Morgunblaðið - 05.01.1965, Page 2
2
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. janúar 1965
3 létust af slysförum
-177 manns var bjargai
lands hið áriega yfirlit sitt yfir
dauðaslys er urðu á síðastliðnu
ári hér á landi. Samkvæmt yfir-
litinu urðu 83 banaslys á árinu,
á móti 105 árið 1963. Flestir
þeirra er létu lífið í slysum þess-
um drukknuðu í ám og vótnum,
177 manns var b.jargað. Hér á
eftir fer yfirlit Slysavarnafélags-
ins:
Samkvæmt skýrslum S.V.F.Í.
hafa orðið eftirtalin dauðaslys á
árinu 1964. Til samanburðar eru
hliðstæðar tölur frá árinu 1963
innan sviga:
Sjóslys og drukknanir:
með skipum sem fórust 7 (26)
féllu útbyrðis 4 (10)
Drukknuðu við land í ám og
vötnum 22 (15)
Banaslys í umferð: ..
ekið á vegfarendur 18 (10) í fulgslysi fórst einn (14)
við veltu ökutækja (þar af 2
dráttarvéla) 5 ( 6) Samtals hafa beðið bana 83.
fallið út úr bifreið 1
íslendingar erlendis 3 BJARGANIR 1964
vegna árekstra ( 3)
Úr skipum sem fórust
27 (19) í rúmsjó 107 (94)
úr strönduðum skipum 9 (38)
Banaslys af ýmsum orsökum: Frá drukknun nálægt
af hrapi og byltu 4 (7) landi 40 (35)
á vinnustað og heimilum 11- (2) Úr eldsvoða 18 ( 3)
af bruna og revk 3 (7) Frá því að verða úti 1 ( 2)
af eitrun 1 (2) Frá köfnun 1
urðu úti 2 (2) Frá því að verða undir
af voðaskoti 2 (1) bifreið 1
23 (21) 177 (172)
33 (51)
— Útförin
Framhald af bls. 1
gamall, Var hann fyrsta barn
iþeirra hjóna.
Ólafur Thors var fyrst kosinn
á þing 1925 fyrir Gullbringu- og
Kjósarsýslu og sat á þingi ávallt
síðan, eða til dauðadags. Hann
var forsætisráðherra í fimm ríkis
stjórnum, og oftar en nokkur ann
ar íslendingur. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins varð hann 1934,
og til ársins 1961.
Eins og fyrr getur verður út-
för Ólafs Thors gerð kl. 1,30 í dag
frá Dómkirkjunni. Lúðrasveit
Reykjavíkur mun leika hjá
kirkjunni milli kl. 1,15 og 1,30.
Sjálf athöfnin hefst með því að
leikin verður Fantasía í C-moll
eftir Bach, og síðan sálmurinn
„Á hendur fel þú honum“; þá
mun dr. Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup, flytja minningarræðuna,
en síðan verður leikið á orgel
Adante maestoso, eftir Hándel,
þá sálmarnir ,,Ó, þá náð að eiga
Jesúm“ og „Hvað boðar nýjárs
blessuð sól“. Síðan verður ieikið
sorgargöngulag eftir Beethoven,
og loks syngur blandaður kór.
Dr. Páll ísólfsson leikur á orgel
ið.
Ríkisstjórnin og forseti sam-
einaðs Alþingis bera kistuna úr
kirk;u. Síðan verður ekið í
gamla kirkjugarðinn, þar sem
hinn látni verður greftraður. Að
standendur bera kistu hans að
gröfinni.
Þess má að lokum geta, að
jarðarför Óiafs Thors fer fram
á vegum ríkisins, og verður
henni útvarpað. Sjálfstæðishúsið
við Austurvöll verður opið með-
an athöfnin í kirkjunni fer fram,
og þangað geta þeir komið. og
hlustað á hana, sem vilja, en
ekki fá sæti í kirkju.
í heimsókn vopn
aóur baglabyssu
S.l. laugardagskvöld var lög-
reglan kvödd að húsi einu hér í
bæ sökum þess að þar hafði
maður ruðzt óboðinn inn til fyrr-
verandi eiginkonu sinnar, vopn-
aður haglabyssu.
