Morgunblaðið - 29.10.1965, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.10.1965, Blaðsíða 8
8 MORGU N BLAÐIÐ Föstudagur 29. október 1965 Verðlagning landbúnaðarafurða nú byggt á sama grundvelli og 1964 1 GÆR kom til umræðu í neðri deild stjórnarfrumvarp um verð lagningu landbúnaðarvara. — Ingólfur Jónsson, landbúnaðar ráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði og fer ræða hans í heild hér á eftir: „Herra forseti. Frumvarp það, sem hér er til umræðu, er flutt til staðfestingar á bráðabirgða- lögum, sem út voru gefin 11. september sl. um verðlagningu landbúnaðarvara á verðlagsár- inu 1965—1966. Ekki varð hjá því komizt að ákvéða verð búvöru að þessu sinni með bráðabirgða- lögum, þar sem 6 manna nefnd, sem áður hefur ákveðið verðið, var ekki starfhæf. 6 manna nefndin hefur unnið að verð- lagningu búvöru frá 1943. Hefur hún oftast orðið sammála um verð vörunnar til bóndans og einnig heildsölu- og smásölu- verð. Þegar samkomulag hefur Rest best koddar Endurnýjum gömlu sængum- ar, eigum dún- og fiðurheld ver, æðardúns- og gæsadúns- sængur og kodda af ýmsum stærðum. — Póstsendum — Dún- og fiðurhreinsun Vatnsstíg S. — Sími 18740. (Orfá skref frá Laueavegi). NITTO JAPÖNSKU NITTO HJÓLBARDARNIR I flsstum ítmðum (yrirligsiandi I Tollvörusaymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholti 35 — Sfmi 30 360 ekki náðzt í nefndinni hefur á- greiningsatriðunum verið vísað til yfirnefndar, en yfirnefndina skipa lögum samkvæmt einn fulltrúi sem fulltrúar bænda í 6 manna nefndinni kjósa og 1 full trúi, sem fulltrúar neytenda í 6 manna nefndinni tilnefna, en hagstofustjóri er oddamaður í nefndinni. Lög um verðlagningu búvöru voru endurskoðuð 1947 og aftur í árslok 1959 og voru þá endurbætt og útflutnings- trygging lögtekin. Við verðlagn ingu landbúnaðarvara er fund- inn grundvöllur fyrir verðlagn- ingunni með því að finna út stærð meðalbúsins í landinu. Meðalbúið hefur stækkað all- mikið á þeim rúmlega 20 ár- um, sem lög um 6 manna nefnd hafa verið í gildi. Stækkun bú- anna hefur orðið örari síðustu árin vegna aukinnar ræktunar og aukinnar tækni með bætt- um vélakosti. Verðlagningin skal miðast við það, að kjör bænda verði ekki lakari en kjör sjómanna, iðnaðarmanna og verkamanna. Reiknaðar hafa verið út tekjur meðalbúsins, svo og þau gjöld, sem eðlileg eru í sambandi við búreksturirin. Bændur hafa oft fundið að því, að verðgrundvöllurinn væri ekki réttur, að útgjöld meðalbús ins væru raunverulega meiri en tekið er tillit til í útreikningum með verðið. Enginn vafi er á því, að bændur hafa oft haft rök að mæla, enda almennt við urkennt, að 3 síðustu árin hafi verðgrundvöllurinn verið lag- færður og að bændur hafa því í seinni tíð unað betur hag sín- um heldur en áður. Skekkjur hafa oft komið í verðgrundvöll inn vegna þess að sjálfsagðar hækkanir voru ekki teknar til greina og má þá sérstaklega nefna haustið 1957, þegar bú- vöruverðið var hækkað um að- eins 1,88% eftir að kaupgjald hafði kækkað á verðlagsárinu um 16—17% og ýmsir rekstrar- vöruliðir búsins einnig mikið hækkað, sem hefði átt að taka tillit til. Til ársins 1960 gerðu lögin ráð fyrir því, að verðbreyt ingar ættu sér stað aðeins einu sinni á ári, þ.e. í byrjun verð- lagsársins 1. september ár hvert. Þegar kauphækkanir urðu í september eða október og rekstrarvörur hækkuðu eftir að verðið hafði verið ákveðið, urðu