Morgunblaðið - 29.09.1965, Blaðsíða 16
16
MOkCUNBLADIÐ
Miðvikudagur 29. sept. 1965
Útgefandi:
F ramkvæmdastjóri:
Ritstjórar;
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðaístræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
LYÐRÆÐII
FRAMKVÆMD
'í3'ýfy■' ý
Danskir lögreglumenn bera kistur hinna nxyrtu starfsbræðra sinna inn í Dómkirkjuna i Kaup
mannahöfn síðastl. laugardag.
Verður Bune sakaður
um hlutdeild í morði?
Útför lögreglumannaniia
fjögurra för fram sl. laugardag
SÍÐASTLIÐINN laugardag
fór fram í Kaupmannahöfn
útför lögreglumanmanna fjög-
urra, sem myrtir voru á göt-
um borgarinnar í fyrri viku.
Mikið fjölmenni var við útför-
ina, og meðal viðstaddra voru
Friðrik Danakonungur, yfir-
maður rikislögreglunnar,
dómsmálaráðherra Danmerk-
ur; forseti þingsins o.fl. Útför
in fór fram frá Dómkirkjunmi
í Kaupmannahöfn.
Unnið er áfram að rann-
sóknum á ýmsum atvikum í
morðmáli þessu. Palle F.
Sörensen var þegar eftir játn
ingu sína, ákærður fyrir að
hafa myrt lögreglumennina
fjóra, en hins vegar hefur enn
ekki verið endanlega ákveðið
fyrir hvað félagi hans. Nor-
man Lee Bune verður ákærð
ur. Spurningin er sú, hvort
grundvöllur er fyrir því að
Bune verði ákærður fyrir hlut
deild í morðunum.
Bune hefur haldið því fram
bæði í yfirheyrslum hjá lög-
reglunni og sömuleiðis fyrir
rétti, að hann hafi margsinnis
beðið Sörensen um að hleypa
sér út í þann mund að lög-
reglubíllinn var farinn að nálg
ast bíl þeirra félaga.
— En Sörensen vildi það
ekki, og sagði að það væri
ekki hægt. Einu leíðina sagði
hann vera þá, að nema staðár,
og ógna lögreglumönnunum
með byssum, segir Bune.
Er Sörensen rétti Bune
byssu úr geymsluhólfi bílsins,
lét Bune hana detta á gólfið,
og hann heldur því fram að
hann hafi síðan stokkuð út úr
bílnum á 50 km. hraða.
• Framburður Sörensens
Framburður Sörensens
stingur í mörgum atvikum í
stúf við framburð Bunes.
Sörensen segir að vísu að
Bune hafi margsinnis beðið
um að fá að fara út úr bíln-
um, er honum var ljóst orðið
að þeir myndu ekki sleppa
undan lögreglubílnum. —
Kannske var það ég, og
kannske var það Bune, sem
sagði: „Þá verðum við víst að
skjóta þá“, sagði Sörensen
fyrir réttinum. Hann hellur
því síðan fram að Bune hafi
tekið byssu út úr geymslu-
hólfi bílsins, en sjálfur kveðst
Sösensen hafa tekið byssu
sína úr leðurhylki, sem hanri
bar á sér.
Sörensen segir að Bune hafi
verið með í bílnum unz hann
nam staðar. Þeir hafi farið
sinn hvoru megin út úr bíln-
um með byssur í höndum.
— En ég skaut báða lög-
reglumennina, segir Sörensen.
— Bune stakk af.
Á grundvelli þessa ósam-
hljóða framburða tvímenning
anna er það hugsanlegt, en þó
alls ekki víst. að lögreglan
muni síðar ákæra Bune fyrir
hlutdeild í drápunum. í því
tilviki hvílir sönnunarbyrðin
á yfirvöldunum.
• Sanna verður fyrirfram-
ákvörðun.
Þetta hefur það í för með
sér, að ákærandinn verður að
sanna að mennirnir tveir hafi
fyrirfram talað svo um með
sér að fremja morðin. Ef þetta
er ekki sannað, er ekki hægt
að dæma Bune fyrir hlutdeild
í drápunum.
