Morgunblaðið - 10.06.1965, Side 31
jFÍ Fimmtudaguc 10. júní 1965
MORGUNBLADIÐ
31
% aí tunn ustaflan -
um valt í sjóinn
NORSKA skipið Stxjkksuind,
sem missfci um 10 þús. tunnur
í sjóinn út af Færeyjum á
mánudagsmorguin, kom til
Rauifarihafn'ar í gær. Sagði
skipstjórinn að þegar þetta
gerðist 'hafi ekki vetri'ð slæmit
veður, en komið ðheppileg
alda fyrir skip með svo mikla
dekkhleðslu. Á dekki voru
17000 tómar tuninur og staflað
langt upp fyrir brúna. Fór um
2/3 af tunnunum af dekkinu
fyrir borð.
Skipið kom með tunnurnar
frá Haugesund og áttu þær
að fara til Raufarhafnar o>g
Húsavíkur. Þetta eru tunn-
ur sem sæonskir síldarkaup-
endur eru að senda ttl ísilands
undir sérverkaða síld, sem
þeir kaupa.
M'bl. leita’ði upplýsinga um
það hvort tuninutap þetta gæti
tafið síldarsöltun og fékk
þau svör að lítið mumaði um
einn kepp í slátursitiðinni,
þegar saltað væri í 500 þús.
tunniur munaði lítið um 10
þús. Auk þess væri stutt til
Haugasunds efttr öðrum farmi
og tunnurnar vafaiaust
tryggðar.
— Sjóveiðar
Framhald af bls. 32
vegna Atlantshafsins, séu fundn-
ar. Fram til þessa hefur allt ver-
ið á huldu um þessar átustöðvar,
þ.e. hvar laxinn heldur sig á
þeim tíma, frá því að ungviði
halda úr heimaám og þar til
þau leifa þeirra aftur, — svo
og eldri fiskar á vetrum.
Mbl. getur bætt því við, að
kunnugt er, að m.a. Bretar hafa
af því miklar áhyggjur, hve
gífurleg veiðin er nú við Græn-
land, og telja ,að haldi þær
áfram, geti þær hoggið svo stórt
skarð í stofn þeirra, að seint
eða aldrei verði bætt.
Þrátt fyrir þau ummæli
danska fulltrúans, að láxinn
kunni að halda á nýjar átustöðv-
ar að ári, virðast Danir hafa þá
trú á framhaldi veiðanna, að
danska Grænlandsverzlunin hef-
ur ákveðið að veita rúmlega 30
xnilljónir ísl. króna til byggingu
frystihúsa til vinnslu á laxi í
Grænlandi.
Svo sem kunnugt er, lifir lax-
inn um helming ævi sinnar í
fersku vatni, og helming 1 sjó.
Lax nærist lítið eða ekki, eftir
að hann hefur gengið í ár, og
tekur því alla næringu sína í
sjó. Það er skoðun margra þjóða,
að lax sá, sem gengur úr heima-
ám til að ná stærð og þroska í
sjó á uppvaxtarskeiði, svo og
- íþróttir
Framhald af bls. 30
★ Öruggir sigrar
Glæsilegasta sigra vam.n Árdís
ÍÞórðardótttr frá Siglufirði sem
sigraði með yfirburðum í svigi
og í stórsvigi eftir haxða keppnd.
Árdís vanm svig á 97,1 sek. 2.
Sigríður Júlíusdótttr, Siglufirði
111.2 3. Hrafnjhiidur Helgadóttir
Reykjavík 118.3 — í stórsviginu
vairun Árdís á 59,1 sek. 2. Karó-
lína Guðmundsdóttir Akureyri
60,2.
Tími Ágústar Stefánssonar 1
svigimu var 122.3 sek. 2. Björn
Ólsen Siglufirði 127.1 3. Svan-
Iberg Þórðarson, ólafsfir’ði 127.3
— Aírek Ágústar er enin betra
í Ijósi þess að hann hafði rás-
púmer 40 og fór því mjög grafna
braut.
í stórsviginu sigraði Jóhann
Vilbergsson Siglufirði á 61.2 2.