Maðurinn var drukkinn, og var
'konan ekki heima er hann bar
að garði með byssuna. Fór hann
þá óboðinn inn í íbúðina og var
þar fyrir er konan kom heim. j gerð. Málið er
Var þá hringt til lögreglunnar, ; sókn.
sem kom og tók mann og byssu.
Byssan var óhlaðin og var
maðurinn ekki me'ð nein skot á
sér er hann var handtekinn.
Ekki er Ijóst til hvers hann hef-
ur tekið með sér byssuna, og
ekki hefur fram komið í málinu
hvort hann hefur ógnað konunni
með henni. Hinsvegar gat rnað-
urinn ekki framvísað ley-fi fyrir
byssunni, sem verður þá upptæk
í frekari rann-
Eldur í skátaskála
á Skagaströnd
Skagaströnd, 4. janúar.
KLUKKAN 5,30 s.l. laugardags-
morgun var brunaliðið kallað út.
Hafði kviknað í svonefndum
matskála Síldarverksmiðj.a ríkis-
ins, sem skátafélagið hér hefur
til afnota fyrir starfsemi sína.
Kona, sem var á leið heim til
sín, varð eldsins vör og vakti
hún upp í nærliggjandi húsum.
Mikill eldur var í risinu í norður
enda skálans og rjúfa varð gat
á þekjuna, en eftir það gekk all-
greiðlega að slökkva eldinn.
Ekki er fullljóst hvað hefur
valdið íkveikjunni, en menn
ímynda sér helzt rafmagn. All-
miklar skemmdir urðu af eldi,
vatni og reyk. Einnig skemmdist
mikið af munum og dóti, sem
skátarnir áttu, sem ekki verður
metið til fjár.
Mikið norðanveður gekk hér
yfir síðustu daga ársins með
mikilli fannkomu. Er.nú geysi-
mikill snjór hér á staðnum. Tals
verðar skemmdir urðu á íbúðar-
húsinu að Fellsbraut 5 í óveðr-
inu. Um 15 járnplötur fuku af
húsinu og eiris rifnaði pappinn
og fennti mikið inn á loftið. Við
gerð gat ekki farið fram vegna
veðurs fyrr en s.l. laugardag.
Áramótabrennur, sem hér átti
að halda, féllu niður vegna veð-
urs. 1 gær fór allstór hópur
manna til Blönduóss til að sjá
leikritið Gullna hliðið, og lenti
í allmiklum erfiðleikum við að
komast heim í nótt vegna ófærð-
ar. Öll umferð um þorpið og þjóð
vegirnir hér í kring eru með öllu
ófærir.
Fjöldi fólks hér bíður þess að
komast suður og norður til vinnu
og skólasetu.
— Þórður.
M.s. Else Danielsen.
Nýtt skipaféla*
stof naö - Sjóleiöir h.f.
Samið um kaup á 1240 tonua
skipi — Else Danielsen
STOFNAÐ hefur verið nýtt
skipafélag, Sjóleiðir h.f., og er
nú verið að semja um kaup á
1240 tonna dönsku skipi, Else
Danielsen, sem byggt var í Hol-
landi árið 1962.
Stofnfundur félagsins var
haldinn 2. janúar sl. og skipa
stjórn þess Álbert Guðmundsson,
formaður, Geir Borg og Ásgeir
Jónsson. í varastjórn er Bryn-
hildur Jóhannsdóttir, endurskoð-
andi, Bergljót Borg og löggiltur
endurskoðandi Ólafur J. Ólaís-
son. Þá er frú Súsanna Brynjólf3
dóttir ein af stofnendum. Fram-
kvæmdastjóri Sjóleiða h.f. verð-
ur Geir Borg.
Hugmyndin er að flytja kol
og salt með skipinu til landsins,
en það er sérlega hentugt til
slíkra flutninga. Þessar vöruteg-
undir hafa yfirleitt verið Tluttar
til landsins með erlendum skip-
Kefkrókur grip-
inn á heimleið
ER lögreglubíll var á leið niður
Laugaveg laust eftir kl. 5 aðfara-
nótt sunnudags, veittu lögreglu-
menn athygli manni, sem rogað-
ist með pappakassa í fanginu
móts við verzlunina Ás. Er mað-
urinn varð lögreglunnar var, brá
hann hart við, og hvarf inn í
portið bak við Skúlagötuhúsin
svonefndu. Lögreglumenn hlupu
á eftir, og gripu manninn á barna
leikvellinum, sem þar er. Veitti
maðurinn mótspymu og varð að
setja hann í jáirn.