En ef Bune hefði haft, vit-
neskju um að Sörensen hygð-
ist myrða umrædda tvo lög-
regluþjóna, var það skylda
hans að reyna að hindra lög-
brotið. Hafi hann hlaupizt á
brott frá bílnum vitandi þetta,
er hægt að refsa honum fyrir
hlutdeild í morði.
Hafi hann hins vegar farið
frá bílnum án vitneskju um
fyrirætlanir Sörensen, eða í
þeirri trú, að hann ætlaði að-
eins að tefja lögreglumennina,
er naumast hægt að refsa hon
um fyrir hlutdeild í morðun-
um.
Það sem því skiptir máli er
hvort mennirnir tveir hafa ver
ið búnir að tala um það sín
á milli að skjóta lögreglumenn
ina, eða hvort Bune hefur skil
ið málin svo að þeir ætluðu að
fara út úr bílnum og hræða
lögreglumennina, annað hvort
með því að miða á þá, ellegar
að skjóta göt á hjólbarða bíls
þeirræ
j^ins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, afþakkaði
bandaríska leikritaskáldið,
Arthur Miller, boð Johnsons
Bandaríkjaforseta, um að
vera viðstaddur undirritun
nýrra laga um stofnun sér-
staks menningarsjóðs. Kvaðst
Miller ekki geta þegið boð
Johnsons, þar sem hann sé
~ andvígur stefnu forsetans í
Víetnam.
Þessi sjónarmið hins merka
leikritaskálds eru athyglis-
verð, ekki sízt fyrir það, að
þau undirstrika hið fullkomna
lýðræði, sem í Bandaríkjun-
um ríkir. Stuðningur allra
menntamanna og leiðtoga í
menningarlegum efnum við
stefnu Bandaríkjanna í Suð-
ur-Víetnam, væri Johnson
forseta auðvitað mjög mikils-
verður, en ríkisstjórn hans
gerir enga tilraun til þess að
neyða menntamenn þar í
landi til fylgis við stefnu sína.
Óneitanlega verður gaman að
lifa, þegar þær fregnir berast
frá Moskvu, að merkur rúss-
neskur rithöfundur hafi ekki
„þegið boð um að heimsækja
Kreml vegna andstöðu við
utanríkisstefnu Sovétstjórn-
arinnar. En kannski þarf
mikla bjartsýni til að halda,
að slík fregn geti borizt frá
Sovétríkjunum eða öðrum
kommúnistaríkjum á næstu
árum eða áratugum.
Arthur Miller er merkur
leikritahöfundur, sem átt hef-
ur sér umdeilda fortíð, en orð
hans hljóta jafnan að vekja
mikla eftirtekt og orðstír hans
er slíkur, að eitthvert tillit
hlýtur að verða til þeirra tek-
ið. Hinsvegar hafa afskipti
Millers af stjórnmálum ekki
verið með þeim hætti, að
hægt sé að taka jafn mikið
mark á skoðunum hans í
þeim efnum eins og þegar
hann ræðir t.d. um menning-
armál.
Það eru ekki alltaf ótvíræð
sannindi, sem listamenn segja,
fremur en Stjórnmálamenn.
Enginn er heilagur, og öllum
getur yfirsézt, hinu merka
leikritaskáldi jafnt sem öðr-
um.
Kjarni málsins í Víetnam
er sá, hvort sem mönnum þyk
ir Ijúft eða leitt, að þar sem
kommúnistar beita vopna-
valdi til þess að þenja út veldi
sitt, verður að stöðva þá með
ennþá öflugra vopnavaldi.
Framsókn kommúnista í Evr-
ópu var stöðvuð með öflugum
hervörnum vestrænna ríkja,
án þess að til ófriðar kæmi.
Átökin standa tíú í Asíu, og
þar munu kommúnistar einn-
ig verða að læra sína lexíu.