bændur að bíða með verðháekk anir allt að því heilt ár eða þar til næsta verðlagsár byrjaði. Þetta voru vitanlega ekki góð kjör á þeim tímum, sem verð- hækkanir og kauphækkanir voru eins og ætíð hefur verið ár lega frá því, að lögin voru sett. Með breytingu laganna árið 1960 var ákveðið, að tillit skyldi tekið til hækkunar á rekstrar- vöruliðunum og kauphækkun- um ársfjórðungslega. Var það mikil leiðrétting frá því, sem áður hafði verið. Hefði verið eðlilegt, að breytingar væru teknar til greina mánaðarlega, en framleiðsluráði landbúnaðar ins hefur fundizt erfitt að reikna út breytingar á birgðum og ákveða nýtt verð með svo stuttum fresth Mikilverðasta breytingin á lögum um verð- lagningu búvara 1960 var verð- trygging, sem bændur fengu með útflutningsuppbótunum. Út flutningstryggingin hefur gert fært að greiða bændum að fullu það verð sem 6 manna nefndin ákvað bændum, sem ekki tókst áður, meðan bændur báru sjálf ir hallann af því, sem út var flutt. Útflutningsuppbæturnar hafa oft verið gerðar að um- talsefni. Þykir ýmsum, að ríkis sjóði sé bundinn þungur baggi með þessu lagaákvæði. Útflutn- ingsuppbætur urðu á síðasta verðlagsári 184 millj. kr. og er gert ráð fyrir, að á yfirstand- andi verðlagsári fari þær nokk uð yfir 200 millj. Útflutnings- uppbæturnar geta þó aldrei far ið yfir 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Er það vissulega hemill, sem kem- ur í veg fyrir, að sú upphæð sem varið er í þessu skyni hækki úr hófi fram. Niður- greiðslurnar eru orðnar háar og þungar í skauti fyrir ríkissjóð. f>að er misskilningur, sem stund um kemur fram, að niðurgreiðsl urnar komi bændum einum við og séu jafnvel nokkurs konar styrkur til þeirra. Það er þó ljóst, að niðurgreiðslurnar eru gerðar af efnahagslegum ástæð- um í því skyni að hafa hemil á verðlaginu og dýrtíðinni. Það er ástæðulaust að gera lítið úr því framlagi, sem íslenzkur landbúnaður nýtur. Það er einn ig varasamt að mikla það fyrir sér, sem til landbúnaðar er var ið og halda því fram, að til land búnaðarins megi rekja mestan bann vanda, sem við er að stríða hverju sinni í dýrtíðar- og efna- hagsmálum. Það hefur oft verið til þess vitnað, að aðrar þjóðir verja miklum fjárhæðum til landbúnaðarins og jafnvel tiltölu lega meira heldur en íslending- ar gera. Um leið og þetta er sagt, er sjálfsagt að viðurkenna, að brýna nauðsyn ber til, að finna leiðir til þess að lækka framleiðslukostnað landbúnaðar- vara. Það ber brýna nauðsyn til að vinna úr landbúnaðarvörun- um innanlands og gera þær þann ig verðmætari, áður en þær eru fluttar út. Verði það gert, mun sá vandi, sem um er rætt í sam- bandi við landbúnaðinn fara minnkandi og hverfa, þegar tím- ar líða. Framleiðslan í landbúnaðinum hefur aukizt verulega vegna mikillar ræktunar, aukins véla- kosts og góðæris. Mjólkurfram- leiðslan ætti að miðast að mestu leyti við þarfir landsmanna. Það er óhagstætt að flytja út mjólk- urafurðir. En í góðæri getur orð- ið nokkur umframframleiðsla, eins og nú á sér stað. Ég hygg þó, að það sé almenn skoðun bænda, að nauðsyn beri til að haga framleiðslunni í samræmi við það, að ekki þurfi að flytja út mjólkurafUrðir sem nokkru nemur. Er margt sem bendir til, að vöxtur mjólkurframleiðslu verði minni næstu árin heldur en verið hefur. Bændur keppa nú að því að auka kjötframlei'ðslu og er það áreiðanlega, eins og sakir standa