Morgunblaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 1
32 sitiur 92. árgangur. 130. tbl. — Laugardagur 12. júní 1965 Prentsmiðja Morgunblaðsim. „EVA var afskap- lega skemmtileg,, Frá blaðamarmafundi geimfaranna í Housion Houston, Texas, 11. júní, AP. GEIMFARARNIR bandarísku, James McDivitt og Edward White héldu fund með frétta- mönnum í Houston í dag og sýndu myndir úr geimferð- inni með Gemini IV. McDivitt sagði að í Gemini væri hægt að ferðast um geiminn a.m.k. i James McDvitt og Edwardl White taka brosandi kveðjut ' McCormick sjóliðsforingja/ (sem ekki séít á myndinni)' I er þeir koma um borð í fiug-l vélamóðurskipið „Wasp“ eftiri velheppnaða lendingu Gem-j I ini IV. á hafinu. Wilhelm Svío- prins lótinn Stokkhólmi, 11. júní, NTB. W1EHEL.M Svíaprins, bróðir Gústafs Adolfs, konungs, er lézt á hvítasuniku, var til moldar bor- inn í dag. Ekki voru þar aðrir viðstaddir en sænska konungsfjölskyldan Framhald á bls. 25. Skæruliöar hörfa frá Dong Xoai Búizt við hörðum bardögum næstu tvo mánuði Saigon, 11. júní. — AP-NTB. í DAG hörfuðu skæruliðar Viet Cong frá bænum Dong Xoai, sem þeir höfðu haft á valdi sínu í rúman sólarhring og skildu eftir sig mörg hundruð fallinna og hús í rústum, en fallnir skæru liðar vörðuðu veginn, sem Viet Cong hörfuðu eftir til skógar. — Flugvélar og hermenn Suð- ur-Vietnam-stjórnar og Banda- ríkjanna reka flóttann og hafa gert mikinn usla í liði Viet Cong. Talið er að í bardögunum „Ég held ekki fólkið þoli þetta öllu lengur” segir Juanita Castro um stjórn bróður síns á Kúbu Washington, 11. júní. AP. JUANITA Castro, systir Fidels forsætisráðherra Kúbu, sem fór úr landi fyrir ári og til Bandaríkjanna, segir oft hafa komið til óeirða á eynni siðan, og uppþota gegn stjórn inni, en tekið hafi verið fyrir allar fréttir um slíkt. Juanita kvað ýmsa háttsetta menn vinna að því að steypa Castro af stóli og ættu siunir þeirra sæti í stjórninni . Juanita kom fyrir óame- risku nefndina í dag og skýrði fró byltingunni á Kúbu og því hversu bróðir hennar brauzt til valda, með stuðningi vina sinna og vandamanna, þar á meðal sjálfrar hennar; og frá því hversu henni hefði síðar þótt málstaður byltingarinnar setja ofan er Fidel var orð- inn fastur í sessi. „Mikill meirihluti kúbönsku þjóðar- inmar esr á móti stjórn Castros", sagði Juanita, „ég held að menn muni ekki þola öllu lengur þessa martröð ógnarstjórnar, sem þeir hafa nú átt við að búa í fifnm ár“. Einnig sagði Juanita ýmsa háttsetta Kúbani undirbúa samsæri gegn stjórninni og vera um kyrrt á eynni til þess eins að vinda að því bráðan bug. Er Juanita kom fyrir nefnd ina flutti hún henni yfirlýs- ingu, þar sem sagði í upp- hafi, að kommúnistar hygðu á yfirráð yfir gjörvöllum Vesturheimi, syðri og nyrðri, og teldu sér vísa bandamenn í hópi frjálslyndra manna og ístöðulítilla og friðarsinna. Juanita hvatti til öflugrar andstöðu gegn kommúnistum og sagði að þeir sem fylgdu dæmi strútsins, þeir sem hræddust þó eða héldu að öllu væri óhætt meðan ekki væri andæft starfsemi fá- mennra kommúnistaflokka í löndum þeirra, færu villir vegar og myndu verða komm únismanum að bróð fyrr eða síðar. um Dong Xoai í gær hafi fallið 300 manns og allt að helmingi fleiri hafi fallið af skæruliðum í árásinni í dag ,en mannfall stjórnarliða hafi einnig verið töluvert. Heiroenn S-Vietnam-stjórnar unnu Dong Xoai með skyndi- Óhlaupi og var liðið flutt til bæjarins með þyrlum, og sett niður örskammt undan fram- línu norðanmanna. Sögðu banda rískir hermálaráðunautar að á- hlaupið stríddi gegn öllum regl- um um hernaðaraðgerðir, en hafi gefið mjög góða raun. Þrjátíu og þrír féllu af sunnanmönnum í áhlaupinu og 15 særðust. Um 300 manna lið fór landveg til Dong Xoai en komust fæstir á leiðarenda, því Viet Cong skæru liðar gerðu þeim fyrirsát og sluppu fáir þaðan. f orrustunni við Dong Xoai hafa Bandaríkjamenn misst fleiri menn en nokkru sinni áð- ur síðan stríðið hófst í Vietnam, eða tvo tugi manna, eftir því sem næst verður komizt. Þá týndu átta bandarískir