdamesti stjórnmála- maður þjóðarinnar er til moild- ar borinn í dag. Með honum er horfinn litríkur og svipmikill persónuleiki. Hans er ekki að- eins sakinað af fýligjendum og flokksbræðruim. Hans er einnig sakneð af andstæðingum. Ástvinum Ólafs Thors, og þá alveg sérstaklega eftirlifandi kj>nu hans, frú Ingibjörgu Thons, sendi ég í dag toílýjustu samúðar- kveðjur. Hannibal Valdimarsson. t ÞESSU hef ég len.gi kviðið — Nú hefir það skeð. — Ólafur Thors er látinn. ★ Sá kvíði, sem ég vík að, er á engan hátt tengdur við síðustu árin, eftir að hinn mikili forirngi gekk ekki heill til skógar. Hann á sór miklu lengri aðdraganda. Menn spyrja sjálfsagt: Hvers vegna þennan kvíða? Hann er einfaldlega þesis eðlis, að þegar við iifúim og störfum með alveg einstæðum persónuleika, svo lit- ríkum og leiftrandi að hann virð ist se.m ótrúlega sterkur segull í tilverunni, þá spyrjum við ó- sjálfrátt: Hvemig færi, ef við misstum þennan mann? Ég veit, að þessi spuming hef- ir leitað á fleiri en mig. Hinn mikli persónuleiki Ólafs Thora í íslenzkri stjórnmálabaráttu s. ú- ustu 30 til 40 ára er rniklu fast- ar grópaður í hugskoti almenn- ings en nokkurs annars samtíðar manns — og ég mundi ætla, að sagan eigi eftir að telja hann einn af ört'áum ágætustu stjórn- málamönnum þjóðar okkar eftir Jón Sigurðs.ljn. ★ Ég miun takmarka þessi fátæk legu minningarorð mín við við- horf mitt til foringjans Ólafs Thors þegar ég ungur hóf lífs- starf mitt undir hans leiðsöyn sem erindreki Sjálfstæðisflokks- ins. Þá voru mikilir umbrotatímar, — öninur heimisstyrjöld, endur- reisn lýðveldis á íslandi, nýsköp un atvinmulíifsins og aðdragandi þeirrar öru þróunar í íslenzku þjóðt ífi, sem síðan hefir orðið. Þessi ár bera í vitund minni svip foringja okkar Sjálfstæðis- manna, Ólafs Thors. Á þessum I árum temgdust tryggðabönd við | foringja og sannan vin. Það var gaman að vera ungur Sjálfstaeðia maður og hlýta foruistu Ólafs. Við ræddum að sjálfsögðu oft, í okkar hópi, umgu Sjálfstæðis- memnirmir, mammkosti forystu- manna flökksins og það var af mikilu að taka. Þama voru gáfna Ijós og giliampandi heilar, eins og t.d. Magnús Jónsson prófessior og Jakob MöUer. Við vi.ssum að samt sem áður var Ólafur skjót- ráðastur þeirra allra og við viss um 'iiíka örugglega, að hann hafði stærsta hjartað. Það var mikil hátíð hjá okkur þegar við fengum að heiðra hann. Við gerðum hann að heið- ursfélaga Heimdallar þegar hann varð fimimtugur og þá átti harm enn eiftir að vera fremstur í orra hríðinni í rúm 20 ár. Þegar lýðveldið var endurreist á Þingvöllum 17. júní 1944, færð um við ungir Sjálfstæðismenn Ólafi Thors silfurbikar til mimn- ingar um þennan sögulega at- burð og í virðingar- og þakklæt- isskyni fyrir forustu hans í þessu mifela máli. En að okkar dómi voru Ólaflur og Bjarni Bene- diktsson oddvitar á síðasta á- fanga þessa méi s, þegar margir aðrir góðir menn létu á sér makkurn bilbug finna. Ludvig Hjáá.mtýsson var þá formaður Heimdaliar og man ég þegar við fylgdumst með Ólafli frá Oddfelllow-húsinu, þar sem lýðveldishátíð Heimdallar var haldin, 18. júní 1944 — og heim til hans í Garðastræti, efltir að honum hafði verið aflhentur silf- urbikarínn. Ólafur tvíhenti bifcar inn og stikaði með bainn heim og við Ludvig fýiigduim eftir. Við vissum að bionium var einskis- virði silfrið og áferð þessa grips. En við funduim til þess með þakkilæti að hann naut þess að bikarinn var barmafuillur af virð ingu og þökk Sjálfstæðisæskiunn ar í landinu til foringja síns. ★ Siðari árin varð samstarf ofck- ar Ólafs Thors enn samstiUtara að því leyti að æskan eltist af mér. Urðu mér þá ekki síður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.