miklu heilbrigðara fyrir þjóðarbúið, að svo verði. Meðgjöf með sauðfjárafurðum á erlendum markaði er miklu lægri heldur en af mjólkurafurðum. Möguleikarnir til þess að fá betri markaði fyrir sauðfjárafurðir eru einnig miklu meiri heldur en á öðrum framleiðsluvörum landbúnaðarins. Að þessum mál- um er nú unnið og það haft í huga, að sauðfjárframleiðslan muni aukast mikið á næstu árum. Bændur munu einnig vinna að því, að framleiðslan verði fjöl- breyttari, þannig að neytendur hafi meira úrval og þær raddir, sem tala um innflutning á kjöti, hjaðni. Það kemur vitanlega ekki til mála að flytja inn erlent kjöt. Það eru nógir möguleikar til þess að hafa innlent kjöt af bezta tagi á markaðinum, og þar sem bændur hafa nú fullan hug á því, mun þess ekki langt að bíða, að breyting sjáist í þá átt. Með því að stuðla að bættum hag landbúnaðarins með ræktun, eins og gert hefur verið sein- ustu árin með fullkomnum véla- kosti og tækni, er augljóst, að búin stækka og möguléikar land búnaðarins verða meiri og betri en fyrr. Landbúnaðarinn mun þróast og eflast eftir því, sem ræktunin eykst og framleiðslan vex. Framlag ríkisins til rækt- unarmála mun halda áfram um langa framtíð, enda er ræktun- arframla-gið ekki miðað vi# hags- muni hvers einstaklings heldur verði það framlag í varasjóð fyr- ir framtiðina sem þjóðin öll mun njóta góðs af. Framlög til út- flutningsuppbóta munu ekki verða um alla framtíð, en hlýtur þó að vera um sinn, þangað til landbúnaðurinn er komin á það stig, að framleiðslan geti trufl- unarlaust gengið með því, að njóta innanlandsmarkaðarins og þess verðs, sem næst á erlend- um mörkuðum. Ég er sannfærð- ur um, að sá tími kemur, að land búnaðarvörur verða fluttar út úr landi með góðum árangri, þótt ríkissjóður leggi ekki fram fé til þeirra mála. Þegar það er haft í huga, er vitanlega sjálf- sagt að halda áfram að auka framleiðslu þeirra vara, sem hagstæðast er talið að flytja út og auka ræktun og framfarir 1 landbúnaði. Fólkinu fjölgar, neyt endahópurinn stækkar, tæknin verður meiri og framleiðslu- kostnaðurinn lækkar. Þetta styrkir aðstöðu landbúnaðarins og verður til þess, að allir, einn- ig þeir, sem nú efast um gildi landbúnaðar á íslandi, verða sannfærðir um, að gullið, sem grafið er úr íslenzkri gróður- mold er þjóðinni jafn mikils virði og þau verðmæti, sem aðr- ir atvinnuvegir veita. Lög þau, sem ákvarða reglur um verðlagningu landbúnaðar- vara urðu ekki framkvæmd á þessu hausti, vegna þess að Al- þýðusamband íslands neitaði að tilnefna fulltrúa í 6 manna nefndina eins og lög gera ráð fyrir. Er óskiljanlegt, hvernig á því stendur, að Alþýðusam- bandið tók þessa afstöðu. Haust- ið 1964 varð fullt samkomulag um verðlagningu búvara. Full- trúar neytenda og bænda sömdu um það verðlag, sem bóndinn skyldi fá. Það varð einnig sam- komulag um heildsöluverð og smásöluverð. Það varð fullt sam komulag um dreifingarkostnað- inn haustið 1964, en oft er tal- að um, að hann sé óeðlilega hár. Þar sem samkomulag náðist á fyrra ári, er erfitt að skilja, hvers vegna Alþýðusambandið skerst úr leik, áður en á þaij. reyndi, hvort samkomulag gæti orðið á þessu hausti. Út af fyrir sig er þýðingarlaust að ræða um það, hvers vegna Alþýðusam- bandið fór þessa leið og afsalaði sér þannig réttinum til þess að hafa áhrif á verðlagið í haust. Það, sem máli skiptir, er fram- haldið í þessum málum. Bráða- birgðalögin, sem gefin voru út til þess að bjarga málinu, miðast við það ástand, sem brotthlaup Alþýðusambandsfulltrúans úr 6 manna nefndinni skapaði. Það er almennt álitið, að tek- izt hafi að leysa hnútinn með bráðabirgðalögum á sanngjarn- an hátt. Þannig að bændur geti unað sínum hlut og neytendur geti ekki með réttu talið, að bog- Ingólfur Jónsson inn hafi verið spenntur of hátt. Samkv. 