hermenn lífi er flugvél af gerðinni C-123 hrapaði til jarðar skammt frá Pleiku. Ástralskir hermenn, sem komu til Vietnam fyrir viku, fengu boð um að vera við öllu búnir í gærkvöldi ,er fregnir bárust af miklum liðssafnaði Viet Cong nálægt herstöðinni í Bien Hoa, en ekki hefur frétzt af átökum þar enn sem komið er. Johnson forseti hefur kallað Öryggisráðið til fundar til að ræða ástand og horfur í Viet- nam og mun sendiherra Banda- ríkjanna í Saigon Maxwell Taylor, sem kom til Washing- ton á mánudag ,flytja þar skýrslu sína. í kjölfar fyrri heim sókna Taylors hafa yfirleitt siglt yfirlýsingar um auknar hernaðaraðgerðir Bandaríkja- manna í landinu og nú hefur það m.a. verið kunngert, að her mönnum Bandaríkjastjórnar sé heimil þátttaka í bardögum í S- Vietnam. Stefna Bandaríikja- stjórnar í S-Vietnam hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarið og hafa stórblöð vestra skorað á forsetann að skýra þjóðinni og þinginu rétt og satt frá því hvað hún hyggist fyrir í SA-Asíu. Blaðamenn náðu tali af Max- well Taylor rétt sem snöggvast áður en hann hélt á fund Ör- yggisráðsins og spurðu margs. Taylor sagði að búazt mætti við hörðum bardögum eystra næstu tvo mánuði og sagði að fram- sókn skæruliðanna, sem hófst um leið og regntíminn í land- inu, væri áköf, en Bandaríkja- menn yrðu að sjá til þess að hún yrði stöðvuð. Taylor kvað loftárásir Bandaríkjamanna í N-Vietnam hafi nóð tilætluðum árangri. f gær staðfestu almennir fund- ir í Félagi ísl. iðnrekenda og Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, samkomulag það, sem undirritað var af fulltrúum þessara aðila að morgni fimmtu dags sl. Helztu atriði samkomulagsins eru þessi: • Vinnuvikan verður 45 stund- ir, en var áður 48 stundir, styttist því um 3 stundir. • Grunnkaup hækkar um 4%. • Samningurinn gildir til eins árs. Samkomiulagið var staðfest á almennum fundi í Iðju, sem hófst kl. 18:00 í samkomuhúsinu Iðnó og á fundd Félags isl. iðn- rekenda í fundiarsal fönaðarr- bankans. Aðrir aðilar að þessu samkomulagi eru Iðja í Hafnar- firði og á Akureyri. Auk þeirra megimbreytmga á samningunum, sem getið er hér að framan voru gerðar ýmsar aðrar breytingar á samningun- um, svo sem að tekin skuli upp sérsitök slysatrygginig á starfs- fólki, ókeypds vinniufaitnaður við fjóra daga og White sagði að engin vandkvæði væru á því að menn færu í gönguferðir út úr geimfarinu, þeir þyrftu bara meira eldsneyti, svo þeir gætu farið lengra burt frá því og leikið lausum hala lengur. Um sjálfan sig sagði White og brosti við, að sér hefði þótt Eva (Extra Vehicular Acti- vity, þ.e. gömguferðin unh himingeiminn) afskaplega skemmtileg og sig hefði hreint ekki langáð inn í geimfarið aftur. Hann sagðist hafa orð- ið undrandi á því, hversu ljós- lega hann hefði séð ýmis kennileiti á jörðu niðri — miklu betur en úr flugvél 4 40.000 feta hæð (Gordon Coop er sagði eitthvað á þá leið líka eftir geimferð sína fyrir tveimur árum) — t.d. flug- brauitiir, stöðuvötn þó lítil væru, jafnvel kjölfaír skipa á sjónum. McDivitt lét illa af rafeinda heila geimfarsins, sem hamn Framhald á bls. 25. Svarti dauði í Kongó Leopoldville, Kongó, 11. júní, AP. 500 MANNS hafa farizt úr bólu- sótt og svarta dauða í Norð- Austur-Kongó, að því er skýrt var frá í Leopoldville í dag. Far sóttir þessar og taugaveiki að auki hafa verið landlægar í fjallahéraðinu Bunia og hafa yfir leitt kostað um 300 mannslíf ár- * lega. í Bunia er einna þétt-býl- ast í Kongó og þar búa 850.000 manns — en þar er enginn lækn- ir. Iðja staðfesti samningana 45 stunda vinnuvika 4% grunnkaupshækkun óihreinleg störf o.fl. Mbl. sneri sér í gærkvöldi til Gúðjóns Sigurðssonair, formanms dt- Iðju og Gumnars J. Friðriksson- ar, fornianns FÍI. o,g leitaði á- li'ts þeirra á þessum samnimgum. Guðjón Sigurðsson, formaður Iðju sagði: Við höfum ekki viljað spemna þetta of hábt upp sökum þess að hætta vætri á, að miklair hækk- amir færu úf í veiðiagið og Framhald á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.