Morgunblaðið - 29.09.1965, Side 2
MORGUNBLAÐID
Miðvikudagur 29. sept. 1965
M
Bjarni Biagi
Guðjón
Guóm. H. G. Guöm. Guðm.
Gunnar
Halldór
Jón
iUagii^á
Ver’kalýðsráðstefna á Akureyri
EINS og áður hefur verið sagt
Ifrá efna Sjálfstæðismenn í laun-
jþegasamtökunum til ráðstefnu
á Akureyri um næstu helgi.
Báðstefnan verður haldin í Sjálf
stæðishúsinu og hefst laugardag
inn 2. okt. kl. 3 eJi. og lýkur á
sunnudagskvöld.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um atvinnu- og verkalýðsmál
J og verða m.a. eftirtalin mál
rædd: Þróun kaupgjalds og
verðlagsmála, skipulag og starf-
semi verkalýðssamtakanna,
vinnulöggjöfin, framleiðsla og
markaðsmál og atvinnumál á
Norðurlandi.
Eftirtaldir menn munu flytja
erindi á ráðstefnunni: Bjarni
Bragi Jónsson hagfræðingur;
Magnús Óskarsson, vinnumála-
fulltrúi; Guðmundur H. Garð-
arsson, form. Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, Jón Þor-
valdsson, bæjarfulltrúi; Halldór
Blöndal, erindreki; Guðjón Sig-
urðsson, form. Iðju, Rvík; Guð-
mundur Guðmundsson ,form.
Málfundafélagsins Óðins og
Gunnar Helgason, form. Verka-
lýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.
Auk fyrirlestranna verða
frjálsar umræður þar sem
fundarmönnum gefst kostur á
að ræða þau mál, sem fyrirlestr
arnir fjalla um eða önnur efni,
sem þeir vilja kom fram með.
Nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna eru gefnar í skrifstof-
um Sjálfstæðisflokksins á Akur
eyri og Reykjavík, og er æski-
legt að þeir Sjálfstæðismenn,
sem hugsa sér að taka þátt í
henni hafi samband við skrif-
stofurnar og láti vita um þátt-
töku sína.
Greinargerð
dóms- og kirkjumálaráðuneytis vegna
r
kaupa á húsi Guðmundar I. Guðmundssonar
Mbl. barst í gær eftirfarandi
greinargerð frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu vegna
kaupa ríkissjóðs á húsi Guð-
mundar í. Guðmundssonar í
Hafnarfirði:
NOKKUR bTaðaskrif hafa spunn
izt undanfarið um kaup ríkis-
sjóðs á húseigninni nr. 13 við
Brekkugötu í Hafnarfirði af Guð
mundi í. Guðmundssyni, þáv. ut-
anríkisráðherra. Með því að ekki
hefur verið farið rétt með stað-
reyndir varðandi tildrög og fram
kvæmd húskaupanna, þykir rétt
að málsatvik verði rakin.
Er Guðmundur f. Guðmunds-
son tók við embætti bæjarfógeta
í Hafnarfirðj 1945 fylgdi því ekki
embættisbústaður og byggði
hann þá sjálfur hús við Brekku-
götu 13 í Hafnarfirði. Á árinu
1958 fór Guðmundur í. Guð-
mundsson þess á leit bréflega við
dómsmálaráðuneytið, með vísun
til þess, að langt væri komið að
byggja eða kaupS embættisbú-
staði fyrir öll bæjarfógeta- og
sýslumannsembætti landsins, að
fallizt yrði á að kaupa umrætt
íbúðarhús hans. Með bréfi dóms-
málaráðuneytis, dags. 1. apríl
1958, samþykkir ráðuneytið, að
umrædd húseign verði keypt af
honum eftir árslok 1959, ef hann
óski þess þá og þó eigi siðar en
hann láti af embætti sem bæjar-
fógeti í Hafnarfirði og sýslumað-
ur Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Um ákvörðun kaupverðs segir í
bréfinu, að það fari eftir mati
tveggja manna og verði annnar
tilnefndur af dómsmálaráðuneyt-
inu, en hinn af Guðmundi í. Guð
mundssyni. Geti matsmenn ekki
orðið ásáttir tilnefni Hæstiréttur
oddamann. Við matið verði lagt
til grundvallar byggingarkostn-
aður ibúðarhúsa á þeim tíma er
matið fer fram að frádreginni
eðlilegri fyrningu, og fullt tillit
verði tekið til kostnaðar við lóð
hússins og húsgrunn. Snemma á
þessu ári tilkynnti Guðmundur
í. Guðmundsson dómsmálaráðu-
neytinu, að hann óskaði þess, að
húskaupin kæmu nú til fram-
kvæmda, svo sem að framan seg-
ir. í byrjun apríl'sl. nefndi Guð-
mundur í. Guðmundsson sem
matsmann af sinni hálfu Tómas
Vigfússon, húsasmíðameistara,
en dómsmálaráðuneytið tilnefndi
af sinni hálfu Heiga Eyjólfsson,
húsasmíðameistara. í matsgerð
þeirra kemur fram, að húsið
Brekkugata 13 er 1325 rúmmetr-
ar að stærð. Niðurstaða mats-
gerðarinnar hljóðar svo: „í mat-
inu höfum við tekið tillit til að-
stæðna við byggingaframkvæmd
ir, þegar þær fóru fram, ástand
eignarinnar nú og fyrningu, sam-
anber bréf dóhis- og kirkjumála-
ráðuneytisins dags. 1. apríl 1958,
eins og neðan greinir:
„........Við matið verði lagt
til grundvallaa- byggingarkostnað
ur íbúðarhúsa á þeim tíma er
matið fer fram að frádreginnl
eðiilegri fyrningu, og fuilt tillit
verði tekið til kostnaðar við lóð
hússins og húsgrunn.........“
Með hliðsjón af byggingar-
kostnaði, eins og hann er í dag
og ástand eignarinnar metum við
húsið á kr. 3.710.090.00.
