Morgunblaðið - 05.01.1965, Side 9
Þriðjudagur 5. ianöar 1965
MORCUNBLAÐIÐ
9
Um leið og við sendum frú
Ingibjörgu Thors og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur, vitum
við, að íslendingar eiga eftir að
rifja upp með ,þeim lærdómsrikar
og skemmtilegar endurminn-
ingar um Ólaf Thors, því að hann
er ógleymanlegur maður.
Megi eldmóður sá og æskufjör,
sem Ólafur Thors varðveitti til
hins síðasta í lífsstarfi fyrir vel-
ferð íslands, ávallt vera Iþjóð
hans og flokki til fyrirmyndar.
Geir Hallgrímsson.
t
EÚMUBGA sextíu ár eru liðin
eíðan fundum okkar Ólafs Thors,
fyrrv. forsætisráðherra, bar fyrst
eaman. Hann var þá aðeins 12
ára að aldri, og kom til sumar-
dvalar á heimili foreldra minna
í afskekktum stað úti á lands-
byggðinni, þar sem kjör fólksins
voru öll önnur og erfiðari en
hann átti að venjast í því um-
hverfi, sem hann ólst annars
upp í.
Okkur krökkunum varð star-
eýnt á þennan glæsilega og fjör-
mikla pilt, og það var ekki laust
við, að við færum hjá okkur í
viðurvist hans. En það stóð að-
eins skamma stund, því áður en
við vissum af hafði hann tekið
forystu í leikjum okkar og
etörfum, og stjórnað okkur á
ekipulagðan hátt til margvis-
legra nýrra og áður óþekktra
átaka. Öll viðbrigði hans mörk-
uðust af lífskrafti, fjöri oig næm-
um skilningi á því, hvernig mæta
skyldi vandanum og sigra. Hann
var strangur um allar leikreglur
og þoldi engum að viðhafa rang-
læti og sízt að öllu, að ganga á
rétt lítilmagnans.
Þegar sumarið var á enda oig
hann hélt aftur heim var mikill
söknuður meðal okkar leikfélag-
anna. Var sem hann færi á brott
með gleði okkar og fjör, en
skjótt fundum við, að hann hafði
skilið eftir nokkurn hluta af
sjálfum sér, sem jafnan vísaði
©kkur veginn til 'nýrra dáða,
nýrra átaka og nýrra sigra. Ekki
veit ég hversu mikill skóli þessi
sumartími var honum, en okkur
var hann ómetanlegur. Hitt er
víst, að þá spann hann þann
þráð af vináttu og tryggð við
foreldra mína, heimili og venzla-
fólk, sem aldrei síðan brast. Og
öllum var okkur það ljóst þá,
að hér fór mikið foringjaefni,
sem myndi eiga framundan
harða baráttu fyrir mörgum
n.,jungum, sem bæta skyldu kjör
ells almennings í landinu, og
vinna á þeim vettvangi marga
giæsilega sigra.
Árin liðu og leiðir okkar
Ólafs lágu víða saman og oftar
en við var búizt i æsku. Fyrst á
sviði þróttmikilla atvinnu- og
athafnamála, sem hann var lífið
ogfsálin í, seinna á sviði félaigs-
tnála, og síðast á sviði landsmála,
þar sem hann gegndi forystu.
Og alistaðar einkenndist stefna
hans og starfsaðgerðir af sömu
kostunum, sem ég kynntist hjá
honum, þegar hann 12 ára var í
aumarvistinni.
Betur og meir kynntist ég hæfi-
leikum hans og drenglyndi í
tuttugu ára samstarfi á Alþingi
og ýmsum öðrum þingum ann-
arra landa. Eru þær stundir
tnargar ógleymanlegar. Þegar
hann steig í ræðustól, hvort
heldur á mannfundum, á Alþingi
eða sem fulltrúi íslands á erlend-
um þingum, beindust allra augu
að hans sterka pemónuleika.
Þegar hann svo hóf mál sitt og
röddin hljómaði út til áheyrenda,
urðu þeir sem bergnumdir. Svo
tnikið vald hafði hann yfir máli
©g meðferð efnisins, svo sterkt
eeiðmagn streymdi út frá sál
hans. En þegar hann sjálfur
hlustaði á veika, biðjandi rödd
emælingjans, varð hann allur að
móðureyra. þeir strengir snertu
hjartað.
Ég sá hann rísa hátt i mörgum
etórmálum á Alþingi, en hvergi
eins hátt og í umræðunum um
stofnun lýðveldisins. I>ar var ris
hans hæst, þar var stjórnvizka
hans stærst, þolinmæðin mest,
rökin markvissust. Hann hafði
einsett sér, sem foringi stærsta
stjórnmálaflokksins, að sameina
alla krafta og alla menn, af
hvaða flokki, sem var, um þetta
mikilsverðasta mái (þjóðarinnar,
sem honum var hjartfólgnast
allra mála, því hann vissi, að hér
var um fjöregg þjóðarinnar að
ræða. Hér var hann jafnslunginn
og óþreytandi, að halda okkur í
skefjum, sem í brennandi áhuga
fyrir skjótri lausn málsins vild-
um knýja það fram, þótt eigi
næðist um það samstaða allra
flokka, eins oig að þreyta and-
stöðuna og laða hana til fullkom-
ijjs samstarfs, sem að lokum
tókst, fyrir hans traustu og
drengilegu forystu.
