Morgunblaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. október 1965 Viðbrögð við kortafundinum: Þaulhugsaður tilbúningur fjandsaml. Spánverjum — segir „ABC" blað konungssinna á Spáni — Formaður ítalska sögur- félagsins í New York vill efna til alþjóðlegs fundar Madrid, New York, Genua, 12. október. — (NTB) — t LJÓST er, að ekki eru all- ir jafn hrifnir af fundi Yale- kortsins, sem fræðimenn Yale háskóla og British Museum telja sanna, að norrænir sæ- farar hafi fundið Ameríku á undan Kolumbusi. ^ Spánarblaðið „ABC“ skrif ar í dag, að kortafundurinn og rannsóknirnar þar að lút- andi séu þaulhugsaður til- búningur og fjandsamlegt uppátæki, til þess gert að kasta rýrð á hið sögufræga Björn Iialldórsson * Banaslysið á Keilavikur- f'ugvelli Maðurinn, sem beið bana I slysi á Keflavíkurflugvelli í fyrradag og frá var skýrt í blað inu í gær, heitir 3jörn Halldórs- son, Granaskjóli 8 í Reykjavík. Hann hafði lengi verið verk- stjóri hjá Aðalverktökum. Björn var fæddur 1911 og því 55 ára gamall, er hann lézt. Hann lætur eftir sig konu, Nönnu Sveinbjörnsdóttur og uppkominn son. hlutverk Spánar vegna upp- götvunar Kristofers Kolum- busar. t í New York hefur formað- ur ítalska sögufélagsins harm að, að kortið skyldi birt fyrir Kolumbusardaginn, sem er í dag, 12. október, — og kveðst hann ætla að reyna að fá kom ið á alþjóðlegri ráðstefnu um málið. t Þá hefur Nicola Calvini, prófessor við Kolumbusar- stofnunina í Genúa lýst því yfir að þótt norrænir víkingar hafi komið til Ameríku ein- hvern tíma á undan Kolum- busi, skipti það engu máli — fundur þeirra hafi ekki haft í för með sér nein þjóðfélags- eða viðskiptatengsl. f dag er „Kolumbusardagur- inn“ haldinn hátíðlegur í Banda- ríkjunum og mörgum löndum Mið- og Suður-Ameríku. Á eyj- unni San Salvador á Bahama- eyjum, þar sem Kolumbus gekk á land fyrir 473 árum var lagð- ur hornsteinn að nýrri „Ameríku stofnun" — menningarmiðstöð og safni — til minningar um Kol- umbus. Voru margir sendiherrar Am- eríkuríkja viðstaddir þá athöfn. Talsmenn bandarískra borgara af ítölskum uppruna telja lítt að marka kortafund og rannsóknir fræðimanna Yale-háskólans og British Museum. Meðal annars hefur framkvæmdastjóri Kolum- busarhátíðahaldanna í Chicago, Victor Arrigo, lýst þvi yfir, að goðsögnin um, að víkingar hafi fundið Ame.riku skjóti alltaf upp kollinum öðru hverju en breyti engu um þá staðreynd, að það hafi verið rómanskar þjóðir, sem raunverulega uppgötvuðu „nýja heiminn." Formaður ítalska sögufélagsins í New York, John La Corte, lýsti því yfir í gærkveldi ,að hér væri á ferðinni hið alvarlegasta mál — fræðimennirnir, sem héldu fram Vínlandskortinu gerðu sig seka um að reyiia að knýja fram breyt ingar á mannkynssögunni. Stað- hæfði La Corte, að hægt væri að afsanna kenningar þessar með því að fá landabréf frá bókasafni Vatíkansins og hjá sérfræðingum um líf og störf Kolumbusar. — Kvaðst hann mundu safna að sér öllu fáanlegu efni varðandi mál þetta og hvetja til þess að hald- in yrði alþjóðleg ráðstefna um það. Þá harmaði John La Corte, að skýrt skyldi frá kortafundin- um rétt fyrir „Kolumbusardag- inn“, sem