Morgunblaðið - 29.09.1965, Blaðsíða 3
1 Miðvikudagur 29. sept. 1965
MORCU N BLAÐIÐ
3
MMMMí
BLAÐAMÖNNIJM var í gær
boðið að skoða nýtt heimili
fyrir vanegfin börn að Tjalda
nesi í Mosfellssveit, en það
heimiii tók nýlega til starfa.
Nokkrir áhugamenn í Reykja-
vík hafa staðið fyrir stofnun
heimilisins, en hlotið nokkurn
styrk einstaklinga og fyrir-
tækja, svo og frá hinu opin-
bera.
í gærdag var formlega tekið
í notkun heimili fyrir van-
gefna að Tjaldanesi í Mos-
fellssveit. Buðu forráðamenn
heimilisins ýmsum forystu-
mönnum um líknarmál van-
gefinna að vera viðstaddir
opnunina. Flutti Friðfinnur
Ólafsson, forstjóri við þetta
tækifæri stutta ræðu um til-
komu hins nýja heimilis.
Ueimili fyrir vangefin börn að Tjaldanesi í Mosfellssveit.
Heimili fyrir vangefin börn tekið í notkun
Getur rúmað 10 börn I einu
Barnaheimilið að Tjadanesi
á sér rúmlega 2 ára sögu, að
því er Friðfinnur sagði í
ræðu sinni. Það var vorið
1963 að nokkrir áhugamenn
komu sér saman um að reisa
heimili fyrir vangefin börn í
stað heimilisins að Efra-Seli
við Stokkseyri. Þeir keyptu
3 hektara lands af Mosfells-
kirkju og fylu því hitarétt-
indi. Byggingarframkvæmdir
hófust svo um haustið 1963.
ÝMSIR HAFA HJÁLPAÐ
„Heimilið að Tjaldanesi er
sjálfseignarstofnun, sem lýtur
yfirstórn heilbrigðisyfir-
valda“, sagði Friðfinnur. Ef
rekstri heimiisins verður
hætt, renna eigur þess til hins
opinbera. Eigendur heimilis-
ins skipa hins vegar stjórnar-
nefnd þess.
Kostnaður við byggingu
heimilisins er nú orðinn
rúmlega 3 milljónir króna og
eru þá ekki taldar með þær
gjafir, sem heimilinu hafa
borizt, bæði í efni og vinnu,
en þær gjafir eru, að sögn
Friðfinns, bæði margar og
stórar.
Ýmsir aðilar hafa aðstoðað
þá félaga við að koma upp
heimilinu að Tjaldanesi. T. d.
hefur styrktarsjóður vangef-
inna gefið lVá millj. króna,
Reykjavíkurborg hefur lagt
fram 100 þús. krónur. Margir
aðrir hafa lagt sitt af mörk-
um, svo sem Lionsklúbbar,
Oddfellowstúlka svo og ótal-
inn fjöldi einstaklinga og
fyrirtækja.
Kvaðst Frlðfinnur ákaflega
"þakklátur öllum þessum aðil-
um og sagði, að ef ekki hefði
fengizt svo góð hjálp, hefði
orðið talsverð bið á fram-
kvæmdum.
Stjórnarnefnd og forstöðufólk heimilisins. Frá vinstri: Friðfinnur Ólafsson, hjónin Alan
Stenning og Ingibjörg Blöndal, Oddgeir Bárðarson og Hafsteinn Sigurðsson.
VERKEFNI ÓÞRJÓTANDI
Markmiðið með byggingu
heimilisins sagði Friðfinnur
hafa verið að reisa lítið heim-
ili, sem hvorki. væri hæli né
stofnun. Þarna skyldu börnin
búa með hjónum, sem gengju
þeim svo að segja í föður- og
móðurstað. Hefðu nú fengist
hjón til þess að stjórna heim-
ilinu, en það væru þau Alan
Stenning og Ingibjörg Blön-
dal. Mikil bjartsýni ríkti nú
meðal eigendanna um að
heimilið reyndist vel í fram-
tíðinni.
