Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐID Fimmtudagur 15. aprfl 1965 f 2« HÁKARLARNIR KOMA ÞANGAÐ TIL AÐ DEYJA ■ Um kóralskóga og kumpánlega fiska í sjó, gryfjusteikta grísi og heim- skautafarann, sem settist að á Tahiti — ERirminnilegur staður, já, sagði Agnar Kofoed-Hansen, flugmálastjóri, og hugsaði sig um. — Þeir eru nú margir eftir minnilegir staðirnir, sem ég hef komið á um dagana, Luxor til daemis, — Það má enginn leggj ast svo í gröf sína að hann hafi ekki áður séð Luxor, þangað eiga menn að fara í menningar sögulega pílagrímsreisu, svona rétt eins og þeir fara í trúar- lega pílagrímsreisu til Landsins helga. — En sá staður, sem mestum ævintýraljóma er sveipaður í huganum, held ég þó að séu Tuamotu-eyjarnar í frönsku Polynesíu, sem sumir kalla Vin- áttueyjar og er mikið sann- nefni. — Þegar ég var ungur, held ur Agnar áfram og brosir við — var ég meira að segja um tíma alvarlega þenkjandi um að setjast að á Suðurhafseyj- um, á Tahiti eins og Gauguin. Það var þegar ég var á flugliðs- foringjaskólanum í Kaupmanna höfn, réttra nítján ára og hrædd ur um að falla. Þetta var strang ur skóli, afar strangur, við vor- um 94 sem gengum undir fyrstu inntökuprófin, en svo heltust menn úr lestinni einn af öðrum og við vorum ekki nema 18 sem komust í skólann, svo það var ekki furða þó við værum hrædd ir — enda náðu ekki nema 8 lokaprófinu. Meðan á þessu gekk var það sem ég tók það í mig, að ef ég feui — sem alltaf var til í dæminu — skyldi ég hlaupast á brott og halda suður til Tahiti, þar hlyti svona óskapleg hneisa og smán að vera hálfu léttbærari. Agnar hlær og bætir við: — Ástæðan fyrir því að ég kaus að hverfa til Tahiti hefur eflaust verið sú, að það var einna fjarlægast og rómantískast land sem ég hafði lesið um. Það var mikið lesið um fjarlæg og rómantísk lönd á þessum árum. Svo var það eitt sinn, nú fyrir nokkrum árum, 1961 eða 1962 er ég var staddur í Hono- lulu á Hawaii-eyjum, í boði flug- málastjórnar Bandaríkjanna, að skoða flugstjórnarmiðstöðina þar, sem býr við nokkuð svip- aðar aðstæður og við hér heima, enda vegalengdin snöggtum lengri en héðan fró Reykjavík og til New York. Til Tahiti komum við um miðjan morgun, klukkan eitthvað um fjögur, en engu að síður var tekið á móti okkur með söng og hljóðfæra- slætti og blómsveigum í bak og fyrir. Reykjavík er eins og stórborg í samanburði við höfuðstað Tahiti, Papeete, sem ásamt ná- grannabæjum sínum tveimur, urinn fórst í næstu ferð á eftir og slíkar flugferðir til Bora- Bora lögðust niður. — Paul-Emile var búinn að kaupa sér land á Tahiti og bú- stað og áformaði að setjast þarna að a.m.k. hálft árið, hélt Agnar áfram. — Hann hefur undanfarið aðallega stundað rannsóknir á Suðurskautsland- inu og þetta er ekki svo ýkja- langt — Agnar hvolfir hnettin um sínum stóra og við göngum úr skugga um, að fátt sé landa nær Suðurskautinu en einmitt franska Polýnesía. — Og hann hefur ekkert heykst á þessu, því ég var einmitt að fá frá honum bréf nú fyrir nokkrum dögum, frá Tahiti, þar sem hann segist vera á leiðinni suð O.ifS’, rtr. Og inn á milli þessara ævintýra-trjáa synda svo fiskarnir, gulir, rauðir, grænir og bláir. úthafssvæði o.s.frv. — að mér bauðst tækifæri til að skjótast niður til Thaiti. Ég þá auðvitað það góða boð með þökkum, en hélt þetta yrði bara snögg ferð, þó það færi reyndar nokkuð á annan veg er suður var komið og ég dveldist þarna í rúmar tvær vikur er til kom. Við vor- um