Menn undruðust oft hversu
vel honum gekk, að halda sam-
fylkingu um afgreiðslu mála í
flokki ailra stétta, þar sem
margvísleg sjónarmið hlutu að
rísa. Og oft var ég að því spurð-
ur á erlendum vettvangi, hvern-
ig það mátti ske, að hann gat
.eflt borgaraflokk upp í stærsta
flokk í landinu og haldið honum
þannig árum saman. Okkur,
sem þekktum forystuhæfileika
Ólafs og lífsskoðun hans, var
þetta engin ráðgáta. Við vissum
vel, að fyrir hans sterku áhrif,
var flokkurinn frjálslyndur um-
bótaflokkur, sem varpaði þó
ekki fyrir borð því bezta, sem
þekkt var i þjóðlífi íslendinga
frá alda öðli, en hafði jafnframt
opin augu fyrir öllum nýjungum,
sem bæta mættu hag þjóðarinnar,
og formaður flokksins þoldi
engum, að ganiga á rétt hins
veika til framdráttar hinum
sterka, svo sterk var réttlætistil-
finning hans. í öll þau átta ár,
sem mér var falin formennska í
fjárveitinganefnd, minnist ég
ekki, að hann nokkru sinni lyfti
fingri til framdráttar erindum
þeirra efnuðu, en vissi hann um
beiðni hinna fátæku og veiku,
voru augu hans vökul og viljinn
sterkur, til þess að láta þau er-
indi fá jákvæða afgreiðslu.
Meginþættirnir í því sterka valdi,
sem hann hafði yfir fulltrúum
með gerólíkar lífsskoðanir og
hagsmuni, var, að hann átti allt
í senn, og beitti því af ýtrustu
nængætni: skarpa athugun og
framsýni, óvenjulega heilsteypta
skapgerð og mikinn persónu-
leika, ríka réttlætistilfinningu,
og ekki hvað sízt „hjarta fullt
af gæðum“. Það var því ekki
einasta sjálfsagt, að laðast að
ákvörðunum hans og vilja við
afgreiðslu mála, heldur var það
beinlínis Ijúft og hressandi, að
fylgja þeim til sigurs.
Og nú er hann horfinn sjónum
vorum, eftir langan og skemmti-
legan ævidag, eins og hann hvarf
okkur leikfélögunum haustið
1904, eftir skemmtilegt sumar.
En hann er ekki nú frekár en þá
allur á brott. Nú eins og þá,
skilur hann eftir nokkurn hluta
af sjálfum sér, því stærri hluta
því fleiri og stærri, sem verk-
efnin hafa verið. Ljósin, sem
hann tendraði við annes og brim-
ótta strönd, til þess að lýsa sjó-
farendum, sem allt líf sitt og
afkomu áttu undir auðlegð hafs-
ins, þau loga enn um langan
aldur. Orkan, sem hann veitti
inn á þúsundir heimila í borg og
bæ, um annes og inn til dala,
hún varir um öll ókomin ár, við
að ylja og lýsa og veikja mátt
hins grimmasta óvinar íslenzkrar
náttúru: myrkrið og kuldann.
Varðeldarnir, sem hann kveikti
um land allt, halda áfram að
brenna, svo að æska fslands megi
ylja sér við þá, og sækja í loga
þeirra nýjar hugsjónir og nýjan
þrótt. Og frjóangarnir, sem hann
gróðursetti í íslenzkri móður-
mold, halda áfram að vaxa og
klæða landið, prýða það og
skýla nýjum kynslóðum. Álit
það, sem hann skóp íslenzku
þjóðinni á erlendum vettvangi,
varir lengi og léttir spor eftir-
komenda, sem þar koma til að
feta í fótspor hans.
