Morgunblaðið - 21.05.1965, Blaðsíða 32
Lang stærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi utbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
rtjgttttHfafrUkr
114. tbl. — Föstudagur 21. maí 1965
Verður að loka veitinga-
húsum og vínstúkum?
Vestingamenn ábyrgir
fyrir vínverðinu
DÓMSMA'LARÁÐUNEYTIQ hef-
ur kallað á sinn fund bæði full-
trúa veitingamanna og þjóna
vegna deilunnar, sem risin er um
verð á áfengi í „sjússum“ á veit-
ingahúsum, en þjónar munu
ætla að halda áfram að selja þá
skv. þeirri nýju gjaldskrá sem
4>eir hafa sett sér og telja aðeins
18 sjússa í flöskunni. Brýndi full-
trúi ráðuneytisins fyrir þessum
aðilum að fara eftir þeim reglum,
sem settar höfðu verið.
Ólafur W. Stefánsson, fulltrúi
1 ráðuneytinu, tjáði blaðinu að
ráðuneytið líti svo á að þetta
»é ekki málefni þjónanna heldur
veitingamannanna. Þeir séu leyf-
ishafar og beri að sjá um að lög-
um og reglum áfengislöggjafar-
innar sé hlýtt. Veitingahúsin
hafi söluleyfi, hámarksverð sé á
áfengi. Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins gefi út verðskrá og ofan
á það megi leggja söluskatt og
þjónustugjald.
Þá hafði Mbl. samband við
Halldór Gröndal veitingamann,
sem sagði þetta rétt. Veitinga-
mönnum hefði verið tjáð að þeir
bæru ábyrgð á verðinu og gæti
svo farið að þeir yrðu beittir
viðurlögum, sem gæti þýtt leyfis-
sviftingu. En veitingahúsin ættu
svo aftur skaðabótakröfur á
hendur þjónunum. Sagði hann að
leyfishafar hafi haldið með sér
fund og þeir muni gera allt sem
í þeirra valdi stendur til að hafa
þjónana ofan af því að fara eftir
hinni nýju verðskrá sinni.
Gæti farið svo að veitingamenn
neyddust til að loka ölium veit-
ingahúsum og börum, til að
komast hjá viðurlögum og
leyfissviftingum. Skaðabótakröf-
ur yrðu þá að sjálfsögðu háar,
ef öllu yrði að loka.
Sjávarútvegs-
málaráðherra
til Rússlands
EMIL Jónsson, sjávarútveigsmála-
ráðherra, fer í opinbera heim-
sókn til Sovétríkjanna næstkom-
andi sunnudag og mun hann
dvelja þar í hálfan mánuð. Mun
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri
verða í för með ráðherranum á
ferðalaginu um Sovétrikin, en
hann situr nú fundi Alþjóðahaf-
rannsóknarráðsins í Moskvu.
Mun fiskimálaráðherra einkum
skoða fiskiðjuver í Sovétríkjun-
um og kynna sér fiskiðnað. Er
áformað að hann komi m.a. til
borga við Eistrasalt og Svarta-
haf.
Óðinn með olíu
til Raufarhafnar
IMú fyllir ís höfnina
RAUFARHÖFN, 20. maí — Hér
á Raufarhöfn var að verða olíu-
laust, því olíuskip hafa ekki kom
izt hér inn lengi vegna íssins.
Hefur það orðið mjög bagalegt,
því víðast væri ekki einu sinni
hægt að elda mat. Var landhelg
isgæzlan beðin um aðstoð og brá
bún skjótt við og sendi Óðin
frá Siglufirði með 60 tonn af
olíu.
Ekki komst Óðinn þó inn í
Blikfaxi til
Húsavíkur
HÚSAVÍK, 20. maí. — Blikfaxi,
hin nýja Fockervél Flugfélags
íslands, kom áætlunarflugferðina
til Húsavíkur í dag með viðkomu
á Sauðárkróki. Er það í fyrsta
skipti sem vélin lendir á Húsavík
og fögnuðu Húsvíkingar komu
hennar. Flugstjóri var Jón Ragn-
ar Steindórsson og aðstoðarflug-
maður Ingimundur Þorsteinsson.
Flugfélagið hefur 3 áætlunar-
ferðir á viku til Húsavikur og er
brottför úr Reykjavík á þriðju-
dögum, fimmtudöigum og laugar-
dögum kl. 15. í sumar verður
DC-3 vél í þeirri áætlun, en þegar
flugfélagið hefur næsta ár feng-
ið aðra Fockervél, er áformað að
setja hana inn á áætlun Húsavík-
ur. — Fréttaritari.
Svartbakur
etur ungana
ENDURNAR eru nú að byrja
ið koma með unga sína á Læk-
inn í Hafnarfirði, en svartbak-
urinn virðist ætla að tína
ungana upp jafn óðum. 1 gær-
morgun kom t.d. ein önd með
10 unga niður á Lækinn, en í
gærkvöldi virtust aðeins 3
eftir. Þannig gengur það til í
ríki náttúrunnar, en ljótt er
að þurfa að horfa upp á það.
Listaverk í öllum gluggum |
Hallgrímskirkju í Saurbæ I
höfnina, þvi daginn áður slitn-
aði strengurinn, sem hefur hald
ið ísnum utan við og fylltist höfn
in af ís á einni klukkustund.