rúma fimm klukkutíma á leiðinni frá Honolulu í þotu, — byrjaði Agnar ferðasöguna, — . . . en mér faanst leitun á verulega fallegri stúlku, sagði Agnar. Þessi mynd er því til sönnunar, að þær eru þó til á Tahiti, en bitt skal játað, að vahinan hefur bæði franskt blóð í æðum •g enskt. Arue og Punavia, telur um 17.000 íbúa. Verzlun og við- skipti á Tahiti eru mjög í hönd um Kínverja og m.a. sá Kín- verji um rekstur gistihúss þess er ég dvaldist á og var í Arne. Það var fyrsta morguninn, sem ég var þarna, að óvænt atvik varð til þess, að ég ákveð að dveljast lengur á eyjunum. Ég hafði farið á fætur snemma til að skoða mig um og settist loks niður á eina útiveitingahúsi staðarins niðri við höfnina til að hvíla mig og skrifa á póst- kortin mín. Það var ekki mikil umferð um höfnina, nokkrar skemmtisnekkjur lágu þar inni og smábátar, en hafnarbakk- arnir grasi grónir í sjó fram. Þarna var maður að hnýta fiska körfur, og mér var sagt að þar myndi kominn sonur Gauguins (og reyndar ekki sá eini, sem Gauguin var sagður eiga þar syðra). Þarna var fólk á ferli en enginn asi á neinum, það var eins og engum lægi neitt á. En allt í einu gengur fram hjá mér maður, sem mér finnst ég endilega kannast við, held fyrst að mér skjátlist, en nei, það var alveg áreiðanlegt, þennan vangasvip þekkti ég og það vel. Ég kalla nafn hans og þarna var með okkur fagnaðarfund- ur, því þetta var enginn annar en franski heimskautaíarinn Paul-Emile Victor, góðkunningi minn og heimilisvinur. Hann var jafn gáttaður á að sjá mig þarna og ég á að hitta hann og þessi óvænti fundur okkar varð til þess að ég hætti við að fara heim eins fljótt og til stóð, og tók mér hálfsmánaðar frí til að vera þarna lengur. Ég var mest á Tahiti, en skoðaði líka nokkrar eyjar aðrar og kom m.a. til Bora-Bora, sem köluð er gimsteinn Tuamotu- eyja fór þangað með síðustu flugbátsferð polynesiska flugfé- lagsins og í boði þess. Flugbát- ur á ísinn aftur. Þetta er ef- laust ágætt system, fyrir heim skautakönnuði, að vera hálft árið á Suðurpólnum og hinn helminginn á Suðurhafseyjum. Kannske þeir komi fleiri á eftir. — Þennan hálfa mánuð, sem ég var þarna syðra, heldur Agnar áfram sögunni, — kynnt ist ég mörgu fólki, innfæddu og aðfluttu oig þar tók ég þátt í tamaaraa-veizlu og snæddi eftir Agnar Kofoed-Hansen, flugmálastjóri. minnilegustu máltíð sem ég hef innbyrt um dagana og hef ég þó víða fengið gott að borða. Það var kona sem bauð til þessarar veizlu, Rosa Raul, ættarhöfð- ingi í Arue, stór kona og föngu leg, ljós nokkuð á hörund og átti enda eitthvað kyn til Frakka, sem ekki er ótítt þarna á eyjunum, kona vel við aldur og ekki ýkja kvenleg, minnti mig helzt á vin minn, Sigurð Ólafsson, formann úr Horna- firði, hressileg, frjálsleg og elskuleg. Og veizlan hennar Rósu var hreinasta ævintýri; veizlugestir skrýddir blómsveig um og annað eftir því, einhver sérstök „stemning“ yfir öllu, mikill hátíðablær en þó ekki svo að drægi úr eðlilegri gleði manna og kátínu — ég held ég hafi hvergi séð lífsglaðara fólk en einmitt á Tahiti. — Það er kannske rétt að ég lýsi því aðeins hvernig þessi veizlumáltíð varð til, það er dálítið öðruvísi eldamennska en við eigum að venjast, segir Agnar. — Það gengur þannig til, að fyrst er grafin gryfja og hún fyllt af meðalstórum stein- um. Ofan á grjótinu er svo Tehapi, fiskhnaður í eynni Bimitara, breiðir net sin til þerria á greinuxn trjánna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.