Morgunblaðið - 29.04.1965, Page 8

Morgunblaðið - 29.04.1965, Page 8
8 MORC U N B LAÐIÐ Fimmtudagur 29. apríl 1965 Flugféldg þola ekki Idng verkfðll FUNBIR voru í báðum deildum Alþingis og í sameinuðu þingi í gær. I sameinuðu Alþingi urðu einna mestar umræður um þátill. um stækkun fiskveiðilögsögu fyr ir Vestfjörðum. í Eteðri deild urðu nokkmr umræður um frv. ríkisstjórnarinnar um innlent lán, og í efri deild varð lokið 2 umræðu um frv. um lausn kjara deilu aívinnuflugmanna, en at- kvæðagreiðslu var þó frestað. SAMEINAÐ ÞING. Á fundi sameinaðs Alþingis í gær gerði Geir Gunnarsson grein fyrir svohljóðandi fyrirspurn til félagsmálaráðherra um dánar og örorkubætur sjómanna: 1. Hversu miðar þeirri athug- un, sem gert er ráð fyrir í til- lögu tii þingsályktunar um sér- stakar dánar- og örorkubætur sjómanna, sem samþykkt var á Aliþingi hinn 4. marz 1904? 2. Eru líkur á, að niðurstöður þeirrar athugunar verði lagðar fyrir Alþingi það, er nú situr? Emil Jónsson félagsmálaráð- herra svaraði því til, að nefnd sú, sem skipuð var til þess að athuga þetta mál, hefði enn ekki lokið starfi sínu, og því yrði ekki hægt að leggja málið fyrir þetta þing. Geir Gunnarsson tók aftur til máls og harmaði það, að störf- um nefndarinnar hefði ekki ver- ið hraðað nægilega mikið til þess að unnt yrði að afgreiða það á þessu þingi. Kvað hann nefndina hafa veri skipaða 30. júní 1964 og hefði hún á þeim líma, sem síðan væri liðinn, átt að geta lokið athugunum sínum. Jón Árnason mælti fyrir áliti fjárhagsnefndar á þingsályktunar tillögu Jónasar Péturssonar um ræktun lerkis á FljótsdalshéraðL Kvað hann tillöguna hafa verið senda Skógræktarfélagi Islands og Skógrækt ríkisins til umsagn ar, og hefðu báðir þeir aðilar mælt eindregið með samþykkt hennar. Var tillagan síðan sam- þykkt samhlj'óða. Þá fór fram frh. umræðu um þingsályktunartillögu Hannibals Valdimarssonar og Sigurvins Ein arssonar um útfærslu fiskveiði- landhelginnar fyrir Vestfjörðum. Hannibal Valdimarsson kvaðst fagna því, að umræður um þetta mikilsverða mál hefðu orðið á annan hátt af hendi ráðherranna en hefði verið í málgögnum stjórnarflokkanna. Fór hann þó fram á, að ríkisstjórnin gæfi skýr svör við því, hvaða afstöðu hún hygðist taka til afgreiðslu málsins á Alþingi Síðan ræddi Hannibal ítarlega þá þýðingu, sem stækkun fisk- veiðilögsögunnar fyrir Vestfjörð um hefði fyrir fiskveiðar Vest- firðinga, og benti á þá sérstöðu, sem þessi byggðarlög hefðu frá öðrum landshlutum í þessum efnum. Rakti hann síðan niður- stöðu Allþjóðadómstólsins í máli sem reis á sínum tíma vegna stækkunar fiskveiðilögsögunnar við Norður-Noreg, og taldi sömu rök eiga við varðandi Vestfirði. Lúðvík Jósepsson taiaði einn- ig og tók mjög í sama streng og Hannibal Valdimarsson. Síðan var umræðunni frestað. Skiptar skoðanir voru á því, til hvaða nefndar tillögunni skyldi vísað. Samþykkt var með 25 at kvæðum gegn 11 tillaga forseta um að visa henni til utanríkis- málanefndar, en Hannibal hafði lagt til, að henni yrði vísað til allsherj arnef ndar. EFRI DEILD. Frumvarp ríkisstjórnarmnar um lausn verkfalls flugmanna