Morgunblaðið - 12.06.1965, Page 22

Morgunblaðið - 12.06.1965, Page 22
MOHGUNBLÁÐIÐ Laugardagur 12/ júrií 1965 '| 22 — Skólaslit Framhald af bls. 19. Auk skólastjórans kenndu 13 kennarar við skólann. Yfirkenn- ari er Marinó Þ. Guðmundsson. Nemendur 16. deildar færðu skólanum að gjöf við skólaupp- sögnina fagra litprentun eftir eftir málverki Kjarvals, „Það er gaman að lifa“, og þakkað'i skoia stjórinn gjöfina. Að lokinni ræðu skólastjórans suMgu börnin undir stjórn Ragnars H. Ragnar sálmirm Faðir andanna. ISúsmæSraskóEinn á Isafirði HÚSMÆÐRASKÓLANUM Ósk á Isafirði var slitið 29. maí sl. f skólaslitaræðu sinni sagði Þorbjörg Bjarnadóttir, frá skóla- starfinu s.l. vetur, sem er 45. starfsár skólans. Skólinn var settur 20. septem- ber og starfaði rösklega átta mán uði. 38 nemendur hófu nám en 34 luku prófi. Hæstu einkunnir í verklegum greinum hlutu þessar stúlkur: Fyrir vefnað Elín Hjaltadóttir 9,08; fatasaum, Björg Magnús- dóttir og Helga Friðbjörnsdóttir 9,06; útsaum, Birna Pétursdóttir 9,06; matreiðslu, Valdís Friðriks- dóttir og Svava Guðmundsdóttir 9,00; þvott og ræstingu, Elín Hjaltadóttir og Guðmunda Rein- arsdóttir 9,00. Hæstu einkunnir samanlegt hlutu Hólmfríður Kjartansdóttir, Vopnafirði 9,36 og Valdís Frið- riksdóttir, Árskógsströnd 9,36. Handavinnusýninigardagur var í skólanum 15.—16. maí, og var mjög fjölsótt. Fastir kennarar auk skólastjóra voru þrír og stundakennarar tveir. Félagslíf var með svipuðum hætti og undanfarin ár, nem- endur önnuðust kvöldvökur tvis- var í mánuði, árshátíð var hald- in í marzlok og ýmislegt fleira var til skemmtunar. Formaður skólanefndar, Marías Þ. Guðmundsson, forstjóri, þakk- aði Guðrúnu Vigfúsdóttur, vefn- aðarkennara, vel unnin störf, en þetta var 20. veturinn sem hún starfaði við skólann. Hjartanlega þakka ég öllum sem sýndu mér vinarhug með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 75 ára afmæli mínu. — Guð blessi ykkur öll. Kristín Halldórsdóttir. Hjartans þakkir fyrir heimsóknir, gjafir og hlýjar kveðjur á 85 ára afmæli mínu, 8. júní. Rósamunda Guðmundsdóttir frá ísafirði. Alúðar þakkir votta ég ykkur, bæði skyldum og vandalausum, sem sýndu mér vinarhug með gjöfum, heimsóknum og skeytum á sjötugsaímæli mínu 10. júní sl. — Guð blessi ykkur öll. Jón Sigurðsson, c/o Hampiðjunni. t, Útför mannsins míns og föður okkar, I Jónasar M. Lárussonar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju nk. mánuuaginn 14. þ.m. kl. 2. ída M. Lárusson, Magnús Már Lárusson, Björn Lárusson. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar ög afa, JÓNS BJÖRGVINS BJÖRN SSONAR Ásvallagötu 39. Esther Högnadóttir, böm, og dóttursynir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við INGIBJÖRGU WAAGE í hennar löngu veikindum og við útförina. — Fyrir hönd vina og vandamanna. Sigrún Gissurardóttir, Kristján Steingrímsson. Nemendur húsmæðraskólans á ísafirði síðastliðinn vetur. 10 ára nemendur færðu skól- anum gjafir, og hafði orð fyrir þeim árgangi Valgerður Krist- jánsdóttir frá Hnífsdal. 25 ára nemendur sendu kveðjur og til- kynntu igjöf síðar, eftir vali skólastjóra. Nýútskrifaðir nem- endur þökkuðu skólavistina og færðu skólanum gjafir. Frú Anna Sigfúsdóttir, formaður kven- félagsins Óskar, afhenti verðlaun úr Kamillu-sjóði og hlutu þau Valdis S. Friðriksdóttir og Hólm- fríður Kjartansdóttir. Við skóla- slitin söng skólakórinn undir stjórn Ragnars H. Ragnars. - * A Akranesi AKRANIESI, 8. júní. Barniasikólainuim hér var sagt upp 31. maí í kirkjunni. Njá'll Guðmundsson skólasitjóri sleit slkólanum með ræðu, og eftir að hiaonin hafði lýst vetrarsitairf- iniu, afheniti hann þá nemend- uinum einkumnir og verðlaun. Bömin voru 640 og bekkjadeildir 27. Kennarair voru 23 að meðtöld um stundaikennuirum. 