Þá sagði Friðfinnur, að eig-
endur heimilisins hefðu
kynnzt málefnum vangef-
inna betur en margur annar,
á meðan á byggingunni stóð.
Sagði hann, að þó að þetta
heimili- hefði komizt á lagg-
irnar, þyrfti að gera miklu
betur fyrir vangefna. Þörfin
væri brýn fyrir slík heimili
og verkefnin óþrjótandi.
Heimilið að Tjaldanesi er
á failegum stað neðst í Mos-
fellsdalnum. Húsið sjálft hef-
ur Hörður Björnsson, arki-
tekt, teiknað, en í húsinu eru
fimm svefnherbregi fyrir tvö
börn hvert. Þá er í húsinu
setustofa, eldhús, borðstofa,
skrifstofa, vaktherbergi,
hreinlætisherbergi og íbúð
starfsfólks. í útihúsi er
þvottahús og geymsla auk
stórs kennsluherbergis.
í framtíðinni er ákveðið að
byggja geymsluhús og síðan
sundlaug.
Þess má geta að gjafir og
styrkir til heimilisins að
Tjaldanesi eru frádráttarbær-
ir til skatts.
í stjórnarnefnd heimilisins
eru þeir Friðfinnur Ólafsson,
Hafsteinn Sigurðsson, Sigurð-
ur Magnússon, Oddgeir Bárð-
arson og Kristinn Olsen.
— Hundruð farast
Framh. af bls. 1
hann flugfreyjuna aftur í far_
þegarýmið til að vekja farþeg-
ana.
„Eldfjallið spúði þá eldi og
eimyrju og tveggja mínútna
fresti“, sagði einn farþegahna.
„Við horfðum á þetta í 10 mín.
eða svo áður en við héldum
áfram til Manilla. Sprengingarn
ar í fjallinu lýstu umhverfið
langar leiðir. Farþegarnir í flug-
vélinni hrópuðu upp í undrun og
aðdáun, en þeir hafa víst ekki
gert sér grein fyrir þeim hroða-
legu afleiðingum, sem af þessu
urðu á jörðu niðri“.
Ekki hefur enn tekizt að kom
ast út í eyna, þar sem eldfjallið
er, enda þótt dregið hafi nokkuð
úr krafti gossins, en í eynni búa
2000 manns. Vitað er að all-
margt fólk úr eynni komst heilt
á húfi yfir til lands, en óttazt er
mjög um afdrif hinna. Þegar
var hafizt handa við að flytja
fólk frá þeim héruðum, sem næst
liggja eynni á meginlandinu, og
eru nú allt 7000 manns í sérstök-
um flóttamannabúðum all-langt
frá vatninu. Vonazt var til þess,
að flestir íbúa eyjarinnar hefðu
náð að flýja í tíma, en engin
leið er að ganga úr skugga tun
þetta með vissu fyrr en kerfis.
bundin talning getur farið fram
á fólkinu, og hægt verður að kom
ast út í eyna sjálfa.
Fregnir hafa gengið um að
mörg hundruð manns hafi
drukknað er flóðbylgja vegna
jarðskjálfta hafi hvolft bátnum
þess og flekum á vatninu, er það
flúði undan hamförum Taal.
Nokkrar flugvélar flugu yfir
eyna í dag, en ekkert lífsmark
sást þá þar. Einn flugmannanna
taidi 200 dauð húsdýr víðsvegar
um eyna.
Að því er yfirvöldin segja, er
úr lofti að sjá sem 5 ferkílómetr-
ar lands þeim megin eyjarinnar,
sem fjallið stendur hafi sokkið
í sæ. Á þessu svæði er þorpið
Alas-As Is. Meira en helmingur
eyjarinnar var í dag þakinn ösku
og gjalli, og er talið að lag þetta
hafi verið 20 metra þykkt á stöku
stað.