var til 2. umræðu í efri deild Alþingis í gær. Jón Þorsteinsson hafði fram sögu fyrir áliti meirihluta sam- göngumálanefndar, sem mælti með samþykkt frumvarpsins ó- breytts. Um efn- I islega hlið þess arar deilu sagði hann, að ekki væri óeðlilegt að sömu hlutföll væru milli launa flugmanna Rolls Royce 400 apnars vegar og flugmanna DC 6 og Viscount hins vegar, hérlendis eins og annars staðar Þetla hlutfall erlendis hefðu hins vegar hvorki flugmenn né fulltrúar Loftleiða getað upp- lýst samgöngumálanefnd um. Þá benti Jón á, að rekstur flugfé- laga væri með þeim hætti, að þau þyldu illa langvarandi verk föll. Þetta yrðu flugmenn að hafa í huga, er þeir færu út í verk- 'fall, en hins vegar væri auðvitað alveg ófært, að flugfélög neituðu sanngjörnum samningum við flugmenn sína í skjóli þess, að ríkisstj órnin gripi inn í ef til verkfalls kæmi Þá sagði Jón Þorsteinsson að með því að ákveða gerðardóm í máli þessu, væri ekki verið að gefa neitt fordæmi varðandi væntanlega kjarasamninga ann- arra stéttarfélaga nú í sumar. Milli vinnudeilu flugmanna og Loftleiða annars vegar og ann arra stétta hins vegar væri að- eins eitt samband; stórfelll launahækkun flugmanna gæti haft í för með sér hliðstæðar kföf ur annarra hátekjumanna í land inu. Björn Jónsson mælti fyrir áliti minni hluta samgöngumálanefnd- ar, sem lagðist gegn samþykkt frv. Sagði hann flugmenn hafa lýst því yfir, að þeir myndu ekki taka laun hjá Loftleiðum eftir úrskurði gerðar- dóms. Kvað hann minni hlut ann þegar af þeirri ástæðu vera á móti samþykkt frumvarps ins. Sagði Björn, að hann væri nú fjær því en nokkru sinni áður að telja samþykkt frv. mundu flýta fyrir lausn deilunnar. Björn sagði varðandi 3. gr. frv. um að gerðardómur skyldi ákveða laun flugmanna með hliðsjón af launum annarra sam bærilegra manna í landinu, að ekki væri unnt að bera flug- menn á RR 400 saman við neina aðra hér á landi. Þá kvað hann þetta vera mál, sem varðaði öll stéttarfélög í landinU, þar sem með frv. væri vegið að rétti þeirra til frjálsra samninga. Alfreð Gíslason sagði, að það væri alrangt, að verkföll væru til tjóns fyrir þjóðina. Þau hefðu verið mörg og stór hér á landi um dagana og orðið til þess að lyfta þjóðinni fjárhagslega og menningarlega og verið til góðs fyrir þjóðina. Jón Þorsteinsson kvaðst gera ráð fyrir því að yfirlýsing flug- manna, um að þeir tækju ekki laun skv. niðurstöðu kjaradóms, væri gerð af þeirri óskhyggju, að hún myndi hafa áhrif á af- stöðu þingmanna. Þá taldi hann alveg fráleita þá afstöðu stjórnar andstæðinga að vilja fella laga- frumvarp af þeirri ástæðu, að þeir sem hlýða ættu lögunum, vildu það ekki. Jón kvaðst líta þannig á, að flugmenn á DC 6 og Viscount væru sambærilegir við flugmenn á RR 400, og að gerðardómur ætti að taka tillit til eðlilegs launamismunar þar á milli. Um kl. 4,30 var fundi í deild- inni frestað til kl. 6. Þá töluðu Björn Jónsson og Páll Þorsteins- son, en síðan var atkvæðagreiðslu frestað. NEÐRI DEILD. Átta mál voru á dagskrá neðri deildar Alþingis í gær. Frv. um bann gegn botnvörpuveiðum var vísað til 2. umræðu og