Er lögreglumenn gáðu í kass-
ann, voru í honum þrjú bústin
hangikjötslæri og vænt svíns-
læri. Gaf ma'ðurinn þá skýringu
að hann hafi verið að skemmta
sér í Glaumíbæ. Að dansleik þar
loknum, dvaldist honum fyrir
utan húsið í kunningjahópi við
að reyna að fá bíl'far heim, því
kalt var i veðri. Er hann var
einn orðinn eftir í portinu, gekk
hann að geymsludyrum, sem þar
eru og sá að þær voru ólæstar.
Brá hann sér þá inn, sá pappa-
kassann méð umræddu innihaldi
í borðinu, og jafniframt leik 4
borði að krækja sér í kjötlæri.
svo hann greip kassann og forð-
aði sér síðan. Þessi síðbúni Ket-
krókur var á leið heim til sín
með góssið, er lögreglan greip
hann.
Bíkisskiilslof-
nr lokaðor
24ra tonna rafall féll
niður í lest Goöafoss
MJÓG skörp hitaskil voru
s'.:ammt undan suðurströnd-
inni í gær. Norðan þeirra var
frost og snjókoma, sem náði
norður fyrir Jökla, en sunnan
við skilin var rigning eða
suddi og 10 stiga hiti. Norðan
lands var úrkomulítið og frost
ið 8-13 stig á láglendi.
Síðdegis voru horfur á að
hitaskilin mundu liggja yfir
landið frá austri til vesturs
í dag. Verður þá rigning og
þokuloft fyrir sunnan, en hríð
arveður á NorðurlandL
UM miðjan dag á laugardag var
verið áð skipa 24 tonna rafali
upp úr ms Goðafossi, sem lá við
bryggju í Reykjavík. Þrír kran-
ar lyftu rafalinum upp úr lest-
inni. Þegar hann sveif yfir lestar
opinu, var einn kraninn eitthvað
á undan hinum, svo að átak hans
jþyngdist til muná. Þoldi hann það
ekki, svo að armurinn brotnaði
j og kraninn sjálfur skemmdist.
j Rafallinn féll niður á lestarbotn,
en hinir kranarnir tveir héldu
eitthvað við, svo að höggið varð
! ekki eins ofböðslegt og ella
hefði orðið. Litlar skemmdir
urðu • á mis. Goðaifossi, sem er
, þegar farinn áleiðis til Hamibong
ar með rafalinn aftur. Rafallinn
er eign Rafmagnsveitu Reykja-
víkur og smíðaður í Sviss. Vá-
tryggingin á honum náði til
þess, að hann væri kominn ó-
skemmdur á hafnarbakka í
Reykjavik, svo að „assúransinn"
mun eiga bera skaðann. Skv.
upplýsingum rafmagnsstjóra
Reykjavíkur, Jakobi Guðjohn-
sen, mun rafallinri um 10 millj.
króna virði. Ekki er vitað, hve
miklar skemmdir urðu á honum,
þar eð hann var sendur óhreifður
utan til Þýzkalands, þar sem
skemmdirnar verða athugáðar og
metnar.
í
VEGNA útfarar Ólafs Thors
fyrrverandi forsætisráðherra,
verður Stjórnarráðið lokað frá
hádegi 5. janúar, svo og aðrar
skrifstofur ríkisins, eftir því
sem við verður komið.
Fékk kúluflís
í lærið
Akranesi, 2. janúar.
ÞAÐ bar við á gamlaárskvöld
kl. 23.00 að Guðjón Þórðarson
9 ára, fann riffilskot og hélt það
væri patróna og sprengdi þetta
með steini og lá á öðru hnénu.
Við sprenginguna hrökk flís úr
kúlunni í lærið á drengnum.
Hlaut hann nokkurt sár og hefur
grafið í.
Samúðarkve^ a
ftá
konungshjénuni
Danmerkur
í TI'LEFNI af andláti Ólafs Thor3
fyrrverandi forsætisráðherra, hef
ur forseta íslands borizt sam-
úðarkveðja frá konungshjónum
Danmerkur,
f