Morgunblaðið - 02.10.1965, Qupperneq 18
MORCU NBLAÐID
Laugardagur 2. okt. 1965
Vex' i mestn óskast
mikil vinna *
\ "feksistölpar
SúðarvotV 5. — Sími 30848.
Ujigl’nc steSpa
óskast til sendifc rða á skrifstofu vorri,
fyrir hádegi.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar að Grens-
ásvegi 9 mánudaginn 4. okt. kl. 1—3 e.h.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, kl. 5 sama
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Þykktarhefill
Notaður þykktarhefiil og afréttari, sambyggt
til söiu.
Hjálmar Þorsteinsson & Co. hf.
Kiapparstíg 28. — Sími 11956.
Ms. Særún ES. 6
er til sölu. Upplýsingar gefa Guðni Jóhannsson, Sæ-
felli, Seltjarnarnesi, simi 17662 og Einar Guðfinns-
son, Bolungarvík.
SendisveiHn óskast
hálfan eða allan daginn.
Söngmenn
Vantar nokkra góða söngmenn
til viðbótar.
Upplýsingar í síma 1 61 14 milli kl. 7 og
8 næstu kvöld.
Ka líikérínii Fóstbræður
— Guðmundur
Vilhjálmsson
Framhald af bls. 17
„aflskeirra hlutá, sem geraskal".
Flugfélag íslands hugðist stór-
auka.hlutafé sitt og bauð hluta-
bréf sín til sölu meðal almenn-
ings. Árangur varð nokkur, en
þó hvergi nærri nógu góður, enda
mörg önnur verkefni, sem köll-
uðu eftir fjármagni landsmanna
samtímis. Okkur varð því jóst
að sækjas.t yrði eftir fjármagni
víðar en hjá almenningi ef ár-
“angur ætti að ve.rða viðunanleg-
ur.
Rekstur Eimskipafélagsins
hafði skilað góðum arði á þess-
um árum og félagið hafði rúm
fjárráð. ,Minnugir hinna góðu
undirtekta Guðmundar Vilhjálms
sonar, er við höfðum leitað til
hans áður, lá nú leið okkar til
hans öðru sinni, en nú myndu
sex þúsund krónur ekki nægja.
Viðfangsefnin höfðu vaxið í hlut-
falli við vöxt félagsins, og vel
það.
Guðmundur sýndi nú hinn
sama áhuga á flugmálum og'hann
hafði áður gert og eftir nokkra
umræðufundi, þar sem málið var
rætt fram og aftur, lagði hann
það fyrir stjórn Eimskipafélags-
ins. Árangurinn varð sá, að Eim-
skipafélagið gerðist stærsti hlut-
hafinn í Plugfélagi íslands, sem
félagið er enn í dag, auk þess,
sem það lánaði Flugfélaginu ríf-
lega fjárhæð. Með því fé gat
Flugfélagið gert margt af því,
s í n a fyrstu millilandaflugvél,
„GULLFAXA".
Að svo tókst til í þessu máli,
sem að framan er greint, var
duðvitað ekki verk Guðmundar
Vilhjálmssonar eins. Þar þurftu
fleiri um að fjalla, og þá sér-
staklega stjórn Eimskipafélags-
ins, ep ég hygg að á engan sé
hallað þegar ég fullyrði, að þetta
hafi fyrst og fremst verið þans
verk. Það var hans sannfæring,
að flugið ætti miklu hlutverki
að gegna og að efling þess myndi
ekki verða á kostnað siglinganna
heldur ætti hvor samgöngutækn-
in að styðja hina, báðum til
styrktar. Hann vildi því vinna
að vaxandi samvinnu þessara
tveggja félaga, Eimskipafélagsins
og Flugfélagsins, og taldi að slíkt
yrði báðum aðilum, og þjóðfé-
laginu í heild, til góðs. Hann
gerði sér Ijóst, að flugið yrði
veigamikill þáttur í uppbyggingu
landsins og þessvegna vildi hann
stuðla að eflingu þess.
Guðmundur Vilhjálmsson var
kosinn formaður stjórnar Flug-
félags íslands vorið 1949 og það
sæti skipaði hann til æviloka,
eða í rúm tuttugu ár. Á þessú
tímabili hefir félagið slitið barns-
skónum og eflzt til æ stærri
átaka, og nú, við ævilok Guð-
mundar, er styrkur félagsins
meiri en hann hefir nokkru sinni
áður verið. Allir, seto eitthvað
hafa fylgzt með þróun flugmála
okkar, vita þó, að á sögublöð
þeirra eru ekki aðeins skráðir
sigrar og sældardagar heldur
einnig vandamál og vonbrigði.
