Morgunblaðið - 02.10.1965, Síða 28

Morgunblaðið - 02.10.1965, Síða 28
2* MQRGUNBLAV' Laugardagur 2. okt. 1965 PATRICK QUENTIN: GRUNSAMLEG ATVIK Höndin straukst aftur yfir ljósa hárið, síðan var henni veifað og bláu augun og drengja munnurinn brostu. Hann gekk út að dyrum en sneri sér þá við. — í>ú vildir víst gjarna vera hér þrjár vikur í viðbót, er það ekki, Anny? Ég gæti sett kaup- ið upp. Fimmtíu og fimm þús- und. Kannski sextíu! .... En ég vil ekki vera neitt að neyða þið. Þú hefur þetta alveg eins og þú vilt. En hvenær sem þú þarftæ á að halda stendur Las Vegas þér til boða. Svo fór hann út. Ronnie sat bara á rúminu. Skjálfandi. Mamma hjálpaði honum hóglega á fætur og leiddi hann inn í hans íbuð, og læsti millidyrun- urfl. Hún lét hann leggjast á rúmið sitt. — Þarna sérðu elskan. Þetta verður allt í frægasta lagi. Hvíldu þig nú bara, eins og hann Steve var að segja þér. Við Nikki verðum að fara. Það er rétt komið að seinni sýn- ingunni. Við gengum því til herbergja okkar og mamma var jafn ró- leg og hún hefði verið eftir góð- an heilsubótarblund. Úr lyft- unni sluppum við út og svo kring um húsið, til þess að mamma yrði ekki fyrir aðsókn fólks. — Nikki, elskan, ég held við segjum hinum ekki neitt frá þessu. Ekki enn. Ekki fyrr en á morgun, þegar allt er komið í lag. Veslingarnir, þau hafa haft nógar áhyggjur og nú viljum við, að þau sýni sitt bezta, finnst þér ekki? — Já, mamma. — Já, og, vel á minnst, Nikki, þú manst hvað hann Steve sagði um hana Lukku. Þú veizt, að það er ekki nema satt. Það er leiðinlegt hvað hún er óráðþæg. Ég er búin að segja henni það þúsund sinnum að ef hún vill vænta sér einhverrar framtíðar á sviðinu, verði hún að gera sér ljóst, að allt er undir jafnvæg- inu komið. Þú skilur, góði minn, að ég er áhyggjufull út af henni á fleiri sviðum. Það er eitt- hvað við hana.....eitthvað, sem ég tók ekki eftir strax. Einhver stálharka .... .ég vona, Nikki minn, að þú sért ekki orðinn um of snortinn .... — Mamma! sagði ég. — Já, en elskan, þú ert svo ungur og áhrifagjarn. Alveg mundi ég tapa mér ef þú létir svona metorðagjarna....... Nú þoldi ég ekki meira. Ég tók á sprett og hlóp á undan henni og á hlaupunum var ég að hugsa: Ég hata hana. Hún er skrímsli. Ég er sonur hinnar EINU hins eina, og óviðjafn- anlega skrímslis! 22 Þetta hafði Sylvita sagt..... Einhvernveginn slarkaði ég lega hefur hú gert enn meiri gegn um seinni sýninguna. Lík- lukku en fyrri sýningín, og næstum allt fræga fólkið þyrpt ist þangað til að sjá mömmu aftur. Eftir sýninguna fórum við í boðið til Mary Adriano. Pam og Hans frændi og Lukka — einkum þó Lukka — voru frá sér af spenningi yfir því að vera sigurvegarar í sigurvegara veizlu. Kætin í þeim hafði svo ill áhrif á mig, að ég notaði fyrsta tækifæri til að læðast frá þeim. En jafnvel þótt það tækist, gat ég ekki hugsað mér, hvemig ég mundi getað lifað þetta samkvæmi af. Mamma var ekki í neinum vandræðum með sig, eins og nærri mátti geta. Aldrei hef- ur nein stjarna verið betur í essinu sínu. Hún söng tímunum -A. URVALSVORUR Ó.JOHNSON & KAABER HF. saman og svo söng Judy Gar- f land tímunum saman og svo söng Frank Sinatra tímunum saman, svo kom Fred Astaire og söng og dansaði tímunum saman, en á meðan voru ein- hversstaðar í Las Vegas, sem var hið raunverulega Las Vegas, einhverjir handfljótir þrælar að bera Sylviu út í einhverja einkalyftu, út í einkabíl og það- an upp í aðra einkalyftu. Og svo var dálítið annað. Jafn vel þótt mamma virtist hafa gleymt því, þá mundi ég eftir ljósmyndinni og frumbréfinu. „Ég geymi það þar sem enginn getuj- nokkurntíma fundið það“. þetta hafði Sylvia sagt, en hvað ef Sylvia, sem var nú eins og j hún var, hafði skilið eftir fyrir- mæli hjá Denker eða einhverj- um öðrum, ef hún skyldi deyja....... En til hvers var ég að gera mér rellu út af þessu öllu? í guðs bænum, hvað gerði þetta til? Hvað ég gat verið orðinn brjálaður að vera alltaf að gera mömmu þessar getsakir. Þá tók ég eftir því, að Lukka var farin að „troða upp“. Ekki vissi ég, hvernig það byrjaði, því að ég hafði ekki tekið eftir neinu. En þarna var hún nú, umkringd af vorkunnlátum stjömum, og dansaði og söng, eins og hún ætlaði vitlaus að verða. Ég var í súrasta skapi, sem ég átti til og hugsaði með sjálfum mér: Hefur mamma á réttu að standa eins og venju- lega? Er þessi dansandi og syngjandi rauðhærða vítisvél, sem öskrar á eftirtekt áhorfend- anna sú rétta Lukka Schmidt, eins og einhver fyndinn maður hefur skírt hana? Til allrar hamingju þurfti ég ekki að velta þessari hugsun lengi fyrir mér, því að eins og ég hefi mátt vita, var mamma farin að stappa niður fæti. Nú reis hún í miðju þessu skýi, sem Balmain kjóllinn var, rétt þeg- ar Lukka var aftur að búa sig til að færast í aukana, og sagði samkvæminu slitið, hvað okkur snerti. Mamma togaði mig inn í bíl- inn til að aka aftur til Tamber- laine. Ég var svo þreyttur, að ég veit alls ekki, hvort ég streittist neitt á móti eða ekki. Mér fannst bara einhvernveg- / inn sjálfsagt, að móðirin og sonurinn skyldu halda hóp. aiátir — allir klæðast þeir KÓRÓNA fötum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.