98 böm tóku burtfararpróf og 12 þeirra fengu verðlaun fyriir fráibæran námgárangur. Veglegar bóka- gjafir, sem tólfmenningaimir hlutu, hafði frú Ingunn Sveins- dóttir gefið skólamum. Þau sem hlutu verðlaum voru Margrét Fró'ðadóttiir með 9,38, Kristbjörg Ólafsdóttir 9,35, Margrét Vig- fúsdóttir 9,33, Rúnar Garðarsson 9,29, Ólöf Adamsdóttir 9,26, Finnur Garðarsson 9,23, Raran- veig Pálsdóttir 9,09, Sigurjón Sighvaitsson 9,09 Hannes Þoc- steinsson 9,07, Oddrún Sverris- dóttir 9,02 og Hansíma SLgur- geirsdóttir 9,01. Hamdavimnuverð laun fyrir 'hæstu einkunnir, sem bókabúð Andrésac Níelssonar gaf, fengu Guðbjörg Krisitófers- dóttir 9,50 og Elías Ólafsson 9,20. Guðjón Hallgrímssom á nú 35 ára keranaraafmæli við baima- skólann hér. Við skólaslit mdnnit ist skólastjóiri. þess og þakkaði Guðjóni langit og gott starf í þárgu skólamis og baimainina. Guð- jón, sem er skaigfirzkur að ætt- erni, og María kona hains, sem er dóttir Ólafs bónda og fjali- kóngs á Þórustöðum í Svínadal, gáfu af þessu tilefná skólamum stóra og góða bókagjóf. — Oddur í ÓBafsfirði ÓLAFSFIRÐI, 9. júná — Mið- skóla Ólafsfjairðar var slitið laug ardagirm 29. maí sl. í skólanum voru í vetur 72 nemendur eða fleiri en nokkm sinni. Fyrr í vetur var í fyrsta skipti starf- ræktur 4. bekkur við skólann og í vor útskrifu'ðust 11 gagnfræð- ingar. Undir landspróf miðskóla gengu 7 maroeimduir og M'utu 5 frarr.haldseinkunn. 24 ncnrandur g-engu undir uinglingapróf. Hæstu einbuinm á gagnfræ'ðaprófi hlaut Jóhanna Steflánsdóttir, 8,12, á unglingaprófi var hæst Þória Þorvaldsdó'ttir með 9,15. f vetuir vom 2 fastráðnir kenn arár við skólann auk skólastjóra og 6 stundakennairair. Félagslíf innam skólams var mikið. Leik- þættir æfðir, myndlisitamám- skeið haldið, opið hús einu sinni í viku til tafls og spilaiæfinga, íþróttamót og dansæfingar. Ein bók menntak ynning var haildim á vetrinum og gáfu nememdur all- an ágóða af henni til Davíðshúss á Akureyri. Miklar vonir eru bundnar við að gagnfræ’ð'a- og landsprófs- deild festisit við skólamn, enda sækja í þær unglimgar úr öðrum byiggðairlögium. Skólastjóri mið- skóla Ólafsfjairðar er Kxistinn G. Jóharansson — J. Ág. Laugarlækjask. LAUGALÆKJARSKÓLANUM í Reykjavík var slitið 31. maí s.l. Skólastjórinn, Guðmundur Magn ússon, gat þess m.a. í skóla- slitaræðu, að skólinn útskrifaði nú í fyrsta skipti nemendur með unglingaprófi. 82 nemendur tóku unglinga- próf og stóðust það 80. Hæstu einkunn á unglingaprófi hlaut Bergþóra Jónsdóttir, 9,14. 10 nemendur hlutu bókaverð- laun fyrir góð námsafrek. Annar áfangi skólans er nú í smíðum og verður væntanlegá fullbúinn í byrjuii næsta skóla- árs. Á Blönduósi KVENNASKÓLANUM á Blöndu- ósi var slitið 29. maí s.l. Sökum þess, að ég hef hvergi séð þess getið langar mtg til að biðja blaðið fyrir þessar línur. Ég var ein af gestunum, sem þarna var viðstödd og var ég þakklát fyrir að hafa haft tæki- færi til að heimsækja gamla skólann minn og kynnast ögn högum hans, eins og hann er nú Ég var einnig sýningangestur, en sýning handavinnu nemenda var daginn áður. Var sýningin glæsileg og sóttu hana margir, var ánægjulegt að sjá hve margir vandamenn námsmeyja sóttu langt að til að sjá með eigin aug- um vinnuafköst stúlknanna. Þarna fjölmenntu einnig gamlir nemendur frá skólanum, var öll- um veitt kaffi sýningardaginn áf miklum myndarskap. Ég heyrði á forstöðukonu og kennurum að þær glöddust yfir heimsóknun- um. Sól skein í heiði og hátíðablær var yfir gamla skólanum — sem ávallt er hlýlegur í endurminn- iugunni — daginn sem skólaslit fóru fram. Byrjað var á því að syngja sálm við undirleik frú Sólveigar Lövik, húsmæðra- kennara, fyrrum forstöðukonu. Því næst hélt forstöðukona skóla- slitaræðu, þar sem hún gerði grein fyrir skólastarfinu á liðnu ári. Námsmeyjar voru alls 