Samkvæmt framanlögðum
reikningum eiganda á fram-
kvæmdum við lóðina og önnur
mannvirki, er á henni eru, fært
til núverandi verðlags, metum
við þær á.......kr, 1.027.000.00
Heildarmat .... kr. 4.737.000.00.
Svo sem fram kemur af ofan-
greindum tölum er rúmmetra-
verð í húsinu metið á kr. 2.800.00.
Komið hafa /ram í blaðaskrif-
um, • ábendingar um, að ekki hafi
verið gætt nægilega við kaupin
ákvæða laga um embættisbústaði
dómara. í 2. gr. þeirra laga seg-
ir: „Nú verða héraðsdómara-
skipti og sá er af störfum lætur,
eða bú hans á hús, sem að dómi
ráðherra er hæfur héraðsdómara
bústaður, og skal þá ríkisstjórn-
in kaupa eignina, ef viðtakandi
héraðsdómari óskar, enda fáist
hún fyrir hæfilegt verð að dómi
sérfróðra óvilhallra manna.“ Af
þessu er Ijóst, að með bréfinu frá
1. april 1958 eru teknar aðrar
og meiri skuldbindingar á ríkis
sjóð en samkvæmt tilvitnaðri
lagagrein, þ.á.m, um matsgrund-
völl.
Matsmönnunum er, samkvæmt
bréfi ráðherra 1. apríl 1958, bein
línis fyrir lagt að meta hús og
lóð miðað við kostnaðarverð
hvprttveggja á þeim tíma, þegar
matið fer fram. Frá þessu ber
að draga eðlilega fyrningu á hús-
eign og er við það miðað í mat-
inu. En lóðaverðið er, samkvæmt
fyrir mælum bréfsins byggt á
framlögðum kostnaðarreikning-
um á framkvæmdum við lóðina
og önnur mannvirki, er á henni
eru, fært til núverandi verðlags,
eins og áður segir.
Kostnaðurinn varð svo mikill
vegna alveg sérstakrar mann-
virkjagerðar á lóðinni, þar sem
sprengt er inn í Hamarinn svo
kallaða fyrir húsinu. Um þessar
ákvarðanir ber ekki að saka
matsmennina, heldur leiðir þær
af þeim skuldbindingum, sem
teknar voru á ríkissjóð með bréf-
inu 1. apríl 1958.
Af því er varðar val á mats-
manni af hálfu dómsmálaráðu-
neytisins hefur verið fundið að
því, að Helgi Eyjólfsson, húsa-
smíðameistari, hafi verið valinn,
þar sem hann væri jafnframt
framkvæmdastjóri sölunefndar
varnarliðseigna, og málefni henn
ar heyri undir utanrikisráðherra.
Helgi er þó ekki á neinn veg
svo háður utanríkisráðherra um
það starf, að skert geti sjálf-
stæði hans í matsstörfum eða
réttdæmi, enda verður ekki vé-
fengt, að Helgi Eyjólfsson er ein
hver færasti ■ kunnáttumaður,
sem völ er á í því efni ,sem mat-
ið fjallaði um.
Landamæraverðir
flýja sæluna
Gham, V-Þýzkalandi,
28. s'ept. — NTB.
TVEIR tékknéskiV landamaéra-
verðir í einkennisklæðum og með
alvæpni, flúðu s.l. sunnudag ýfir
landamæri V-Þýzkalands og léit
uðu þar hælis sem pólitískir
flóttamenn, að því er inrtanríkis-
ráðuneytið í Bayern skýrði frá
í dag. Sagði ráðuneýtið, að landa
mæraverðirnir, sem báðir eru
tvítugir að aldri, hafi flúið vegna
kommúnistastjórnarinnar í Tékkó
slóvakíu.
1 í
UM þesar mundir stendur yfir
lækkun Gclfskálahæðarinnar,
þar sem Bústaðavegur liggur
um hana. Er lækkun þessi
gerð í þeim tilgangi að leggja
þar yfir ásinn hina nýju
Kringlumýrarbraut og verður
lækkunin á allbreiðu svæði.
