Morgunblaðið - 29.09.1965, Síða 23
MORGUNBLADID
23
f ( MiSvfkudagur 29. sept. 1965
BRAZILÍSKUR býflugna-
sérfræðingur að nafni War
wick Kerr taldi sig hafa
góðar ástæður til þess að
flytja 20 afrískar býflugna
drottningar til Brazilíu fyr
ir níu árum. Þó vitað væri
að afríska býflugan væri
grimmdarkvikindi, var það
jafnframt staðreynd að
hún framleiddi 30% meira
hunang en býflugur af
þýzkum og ítölskum stofni
gera, en þær tegundir hafa
verið nær einráðar á
Brazilíumarkaði í áraraðir.
Og afríska býflugan hefur
fleiri kosti; hún vinnur og
safnar hunangi í veðri, sem
gerir öðrum tegundum það
ómögulegt. Þar að auki
hugðist Kerr kynbæta og
blanda hinar afrísku hý-
flugur sínar með skap-
betri býflugum. Það sem
hann fékk út úr þeirri
Nyienda afrískra drápsbýflugna. — Er Brazilía í hættu
verði þeim ekki útrýmt?
Býflugur vekja
ugg í Brazilíu
Kynblöndun afrískra býflugna tókst herfilega
— Þær drepa nú kvikfénað og fólk í stórum stíl
blöndun var slíkt tryllings-
skordýr, að það ógnar nú
lífi og lífsviðurværi bý-
flugnaræktarmanna í átta
ríkjum Brazilíu — svo ekki
sé minnst á þúsundir ann-
ara Brazilíubúa.
Af þessum 20 afrísku bý-
flugpadrottningum hafa kom-
ið um 450,000 nýjar býflugur
árlega, og enginn afkomend-
anna hefur erft eiginleika
ítölsku og þýzku býflugnanna,
sem hafa feðrað hinn nýja
kynstofn. Hinar nýja býflug-
ur eru fljótar til reiði og jafn
vel fljótari að verða að
flugnasveimi. í>ær ráðast síð-
an, að því er virðist af engum
sérstökum ástæðum, á ítalsk-
ar og þýzkar býflugur og
drepa niður hverja býflugna-
kúpuna á fætur annarri. Það
sem verra er: kvenbýflugur
hafa erft hið „illa blóð“ frá
hinum nýju karlbýfiugum, og
halda þær einnig þessum
miklu „skapbrestum". „Við
héldum að þegar þær vendust
loftslaginu myndu þær verða
menningarlegri", segir séra
Joao Oscar Nedel, Jesúíta-
prestur og einn helzti bý-
flugnasérfræðingur Brazilíu.
„En það þveröfuga gerðist."
Afrísku býflugurnar hafa
nú gjörsamlega tekið málin í
sínar hendur. Þær hafa sett
upp býkúpur undir steinum, í
hellisveggjum, undir trjárót-
um, í yfirgefnum bílræflum,
almenningssímaklefum og
jafnvel í umferðarljósum. Þær
hafa drepið fugla, hænur,
hunda, svín, hesta og fjóra
menn. Fyrir fjórum mánuðum
reyndi einn íbúa Caieiras,
skammt frá Sao Paulo, að
svæla út afríska býflugna-
kúpu, sem var í strompi vín-
stofu einnar á staðnum. Bý-
flugurnar réðust þá sam-
stundis inn í vínstofuna „í
slíkum sveimi að ekki sá til
sólar“, sagði einn sjónarvotta.
Þær stungu vínsölumann, sem
þar var staddur, unz hann
féll í yfirlið, og skildu svo
marga brodda eftir í skalla
barþjónsins „að hann hélt að
hann væri að fá hár aftur. Á
næstu þremur klukkustundum
réðust óðar býflugurnar á
500 manns í nágrenninu og
stungu þá. Síðan héldu þær
árfam för sinni að nærliggj-
andi búgörðum og skildu eft-
ir í slóð sinni hópa dauðra
hænsna og hunda, sem engd-
ust sundur og saman, og tvo
hesta stungu þær svo illa að
þeir gátu ekkert etið í þrjá
daga.
Afrísk býflugnanýlenda séra
Nedels 'við háskólann í Sao
Leopoldo gekk skyndilega
berserksgang fyrir skömmu.
Neyddu flugurnar einn aðstoð
armanna hans til að leita hæl
is inni í vörubíl og réðust
síðan á annan mann, tvo
hunda og nokkur börn. Dag-
inn eftir skipaði Jesúítinn og
býflugnasérfræðingurinn að
drepnar skyldu þær átta af-
rísku býflugnadrottningar,
sem hann átti.
í síðustu viku höfðu bý-
flugurnar gert innrás í aðal-
verzlunargötu Rio de Janeiro,
Rio Branco. Fllugnasveimur á
stærð við risamelónu suðaði
fyrir framan 'herstjórnar-
bygginguna, og afrískar bý-
flugur réðust á fótgangandi
borgara eftir að hafa rekið
hermenn úr vélbyssuhreiðrum'
og úr varðstöðvum við bygg-
inguna. Meira en 60 hermenn
hlutu slæmar stungur.
Hverjar svo sem ástæðurn-
ar fyrir skapillsku afrísku bý
flugnanna kunna að vera,
leita Brazilíumenn nú í ofboði
að einhverri lausn á málinu.