væri sérstakur hátiðis- dagur ítalskættaðra Bandaríkja- manna. Sem fyrr segir, tekur dagbláð- ið „ABC“, málgagn konungssinna á Spáni, svo djúpt í árinni í dag, að segja kortafundinn og rann- sóknirnar uppspuna og fjandsam legt tiltæki, er miði að því að skerða hróður þann, er Spánverj- ar hafi haft af ferðum Kolumbus ar. Segir blaðið, að hefðu nor- rænir víkingar fundið Ameríku væri ekki í dag til neinn Yale- háskóli og leggur á það áherzlu, að það hafi verið Ferdinand Spánarkonungur og ísabella drottning hans, sem gjörðu Kol- umbusi kleift að gera uppgötv- anir sínar. Þá hefur Eigil Knuth, greifi í Danmörku, látið uppi skoðun sína og telur Yale-kortið ekki beinan árangur af landgöngu víkinga í Norður-Ameriku. Ekki kveðs thann draga í efa að kort- ið sé ósvikið, en segir, að jafn- vel þótt víkingar hafi siglt til Norður-Ameríku sé eng- in ástæða til að ætla, að þeir hafi gert kort af svæðinu. Öllu lík- legra sé, að það sé gert eftir á- gizkunum og orðrómi, sem öld- um saman hafi verið uppi manna á milli um landið í vestrL Farseðla- gjaldið SVO sem frá var skýrt í Mbl. í gær hefur verið á- kveðið að leggja nokkurt gjald á farseðla til útlanda til þess að efla ríkissjóði auk ínna tekna. Farseðlar náms- manna og sjúklinga verða undamþegnir gjaldi þessu. Frumvarp um farseðla- gjaldið hefur enn ekki verið lagt .fyrir Alþingi en skv. upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér er fyrirhugað, að það nemi kr. 1.500.00 á hvern farseðil. Leiðrétting við f.étt um fjár- lagafrumvarp f FRÉTT Mbl. um fjárlagafrum- varpið í gær misrituðust nokkr- ar tölur og eru þær réttar svo: Skattar og tollar nema samtals 3.279.300.000. Aðflutningsgjöld nema 1.543.100.000. Söluskattur er áætlaður 937.900.000. Tekju- og eignaskattur er áætlaður 406.000.000 og gjald ati bifreiðum og bifhjólum 124.000.000. f frétt Mbl. í gær vantaði eitt núll aftan á tölur ^essar. í GÆR var V- og SV-átt hæg N-átt og slydda á Vest- hér á landi og vel hlýtt. fjörðum og annesjum nyrðra Skúrir voru vestan lands, en en hiti niður í 1 stig á lág- bjart á Austur- og Suðaust- lendL urlandi. Þó var um skeið í Tauno Hannikainen, hljómsveitarstjóri Erling Blöndal Bengtsson Frægir tðnlistarmenn á sinfóníutönleikum sem verða i Háskólabíói annað kvöld AÐRIR tónleiikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða haldnir í Há skólabíói annaS kvöld kl. 21. Á efnisskránni eru tvö verk eftir finnska tónskáldið Jan Síbelíus, Tapióla og Sinfónía nr. 1 í c-moll op. 39, og eru þau flutt í tilefni 100 ára afmælis Sibelíusar, en hann var fæddur 8. desember 1865. Auk þessa verður einnig fluttur cellókonsert í c-dúr eftir Haydn en einleikari í því verki verður Erling Blöndal Bengtson. Ko.nsert þessi fannst fyrir tilvilj- un á bókasafni í Prag fyrir fáum árum og er enginn vafi talinn á því, að hann sé saminn af Haydn. Blöndal Bengtson lék konsertinn í apríl sl. í Kaup- mannahöfn og flytur hann nú í annað sinn hér ,en mun að hálf- um mánuði liðnum leika hann í Stokkhólmi. Hljómsveitarstjóri er Finninn Tauno Hannikainen, sem er víðfrægur túlkandi á vcrkum Síbelíusar, en siðastliðin