Morgunblaðið - 29.04.1965, Side 2
MORC U N BLA Ð I D
Fimmtudagu'r 29. apríl 1965
Bók um
fiskileitartœki
3FISKIFELAGIÐ hefur nú gefið
út búk um fiskileitartæki og
notkun þeirra. Bókin er sniðin
cftir norskri bók um sama efni
en samin með tilliti til íslenzkra
staðhátta. Jakob Jakobsson, fiski
Jræðingur, hefur séð um útgáf-
una.
Á fundi með blaðamönnum,
sem þaldinn var í tilefni útkomu
íbókarinnar „Fiskileitartæki og
notkun þeirra“, sagði Davíð Ólafs
son, fiskimálastjóri, að útgáfa
'bókar þessarar væri liður í
fræðslustarfsemi Fiskifélagsins.
iÞessi bók væri samin að nokkru
leyti eftir norskri bók, „Fiskelet-
ing með Sonar“, en efninu breytt
með tilliti til íslenzkra staðhátta.
Þá hefðu þeir Kristján Júliusson
og Jakob Jakobsson samið tvo
kafla bókarinnar.
Að sögn fiskimálastjóra er bók
in sett fram á auðskiljanlegan
hátt, þannig að allir, sem lesa
haha ættu að geta gert sér mat
úr henni.
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur, sagði við þetta tækifæri, að
! bókin „Fiskileitartæki og notkun
i þeirra“, væri, eins og nafnið benti
j til, aðeins fræðslubók um fiski-
leit og fiskileitartæki, en í henni
væru ekki kenndar viðgerðir á
tækjum. Kvað hann bókina hent-
uga fyrir þá, sem kynna þyrftu
sér undirstöðuatriði fiskileitar.
Til gamans lét Jakob þess getið,
að hann hefði leitað fyrir sér um
hentugt nafn yfir erlendu orðin
„asdic“ og ,,sonar“. Dr. Halldór
Halldór Halldórsson, prófessor,
gaf þessum nöfnum íslenzka nafn
ið „fiskiriti' og sagðist Jakob
vonast til þess að nafn þetta fest-
ist í málinu.
Bókinni er skipt í átta megin-
kafla oig eru margar skýringa-
myndir með efninu. Bókin kem-
ur í verzlanir innan skamms, en
hægt verður að fá hana hjá Fiski
félaginu.
><r
Isbrjóturinn Edisto, sem er á leið til Arlis ii.
bOBB d
ii
Sigurður Líndal.
Stjérnmóliihíut-
verk nýrrur
kynslóSor
NÆSTI klúbbfundur Heimdall-
ar verdur nk. laugardag, 1. maí.
Húsið er opnað kl. 12.30, en
fundurinn hefst kl. 13. Á þess-
um fundi mun Sigurður Lindal
flytja erindi um stjórnmálahlut-
verk nýrrar kynslóðar. Er ekki
að efa, að margt forvitnilegt
mun koma fram i erindi Sigurð-
ar, og eru Heimdeliingar ein-
dregið hvattir til þess að fjöl-
menita og taka með sér gesti.
ÞAÐ slys varð kl. 15.25 í gær-
1 dag, á Keflavíkurflugvelli, að
I tvítugur sjóliði beið bana
) undir flugvél, sem hann var
, að vinna við.
Nánari tildrög slyssins eru
! þau að ein af flugvélum varn-
| arliðsins var að koma úr flugi
og búin að taka þá stöðu er
hún skyldi vera í yfir nótt-
1 ina og var verið að ganga frá
I öryggisbúnaði við hana í því
I sambandi. Hinn ungi sjóliíi
var að setja öryggisfestingu}
' á vinstra hjól vélarinnar, er
I það skyndilega skall úr stöðu
, sinni og fór í far það, er það
hefir, þegar flugvélin er á
! flugi. Lenti sjóliðinn upp í
I falsið og beið bana.
Rannsóknarnefnd athugar
hvað valdið hefir slysinu og
' er þeirri rannsókn ekki lokið.
