Morgunblaðið - 29.10.1965, Page 5
Fostudagur 29. október 1965
MORGUNBLADID
Á hásléttunni suðvestur af
Hofsjökli rísa Kerlingarfjöll,
sérstök fjallaþyrping um 160
ferkm. ummáls. I>að er eins
og þau hafi tekið sig út úr,
enda eru þau gjörólík öllum
fjöllum hálendisins. Þar eru
margir háir tindar og nýpur,
þeir hæstu um 1400 m. yfir
sjó, en hásléttan undir þeim
er um helmingur þeirrar hseð
ar. Nafn sitt draga þau af
klettadrang einum miklum,
sem gnæfir upp úr ljósleitri
líparítskriðu sunnan í fjöll-
unum. Fjöllin eru sundur
skorin af gljúfragiljum og
er því seinfarið um þau.
Hæstu tindarnir eru svo
brattir, að í þeim festir varla
FRETTIR
Bústaðaprestakall
Altarisganga verður í kvöld
kl. 8.30 í Kópavogskirkju.
Séra Ólafur Skúlason.
Bindindisráð kristinna safnaða.
Fullítrúar, munið fundinn í kvöld
kl. 8:30 í Neskirkju.
Frá Guðspekifélaginu:
6túkan VEDA heldur fund í kvöld
kl. 8:30. Grétar Fells flytur erindi:
„Framliðnir menn og lífið eftir dauð-
ann“. Kaffiveitingar að fundi lokn-
um. Tónlist. Allir velkomnir.
Basar félags austfirzkra kvenna
verður þriðjudaginn 2. nóvember kl.
2 i Góðtemplarahúsinu. Velunnarar
félagsins, sem styrkja vilja basarinn,
vinsamlegast komið munum til eftir
taldra kvenna: Guðbjargar Guð-
mundsdóttur, Nesvegi 50, Valborgar
Haraldsdóttur, Langagerði 22, Fann-
eyjar Guðmundsdóttur Bragagötu 22,
Laufeyjar Arnórsdóttur Álfheimum 70,
Áslaugar Friðbjörnsdóttur, Öldugötu I
69.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
heldur sína árlegu kaffisölu 1 Tjarnar
kaffi sunnudaginn 7. nóvember. Þar
verður einnig basar með handunnum
munum, sem konurnar hafa unnið.
Velunnarar Dómkirkjunnar, sem
®tyrkja vilja þessa starfssemi, komi
munum til: frú Súsönnu Brynjólfs-
dóttur, Hólavallagötu 6, Elínar Jó-
hannesdóttur, Ránargötu 20, Ingibjarg
ar Helgadóttur, Miklubraut 50, Grétu
Gíslason Skólavörðustíg 5, Karólínu
Lárusdóttur, Sólvallagötu 2 og
Stefaníu Ottesen, Ásvallagötu 6.
HJÁLPRÆÐISIIEBINN.
Ofursti Johannes Kristiansen frá
Noregi, sem um þessar mundir
er í heimsókn á íslandi, talar
á samkomunum miðvikudag,
fimmtudag og föstudag. Brigader
Henny Driveklepp stjórnar.
Foringjar og hermenn taka þátt.
Það verður mikill söngur á sam
komunum. Allir eru hjartanlega
velkomnir, bæði ungir og eldri.
Samkomurnar hefjast kl. 20:30.
Kvenfélag Kópavogt heldur afmælis
(agnað i Félagsheimilinu föstudaginn
39. október kl. 8:30. Félagskonur fjöl-
■nennið. og látið vita í sima 40831 og
40981.
Kvenfélag Kópavogs heldur paff-
■níðanámskeiði í nóvembermánuði.
Kennari Herdis Jónsdóttir. Uppl. í
lima 40102 og 40984.