Þeir eru greinilega mjög tor-
næmir, þegar um er að ræða
skilning á staðföstum vilja
frjálsra manna til þess að
reka af höndum sér kúgunar-
öflin.
SNÚIÐ VIÐ Á
MIÐRI LEIÐ
T umræðum hér á landi og
-*■ annars staðar um það
stjórnskipulag, sem ríkt hef-
ur í Sovétríkjunum, hafa
kommúnistar jafnan haldið
því fram, að í Sovétríkjunum
ríkti sósíalismi, en eftir væri
að stíga skrefið til fulls yfir
í algeran kommúnisma, í sam
ræmi við kenningar Karls
Marx.
Eftir öllum fregnum að
dæma, virðist nú sem Sovét-
ríkin hafi ákveðið að snúa við
á miðri leið, hætta við að stíga
skrefið til fulls yfir í komm-
únisma, en fikra sig nú í átt-
ina að velferðarríki, mótað af
kapítalískum hugmyndum.
Um þessar mundir stendur
yfir í Moskvu fundur mið-
stjórnar kommúnistaflokks-
ins í Sovétríkjunum, og verð-
ur þar aðallega fjallað um
breytingar á stefnu stjórnar-
innar í efnahags- og iðnaðar-
málum. Allt bendir til þess,
að núverandi forsætisráð-
herra, Alexei Kosygin, beiti
sér nú fyrir því á þessum mið
stjórnarfundi, að teknar verði
upp í sovézkum iðnaði vest-
rænar starfsaðferðir, sam-
keppni aukin milli fyrirtækja
og gróðasjónarmiðið innleitt í
Sovétríkjunum í mjög vax-
andi mæli.
Sovétstjórnin mótmælir
því að vísu mjög, að hún sé
að snúa við á miðri leið af
braut kommúnismans, en í
þessum efnum mun tryggara
að taka tillit til orða Kín-
verja, sem sjá glögglega hvað
er að gerast í Sovétríkjunum
og fordæma þá stefnubreyt-
ingu, sem þar er að verða.
Um þessa stefnubreytingu í
Sovétríkjunum er annars ekki
nema allt gott að segja. „Batn
andi manni er bezt að lifa“,
og lýðræðissinnar á Vestur-
löndum hljóta að fagna því,
að Sovétmenn eru að snúa frá
villu síns vegar, og vona að
fólkið, sem býr í Sovétríkj-
unum og hefur orðið að þola
mikið vegna rangrar stefnu
stjórnarvaldanna, muni nú
brátt eiga þolanlegri daga í
vændum. Svo er fyrir að
þakka því vestræna efnahags-
kerfi, sem nú virðist í mótun
í Sovétríkjunum ef treysta
má fregnum þaðan.
• Ólöglejs; kjötsala
í Póllandi.
Varsj-á 20. sept. (NTB)
Réttarhöld eru nú hafin í
Danzig í Póllandi yfir 44
Pólverjum, sem sakaðir eru
um að hafa stolið af birgðúm
kjötverzlunar ríkisins og selt
á svörtum mar'kaði. Skýrt vár
frá þessu í blöðum í Varsjá í
dag og sagt, að meðal hinna
ákærðu væru forstjórar og
flestir aðrir stanfsmenn útitoús
kjötverzlunar ríkisins í Danz-
ig, en hún hefur með höndum
dreifingu á kjöti í smærri
kjötverzlanir. Hinir ákærðu
eru sagðir hafa stundað kjöt- ’
þjófnað frá 1955 og gert er ráð
fyrir að rúmlega 100 vitni
verði kölluð fyrir í málinu.
Kairó, 25. sept. NTB,
• George Thompsen, ráðu-
neytisstjóri í brezka utanríkis
ráðuneytinu kom til Kairó í
gær í þriggja daga opinibera
heimsókn. Er hann hæst setti
embættismaður Bretlands, sem
þangað hefur komið í heim-
sókn frá átökunum um Suez
árið 1956. Hann mun ræða við
Nasser forseta um ýmis mál.