í því öllu tók Guðmundur ríkan
þátt og lagði ætíð gott til mál-
anna.
Guðmundur Vilhjálmsson til-
heyrði þeirri kynslóð, sem tók
við af aldamótamönnunum. Það
var mikil gæfa fyrir þjóðina, aS
hún átti þá marga fjölhæfa
drengskaparmenn. sern voru þess
umkomnir að taka upp merkið
til áframhaldandi sóknar. Þá hóf-
ust utanríkisviðskipti okkar fyrir
alvöru og mikið í húfi, að þar
væri valinn maður í hverju
rúmi. Það nægði ekki, að þjóðin.
hefði trú á sjálfri sér hún þurfti
einnig að skapa sér traust ann-
arra. Guðmundur var í hópi
þeirra, sem þá voru falin mikil
trúnaðarstörf, sem hann leysti
af hendi með slíkri prýði að á
hann hlóðust frekari störf á sviði
utanríkisviðskipta. Hann t.ók síð-
an við starfi sem forstjóri eins
stærsta fyrirtækis landsins Eim-
skip>afélags íslands, og því fé-
lagi mun nafn hans framar öðru
verða tengt.
Það mun allra dómur, a5 Guð-
mundi Vilhjálmssyni, hafi farizt
stjórn Eimskipaféiagsins vel úr
hendi. Hann átti í ríkum mæli
þá eðliskosti, sem nauðsynlegir
eru þeim, sem veita forstöðu jafn
stóru fyrirtæki og Eimskipafé-
lagið er. Hann var gæddur góð-
um gáfum, hagsýni, nákvæmur
og samvizkusamur svo af bar.
Háttvísi hans og kurteisi var við-
brugðið og framkoma hans var
ætíð þannig, að vakti verðskuld-
að traust og virðingu. Af þessum
ástæðum, og mörgum öðrum, var
hann farsæll í starfi og mikils-
metinn af öllum þeim er honum
kynntust.
Fyrir hans mikla starf í þágu
Flugfélags íslands eru honum nú,
að leiðarlokum, færðar alúðar-
þakkir af hálfu stjórnar og
starfsmanna þess. Persónulega
minnist ég með hlýhug og þakk-
læti hins góða samstarfs, sem
með okkur ríkti, og þess stuðn-
ings, sem hann svo oft veitti mér
í starfi mínu.
Það var á allra vitorði, sem
nokkuð þekktu til, hve ham-
ingjusamt hjónaband þeirra frú
Kristínar og Guðmundar var.
Frú Kristín stóð við hlið hans
í blíðu og stríðu og hygg ég að
hann hafi jafnan leitað hennar
samráðs þegar hann þurfti að
ráða fram úr mikilvægum mál-
um, svo mjög sem hann dáði
hana og virti. Henni, börnum
þeirra og tengdabörnum, bið ég
þess að minningin um hinn
flekklausa drengskapar mann
megi verða. til að milda sorg
þeirra og söknuð.
Örn Ó Johnson.
fer á sunnudag öku- og göngu-
ferð um Stóra-Kóngsfell og
Þrihnúka. Farið frá Austur-
velli kl. 914. Farmiðar seldir
við bílana.
Bifvélavirkjar athugið
Vantar 2 bifvélavirkja eða menn vana bílavið-
gerðum nú þegar.
Bifreiðaverkstæðið KAMBÁS
Grensásvegi 18 — Sími 37534.
Vélstjórar! Rafvirkjar!
Olíustöðin í Hafnarfirði óskar eftir að ráða
vélstjóra eða rafvirkja.
Upplýsingar í síma 50527 frá kl. 17—19.
Stöðvarstjóri.
Tilkynning frá félaginu
Heyrnarhjálp
Frá og með 1. október verður afgreiðsla fyrir við-
gerðir á heyrnartækjum, sem eru innflutt af okkur,
aðeins á skrifstofu félagsins að Ingólfsstræti 16.
Blaðburðarfólk vantar
í Kópavogi
Hvammana og Hdveg
IHoruimbfebib
Sími 40748
Sendill óskast
hálfan eða allan daginn.
Bæjarútgerð Reykjavíkur
Byggingameistara
sem er að byrja á stórhýsi vantar nú þegar
góða smiði. Tilboð sendist afgr. Mbl., sem
fyrst, merkt: „Góðir smiðir — 2693“.