Kvenfélag Laugarnessóknar heldur
bazar laugard. 6. nóv. Félagskonur og
eóknarfólk sem viH gefa muni hafi
eamband viö Sigríði Ásmunds. sími
34544 og Huldu Kristjánsd. sími 35282
og Nikolinu Konráðsdóttur sími 33730.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í
Rcykjavík heldur basar miðvikudag-
inn 3. nóvember kl. 2 í Góðtemlara-
húsinu uppi. Félagskonur og aðrir
velunnarar félagsins eru beðnar að
koma gjöfum á basarinn til: Bryndís-
•r Þórarinsdóttur, Melhaga 3, Ingl-
bjargar Steingrimsdóttur, Vesturgötu
46 A, Elinar Þorkelsdóttur, Freyju-
*ötu 46. Kristjönu Árnadóttur, Lauga-
veg 30. Lóu Kristjánsdóttur, Hjarðar-
baga 10. Margrét Þorsteinsdóttir,
Laugaveg 52.
Orðtending trk Verkakvenuafélag-
snjó, og eru þvi engir jöklar
á þeim. En þar sem snjór safn
ast helzt í sökkum og skörð-
um, þar eru jöklar, en inn á
milli þeirra eru óteljandi hver
ir og leirpyttir, því að jarð-
hiti mikill er í fjöllunum. Fyr
á öldum munu menn hafa ótt
ast að útilegumannafoyggð
væri í f jöllunum og ekki dirfzt
að fara þangað, enda má
heita að þau hafi verið ó-
könnuð allt fram á miðja 19.
öld, en þá dirfðust menn fyrst
að fara þangað í fjárleit. Þor-
valdur Thoroddsen kom þang
að fyrstur fræðimanna, en
það var árið 1888. Hann dvald
ist þar aðeins einn sólarhring
og gat því ekki kannað fjöllin
að neinu ráði. Haustið 1937
var ruddur vegur þangað upp
í Árskarð og er þar sæluhús
Ferðafélagsins. Á leiðinni er
farið fram hjá tveimur foss-
um og heitir annar Gýgjarfoss
en hinn Hvinur, og er þar brú
á Jökulfallinu. Síðan hefir
mönnum orðið tíðförult upp í
Kerlingarfjöll, en þangað er
rúmlega 200 km. Jeið frá
Reykjavík. Og nú á séinni ár-
um hefir verið þar skíða-
skóli á hverju sumri, því að
altaf er hægt að finna fannir
í fjöllunum. Marga hefir' tign,
litadýrð, fegurð og marg-
breytni fjallanna töfrað. Þó
er þar ekki gróðri fyrir að
fara, því að mestur hluti fjall
anna er gróðurlaus með öllu.
Samfelldur gróður hefir að-
eins náð að myndast í útjöðr
um fjallanna, og þá helzt í
Innra-Árskarði. Þar hefir frá
upphafi verið áningarstaður
þeirra sem fóru til Kerlingar-
fjalla á hestum. Myndir er
tekin þarna og sýnir hesta
ferðamanna í skarðinu. Á
rananum til vinstri er sælu-
hús Ferðafélagsins, en það
sést ekki á myndinni.
ÞEKKIROU
LANDIÐ
ÞITT?
lnu Framsókn: Basar félagsins verð-
ur 11. nóvember n.k. Félagskonur vin
samlegast komið gjöfum á basarinn
sem fyrst, á skrifstofu félagsins, sem
er opin aila virka daga frá kl. 2_6
e.h. nema laugardaga. Stjórn og
basarnefnd.
MR — stúdentar 1949
Við heilsumst í kvöld á
þegar boðuðum stað og stundu.
Stefnendur.
A
Ungur drengur kom að máli
við Dagfoókina og sagði sín-
ar farir ekki sléttar. Hann var
að hjóla úti i gærkvöldi, og
týndi þá ljósbrúnu peninga-
veski úr leðri. í veskinu voru
engir peningar, en lyklar og
nafnskírteini hans, ásamt
skólaskírteini. Hann biður
skilvísan finnanda að koma
veskinu til skila til Dagbók-
arinnar. Ekki er vafi á, að
veskið kemur til skila, því
að engum er það að gagni
nema þessum unga dreng.
65 ára er í dag Jón Jónsson,
Hlíðarbraut 5 Hafnarfirði, starfs
maður Rafveitu Hafnarfjarðar.
50 ára er í dag frú Unnur Pét- I
ursdóttir, Skálagerði 9, Reykja- i
vík. Hún verður að heiman í dag.