ísinn krin
að ísbrjðturinn kemst
anga
BANDARÍSKA ísbrjótnum
Edisto hefur ekki genigið vel að
brjótast norður til Arlis II, vís-
indastöðvarinnar á ísjakanum
við austurströnd Grænlands. ís-
inn er svo þéttur umhverfis ís-
eyjuna að ekki verður af því að
ísbrjóturinn geti flutt menn og
tæki af jakanum i bráð og er nú
gert ráð fyrir að brottflutningur
geti dregizt fram undir miðjan
maí. Á meðan bíður isbrjóturinn
og rekur bæði hann og íseynna
með svipuðum hraða í suð-vestur
átt, en um 110 km. eru á milli
þeirra.
Allt er í lagi hjá vísindamönn-
unum á jakanum, sem nú er stað-
settur á 67 giáðum 48 mínútum
n. br. og 23 gráðum 47 mínútum
v. 1., og vísindamennirnir fá nú
lemgri tíma til að halda áfram
rannsóknum sínum en gert hafði
verið ráð fyrir. Umhverfis ís-
eyjuna er bæði þykkur og „úttur
ís,' allt að 3 m. Ekkert hefur urotn
að af jakanum langa hríð og er
rekísinn umhverfis hann góð hlíf,
svo hann er talinn tryggari að-
seturstaður núna en oftast áður
þennan tíma sem hann hefur rek-
ið. Ekki er unnt að lenda á jak-
anum, því að mikið hefir snjóað
á hann, og veður verið of hlýtt
til að snjórinn harðni nægilega.
Hitastig er um frostmark, en 2,2
stiga frost þarf í 3 dag til að flug
brautin verði nothæf Og komi
ekki slíkt veður verður ekki fram
ar lent þar. Fluigvélar frá Kefla-
vík fljúga við og við yfir jakann
í könnunarskyni og varpa niður
nauðsynjum og loftskeytasam-
band er við jakann frá Keflavík
Dróttskétasveit Skátaféi.
^kureyrar SiSýtur #-‘í,5SiIw*egS/
í TILEFNI fyrstu afhendingar
Forsetamerkis dróttskáta, hélt
Bandalag ísl. skáta hóf í Skáta
heimilinu við Snorrabraut sl.
laugardagskvöld. í hófi þessu
voru skátar frá fjölda félaga
í nágrenni Beykjavíkur. í hóf-
inu var afhent öndvegi, sem
Jóuaa aóusson afiienuir Tryggva Þoiateinssyni öndvesio.
dróttskátasveit Skátafélags
Akureyrar hlaut. Öndvegi
þetta átti sú dróttskátasveit
að fá, sem hefði hlutfallslega
flejta dróttskáta, er ferr ju
Forsetamerkið í fyrsta sinn,
en 20 af 21 dróttskáta, er
fengu Forsetamerkið í Bessa-
staðakirkju voru úr Skáta-
félagi Akureyrar. Meðfytgj-
andi mynd sýnir Jóns B. Jóns-
son, skátahöfðingja, afhenda
Tryggva Þorsteinssyni, for-
ingja dróttskátanna á Akur-
eyri öndvegið. Öndvegi þetta
var fagurlega úts'korið og má
sjá Forsetamerkið útskorið í
miðju baki þess. Dróttskátarn-
ir í Skátafélagi Akureyrar
hafa starfað vel og sleitulaust
undanfarin ár, svo það var
síður en svo að ástæðulausu
að þeir höfðu öndvegið með
í förinni, er þeir héldu norður
til Akureyrar eftir óslitna sig-
urhelgi.
í fyrrnefndu hófi var einni.g
afhent næst-æðsta heiðurs-
merki skáta. Heiðursmerki
þetta heitir skátakveðjan og
hlaut har.a Arnbjörn Kristins-
son, útgefandi. Arnbjöm er
fimmti íslezkri skátinn, sem
hlýtur skátakveðjuna, en hún
er aðeins veitt einu sinni á ári.