tíu ár hefur hann verið aðalstjórnandi sinfóníuhljómsveitar Helsinki- borgar. Hann lagði stund á celló, píanó og orgel við konservatoríið í Helsinki, en var síðan við fram haldsnám í París, Berlín og Vín. Af kennurum hans má nefna sjálfan Pablo Casals, cellóleikar- ann heimsfræga. Hann varð stjórnandi við finnsku óperuna í Helsinki 1922 og var þar í nokk- ur ár en varð síðan um 12 ára skeið hljómsveitarstjóri í Turku. í tilefni af 300 ára minningu fyrstu finnsku og sænsku land- nemanna í NorðUr-Bandaríkjun- um stjórnaði hann hátíðarkon- sert í Delaware og litlu síðar stjórnaði hann Boston- sinfóníu- Stolið I lifandi laxi Akureyri, 12. okt. — í gær kærði Stefán Þórðarson í Teigi { Hrafnagilshreppi til lögreglunnar yfir því, að sér hefðu horfið þrír lifandi hængir, sem hann hafði geymt í stíu í bæjarlæknum. Fullyrðir Stefán að laxarn- ir hljóti að hafa horfið af mannavöldum, þar sem ræki lega hafi verið um þá búið og þeir því ekki getað slopp- ið sjálfkrafa. Hængina ætlaði Stefán að nota síðar til und- aneldis. Þeir voru 5-7% pund hver. — Sv. P. hljómsveitinni. Síðan hefur hann stjórnað fjölmörgun bandarísk- um hljómsveitum. Þá hefur hann einnig gert víðreist um Evrópu, haldið konserta í Berlín, Varsjá, London Vín og Belgrad ,svo eitt- hvað sé nefnt. Hannikainen hef- ur einnig komið fram sem celló- leikari með ýmsum hljómsveit- um bæði í Finnlandi og í Banda- ríkjunum. Hann var 1950 kjörinn heiðursdoktor í músik við Banda ríska Konservatoriið og 1954 sæmdi forseti finnska lýðveldis- ins hann prófessornafmbót. Það sama ár varð hann stórriddari ís- lenzku Fálkaorðunnar. Vart þarf að kynna Erling Blöndal Bengtson fyrir íslenzk- um tónlistarunnendum, þar sem hann hefur oft komið til Íslandí og haldið tónleika hér í Reykja- vík og víðar. Síðast kom hann hingað til lands 1963 og lék þá með Sinfóníuhljómsveitinni. Hann er fæddur í Kaupmanna- höfn 1932 sonur Valdimars Bengt sonar fiðluleikara og konu hans, Sigríðar, sem var íslenzk. Hann stundaði fyrst nám hjá föður sínum en síðan hjá Fritz Dietz- mann og Gregor Piatigorsky. Hann kom í fyrsta skipti fram opinberlega á jólatónleikum danska blaðsins Politiken, þá að- eins fjögurra ára að aldri. Hann hefur haldið sjálfstæða tónleika víða um heim, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann var á ár- unum 1950-1953 tónlistarkennari í Bandaríkjunum en varð síðan prófessor við tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Bóhhald Lan 'j- smiðjnnna? í endnrshoSon Við endurskoðun ríkisendur- skoðanda á bókhaldi Lands- smiðjunnar kom það í ljós að reikningar fyrirtækisins voru ekki í fullkomnu lagi. Er ekki til fullnustu vitað hvernig í málinu liggur, þar sem endur- skoðun á þókhaldi mun ekki lokið. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um meðferð máls- ins og verða ekki teknar fyrr en að endurskoðun lokinni. FYRSTA spilakvöld Sjálfstæð isfélags Garða- og Bessastaóa- hrepps verður að Garðaholti fimmtudagskvöldið 14. okt. kl. 20.30. Spilað verður félagsvist eins og undanfarna vetur. Fé- lagar takið með ykkur gesti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.