sjávar- útvegsnefndar. Jóhann Hafstein iðnaðarmála- ráðherra mælti fyrir frv. um lausaskuldir iðn aðarins, og var því vísað til 2. umr. og iðnaðar málanefndar. Jó hann mælti einn ig fyrir frv. um byggingu drátt- arbrauta og skipasmíðastöðva, og var því vísað til 2. umræðu og iðnaðar- málanefndar. Emil Jóiusson, sjávarútvegs- málaráðherra talaði fyrir frv. um ráðstafanir vegna sjávarút- vegsins. Nokkrar umræður urðu um málið, en síð an var það af- greitt sem lög ji frá Alþingi. Þá mælti Emil einn ig fyrir frum- vörpum um ljós mæðralög og ráð stöfun erfðafjár skatts og erfða- fjár ríkisins til I vinnuheimila, og var þeim báð- um vísað til 2. umræðu og heil- brigðis- og félagsmálanefndar. Þá var frv. um Myndlista- og handiðaskóla íslands vLað til 3. umræðu. Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra mælti fyrir frv. ríkis- stjórnairnnar um innlent lán. Kvað hann hér vera um að ræða breytingu á lög- um um þessi efni frá því í haust, og fæli hún í sér heim- ild fyrir ríkis- stjómina til að taka 75 milljón kr. lán ti.l viðbót ar því, sem tekið var í haust. Sagði ráðherrann fé þessu mundu verða varið til framkvæmdaáætl unar á árinu 1966. Eysteinn Jónsson spurðist fyr- ir um það, til hvers fé því, sem ríkisstjórnin hefði fengið með út boði 75 millj. kr. skuldabréfa í haust, hefði verið varið. Lúðvík Jósepsson sagði, að það væri mjög óeðlilegt að ríkisstjórn in leitaði til Alþingis með mál sem þetta án þess að skýra ná- kvæmlega frá, í hvaða fram- kvæmdir fénu skyldi varið. Þessi fjáröflun væri með öðrum hætti en tíðkazt hefði og hér væri verið að leggjá út á þá braut að eyða fyrirfram framkvæmdafé korandi ára. Einar Águstsson kvað nú ger- ast skammt stórra högga á milli, þar sem ekki væru liðnir nema 4 mánuðir síðan ríkisstjórnin hefði fengið 75 millj. kr. lán með sama hætti. Kvað hann þetta koma mjög illa við viðskiptabank ana og hefta mjög getu þeirra til þess að leysa vanda viðskipta- manna. Sagði hann, að í haust hefði reynslan orðið sú, að al- menningur hefði tekið fé út úr bönkunum til kaupa á skulda- bréfunum, og hefðu bréfin að langmestu ef ekki öllu leyti selzt með þeim hætti. Þá gagnrýndi hann, að bréfin skyldu ekki frara talsskyld. Gunnar Thoroddsen upplýsti, að ekki væri enn að fullu lokið ráðstöfun Jánsins frá því í haust, en því hefði aðallega verið varið til hafna, raforkumála o. fl. —- Kvaðst ráðherrann mundu gefa fjárhagsnefnd yfirlit yfir ráðstöf un fjárins. Þá sagði hann, að lán inu að þessu sinni yrði varið aðallega til eftirfarandi fram- kvæmda, sem gert er ráð fyrir í framkvæmdaáætluninni: Raf- virkjana, hafnarframkvæmdsi, vegagerðar og byggingar flug- valla. Einar Oleirsson sagði ,að eðli- legra væri að verja fénu til arð bærra framkvæmda, þegar tekið væri lán með nærri því okur- vöxtum, enda þótt t.d. vegagerð væri í sjálfu sér nauðsynleg.. — Sagði hann, að ekki væri rétt að ríkissjóður aflaði sér fjár með þessum hætti, heldur ætti Seðla- bankinn að lána til þessara fram- kvæmda. Sú stofnun væri í eigu ríkissjóðs, og ætti hún því að þjóna honum með þeim hætti að lána honum fé eftir þörfum