1. gr. bráðabirgðalag- anna er kveðið svo á, að á verð- lagsárinu 1965—1966 skuli byggt á verðlagsgrundvelli, er Hag- stofa íslands reiknar eftir verð- lagsgrundvelli haustsins 1964, Við laun bónda og sjúkrasjóðs- gjald bætist geymd hækkua samkv. bókun í fundargerðabók 6 manna nefndarinnar 24. febrú- ar 1965 og við þéð hvoru tveggja skuli bætt viðbót, sem er að hundraðshluta jöfn þeirri hækk- un, er verður á bótaupphæðum almannatrygginga á síðari hluta árs 1965. En bótaupphæðir þessar miðast við þær hækkanir,- sem orðið hafa á kaupi verka- manna. Með þessari viðmiðun var bóndanum tryggð hækkun búsafurða að þessu sinni. Þá er gert ráð fyrir samkv. 1. gr., a3 við aðkeypta vinnu bætist hlut- fallsleg hækkun. Við fjárhæðir vinnuliða þannig reiknaðar, bæt- ist verðlagsuppbót sbr. ákvæði 4. gr. laga nr. 63 1964 um verð- tryggingu launa. Aðrir útgjalda- liðir verðlagsgrundvallar 1964 skulu færðir fram til verðlags á hausti 1965 og eftir þeim reglum, sem gilda, þegar grundvelli hefur ekki verði sagt upp. Sama gildir um tekjuliði verðlagsgrund- vallar. Verðlag á ull og gærum í verðlagsgrundvelli 1965—1968 skal vera meðalútflutningsverð þessara afurða 1964—1965 að frá- dregnum áföllnum kostnaði, er útflutningur á sér stað samkv. mati Hagstofunnar. Þá er Hag- stofan hefur reiknað verðlags- grundvöll landbúnaðarvara sam- kv. 1. gr. þessara laga afhendir hún hann nefnd þeirri, er um ræðir í 2. gr. frv. til frekari með- ferðar. Samkv. 2. gr. skal skipa þriggja manna nefnd til þess að færa verðlagið út samkv. þeim grundvelli, sem Hagstofan hefur fundið. í nefnd þessari eiga sæti ráðuneytisstj. landbrn. forstjóri Efnahagsstofnunarinnar og fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráða landbúnaðarins. Nefndin varð sammála um verö á einstökum vörum til bóndans. Hún varð einnig sammála um heildsölu- og smásöluverð. Meðalverðhækkun til bænda varð samkv. þessu 11.2%. Var verðhækkunin all- miklu meiri á kjöti, á kostnað mjólkurver’ðsins. Eins og fram kemur, er ljóst, að verðlagið á þessu hausti er í samræmi við það verð, sem ákveðið var með samkomulagi haustið 1964. Þær verðhækkanir, sem orði'ð hafa á rekstrarvörum og kaupgjaldi á verðlagsárinu, hafa verið teknar til greina og bóndinn því fengið það bætt. Fáir munu hafa ætlazt til, að haldið væri á málunum á annan veg. Þar sem samkomu- lag varð um búvöruveröið milli framleiðenda og neytenda á s.L ári, verður að ætla, að almennt sé litið svo á, að verðlagningin að þessu sinni hafi verið sann- gjörn fyrir báða aðila, framleið- endur og neytendur. Eins og áður er að vikið, voru bráðabirgðalögin útgefin til þess áð leysa vanda, sem boðið var heim með því að gera 6 manna nefndina óstarfhæfa. Það er yfir- lýstur vilji ríkisstj. að gera til- raun til að koma aftur á sam- starfi milli framleiðenda og neytenda um verðlagningu land- búnaðarvara. Þess vegna hefi ég skrifað Stéttarsambandi bænda, Framh. á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.