Braut islenzkra stjórnmála-
manna er ekki ávallt blómum
stráð, og um þá blása ýmsir
vindar. Og þess var ekki að
vænta, að jafn svipmikill per-
sónuleiki og Ólafur Thors var,
ætti þar nokkrum fríðindum að
fagna. Hann valdi ekki neinar
troðnar slóðir. Hann setti mark-
ið hátt og hikaði ekki við, að
brjóta leið yfir hinar ferlegustu
torfærur og oft varð hann fóta-
sár á þeirri göngu, og um hann
blésu þar oft kaldir vindar á leið
til hæstu tinda. Oft leit ég
hann þá bæði særðan og þreytt-
an, einkum ef vindar eða and-
blær blés af þeirri átt, er hann
sízt vænti, en aldrei sá ég hann
svigna eða bugast. Til þess var
trúin á málstaðinn of sterk
þrótturinn of mikill, blóðið of
heitt oig skapið of þrungið, en á
slíkum stundum þótti honum
gott að koma heim til hennar,
sem hann ungur kaus sér að
lífsförunaut. Heimilið, kastalinn,
sem umgirtur var óvinnandi múr
af nærgætni og kærleika, ró og
friði. >ar var farið mjúkum
græðandi höndum um sárin, þar
var blásið nýju lífi og nýjum
þrótti í sókn unz sigur var unn-
inn. Það var því ekki einasta
venja heldur beinlínis óhjá-
ókvæmileg nauðsyn, að konan
fylgdi honum hin síðari árin,
hvert sem hann fór, og nú síðast
að dyrunum, sem aðeins eru
opnar þeim, sem guðirnir kjósa
sér hverju sinni, enda' fannst
honum sem hann gengi vopn-
laus og verjulaus á baráttuvöll-
inn væri hún hvergi nærri.
Þúsundir þegna þessa lands
elskuðu Ólaf og dáðu hann.
Þjóðin átti líf hans og störf engu
minna en heimilið. Þúsundir
manna harma nú brottför hans,
blessa minningu hans og störf,
og óska þess, að andi hans svífi
lengi yfir Alþingi og móti störí
þess á ókomnum árum. Frá
þessum þúsundum streyma nú
sterkar öldur samúðar og þakk-
lætis til konunnar, sem alla tíð
stóð tryggan vörð um heilsu hans
og líf.
Ólafur Thors lauk gæfuríkri
ævi á síðasta degi ársins. Sál
hans rís upp á nýju ári í verkum
hans, því merki hans mun lengi
standa þótt foringinn sé fallinn,
og vísa veginn þeim, sem falið
er það hlutverk á hverjum
tíma, að leysa þann vanda, sem
að þjóðinni jafnan steðjar.
Gísli Jónsson.
t
FYRIRFERBARMESTI stjóm-
máijaskörunigur þj óðarinnar um
langan aldur er genginn með
gamla árinu. Mætti það vei
marka tímamóit, og skal þó engu •
um það spáð í diumibungsveðri
líðandi stundar.
Með Ólafi Thors er til moldar
hafinn höfðinigi, er átt hefur það
drjúgan þátt í samtímasögu
lanid'S og þjóðar, að jaðrar við ein
dæmi. Sem foringi stærsta stjóm
málaflokksins og oft í forsæti
ýmissa ríkisstjóma var hann að
sjálfsögðu umdeildur, en Saga
geymir nafn hane örugglega, og
vísast í því efni til Hávamála.
Áhrifamaður um fl.esta fram
var Ólaifur Thors og kunni því
ekki illa, ódeigur oddamaður ó-
sjaldan á tímum tvísýnu, stór-
styrjaldar úti í löndum, er teygt
hafði hingað gripklær sínar, en
heima fyrir vegna skorts og
gerviauðsældar sitt á hvað. Er
enginn öfundsverður af að hjjóta
oft og tíðum að taka örlaga-
þrungnar ákvarðanir með óinóg-
um fyrirvara og í misjöfnu sýni
kólgaðra daga. Vill þá sfcundum
fara svo, að sbaikkaföllin sé hið
eina vísa, og endurminningin um
þau geymist alla jafna betur en
þær gerðir, er að gagni koma
og tiii blessunar verða. Þangað
til Saga jafna fingur í lófa.
Um manninn Ólaf Thors, skaip
gerð hans, dagfar, skemmtilegt
viðmót og raungæði talar það
sínu máli, að hann um fjóra
tugi ára var ósigrandi í því kjör
dæmi, þar sem hann fyrst bauð
sig fram. Mætti þó segja mér að
þeir menn séu ófáir um land alit
er í einn tíma eða annan hafa
orðið áskapaðrar drengilumdar
hans aðnjótandi, án þess að gjöf
sæi til gjadda. Falli orkumaður
af því tagr í valinn um aldur
fram, af-því að hann aldrei kunni
að hlífa sér, verður hann harm-
dauði ástvinum fl:.estum öðrum
fremur, enda munu þeir ófáir
sem þessa dagana hugsa tii
ekkju hins látna og annarra
skyldmenna með alúðarhlutfcekn
ingu.
Gunnar Gunnarsson.
t
LANDSMENN setti hljóða er
fréttist um andlát Ólafs Thors,
fyrrverandi forsætisráðherra, á
síðasta degi ársins. ólafur hefur
um áratugi verið sá maður, sem
mestan svip setti á þjóðlífið og
markaði dýpstu sporin í stjórn-
móiasöguna. Hann var sá gæfu-
maður að vera í fylkingarbrjósti
í baráttunni fyrir fullu frelsi
þjóðarinnar og menningar- og
efnahagslegri uppbyggingu henn-
ar.
Allir sem þekktu Ólaf vissu
að hann trúði á landið og þjóð-
Framhald á næstu síðu.
Ólafur Thors flytur ræðu á Landsfundi Sjálfstæðis flokksins.