Morgunblaðið - 29.09.1965, Síða 10
10
MORGU N BLAÐID
Miðvikudagur 29. sept. 1965
U
Köfuuartæki Jacqucs Yves ul -usteau. Westinghouse hefur í smíöum annaö tæki, sem þola á þrýsting á 6—7 km. dýpi.
Stefnt að nýtingu auð
linda undirdjúpanna -
hvaða beitu einstakar fisk-
tegundir taka.
Flestir þessara minni kaf-
báta, sem nú eru í smíðum
vestan hafs, eru eingöngu
aetlaðir til vísindarannsókna.
Sum fyrirtæki leigja þá stofn-
unum, en önnur framleiða að-
eins með sölu fyrir augum.
Enn mun samt líða á löngu,
þar til hafizt verður handa
í stórum stíl um nýtingu auð-
linda sjávarins. Stjórnarfor-
maður olíufélagsins „Shell“,
John H. Loudon, spáir því þó,
að fjórðúngur allra olíu- og
gaslinda, sem finnast munu
næsta aldarfjórðunginn, muni
verða á hafsbotni. „Shell“
hefur þegar yfir að ráða
nokkrum kafbátum, sem not-
aðir eru við rannsóknir undan
ströndum Kaliforníu. >eir
eru þó ekki mannaðir, en er
stjórnað frá yfirborði sjávar,
UNDANFARNA hálfa öld
hafa vísindamenn mikið
ritað og rætt um auðæfi
sjávarins. Það er þó fyrst
nú, að ríkisstjórnir og fyr-
irtæki eru farin að gefa
þessum ónýttu auðlindum
gaum.
í Bandaríkjunum er haf-
inn nýr iðnaður. Nokkur
stórfyrirtæki einbeita sér
nú að smíði tækja, sem
notuð verða við rannsókn-
ir á miklu sjávardýpi. —
Hafa þegar verið fullgerð-
ir nokkrir kafbátar og köf-
unartæki, sem eingöngu
verða notuð í vísindaleg-
um tilgangi.
Spá því margir ,að athug
anir á undirdjúpunum
muni brátt verða umfangs-
meiri en rannsóknir á him-
ingeimnum.
„Cubmarine“, lítill bátur, sem notaður er á litlu dýpi þ.e.
50—60 m.
Hafsbotninn er viða auðug-
ur af verðmætum málum, s.s.
kopar og nikkel. Gert er ráð
fyrir, að á hafsbotni sé meira
magn olíu að finna en á þurru
landi. I»á segir í greinargerð
bandarísku stjórnarinnar, að
á ári hverju megi veiða um
220 milljónir tonna af fiski,
en það magn myndi nægja til
að fullrtægja helmingnum af
þörf jarðarbúa fyrir eggja-
hvítuefni.
Til þess, að nýta megi þessi
auðæfi þarf að framkvæma
margvíslegar rannsóknir. Á
árunum fram til 1972 hyggst
bandaríska stjórnin verja um
100 milljörðum ísl. króna til
þeirra. Meginhluti fjárins
fer til srrtíði og kaupa á hent-
ugum kafbátum og köfunar-
tækjum.
Fyrir nokkrum dögum fór
nýtízku, bandarískur kafbát-
ur, ' „Aluminaut", í athyglis-
verða reynsluför í Golf-
straumnum, undir strönd
Miami. Sérstök deild Westing
house Eleetric fyrirtækisins,
þar sem um 1500 manns
starfa, hefur nú hafið tilraun
ir með kafbát, „Deepstar",
sem smíðaður er eftir teikn-
ingum franska haffræðingsins
Jacques Yves Cousteau. Þá
standa fyrir dyrum rannsókn-
ir í Kyrrahafi, nærri Hawaii,
á vegum sérstakrar neðan-
sjávardeildar General Dyna-
mics fyrirtækisins. Kafbátur-
inn, sem það hefur smíðað,
nefnist „Asherah", og úr hon-
um verður hægt að athuga,
.. .............. ■*
„Asherah", sem notaður veröur við rannsóknir á því, hvaða
beitu fiskur vill, og hvernig bezt e*- að egna fyrir hann.
m.a. með sjónvarpstækjum.
Þótt nokkur bið kunni enn
að verða á því, að menn afli
þeirrar þekkingar, sem er
nauðsynlegur undanfari nýt-
ingar, þá leikur ekki lengur
vafi á því, að í framtíðinni
verður mikill hluti fæðu
jarðarbúa — og málma, sem
ekki er nóg af á yfirborði
jarðar, auk olíu — fenginn
úr undirdj úpunum.
„AIuminaut“, þolir þrýsting á tæplega 5 km. dýpi. Báturinn
er eingöngu gerður úr aluminí.
Nýjar bækur
frá Leíftri
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
eftirtaldar bækur frá prent-
smiðjunni Leiftri, sem allar eru
komnar út: Sjö sögur, eftir A.