Reynir Brynjólfsson Akureyri
62.2 3. Hafsiteinm Sigurðsson ísa-
firði 63.1.
Jóhann og Árdís uniruu tví-
keppni karla og kveruna.
í uniglingaflokki sigraði Tómás
Jónsson Reykjavík bæði í svigi
og stórsvigi. Vamn hanm svig á
98.6 sek 2. Jarl Tveit Noireigi á
99.4. Tveit er einm fremsiti yngri
skíðamannia Norðmanma niú. í
etórsvigi sigraðd Tómas á 60.5 sek
©n Tveit Vadð 2. á 63.8.
í drengjaflokki sdgraði Ámi
Óðinsson Aukireyri í svigi á 97.3
íog í stórsvigi á 58.1.
! Knaittspyrna var háð milli
Biglfirzkra SkíÖamrainina og að-
(komumanma og unrnu aðkomu-
jpienm með 6—0.
Bæjarstjórn Siglufjarðar hélt
ÍBkiðamönnum lokaveizlu og þar
voiru verðlaun aifhen.t.
'
eldri lax, sem gengur i sjó á
vetrum til að safna krafti undir
nýja hrygningu, sé ekki eign
neinnar þjóðar, heldur sé hér um
að ræða sameiginlega eign N-
Atlantshafsþjóðanna. Sízt á slík
einkaeign við um þær þjóðir,
sem engar ár eiga, þar sem lax-
inn hrygnir.
Er hér sömu sögu að segja og
um laxveiðar Dana í sjó í Eystra-
salti. Danir eiga engar laxár
lengur, en veiða allra þjóða mest
í Eystrasalti, en lax mun þar
fyrst og fremst vera fyrir hendi,
vegna ræktunarstarfsemi Svia,
sem líta þetta atferli illu auga.
Ekki ér neitt hægt að segja
að svo stöddu um áhrif veiðanna
við Grænland á íslenzka laxinn,
en vafalaust verður ráðstefna
vísindamanna í Halifax til að
varpa nýju ljósi á þetta vanda
mál. íslendingar eru ein þeirra
fækkandi þjóða við N-Atlants
haf, sem enn eiga auðugar lax-
veiðiár, en það má vera ljóst,
að frumskilyrðið fyrir því, að
svo verði áfram, er, að laxinn
geti á uppvaxtarskeiði og vetrum
haldið til sjávar á átustöðvar, og
óhindrað heim aftur.
Hér er því um sama hags-
munamál Islendinga að ræða og
þeirra þjóða, sem borið hafa
fram mótmæli á ráðstefnunni í
Halifax gegn sjóveiðum Dana.
Því má bæta við, að íslend-
ingar hafa, eins og kunnugt er,
hafizt handa um laxarækt, þ.e.
klak og uppeldi ungseiða, sem
síðan ná fullum vexti í sjó. Ný-
lega er tekin til starfa eldisstöð
í Kollafirði á vegum íslenzka
ríkisins. Þá vinna einnig ýmsir
aðilar að viðhaldi og aukningu
laxastofnsins hér á landi á svip-
aðan hátt.
— Vietnam
Framhald af bls. 1
enn einu sinni kominn fram á
stjórnmálasviðið í landihu.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í sjón-
varpsviðtali vestra í dag, að her-
lið Bandaríkjanna í S-Vietnam
mundi ekki „sitja þar eins og
dáleidd kanína og bíða eftir ár-
ásum Viet Cong“. Hann bætti
við því að búast mætti við hörð-
um árekstrum Viet Cong og
Bandaríkjamanna á monsúntima
bili því, sem nú stendur yfir
í Vietnam.
158 hermenn stjórnar S-Viet-
nam og tveir bandarískir ráð-
gjafar týndu lífi í hörðum bar-
dögum bæði norðan og sunnan
Saigon í dag.