Með framkvæmd þessari eru
slegnar tvær flugur í einu
höggi. Bærinn fær lækkun
fyrir stæði Kriglumýrarbraut
ar og Reykjavíkurhöfn grjót
til sinna framkvæmda, en það
er höfnin, sem vinnur að grjót
náminu þarna á staðnum.
Nú er svo komið að fram-
kvæmdir liafnarinnar eru
komnar upp að Bústaðavegi
og verður af þeim sökum lögð
slaufa á Bústaðaveginn fram
hjá grjótnáminu til þess það
geti haldið áfram gegnum
gamla veginn. Á sama tíma er
verið að rífa bragga og önnur
hús, er standa í vegi fyrir
hinu nýja vegarstæði.
Myndin sýnir hvar hinn nýi
augavegur liggur út frá Bú-
itaðaveginum.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
HÆGVIÐRI var um allt land um; kaldast á Hornbjargs-
í gær því að hæðarhryggur vita.
lá yfir landinu frá norðaustri Síðdegis var að myndast
ti Isuðvesturs. Lítilsháttar lægð yfir vestanverðu Græn.
rigning var í vestanverðu land landshafi. Haldi hún áfram
inu og þoka viða á Austfjörð- sinni þróun verður hér suð-
um, hitinn 3 til 4 stig um há- læg átt í dag.
degið, hlýjast á Hæli í Hrepp
| Drengur uðstoður banda- j
rískan fBugmann í VíeVnaan
3smn
BANDARISKUR flugmaður,
Gordon W. Marlowe, fór í sl.
viku í árásárferð á hendur
skæruliðum Viet Cong í S.-
Vietnam, um 400 km. norður
af Saigon. Þegar Marlowe
hafði tekið þátt í aðgerðum
gegn skæruliðum um stund,
var flugvél hans skotin niður.
Han stökk út í fallhlíf í 6 þús.
fcta hæð yfir herbúðum
Bandarikjamanna á þessum
slóðum, en hvasst var og vind-
urinn bar hann til suðurs yfir
á og inn á svæðið þar sem
barizt var gegn Viet Cong.
Marlowe rði fréttamönn-
um í Saigon í.iá því sem fyrir
hann bar, fxá því að fallhlíf-
in lenti á hnsakri, þar til hon
um hafoi verið bjargað um
borð í banciarískan fljóta-
pramma. , Hann sagði m.a.:
„Þegar ég var að losa mig við
fallhlifina, hópaðist fólk utan
um mig og ég sá að ég var
skammt frá þorpi þess. Ég
gat ekekrt annað gert en
ganga til þeirra og heilsa
þeim með handabandi. Síðan
tók ég neyðarsenditæki úr
töskunni, sem ég hafði
spennta um mittið, og náði
impii r.-iiWiw -TxiifmriniMrr
sambandi við flugmann L-19
eftirlitsflugvélarinnar, sem
hafði fylgzt með ferð minni
í fallhlífinni. Flugmaðurinn
sagði mér að halda kyrru fyr-
ir í þorpinu þar til þyrla
kæmi að sækja mig. Meðan
ég var að ræða við hann, kom
ungur Vietnam-búi í blárri
skyrtu og stuttbuxum til
mín. Hann endurtók í sífellu,
að Viet Cong-menn væru að
koma og sagði mér að fylgja
sér til suðausturs. Það var
einmitt' þar, sem ég hafði tek-
ið þátt í aðgerðunum gégn
Viet Cong svo mér fannst óvit
urlegt að fara þangað. Ég
gerði honum skiljanlegt að ég
vildi ekki fara með honúm og
hann fór, en kom aftur að
vörmu spori með þrjá vopn-
aða menn með sér. Þeir báru
heimagerða riffla, en hugsan-
legt er, að þeir séu ónothæfir,
því að mennirnir ógnuðu mér
ekki með þeim.“
Börnin í þorpinu hvöttu
Marlowe til að halda til norð
urs til árinnar og einnig fékk
hann skilaboð um það frá
flugmanni annarrar eftirlits-
flugvélár.
„Mennirnir fjórir gengu á
undan mér i átt til norðurs,"
hélt Marlowe áfram, „en, við
fyrstu bugðu á veginum,
sneru þeir aftur í suður. Þa
kom 12 ára drengur, sem hafði
fylgt okkur eftir, greip í hand
legg minn og beindi mér tii
vesturs. Ég fylgdi honum og
með aðstoð hans og annarra
vingjarnlegra þorpsbúa,
komst ég-til árinnar. Þar hitt-
um við Bandarikjamenn á
fljótapramma, sem sendir
höfðu verið til að leita að mér.
Þeir fóru með mig. út á sand-
eyju í ánni, en þangað sótti
mig þyrla. Þegar þyrlan hóf
sig til flugs af sandeyjunni,
voru liðnar um þrjár klukku-
stundir frá því að ég stökk út
úr flugvélinni.“
Drengurinn, sem aðstoðaði
Marlowe, þorði ekki að snua
aftur til þorps síns af ótta
við refsiaðgerðir skæruiiða
kommúnista. Hann er nú í
bandarísku herstöðinni fyrir
norðan áná og hafa hermenn-
irnir þar lofað að hugsa vel
um hann.