Arnbjörn Kristinssoa hefur
verið dugandi skáti í mörg ár,
fyrst í Skátafélaginu Faxa í
Vestmannaeyjum en hin
seinni ár hjá Bandalagi ísl.
skáta. Hefur Arnbjörn átt
sæti í stjórn Bandalags isl.
skáta hin síðari ár.
Að loknu borðhaldi var
haldin kvöldvaka.
Musica Nova
lieMur hlióm-
leika 5. maí.
MUSICA NOVA efnir til hljóm-
léika í Þjóðleikhúskjallaranum
miðvikudaginn 5. maí kl. 8.30
e.h. Að venju verður svo til hag-
að að fólk geti setið við borð og
drukkið kaffi sitt meðan hlustað
er á tónlistina
Á tónleikunum verður frum-
flutt verk eftir Herbert Hriber-
schek Ágústsson, kvartett fyrir
þrjú blásturshljóðfæri og violu.
Þá verður verk eftir Matthias
Seiber, blásarakvintett, og annað
eftir Villa Lobos. Loks verður
flutt Vetrarmúsik eftir Bennett,
sem er kornungt brezkt tónskáld
oig leiðandi maður í svipuðum
Uinlistarhóp og Musica Nova er.
urflugvelli.
Ekki er því fært til íseyjarinn-
ar. I því sambandi má geta þess
að er fréttamaður Mbl. fór þang-
að, skýrði Schindler, sá st.n
stjórnar samgöngum við jakann,
hönum frá því að alltaf væri
hægt að ná sjúklingum af slikum
stöðum, ef í nauðir ræki. Flugvél
varpaði niður sjúkrakörfu með
löngum taugum og betg, se n
blæs upp á endanum. Þegar bu-
ið er að búa um sjúklinginn í
körfunni, komi svo flugvélin yíir
með tvo króka, sem krækist ,um
böndin og dragi sjúklinginn u ip
í loftið og um borð í flugvélina.
Edisto kröftugur ísbrjótur
Edisto er stór og kröftugur í-
brjótur 6400 tonn, sérstaklega t-
búinn til að brjóta ís á Norður.s-
hafinu og á Suðurskauts'höfum
til aðstoðar við vísindastarfsemi
og stöðvar á þessum stöðurru
Skrokkurinn er sérstaklega
styrktur til þes's og hefur kerfi a£
ballesttönkum til að halla skipinu
um 10 gráður og rugga því þann-
ig til hliðanna til hjálpar við að
brjótast gegnum ísinn. Yfir af.ur
dekkinu er flugþilfar og hefur is-
brjóturinn tvær þyrlur til könn-
unarflugs, björgunarflugs cig
vistaflutninga. Hann er útbúinn
6 dieselvélum, sem hafa 10 þús.
hestöfl. Auk þess sem Edisto er
vel útbúinn til að brjóta ís, hefur
hann útbúnað fyrir vísindalsgar
rannsóknir, bæði veðurfræðileg-
ar og haffræðilegar, og hefur ver
ið hafður í slíkum rannsóknutn
í íshöfunum. Yfirmaður skipsins
er Commander Norval E. Nicker-
son.
Esisto hefur í 20 ár, síðan hann
var byggður, verið við marg> s-
leg störf bæði við Suðurskac ;-
landið og við Norðurpólinn. _s-
brjóturinn var sendur til íslanus,
til að vera til taks til að ná vís-
indamönnunum, sem eru á Arlis
II, ef tæki fyrir fluigferðir þang-
að, og sækja þangað ýmis vísinda
tæki. Hann kom beint úr Suður-
shafinu og meðan hann beið var
hann að vísindastörfum með haf-
fi’æðinga á hafinu milli íslanda
og Spitzbergen.
Þar sem ísjnn var miklu þykk-
ari og þéttari en ráð hafði verið
fyrir gert, er Edista í bili hættur
við að halda norður til jakans,
en bíður um 110 km. sunnar, á
breiddargráðu 66.32 og lengdar-
gráðu 26.50, eftir að lænur kunni
að opnast og rekur á meðan til
suðvesturs, eins og jakann.