Til þessa er eina húgmyndin
sú að drepa allan stofninn og
það strax. „Drepum þær all-
ar“, segir séra Nedel. „Ef ekki
næst stjórn á þeim, munu þær
leggja undir sig allar aðrar
býflugur, og þær munu leggja
undir sig Brazilíu."
Býflugnabóndi einn í Sao
Paulo, Luiz Zovaro ,sem held
ur afrískar býflugur, hefur
neyðzt til þess að hækka verð
ið á hunangskrukkum úr 39
centum í nær 2 dollara, sök-
um þess hve erfitt er að ná
hunanginu úr kúpum afrísku
flugnanna. Zovaro segir: „Ef
ekki er ráðið niðurlögum þess
ara flugna, verður' ekki leng-
ur óhætt að búa í Brazilíu.
Eg lít framtíðina mjög döpr-
um augum.“
— Verðbólgulaus
Framhald af bls. 17
imeira fram yfir skýrelur síðasta
érs.
Heildarframleiðsla þjóðarinnar
er vitanlega lokamæliikvarðinn á
hagstöðu landsins- Heiildarfram-
leiðsla á vörum og þj ónustu þaut
á fyrsta fjórðungi þessa árs upp
í ársupphæð, sem nemur 649
milljörðum en það er 14.25%
hækkun frá næstliðnum þremur
mánuðum.
Og í viðbót við það gífurlega
stök'k upp á við, höfum við séð
9 milljárða dala aukningu á öðr-
u-m ársfjórðungum og alilt bend
ir til áframihaldandi vaxtar þáð
sem eftir er þessa árs, og rætist
þá hagyfirlýsimg Johnsons for-
seta, að þjóðartekjurnar muni
nema 660 milljörðum á ármu
1966.
Draumar og vitranir
IMý bók eftir Hugrúnu
PRENTSMIÐJAN Leiftur hefur
gefið út nýja bók eftir skáld-
konuna Hugrúnu, Draumar og
vitrar.ir. Bókin er 135 bls. að
stærð, og fjalla kaflar bókarinn.
ar um ýmis dularfull fyrirbrigði,
eins og nafn hennar bendir til.
Prófessor Jóhann Hannesson
skrifar formála að þessari bók
Hugrúnar, og fjallar hann þar
um hina ósýnilegu veröld, sem
«r bakgrunnur frásagna hennar.
Prófessor Jóhann Hannesson
kemst m.a. svo að orði í formála
sínum, að íslendingar hafi ekki
aðeins verið í snertingu við hina
ósýnilegu veröld í hundruð ára,
heldur hafi oft virzt sem svo, að
„áhrifin frá hinu ósýnilega hafi
orkað sterkar á menn en öfl hins
sýnilega heims“.
Og prófessorinn segir enn-
fremur:
„Mér er í minni kona öldruð,
er sagði okkur systkinunum sögu,
þegar við vorum lítil. Eins og
títt er um krakka, vildum
afnan fá meira að heyra. Að
ævintýrin gerðust í ævintýra-
heiminum, þar sem flest fór á
endanum eins og það átti að
fara, það varð okkur snemma
ljóst. En hvað um huldufólks-
heiminn, draugana, galdrana —
og drauma, sem menn dreymdi?
Sjálfur reyndi ég snemma að
leysa vandann með eins konar
skoðanakönnun; spurði fullorðna
bændur, hvort til væru draug-
ar og huldufólk. Voru svör á
ýmsa vegu, og eitt þeirra afdrátt
arlaust: Draugar eru til, en ekki
huldufólk. Nokkurt mark er að
draumum, ef menn kunna að
ráða þá. Þegar ég sagði hinni
sögufróðu Völvu frá þessari nið-
urstöðu, hristi hún höfuðið. Að
vefengja tilvist huldufólks,
fannst henni goðgá, einfaldlega
Hugrún.
af þeirri ástæðu, að það var ekki
gefið nema örfáum mönnum að
sjá það, — það er að segja þeim,
sem skyggnir voru — og jafnvel
fyrir þeim gat huldufólkið gert
sig ósýnilegt, horfið fyrir augum
þeirra inn i hamra eða hóla“.
Kvenmann
vantar til þvotta og frágangs á fatnaði nemenda í
Reykjaskóla á komandi vetri. Nánari upplýsingar
hjá skólastjóranum. Sími um Brú.
Bifvélavirkjar
Viljum ráða bifvélavirkja, vélvirkja eða menn
vana bílaviðgerðum.
Dieselvélar hf.
Suðurlandsbraut 16. — Sími 32360.
Afvinnurekendur
Ungur maður sem vinnur vaktavinnu, óskar eftir
aukavinnu. Margt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 37281.
F lugvirkjanemar
Þeir sem hafa í hyggju að nema flugvirkjun vin-
samlega hafi samband við skrifstofu Flugvirkja-
félags íslands Skipholti 19 á fimmtudaginn kl.
17 — 18,30.
F. V. F. L
Námskeið í bókfærslu
og vélritun
hefst í byrjun okt.óber, kennt í fámennum flokkum.
Get lánað nokkr ar ritvélar. Innritun fer fram að
Vatnsstíg 3, 3ju hæð daglega, og byrjar 27. sept.
Til viðtals einnig í síma 22583 daglega til kl. 7 e.h.
og í síma 18643 eftir kl. 7.
\ Sigurbergur Árnason.