Morgunblaðið - 29.09.1965, Page 1
32 siður
52. árgangur. 221. tbl. — Miðvikudagur 29. september 1965 Prentsmiðja Movgunblaðsins.
Hundmðfar-
ast i eldgosi
— er eldfjallið Taal á FilippseYjum vaknar
af svefni — Gífurlegar náttúruhamfarir
^ Manila, Filippseyjum,
28. sept. — (AP-NTB) —
TALIÐ er að a.m.k. 630
manns hafi farizt, og óttazt
er um líf hundraða manna,
er cldfjallið Taal á Filipps-
eyjum vaknaði af 54 ára
svefni snemrna í morgun,
sendi ösku og gjallstróka til
himins og hraun niður hlíðar
sínar. Eldfjallið Taal er að-
eins í 64 km. fjarlægð frá
Maila, höfuðborg Filippseyja.
Stendur það á eyju í svo-
nefndu Taalvatni, sem er 150
metra djúpt stöðuvatn og
mun sjálft hafa myndazt við
eldsumbrot á sínum tíma. Er
vatnið í nokkur hundruð
metra hæð yfir sjávarmáli, og
er það mjög fjölsótt af ferða-
mönnum vegna fegurðar. Eld-
fjallið Taal gaus síðast árið
3911, og var þá talið að á ann-
að þúsund manns hafi farizt.
Miklum óhug hefur slegið á
fólk á Filippseyjum við at-
burði þessa.
bæra að undanförnu. Er slíkt
raunar ekki einsdæmi; hefur
gerzt tvisvar áður, 1949 og 1953,
án þess að gos yrði. Að undan-
förnu hafa heyrzt torkennilegar
drunur og skruðningar af og til
í fjallinu, og hitastiigð í Taal-
vatni hefur farið hækkandi.
í>að var kl. 2,30 í nótt að stað-
artíma að gosið í Taal hófst. —
Töluverðum fjölda íbúa eyjarinn
ar, sem fjallið stendur á, hafði
áður en gosið hófst tekizt að
forða sér yfir vatnið til megin-
landsins, en frá eynni í land eru
8-—16 km. vegalengd. Fregnir frá
flóttamönnum herma, að fólkið
hafi tekið að flýja eyna um nótt-
ina er hundar tóku að gelta, kett
ir að mjálma og svín að hrína.
Er gosið varð í fjallinu 1911 kom
það íbúum eyjarinnar algjörlega
að óvörum, og telja innfæddir
að þá hafi 1335 manns farizt, þó
engan vegin sé það áreiðanleg
tala.
Er gosið hófst í Taal í nótt var
Viseount farþegaflugvél skammt
frá því á leið til Manilla. Flug-
stjóranum brá mjög í brún er
hann sá gosið hefjast, og sendi
Framh. á bls. 3
Maniia, 28. sept. — AP — Myndin sýnir eldfjallið Taal og var hún tekin af gjósandi fjallinu al
ljósmyndara blaðsins Philippines Herald snemma í morgun. Óttast er að fjöldi manns hafi far-
izt í nágrenni eldfjallsins, sem er á eyju í stóru stöðuvatni 64 km. frá Manila, höfuðborg
Filippseyja.
r
r
Samkvæmt fregnum frá Manila
hefur Taal látið nokkuð á sér
efhahagsstofnanir oe rad kru-
SJEFFS LOGO NIDURITUGATALI
Efnahagsrekstur byggður á hagnaðarvon heldur innreið sína
í IJSSR — Mesta bylting í efn ahagsmálum þar síðan 1917
Shmel Yosef Agnan.
Moskvu, 28. sept. (NTB-AP)
PRAVDA, málgagn Sov-
étstjórnarinnar, varði í dag
þreinur síðum til þess að lýsa
áætlun þeirri, sem Kosygin,
forsætisráðherra, lagði fyrir
Miðstjórn sovézka kommún-
istaflokksins í gær, en í
skýrslunni kunngerði Kosy-
gin róttækar breytingar á
skipulagningu sovézkra efna-
hagsmála, og upplýsti að fram
IMóbelsverðlaunin:
90 rithöfundar tald-
ir koma til greina
Stokkhóimi í sept. — AP.
RITHÖFUNDAR frá Evrópu,
Sovétríkjunum, S-Ameríku og
Japan hafa verið nefndir sem
hugsanlegir Nóbelsverðiauna-
hafar, og er mælt að alls
keppi nú um 90 rithöfunidar
um Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum, en þau verða veitt
í Stokkhólmi 15. okt. n.k.
Segja má þó, að minna beri
á tilgátum manna og umræð.
um en á s.l. ári, og telja sum-
ir að því valdi sá atburður,
er þá varð, að franski rithöf-
undurinn og heimspekingur-
inn Jean-Paul Sartre neilaði
að taka við Nóbelsverðlaunun
um. Er það mál ýmissa að
Konunglega sænska akademí |§f
an hafi við þetta beðið tölu-
verðan álitshnekki.
Þeir 'rithöfundar, sem lík_
Framh. á bls. 31
Samuel Becket
leiðslan í landinu skyldi eft-
irleiðis byggjast á hagnaðar-
voninni, í stað þess að vera
bundin framleiðslukvótum,
sem skipuleggjarar stjórnar-
innar hafi áður ákveðið.
Á fundi Miðstjórnarinnar
í gær sagði Kosygin að Sovét-
ríkin ættu að vinna betra
starf og gætu það varðandi
verksmiðjur sínar, bæði til
þess að gleðja það fólk, sem
flykktist inn í verzlanir
landsins, sem nú væru fullar
af óaðlaðandi varningi, og til
þess að sýna hinum nýfrjálsu
ríkjum að kommúnistar geti
gert betur en þeir hafi til
þessa gert.
'Á' Þessar ráðstafanir Sovét-
stjórnarinnar í efnahagsmál-
Framhald á bls. 31.
Tillaga Pakistan:
Allt herlið kvatt
á brott frá Kasmír
New York 28. sept — NTB- ,
Pakistan lagði í dag til að Ind j
land og Pakistan skyldu kveðja
all lið á brott frá Kasinír, og
gæzlusveitir Sameinuðu Þjóð-
anna skyldu sendar til landsins
til að hafa umsjón með þjóðar-
atkvæðagreiðslu þar um framtið
þess. Kom þessi tillaga fram í
ræðu utanríkisráðherra Pakistan,
Zulfikar Ali Bhutto, í Allsherjar
þingi SÞ í dag, en fyrr í ræðu
sinni hafði Bhutto gagnrýnt Sam
einuðu Þjóðirnar harðlega fyrir
að hafa ekki getað leyst Kas-
Framh. á bls. 31