Gefin verða saman I hjóna- I
band 30. október af séra Birni i
Jónssyni í Keflavík, ungfrú
Margrét Einarsdóttir, flugfreyja,
Álftamýri 48 og Ásmundur
Björn Cornelíus, Brávallagötu |
48. Heimili þeirra verður að
Iloltsgötu 27, Ytri-Njarðvik.
KAUPMAN NASAMTÖK
ÍSLANDS
KVÖLDÞJÓNUSTA
VERZLANA
Vikan 25. okt. til 29. okt.
Kjörbúðin Laugarás, Laugarásvegi
I 1. Verzlunin Rangá, Skipasund 56.
! Hverfiskjötbúðin, Hverfisgötu 50.
Kjötbúðin Bræðraborg, Bræðrabórg-
1 arstíg 16. Birgisbúð, Ránargötu 15.
Austurver h.f., Fálkagötu 2. Austur-
ver h.f., Háaleitisbraut 68. Verzlun
j Jóhannesar B. Magnússonar, Háteigs-
| vegi 20. Verzlunin Varmá, Hverfis-
götu 84. Laugabúðin, Laugateigi 37.
Sig Þ. Skjaldberg h.f., Laugavegi 49.
Verzl. Lárus F. Björnsson, Freyjugötu
27. Kiddabúð, Bergstaðastræti 48.
Sólvallabúðin, Sólvallagötu 9. Magga-
búð, Framnesvegi 19. Silli & Valdi,
Laugarnesvegi 114. Silli & Valdi,
Hringbraut 49. Verzlunin Kjalfell,
Gnoðarvogi 78. Verzlunin Þróttur,
Samtúni 11. KaupfélÖg Rvíkur og
nágrennis: Kron, Tunguvegi 19. og
Kron, Bræðraborgarstíg 47.
ÆSKULÝÐSVIKA K.F.U.M. cg K.
Hversvegna Kristur?
Æskulýðsvika K.F.U.M. og
K. heldur áfram í húsi félag-
anna við Antmannsstíg. Sam
koman í kvöld hefst kl. 8.30.
Yfirskrift samkomunnar er
eins og áður hefur verið á-
minnt: HVERS VEGNA
KRISTUR? í kvöld talar Jó-
hannes Ingibjartsson bygging
arfulltrúi, en auk hans tala
Hilmar E. Guðjónsson og Gísli
Friðgeirsson. Æskulýðskórinn
syngur. Mikill almennur söng
ur. Allir eru hjartanlega vel-
komnir á þessar samkomur,
þótt ungt fólk sé sérstaklega
hvatt til að koma. Samkoman
hefst kl. 8.30.
Jóhannes Ingibjartsson.
KJOSVERJAR
Átthagafélagar og nærsveitarmenn.
Skemmtun að Félagsgarði í Kjós, laugar-
daginn 30. okt. kl. 21.00.
Skógræktarfélag Kjósarhrepps.
T résmí ða vélar
Til sölu er „kobeneruð" Stenberg trésmíðavél,
minni gerð. Walker Törner fræsari og tólf tommu
bandsög. — Upplýsingar í síma 41980.
Stúlka óskast
til starfa í mötuneyti. — Góð vinnuskilyrði.
Upplýsingar í síma 22393 kL 9—18 daglega.
Óska eftir
að fá leigt lítið verzlunarpláss ca. 30 ferm. Einnig
gæti verið um kaup á lítilli verzlun að ræða.
Verður að vera vel staðsett. Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir 3. nóvember, merkt: „Strax — 2846“.
Sendisvelnn oskast
á ritstjórnarskrifstofur blaðsins.
Vinnutími kl. 6—11 e.h.
Lcnghentir menn
óskast til iðnaðarstarfa.
Trésmiðjan VÍÐJR hf.
Laugavegi 166.
Bátur til sölu
Höfum 23ja tonna bát til sölu.
Atlantor hf.
Símar 17250 og 17440.
Húsgögn i fundnrsal
Tilboð óskast í húsgögn í fundarsal, sem áætlað er
að muni rúma ca. 150 manns, þar af 100 við borð.
Nánari upplýsingar veitir Grímur Bjarnason, sími
12120 og 12380.