Morgunblaðið - 20.06.1965, Side 19

Morgunblaðið - 20.06.1965, Side 19
Sunnudagur 20. júnf 1965 MORGU N BLAÐIÐ 19 Garðhúsgögn Komið og kynnið ykkur verðið á ódýru vestur-þýzku garðhúsgögnunum. Sólstólar — Sólbekkir — Borð og kollar. Tilvalið á svalir, í sumarbústaði og í tjöld. Miklatorgi — Lækjargötu 4. FEGRUNARSÉRFRÆÐINGUR frá hinu þekkta snyrtivöruíirma Kvnnir og leiðbeinir yður um liti og val á snyrtivörum á mánudag kl. 10—12 og 2—4 þriðjudag kl. 10—12 og 2—4 miðvikudag kl. 10—12 og 2—4 \ Vörusalan Akureyri. NYGENstriginn er STERKARI EN STÁL AÐEINS GENERAL HJÚLBARÐINN ER MEÐ NYGEN STRIGA GENERAL TIRE INTERNATIONAU hjólbarðinn hf. IAUCAVEG 178 SfMI 35260 Vinsælnr utanlondsferðir með ísl. farnrstjdrum Margra ára reynsla og óiviræðar vinsældir tryggir far- þegum okkar skemmtilegt og snurðulaust ferðalag und ir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Við auglýsum sjaldan því hinir f jölmörgu ánægðu við- skiptavinir komnir heim úr SUNNUFERÐUM eru okk ar bezta auglýsing. Nú þegar hafa margir pantað far í þessar helztu hóp- ferðir sumarsins. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn 4. júlí og 17. sept. — 12 dagar, kr. 11.800,- Stutt og ódýr ferð, sem gefur tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru ail- ar mjög ólíkar, Milljónaborgin London tilkomumikil og sögufræg höfuðborg heimsveldis með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam heillandi og fögur með fljót sín og skurði, blóm- um skrýdd og létt í skapi. Og „Borgin við Sundið“, Kaupmannahöfn, þar sem íslending- ar una sér betur en víðast, á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og fleiri skemmtistaði. Hægt að framlengja dvölina í Kaupmannahöfn. Fararstjóri: Jón Helgason. Edinborgarhátíðin — 23. ágúst — 7 dagar, kr.- 7.210,- Flogið til Glasgow og dvalið í viku í hinni undurfögru höfuðborg Skotlands, Edin- borg á frægustu listahátíð álfunnar, sem þar er árlega haldin um þetta leyti. Farið verð- ur í skemmtiferðir um skozku hálöndin, þar sem landslagsfegurð er víðfræg. Hægt að framlengja dvölina og fara til London. — Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari. París — Rínarlönd — Sviss — 27. ágúst — 21 dagur, kr. 18.640,- í>essi vinsæla ferð hefir eins og flestar hinar verið fullskipuð ár eftir ár. Fólki gefst kostur á að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu í rólegri ferð. Flogið til Parisar. Dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Flogið til Rínarlanda og ekið um hinar fögru og sögufrægu Rínarbyggðir. Verið á vínhátíðinni, þar sem drottningin er krýnd. Að lokum er dvalið í hinu undurfagra Alpafjallalandi Sviss í Luzern, þar sem tindar Alpafjalla speglast í vötnum. Farið í ökuferðir og siglt. Skroppið í skemmtiferð yfir til Ítalíu. Hægt að verða eftir á heimleið í London eða Kaupmannahöfn. — Fararstjóri: Jón Helgason. Ítalía í septembersól — 3. september — 21 dagur, kr. 21.300,- Flogið til Mílanó, og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með 3—4 daga viðdvöl í Feneyjum, hinni „fljótandi ævintýraborg" og listborginni Florenz. Fimm dagar í Róm og gengið á fund Páfans. Fjórir dagar í Sorrento við hinn undurfagra Napoliflóa. Farið til Capri og annarra frægra og fagurra staða. Siglt með Michelangelo, splunkunýju, stærsta og glæsilegasta hafskipi ítala (43.000 smál. frá Napoli til Cannes á Frakklands- strönd. Þar er dvalið í 3 daga í baðstrandarbænum Nizza, áður en flogið er heim með viðkomu að vild, í Kaupmannahöfn eða London. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson. Ítalía og Spánn — 28. september — 21 dagur, kr. 24.860,- Þessi óvenjulega ferð gefur fólki kost á því að kynnast fegurstu stöðum Ítalíu og Spán- I ar og hefir slík ferð ekki áður verið á boðstólum hérlendis. Flogið til Feneyja og dvalið þar í hinni undurfögru „fljótandi“ ævintýraborg, sem stundum er kölluð „drottning Adriahafsins“. Flogið þaðan til Rómar og dvalið í nokkra daga í „borginni eilífu“, þar sem margt er að skoða. Ekið suður til Napoli og dvalið á Capri, áður en siglt er með hinu nýja og glæsilega hafskipi ítala, Michelangelo (43 þús. smál.) lúxusskip. búið öllum lífs- ins þægindum. Komið til Gíbraltar á þriðja degi og ekið um hina undurfögru Sólströnd Andalúsíu til baðstrandarbæjarins Torremolino, þar sem dvalið er í fjóra daga. Ekið síðan eina fegurstu leið Spánar til Madrid með viðkomu í Granada hinni fögru höfuð- borg Máranna á Spáni, þar sem hallir þeirra og skrauthýsi standa enn. Að lokinni dvöl í Madrid er flogið til London, þar sem hægt er að framlengja ferðina. Fararstjúri: Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda — 8. október — 20 dagar, kr. 19.850,- Þessi ótrúlega_ ódýra Austurlandaferð var farin fullskipuð með 35 farþegum í fyrra og komust miklu færri en vildu. Verðið er svona lágt vegna samvinnu við enska ferðaskrif- stofu, sem hefir á leigu lúxushótel í Egyptalandi, sem starfrækt eru í fýrrverandi höll- um Faruks konungs. Flogið til Amsterdam. Dvalið þar í sólarhring, áður en flogið er til Cairo. Þar er dvalið í viku og farið í skoðunarferðir um Nílardal. Síðan getur fólk val- ið um vikudvöl á baðströndinni í Alexandríu, eða ferðalags til „Landsins helga“, Jer- úsalem, Betlehem o. fl. sögustaða Biblíunnar, auk Damaskus og Líbanon. Dvalið í tvo daga í London á heimieið og hægt að framlengja dvölina þar. Fararstjóri: Guðni Þórðarson. í SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Engar langar, þreytandi bílferðir, flogið og siglt lengstu leiðirnar og ekið aðeins þar sem landslagsfegurð er mest. í ö.llum tilfellum er hægt að framlengja dvölina erlendis. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu, sem reynt hafa SUNNUFERÐIR. Margir velja þær aftur ár eftir ár. — Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið — Biðjið um nákvæma ferðaáætlun og pantið snemma. Auk hópferðanna hefir SUNNA fullkomna ferðaþjónustu fyrir einstaklinga og selur farseðla með flugvélum og skipum um allan heim, járnbrautar- og bílafargjöld í mörgum löndum._ Pantar hótelin og annast alla fyrirgreiðslu og undirbúning. Farseðlarnir eru á sama verði og hjá flutningafyrirtækjum og ferðaþjónustan því ókeypis í kaupbæti fyrir viðskiptavininn. Fer ðaskr if stof an Bankastræti 7. Sími 16-400. Vika á haðströnd og vika í Kaup- niannahöfn. Brottl'Ör alla föstu- daga, verð kr. 10.200,00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.