með rnjög lágum vöxtum. Síðan var frv. vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. „tódýríigaríar eiga ekkert skylt við villtan misi\“ MEINLEG prentvilla varð í fyr- irsögn greinar Hermanns Brydde í blaðinu í gær. Fyrirsögnin átti að vera: „Loðdýragarðar eiga ekkert skylt við VILLTAN mink“. Orðið villtur féll niður úr fyrirsögninni. Dauöur örn finnst fyrir vestan í FYRRAKVÖLD barst hing- að til Reykjavíkur vestan af fjörðum dauður örn, er Sig- urður Þórðarson, bóndi að Laugabóli í Nauteyrarhreppi, fann um síðustu helgi. — Það verður ekkert full- yrt um dauðaorsökina, sagði Finnur Guðmundsson, fugla- fræðingur. Áverki var á öðr- um fæti hans er bent gæti til þess að hann hefði jafnvel lent í dýraboga, en um það verður ekkert fúllyrt eins og ég sagði áðan. Fyrir hinn litla arnarstwfn hér á landi er vissulega mikil eftirsjón í hiverjum erni, sem fellur, en ekki verða þeir ei- lífir frekar en við mennirnir. Morgunblaðið átti einnig símtal við Sigurð Þórðarson á Laugabóli. Hann sagðist hafa fundið örninn á laugar- daginn er hann var á leið frá Reykjaskóla og kominn að Laugará, sem rennur til sjáv- ar milli Eyrar og Bjama- staða. Kvaðst Sigurður hafa séð dauðan fugl rétt við veg- inn. Hann hafði ekki séð hann daginn áður er hann átti leið um. Mér datt fyrst í hug að þetta væri skarfur, sagði Sigurður. Nokkurt fjaðrafok var þar. Þegar ég sá að þetta var dauður öm varð mér strax hugsað til arnanna tveggja, sem halda sig hér um slóðir; er annar gamall örn en hinn ungur. Hélt áð þarna hefði ungi örninn drepizt. — Það hafði verið nærri daglegur viðburður að sjá þá á Élugi. Það liðu nokikrir dagar og ekki sá ég til arnanna. Svo Vængjahaf arnarins er mikið og fjaðrir sterklegar i hinum breiðu vængjum hans. — Þessi mynd er tekin af dauða erninum í fyrrakvöld. — Til hægri á myndinni er Magnús Jóhannsson útvarpsvirkja- meistari, en hann fékk örninn sá ég annan aftur í gær. Sá ég mér til mikillar ánægju að það var ungi örninn, sem flaug tignarlega yfir. Sá ungi var bráðlifandi. Sá gamli sem ekiki varp í fyrra hafði drep- izt Það er þvd minni skaði að. Og nú vona ég að ungi örninn fái sér ungaai fallegan maka. Sigurður á Laugabóli sagð- ist hafa tekið eftir því er hann tók dauða örninn upp, að það var stórt gat ó höfði hans. Ég hefi látið nvér dietta í hug, sagði hann að refur eða minkur hafi bomizt að sendan að vestan. Magnús hef- ur gert frábæra kvikmynd af islenzka erninum. Og hann gat notað þennan dauða öm til að fylla upp í dálítið skarð í þá mynd, eins og Magnús komst að orði í gær. eminum og ráðist á hann og drepið á svipstundu og rifið fuglinn á hol, enda var búið að eta alla bringu fuglsins og allt innan úr honum. Hér er allt fullt af refum og mink- um, sagði Sigurður, sem taldi aftur á móti engar líkur til þess að örninn hafi lent í dýraboga, sér væri ekki kunn ugt um að þeir væru í notk- un á þessum tíma árs, og þeir þá venjulegast settir inn í grenjamunan. Og þessi meiðsl sem væru á fæti fuglsins, munu trúlega stafa af öðrum orsökum, sagði Sigurður að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.