Liggur Óðinn fyrir utan og var
sett slanga í land, sem olíunni er
dælt um í bíl í landi, um 100 m.
vegalengd. Gengur það sæmilega
vel.
fsinn fyllir alla höfnina og aust
anáttin heldur honum að landi.
Bátar voru settir upp þegar séð
var að hverju fór og því ekki í
neinni hættu. Með norðan- eða
vestanátt ætti ísinn að reka aft-
ur út.
Þetta gæti þó tafið menn frá
Björgun, sem hafa unnið að
björgun á Sussönnu Reith að und
anförnu. Ætla þeir að reyna að
ná framhluta skipsins af strand-
stað. En ísinn liggur nú allt í
kringum flakið
Framhald á bls. 2
1 í FYRRAKVÖLD voru hinir
| nýju kirkjugluggar komnir
i upp í Hallgrímskirkju í Saur-
I bæ, oig barst lituð kvöldibirtan
i gegnum þá inn í kirkjuna.
I Þar voru stödd listakonan
\ Gerður Helgadóttir, sem hafði
i gert gluggana, Fritzt Oidtman,
i eigandi hins kunna verkstæðis
i í Þýzkalandi, sem framleiddi
i þá, ásamt aðstoðarmanni sín-
| um, og gefendur tveggja glugig
I anna, Loftur Bjarnason út-
gerðarmaður og frú hans og
prófasturinn sr. Sigurjón Guð-
jónsson í Saurbæ og frú hans.
Stærsti glugginn er norðan-
magin 1,30x3,20 m. að stærð.
1 efri hluta hans er lagt út af
orðunum: „Kona, hví grætur
þú?“, og í neðrj hlutanum úr
sálmi Hallgríms Péturssonar
„Allt eins og blómstrið eina“,
einkum seinustu línunum, sem
hljóða svo: „Kom þú sæll, þá
þú villt“. Þann glugga gefa
prófasthjónin, sr. Sigurjón |
Guðjónsson og frú Guðrún §
Þórarinsdóttir.
Sunnanmegin í kirkjunni |
eru 5 minni glugigar, 1,80x1 m. f
að stærð, og þar lagt út af |
krossfestingunni. Fyrsti glugg- |
inn er Via Dolorosa, næsti I
krossfestingin, sá þriðji Pieta f
og fjórði upprisan, en fimmti |
glugginn er litminni og ekki f
mynd í honum, þar eð ekki f
Framhald á bls. 31
Aðalfundur SH samþykkir að reisa
nýja fiskstautaverksmiðju vestra
Fundinum lauk síðdegis í gær
að afstöðnu stjórnarkjöri
efsson, Rafn Pétursson, Ágúst
Flygenring, Jón Jónsson og Hux-
ley Ólafsson.
Stjórn félagsins mun sjálf
skipta með sér verkum.
Síðar verður sagt nánar frá
samþykktum aðalfundarins.
Salisbury, 20. maí.
NTB — AP.
♦ Afríski blökkumannaleið-
toginn séra Ndabaningi Sit
hole í S-Rhódesíu var í dag
látinn laus úr fangelsi. En
ekki var hann fyrr kominn út
fyrir fangelsisdyrnar en hann
var dæmdur í fimm ára stofu-
fangelsi.
Mannekla tefur
uppskipun ■ Rvík
AÐALFUNDI Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna lauk í Reykja-
vík síðdegis í gær. Meðal til-
lagna, sem samþykktar voru, var
heimild fyrir stjórn SH að ráð-
ast í byggingu nýrrar fiskvinnslu-
verksmiðju á austurströnd
Bandarikjanna. Á næstunni
munu væntanlega hefjast athug-
anir á hvar og með hvaða hætti
verksmiðjan verður byggð.
Aðalfundinum, sem hófst sl.
miðvikudag, var haidið áfram
eftir hádegi í gær. Voru þá
nefndaálit og tillögur teknar til
afgreiðslu.
Stjórnarkjör fór fram í lok
fundarins og voru kjörnir í aðal-
stjórn: Sigurður Ágústsson,
Stykkishólmi; Finnbogi Guð-
mundsson, Gerðum; Einar Sig-
urjónsson, Vestmannaeyjum;
Gunnar Guðjónsson, Reykjavík;
Guðfinnur Einarsson, Bolungar-
vík; Gísli Konráðsson, Akureyri;
Ingvar Vilhjálmsson, Reykjavík;
Tryggvi Ófeigsson, Reykjavík;
og Ólafur Jónsson, Sandgerði.
í varastjórn voru kjörnir:
Sturlaugur Böðvarsson, Ásgrímur
Pálsson, Röignvaldur Óiafsson,
Ólafur Gunnarsson, I<úðvík Jós-
MIKILL skortur er á vinnuafli
við Reykjavíkurhöfn og tefur það
stórlega upp- og útskipun. Er
oft ekki unnið með hálfum af-
köstum við skipin, iðulega eitt
gengi eða tvö við hvert skip, þar
sem þyrfti 4—6.
1 gær biðu afgreiðslu leiguskip
frá Hafskip, leiguskip frá Eim-
skip og Katla, sem talað var um
að mundi flytja sig til Hafnar-
fiarðar. Úfl fyrir bíður alltaf
stórt McCormick skip, sem búið
er að bíða í 10 daga, en annað
flutningaskip frá Varnarliðinn
var í höfninni og varla mannskap
ur til að vinna við það.