Conan Doyle; Sofandi kona, eft-
Ir George Alexander; Gerviaug-
að (Perry Mason), eftir Erle
Stanley Gardner, auk margra
barna- og unglingabóka: Todda
í Sunnuhlíð, eftir Margréti Jóns-
dóttur; Kim og smyglaramir,
eftir Jens K. Holm; Kim og leður
jakkarnir eftir sama höfund;
Vigga og vinir hennar eftir Irene
Ravn; Hanna og Tom, eftir
Britta Munk; Sagan af Tuma
' litla, síðari hluti, eftir Mark
Twain; 3 fræknir ferðalangar,
eftir Frank Lynge, og Fallegu
ævintýrin.
Sjö sögur eru eftir hinn fræga
brezka blaðamann og skáld.
sagnahöfund, Sir Arthur Conan
Doyle sem hlaut heimsfrægð
fyrir leynilögreglusögur sínar um
ævintýri Sherlocks Holmes. —
Ýmsar bækur hans hafa áður
verið þýddar á íslenzku, svo sem
Baskervillehundurinn og svo
ýmsar leynilögreglusögur. Sögqr
þær eftir A. Conan Doyle, sem
Leiftur gefur nú út, hafa ekki
áður birzt á íslenzku. Þær eru
7 að tölu og teknar úr smásagna-
safni, sem höfundurinn kallaði
„Sögur frá liðnum öldum“. Jónas
Rafnar, læknir, þýddi sögurnar.
Sofandi kona fjallar um ást og
dularfull afbrot, segir á auglýs-
ingatexta á bókarkápu. Aðal-
persónan nefnist Elízabeth War-
ing, „fögur ensk hjúkrunarkona“.
Ingibjörg Jónsdóttir þýddi bók-
ina.
Gerviaugað er eftir leynilög-
reglusagnahöfundinn Erle Stan-
ley Garner, og um söguna segir
m.á. á bókarkápu, að hún sé „sér
lega flókin saga um ljótan at-
burð og hlutverk Parry Masons
er hér eins og venjulega, að leysa
torráðna flækju. Og honum tekst
að sýkna þann, sem saklaus er
hafður fyrir rangri sök. Áður
hefur Leiftur gefið út bókina
Forvitna brúðurin, eftir sama
höfund. Ólafur Sv. Björnsson
þýddi bókina.
Margrét Jónsdóttir
skáldkona.
Barna- og unglingabækur.
Fyrst skal telja Toddu í Sunnu
hlíð, eftir Margréti Jónsdóttur,
saga fyrir börn og unglinga (önn
ur úgáfa). Bók þessi er framhald
af sögunni uf Toddu frá Blá-
garði. Á bókarkápu segir, að
Todda hafi átt heima í Kaup-
mannahöfn fram að 7 ára aldri,
enda sé hún dönsk í föðurætt.
Bókin lýsir m.a. viðtökunum sem
hún fær heima hjá ömmu sinni
í Sunnuhlíð og ýmsu sem ber
fyrir augu á íslandi. Margrét
Jónsdóttir, skáldkona, hefur gef-
ið út fjölmargar bækur, eins og
kunnugt er.
Sagan af Tuma litla, eftir
Mark Twam, er síðara bindi, en
áður hefur Leiftur gefið út nokkr
ar bækur aðrar eftir þennan
heimsþekkta og vinsæla höfund.
, Eins og fyrr getur sendi for-
lagið frá sér tvær Kim-bækur
eftir Jens K. Holm, og eru þetta
tólftu og þrettándu Kim.bækurn
ar, sem út koma á íslenzku.
Knútur Kristinsson hefur íslenzk
að báðar bækurnar.
Þá er að snúa sér að kven-
fólkinu. Vigga og vinir hennar,
eftir Irene Ravn, er „saga af
skólatelpu, sem , geymdi alvar_
legt leyndarmál". En bókin um
Hönnu og Tom, eftir Brittu Munk
er fimmtánda Hönnu-bókin, sem
forlagið gefur út. Bókina þýddi
Knútur Kristinsson.
Að lokum má minnast á bók-
ina >rír fræknir ferðalangar, eft
ir Frank Lynge. í þeirri bók er
sagt frá ævintýralegu ferðalagi
Þriggja röskra drengja, eins og
komizt er að orði á bókarkápu.
>eim hefur verið boðið til Suður
Frakklands til þess að heim-
sækja frændfólk sitt, en í Paris
týna þeir vegabréfum sínurn . . .
Fallegu ævintýrin eru fjórtán að
tölu. Myndirnar í Ævintýr þessi
gerði Bjarni Jónsson. Öll eru
þessi ævintýri gömul. „>au hafa
haft í sér lífsmáttinn til þess að
standast umrót breytinganna“,
segir á bókarkápu.
Tækniskóli íslands
verður settur fimmtudaginn 30. sept.
kl. 2 e.h. í hátíðasal Sjómannaskóians.
SKÓLASTJÓRI.