Morgunblaðið - 29.09.1965, Page 18
Miðvilíudagur 29. sept. 1965
\ 18
MORCU N BLAÐIÐ
H afnarfj^ rBur
Bílstjóri óskast strax til ð keyra sendi£erðabíl.
ÁSMUNDABBAKARÍ
Upplýsingar í síma 50064.
Stýtimann og háseta
vantar á m/b Helgu Björgu á togveiðar.
Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 23434.
, '
Sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
Viðskiptamálaráðuneytið.
Ræstingakona óskast
TEDDYBÚÐIN, Aðalstræti 9.
4ra herb. íbúðarhæð
Höfum til sölu 4ra herb. íbúð á 3. hæð í villubygg-
ingu við Goðheima. — Stórar svalir. — Tvöfalt
gler. — 3 svefnherbergi. — Sér hiti.
Skipa- og fasteignasalan
Til leigu
4ra herbergja íbúð. Tilboð ásamt uppl. um fjöl-
skyldustærð sendist afgr. Mbl. merkt: „Róleg —
2678“ fyrir fimmtudagskvöld.
Sendisveinar
Pilta og/eða stúlkur vantar á ritsímastöðina til að
bera út skeyti. Vaktaskipti.
Upplýsingar hjá skeytaútsendingunni, simi 11000.
Afgreiðslustúlkur
óskast í lyfjabúð
Skriflegar umsóknir skulu hafa borist fyrir
6. október.
Aðalstræti 4, Reykjavík.
Járnlðnaðarmaður
og maður vanur rafsuðu óskast á verkstæði við
Kársnesbraut í Kópavogi.
Upplýsingar í síma 37800.
Atvinita óskast
Stúika sem nýkomin er frá dvöl í Englandi og Dan-
mörku óskar eftir góðri atvinnu. Ahugi á snyrti-
vöruafgreiðslu, en margt annað kæmi til greina.
Upplýsingar í síma 38871.
Gunnar Geir
Leósson
KVEÐJU- OG ÞAKKARSTEF
FRÁ ÁSTVINUM
Þú lífs og ljóssins faðir
vér leitum til þín nú,
um ár og aldaraðir
var einlæg bænfn sú.
Þá vinir kærir kveðja
um kinnar falla tár.
Lát trúna grátna gleðja
og græða hjarta sár.
Að elska, muna og minnast
er mönnum áskapað
oft sælu og sorgum kynnast
með sár í hjartastað.
Þó harpa dauðans hljómi
og heit sé táralind.
I hjartans helgidómi
svo hugljúf geymist mynd.
Hér kvaddi drengur dáður
sem djÖBÍung gæddur var,
í .skóla lífsins skráður
í skarts og unaðar.
En foreldrarnir finna
hve fögur gjöf sú var
hann vildi læra og vinna
og vaxtar merkin bar.
En eiginkonan unga,
sem átti góðan mann
ei má vor mannleg tunga
um missir dæma þann.
Þau áttu ungar dætur
sem unnu pabba heitt.
En börnum sárabætur
fær blíðust móðir veitt.
Hans móðursystir minnist
mætan frænda sinn
hún aldrei öðrum kynnist
sem eins er hjartfólginn
er bljúg vér höfuð hneigjum
á helgri kveðjustund.
I sannri .lotning segjum.
Hann sigri drottins mund.
L. B.
Fyrirspurn
um veitingu skóla-
stjórastöðu við
Tcn’istarskóla
Kópavogs
SKÓL AST J ÓRASTAÐN við
Tónlistarskóla Kópavogs, sem
styrktur er af bæjarfélaginu,
var auglýst laus til umsóknar
fyrir nokkrum vikum. Enda
þótt umsóknarfrestur hafi runn
ið út fyrir hálfum öðrum mán-
uði, hafa nöfn umsækjenda
ekki verið birt opinberlega eða
hver stöðuna hlaut. Vegna þess,
að sá orðrómur hefur komizt á
kreik, að við veitingu stöðunnar
hafi ekki næganlega verið tekið
tillit til menntunar eða reynslu
umsækjenda, væri æskilegt að
fá opinberlega upplýst, hverjir
umsækjendur voru og hverjum
staðan var veitt, enda var starf-
ið auglýst opinberlega laust til
umsóknar.
Kópavogi, 27. sept. 1965,
Fjölnir Stefánsson.
Peningalán
Útvega pemngalán:
Tii nýbygginga.
— íbúðarkaupa.
— endurbóta á íbúðum.
Uppl. kl. 11-12 f.h. og 8-9 e.h.
Sími 15385 og 22714.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Jóhann Ragnerssan
héraðsdómsiögmaður.
Málflutningsskrifstofa
Vonarstræti 4. — Sími 19085
Bjarnj Beinteinsson
LÖGFRÆÐI NGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI a valdiI
SlMI 13536
KAUPMENN KAUPFÉLÖG
JapÖnsk silkivara
Kvöldföt fyrir dömur. — Kvöldjakkar fyrir dömur.
Dömusloppar.
FYRIR BÖRN.
Inniföt (jakki og buxur). — Takmarkaðar birgðir.
S. (Dskatsson. & do.ý
HEILDVERZLUN
Garðastræti 8 — Sími 21840.
Bornosfeóli Mýrasýs’n
Varmalandi
Yngri börn (1. — 2. — 3. deild) komi í skólann
þriðjudaginn 5. október.
Eldri börn (4. — 5. — 6. deiid) mánudaginn 18. októ
ber. — Börnin komi fyrir eða um hádegi.
SKÓLAST J ÓRI.
SkrifsfofuhúsnœBi
Nokkur skrifstofuherbergi eru til leigu nú þegar,
(og önnur eitthvað síðar) á mjög vel settum stað
í borginni. Þeir sem kynnu að hafa áhuga á þessu,
geri svo vel að leggja inn nöfn sín ásamt síma
á afgreiðslu blaðsins fyrir 3. okt. n.k. merkt:
„Skrifstofur — 2676“.
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík.
Til sölu
þriggja herbergja íbúð í I. byggingarflokki. Þeir
félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi
umsóknir sínar í skrifstofu félagsins Stórholti 16
fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 5. okt. n.k.
STJÓRNIN.
Merzedes Benz
sendiferðabifreið, diesel í mjög góðu lagi til sýnis
og sölu að Hofteigi 54, sími 35196.
íhúð til leigu
4—5 herbergja íbúð til leigu á 1. hæð í sambýlis-
húsi í Háaleitishverfi. Mánaðarleg fyrirframgreiðsla.
Tilboð er greini atvinnu og fjölskyldustærð sendist
afgr. Morgunblaðsins merkt: „íbúð í Háaleitis-
hverfi — 2674“ fyrir 1. október.
Tilbynmng Iró Beifelnvörn
í Reyfejovík
Kaffisala verður eins og venjulega á Berklavarnar-
daginn sunnudaginn 3. okt. til ágóða fyrir Hlífar-
sjóð. — Konur sem ætla að gefa kökur eru vin-
samlegast beðnar að koma þeim í Breiðfirðinga-
búð fyrir hádegi á sunnudag eða hringið í síma
20343 og 32044.
STJÓRNIN.