í gærkvöldi var haldinn fund-
ur Madison Square Garden í
New York til að mótmæla nú-
verandi stefnu Bandaríkjastjórn
ar í Saigon. Að fundinum lokn-
um, en að honum stóðu 30 fé-
lagasamtök, var farið í mótmæla
göngu og gekk Wayne Morse,
öldungadeildarþingmaður frá
Oregon, í broddi fylgingar. Geng
ið var frá Madison Square
Garden , til aðalstöðva SÞ, og
hrópuðu göngumenn „Aldrei
oftar stríð“ og „Stöðvið stríðið
í Vietna.m“. (
Bandariskar þotur gerðu í dag
13 sprengjuárásir á skotmörk í
N-Vietnam. Þoturnar vörpuðu
Sigrún Vignisdóttir, fegurffardrottning íslands 1965.
Myndina tók Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon.
Tjón ó Mfreiðnm
— vitni vontnr
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag var
Volkswagen-bifreiff á bíiastæffi
við Laugaveg 75. Er ökumaður
hennar hugði aff bifreiðinni, sá
hann, aff ekiff liafffi veriff framan
á hana og hún skemmd nokkuð.
Sennilegt er talið, að bifreiff í
stæði fyrir framan hafi veriff
bakkað á hana. Þeir, sem kynnu
aff vita eitthvaff um þetta, eru
vinsamlegast beðnir að láta rann
sóknarlögregluna vita.
Sl. laugardag var piltur á
Fiat-bifreið á léið upp í Borgar-
fjörð. Á móts við .Brautarholt á
Kjalarnesi -mætti hann annarri
bifreið, sem ekið var allgreitt.
Skauzt steinn undan hjólum
hennar og braut framrúðuna í
Fiat-bifreiðinni. Piíturinn náði
ekki númeri bifreiðarinnar og
er heldur ekki viss um af hvaða
tegund hún var. Þetta gerðist
um kl. 11.15 f. h. Ökumaður sá,
sem þarna á í hlut, er vinsam-
legast beðinn að gefa sig fram
við rannsóknarlögregluna i
Reykjavík.
Aðaláhugamálið er leiklist
; — segir Sigrún Vignisdotlir,
E >
ifegurðardrottning Islands 1965
FEGURÐARDROTTNIN G
íslands 1965, Sigrún Vign-
isdóttir, er 18 ára að aldri,
fædd og uppalin á Akur-
eyri. Hún er dóttir Vignis
Guðmundssonar, blaða-
manns, og fyrri konu hans,
frú Önnu Pálu Sveinsdótt-
ur Bjarman. Sigrún er
gagnfræðingur frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar en
hefur auk þess stundað
nám í Edinborg. Fyrir
rúmu ári fluttist hún til
Reykjavíkur og starfar nú
í Seðlahankanum.
Við hittum Sigrúnu að
máli í gær á heimili ömmu
hennar frú Guðbjargar Bjar-
man Björnsdóttur prófasts að
Mikiabæ.
í uppnafi snerist samtalið
um það, hvort það væri eftir
sóknarvert að vera fegurðar-
drottning.
— Það er óneitanlega dá-
lítið erfitt, sagði Sigrún.
Sjáðu til, fólk tekur alltaf
eftir fegurðardrottningunni.
Það staldrar við og horfir á
eftir henni á götu. Einhvern-
veginn vill það, að fegurðar-
drottningin sé alltaf tilhöfð,
skarti sínu fegursta. En slíkt
á bara ekki vel við mig. Mér
fellur bezt að vera eðlileg og
með mitt slétta hár.
— En þú ert samt ánægð
yfir að hafa hreppt titilinn?
— Já, ef til vill veitir þetta
mér tækifæri til að gera sitt-
hvað, sem ég hefði kannski
ella ekki átt völ á. Mig hefur
til dæmis lengi langað til að
læra leiklist. Ég hef reyndar
aldrei á leiksvið komið og
veit ekkert, hvort ég hef hæfi
leika, en burtséð frá því held
ég að það sé ákaflega þrosk-
andi að læra leiklist.
— Þú hefur gengið 1 tízku
skóla, Sigrún?
— Já, og það finnst mér
ómetanlegt. Þar er veitt mjög
margvísleg tilsögn; við lær-
um til dæmis andlitssnyrt-
ingu, fallegt göngulag og sitt-
hvað í sambandi við kurt-
eisisvenjur.
— Og svo ætlarðu vestur
á Langasand?
