Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 15. april 1965 MORGUNBLADIÐ 7 „honnör“ hér. En hvernig gera þeir nú „honnör“ í Rússlandi". Stalínistanum lannst nú held ur bera vel í veiði að geta sýnt hvernig þeir gerðu „honnör“ í hans ástkæra Rússlandi, steig eitt skref fram sló saman hsel- unum, rétti hægri hendina upp, kreppti hnefann og æpti, „Rót front“, félagi skipstjóri". Skip stjórinn horfði á hann haeð hinni megnustu fyrirlitningu, glotti og hvæsti: „Jú, hnefa- rétturinn þar“. — Og ekki vantaði áróðurinn I gegn Bandaríkjunum. Myndirn I ar voru látnar sýna skólabörn- I in fyrir framan lokaða skóla, I þau drjúptu höfði sorgbitinn, ' en við hlið þeirra var skilti I zneð áletruninni „í herinn“. ! Xeiknaðar vörur. I Allt var upp á sömu bókina I lært. Allir búðargluggar hálf I tómir eða tómir af vörum, en I fyllt í skörðin með áróðurs- I myndum. Mér blöskraði þó I mest að sjá í sumum útstilling I ergluggum kjötbúða aðeins I teiknaðar matvörur, og minnti I það mig óneitanlega á brand- I arann um matseðilinn sem I hljóðaði upp á „Burtfloginn I hænsni og teiknaðar kartöflur". I Og það litla sem fékkst var svo I rándýrt að mann svimaði, t.d. kostuðu lélegir skór kr. 1200,00. I Eftir að hafa svalað þorsta okkar í rússneskum bjór, sem I var bæði þunnur og rándýr, j fórum við að hugsa til heim- I ferðar, og var ég svo sannar- I lega þeirri stund fegnastur er við snerum til skips á ný. I Það tók okkur þó nokkum tíma að komast aftur um borð, en aldrei hefur mér fundist það dásamlegri sjón en þegar ég leit skipið okkar aftur augum og sá hinn fagra fána okkar breiða tígulega úr sér í golunni. 8vo sannarlega kunni maður þá að meta hið fagra tákn hans um frelsi og lýðræði. Með myndavél í kýrauganu. Brottfarardagurinn 12. ágúst rann upp. Yið vorum tilbúnir til brottferðar. En áður en af henni gæti orðið, varð hver sá, eem eytt hafði erlendum gjald- eyri í Leningrad, að gera grein fyrir í hvað honum hafði verið eitt. Og á sama tíma kom „svarta gengið“ og leitaði vel á öllum þeim stöðum sem álitið var að maður gæti falizt. Loks var þessu öllu lokið og við sigld um af stað. Við skiluðum hafn- eögumanninum og vopnuðu vörðunum í hafnsöguskipið, og sigldum síðan í átt til hafs, 'en áður en komið var að landhelg islínu rifum við innsiglið að geymslu þeirri, sem hafði að geyma sjónaukana, myndavél- arnar og neyðarbyssurnar, og fékk hver maður sína mynda- vél. Einum myndavélareigand- anum fannst hann ekki geta farið frá Rússlandi, án þess að eiga einhvern minjagrip um það land. Fannst honum nú heldur vel bera í veiði fyrir sig, þar sem hann var kominn með myndavélina í hendurnar og við vorum að nálgast rúss- nesku bryndrekana, sem enn héldu sig á sama stað. Hann læddist að einu kýrauganu, opn aði það og hóf að taka myndir af bryndrekunum. Ég stóð rétt hjá honum, og var ekki laust við að ég væri hálf smeykur við þetta tiltæki hans. Og skyndilega fölnuðum við báðir upp, því einn bryndrekinn tók sig út úr herskipaþvögunni og stefndi beint á okkur. Mót frjálsum heimi. í>að kom mikið fát á okkur, og við vorum vissir um að nú hefði sézt til myndasmiðsins. Sá með myndavélina reif lokið af henni í einum hvelli, þreif filmuna úr henni og lét birtu komast í hana alla. Herskipið nálgaðist, og þegar það átti nokkra metra ófarna sveigði það samsíða okkur, og heisti upp merkjaflögg. I>eir í brúnni þýddu þau strax, en sveigðu síð an skjótt á bakborða. Síðar frétti ég að flöggin hefðu gefið okkur til kynna að við værum komnir of nádægt bannsvæði. Myndasmiðinn höfðu þeir ekki séð — en skotið honum alvar- lega skelk í bringu. I>að var stafalogn og sléttur sjór, og við fjarlægðumst járn- tjaldið meir og meir. Eg stóð á afturþilfari Drangajökuls og sá Rússland hverfa í sæ. Eg dró andann léttara og sneri mér við móti hinuma frjálsa henmi. HIIMIR VAIMDLÁTU VELJA RADi^NETTE Fullkomin viðgerðaþjónusta, bæði kerfin fáan- leg í tekki eða mahogny. — Árs ábyrgð. — 23” skermir. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. u m b o ð i n EINAR FARESTVEIT & CO. H.F. STAPAFELL H.F. Aðalstræti 18 — Sími 16995. Keflavík. STÓLLINN AkranesL * *• v —á. ALLTAF FJÖLGAR wwVOLKSWAGEN HEKLA hf Laugaveg> /70-172

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.