41. Luku 38 fuílnaðarprófi, en þrjár luku prófi í húsmæðradeild. Allur námskostnaður varð að meðaltali kr. 13,433.10 á hverja námsmey, og var þá allt talið smátt og stórt, sem greitt var til skólans og matarfélagsins. Nokkur verðlaun voru veitt. Þorbjörg Sveinbjörnsdóttir frá Huppahlíð hlaut bókaverðlaun úr „Elínarsjóði" fyrir hæsta eink- un í bóklegum greinum 9,48. Jósefína Pálmadóttir Hvoli á Ás- um, sem hafði hæsta aðaleinkun 8,95 og Eygló Guðjónsdóttir Kópavoigi með 8,92 í aðaleinkun hlutu verðlaun úr sjóði Hjalta- bakkahjóna, Sigríðar Þorvalds- dóttur og Þórarins Jónssonar. Steinunn Guðjónsdóttir, Hrúts- hvoli Snæfss. og Anna Steinunn Guðmundsdóttir, Hófsósi fengu viðurkenningu úr minningar- sjóði Margrétar Jónsdóttur frá Spónsgerði fyrir beztan sauma- skap. Fyrir bezta vinnu og mest afköst x baðstofu fengu þær verð- laun Björg Magnúsdóttir, Gler- árskógum, Steinunn Sigurðar- dóttir, Vígholtsstöðum og Ingi- björg Jóhannsdóttir, Sólheimum í Sæmundarhlíð. Afhenti for- stöðukona verðlaunin í lok ræðu sinnar um leið og hún þakkaði námsmeyjum samveruna og bað þeim blessunar. Þá tók til máls Ragnhildur Karlsdóttir, flutti hún þakkarorð nemenda og færði skólanum pen- ingagjöf frá námsmeyjum. Thelma Grímsdóttir, Rvík. hafði orð fyrir 10 ára nemendum og afhenti fallega gjöf frá sínum ár- gangi. Sigríður Pálsdóttir, Kópavogi talaði fyrir hönd 20 ára nemenda, bar fram þakkir og gáfu þær einnig skólanum stóra gjöf. Þá kvaddi sér hljóðs Margrét Jónsdóttir, sem er 30 ára nemandi, færði hún skólanum kveðjur og þakkir frá sínum skólasystrum, gáfu þær 10,000 kr í minningarsjóð Mar- grétar Jónsdóttur frá Spónstgerði. Ein 50 ára námsmey, frú Arn- dís Baldurs var þama viðstödd, færði hún forstöðukonunni fagr- an blómvönd og afhenti peninga- gjöf í „Elínarsjóð". Guðmundur Jónsson garðyrkjumaður flutti stutta ræðu og mátti heyra á honum, að hann hefur áhuga ; á, að skólinn eignist fleiri lista- verk. Síðastliðinn vetur gaf hann skólanum málverk eftir Guðm. Einarsson frá Miðdal og við skólaslit afhenti hann formanni skólanefndar, Sigurði Þorbjarnar syni, Geitaskarði upphæð í lista- sjóð skólans. Sr. Pétur Ingjaldsson hefur verið prófdómari við skólann I möng ár ásamt konu sinni frú Dómhildi Jónsdóttur, búsmæðra- kennara, ávarpaði hann náms- meyjar og bað þeim velfarnaðar. Var auðheyrt að þar átti skólinn hauk í horni. Kennarar eru fjórir yið skólann auk forstöðukonu og verða þeir sömu áfram við skól- ann. Blómailmur fyllti húsið, því námsmeyjar yngri og eldri komu með fangið fullt af blómum til yndisauka. Að lokum þakkaði forstöðukona allar gjafirnar og þann hlýhug, er við þær væru bundnar. Hún fagnaði því að svo margar gamlar námsmeyjar hefðu sýnt skólanum þá ræktar- sem er raun bar vitni um, með því að leggja á sig langt ferðalag til að koma á fornar slóðir og vekja gamlar minningar. Hún hafði orð á því, hve sér hefði hlýnað um hjartarætur, er 30 ára nemendur hefðu minnst kennara síns, Margrétar Jóns- dóttur svo virðulega. Margrét hefði verið mikilhæf kennslu- kona og vinur sinn alla ævi. Bað hún fyrir kveðjur og þakkir til allra þeirra er minnst höfðu skólans, en verið fjarverandi. Að loknum skólaslitum var öllum boðið til veizlu og var veitt af mikilli rausn og myndarbrag. Sungið var undir borðum og í lokin rifjaður upp skólasöngur- ir.n. Hér er verið að reisa kenn- arabústað rétt vestan við skóla- húsið, verður því verki lokið í sumar. Búist er við að brátt verði annar kennarabústaður byggður, auk þess sem I ráði er að gera fleiri umbætur á skóla- húsinu. Eins og undanfarin sumur verður skólinn leigður fyrir gistihús. Ég vona að jafnan verði eins bjart yfir gamla skólanum okkar eins og þennan sólbjarta vordag. Aðkomukona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.