— Það er gert ráð fyrir, aff
ég fari um miðjan júlí, held
ég. Annars er ég skelfing
ófróð um þetta. Ég veit bara,
að fargjöld og allt uppihald
er mér að kostnaðarlausu.
Hins vegar verð ég að leggja
til fatnaðinn, og það kostar
eflaust skildinginn-
— Nú fá fegurðardrottning
ar svo oft tilboð um að gerast
ljósmyndafyrirsætur. Mund-
ir þú þiggja slíkt tilboð, ef
þér bærist það
— Já, það mundi ég gera,
en aðeins um skemmri tima.
Þá mundi ég reyna að öngla
saman aurum til þess að læra
leiklist.
— Áhugamálin fyrir utan
leiklistina, Sigrún?
— Að kynnast fólki, lesa
góðar bækur, gjarna leikrit
— og fræða mig. Auðvitað
finnst mér líka gaman að
skemmta mér,' en ég sæki
sjaidan dansleiki.
— Einhverjir ungir menn
hefðu eflaust áhuga á að vita,
hvort fegurðardrottningin
væri trúlofuð.
— Ég er ekki trúlofuð —
ekki opinberlega!
23 tonnum af sprengjum og réð
ust einnig gegn skotmörkunum
með véibyssum. Flugvélarnar
komu allar aftur heilu og höldnu
úr ferðinni.
Stórblaðið New York Times
gagnrýndi í dag stjórn Johnsons
forseta harðlega fyrir stefnu
sína í Vietnam. í ritstjórnargrein
blaðsins, semer venju fremur
hvassyrt, segir að engu sé lík-
ara en búið sé að gera þá að-
stoð, sem forsetarnir Kennedy
og Eisenhower veittu S-Vietnam,
að styrjöld gegn Asíubúum.
— Aldur R.víkur
Framhald af bls. 1
hún í um hálfs me'ters dýpi og
sást, til hennar sunnan megin á
lóðinni. Vestar, á móts við mið-
dyrnar á norðurvegg Aðalstrætis
16 vqr önnur steinalögn, húp of-
ar í, jörðu, ,og enn vestar fannst
brunnur hlaðinn úr grjóti og yf-
ir honum rammi og hleri úr tré.
Brunnur þessi var um tveir metr ]
ar á dýpt og að hlera var um
hálfs meters þykkt jarðlag. í hon
um var svört leðja. Undir stétt-
inni, sem þarna kom í ljós, svo
og annars staðar á ofangreindu
svæði sást í jörðu aska, viðarkol,
mór, beinleifar, kalk, leirkera-,
skífu-, gler- og múrsteinabrot.
Mesta dýpi, sem leifar fundust á,
var um það bil tveir metrar.
Lagskipting kom fram á báð-
um svæðunum.
Úr neðsta laginu undir stétt-
inni á lóð Aðalstrætis 14 var tek-
ið sýnishorn með viðarkolum til
aldursákvörðunar með Carbon 14
aðferð. Vegna lags eldfjallaösku
á þessu svæði, svokallaðs „land-
námslags", virtist sem dýpsta
mannvistarlag væri frá því árla
á sögulegum tíma.
Sýnishprnið var sent til aldurs-
greiningar Þjóðminjasafni Dana
í Kaupmannahöfn. Samkvæmt
mælingunni eru viðarleifarnar,
eingöngu birki, 1340100 ára
gamlar, miðað við árið 1950, þ.e„
frá 610 +-í-100 e. Kr.
Frjógreining á sýnishorninu
bendir til þess, að landnám sé
hafið, þegar lagið myndaðist.
Eins og drepið er á í bréfi frá
Þjóðminjasafni Dana er senni-
legt, að sýnishorn mannavistar-
lagsins sé blandað efni úr lagi
undir því og því hafi hærjri ald-
ur mælzt en við var búizt.
Hér hefur í stuttu máli verið
gerð grein fyrir frumkönnun
þeirri á fornleifum í miðbænum,
sem ráðizt var í til að fá hug-
mynd um, hvar verið hafi bæj-
arstæði Ingólfs Arnarsonar í
Reykjavík.
Með virðingu
Þorkell Grímsson
Þorleifur Einarsson.
Bezt að auglýsa
í Moigunblaðinu