Ein á dragnót
AKRANESI, 28. sept. — Trillan
Björg stundar nú ein dragnóta-
veiðar, þvi að Andey hefir skipt
yfir á línu. — Oddur.
SIAKSTTINAR
UpplausiiŒrdr?
Það er með ólikindum hvilíkt
sársaukaöskur Timinn rekur
alltaf upp, þegar á það er ben*
hér í blaðinu, að tekizt hefur að
tryggja almennan vinnufrið hér
á landi frá verkföllunum í des-
ember 1963, og fram til vors
1966. Á þessa óumdeilanlegu stað
reynd má greinilega ekki minn-
ast, án þess að' ritstjórar Tím-
ans bregðist hinir verstu við, og
skrifi sama leiðarann dag eftir
dag um að þetta tímabil hafi nú
i rauninni verið mesta verkfalls
tímabil, sem sögur fari af á ls-
laimii. I rauninni er afskaplega
erfitt að skilja hvernig á því
stendur, að Framsóknarmönnum
er svo illa við þann vinnufrið,
sem hér hefur tekizt að skapa,
ekki sizt fyrir tilstuðlan rikis-
stjórnar og nýrrar stefnu verka-
lýðshreyfingarinnar. Framsóknar
menn hafa þó jafnan borið hags-
muni Sambandsins og kaupfélag.
anna fyrir brjósti, og þar sem
þessir aðilar hafa með höndum
víðtækan atvinnurekstur, hljóta
þeir að hafa haft hag af viiunu-
friðnum undarufarin tvö ár. Ætti
því málgagn Framsóknarflokks-
ins að vera sæmilega ánægt með
þessa niðurstöðu mála. En svo er
greinilega ekki.
Flokkur í upplausn
Ef til vill er ástæðan fyrir
reiði Framsóknarmanna, þegar
mimnst er á vinnufriðinn hér á
landi sú, að haldist hefur í hendur
nýtt og betra ástánd í þjóðmál-
um íslendinga og annað og verra
ástand í flokksmálum Framsókn
arflokksins. Framsóknarmenn
halda því fram, að hér á landi
sé allt í upplausn, og þeir kalla
síðustu tvö ár „upplausnarár".
Það er miklu nær sanni að
segja, að tveir af stjórnmála-
flokkum landsins séu í fullkom.
inni upplausn, og annar þeirra
flokka er Framsóknarflokkurinn.
Klofningurinm í Framsóknar-
flokknum verður stöðugt erfið.
ari viðfangs, og óánægjan með
Eystein magnast.
Háðugleg útreið
Sérstaklega finnst mörgum
Framsóknarmönnum að foringi
þeirra hafi fengið háðulega út-
reið í sambandi við Búlgaríuför
hans, þegar það var upplýst, að
‘Eysteinn Jónsson hafði látið
áróðursvél kommúnista í Búlga-
riu blekkja sig svo fullkomlega,
að hann sá ekki muninn á þeim
„bændafIokki“, sem kommúnist
ar settu á fót upp á punt fyrir
nokkrum árum, og gamla bænda
flokknum, sem rikti í Búlgaríu
á fyrri helming þessarar aldar,
en kommúnistar gerðu að engu
milli 1947 og ’50. Þetta glappaskot
Eysteins telja menn aðeins hið
síðasta í langri röð pólitiskra mis
taka og „Framsókmarmenn, sem
telja sig fædda til þess að
stjórna”, eins og blaðamaður hins
virta blaðs „The Guardian“
komst að orði í blaði sinu fyrir
nokkru eftir heimsókn sina hér
á landi, sjá lítil tækifæri til þess
á ný, meðan Eysteinn er við
völd í Framsóknarflokknum, þar
sem enginn af leiðtogum hinna
flokkanna í landinu er fáanleg-
ur til þess að taka upp samstarf
við Eystein í riki«aiiini.