Morgunblaðið - 29.10.1965, Blaðsíða 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 29. október 1965
Verðlagning landbúnaðarafurða nú
byggt á sama grundvelli og 1964
1 GÆR kom til umræðu í neðri
deild stjórnarfrumvarp um verð
lagningu landbúnaðarvara. —
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar
ráðherra fylgdi frumvarpinu úr
hlaði og fer ræða hans í heild
hér á eftir:
„Herra forseti. Frumvarp það,
sem hér er til umræðu, er flutt
til staðfestingar á bráðabirgða-
lögum, sem út voru gefin 11.
september sl. um verðlagningu
landbúnaðarvara á verðlagsár-
inu 1965—1966. Ekki varð hjá því
komizt að ákvéða verð búvöru
að þessu sinni með bráðabirgða-
lögum, þar sem 6 manna nefnd,
sem áður hefur ákveðið verðið,
var ekki starfhæf. 6 manna
nefndin hefur unnið að verð-
lagningu búvöru frá 1943. Hefur
hún oftast orðið sammála um
verð vörunnar til bóndans og
einnig heildsölu- og smásölu-
verð. Þegar samkomulag hefur
Rest best koddar
Endurnýjum gömlu sængum-
ar, eigum dún- og fiðurheld
ver, æðardúns- og gæsadúns-
sængur og kodda af ýmsum
stærðum.
— Póstsendum —
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstíg S. — Sími 18740.
(Orfá skref frá Laueavegi).
NITTO
JAPÖNSKU NITTO
HJÓLBARDARNIR
I flsstum ítmðum (yrirligsiandi
I Tollvörusaymslu.
FUÓT AFGREIÐSLA.
DRANGAFELL H.F.
Skipholti 35 — Sfmi 30 360
ekki náðzt í nefndinni hefur á-
greiningsatriðunum verið vísað
til yfirnefndar, en yfirnefndina
skipa lögum samkvæmt einn
fulltrúi sem fulltrúar bænda í 6
manna nefndinni kjósa og 1 full
trúi, sem fulltrúar neytenda í 6
manna nefndinni tilnefna, en
hagstofustjóri er oddamaður í
nefndinni. Lög um verðlagningu
búvöru voru endurskoðuð 1947
og aftur í árslok 1959 og voru
þá endurbætt og útflutnings-
trygging lögtekin. Við verðlagn
ingu landbúnaðarvara er fund-
inn grundvöllur fyrir verðlagn-
ingunni með því að finna út
stærð meðalbúsins í landinu.
Meðalbúið hefur stækkað all-
mikið á þeim rúmlega 20 ár-
um, sem lög um 6 manna nefnd
hafa verið í gildi. Stækkun bú-
anna hefur orðið örari síðustu
árin vegna aukinnar ræktunar
og aukinnar tækni með bætt-
um vélakosti. Verðlagningin
skal miðast við það, að kjör
bænda verði ekki lakari en kjör
sjómanna, iðnaðarmanna og
verkamanna. Reiknaðar hafa
verið út tekjur meðalbúsins, svo
og þau gjöld, sem eðlileg eru í
sambandi við búreksturirin.
Bændur hafa oft fundið að því,
að verðgrundvöllurinn væri
ekki réttur, að útgjöld meðalbús
ins væru raunverulega meiri en
tekið er tillit til í útreikningum
með verðið. Enginn vafi er á
því, að bændur hafa oft haft
rök að mæla, enda almennt við
urkennt, að 3 síðustu árin hafi
verðgrundvöllurinn verið lag-
færður og að bændur hafa því í
seinni tíð unað betur hag sín-
um heldur en áður. Skekkjur
hafa oft komið í verðgrundvöll
inn vegna þess að sjálfsagðar
hækkanir voru ekki teknar til
greina og má þá sérstaklega
nefna haustið 1957, þegar bú-
vöruverðið var hækkað um að-
eins 1,88% eftir að kaupgjald
hafði kækkað á verðlagsárinu
um 16—17% og ýmsir rekstrar-
vöruliðir búsins einnig mikið
hækkað, sem hefði átt að taka
tillit til. Til ársins 1960 gerðu
lögin ráð fyrir því, að verðbreyt
ingar ættu sér stað aðeins einu
sinni á ári, þ.e. í byrjun verð-
lagsársins 1. september ár hvert.
Þegar kauphækkanir urðu í
september eða október og
rekstrarvörur hækkuðu eftir að
verðið hafði verið ákveðið, urðu
bændur að bíða með verðháekk
anir allt að því heilt ár eða þar
til næsta verðlagsár byrjaði.
Þetta voru vitanlega ekki góð
kjör á þeim tímum, sem verð-
hækkanir og kauphækkanir
voru eins og ætíð hefur verið ár
lega frá því, að lögin voru sett.
Með breytingu laganna árið
1960 var ákveðið, að tillit skyldi
tekið til hækkunar á rekstrar-
vöruliðunum og kauphækkun-
um ársfjórðungslega. Var það
mikil leiðrétting frá því, sem
áður hafði verið. Hefði verið
eðlilegt, að breytingar væru
teknar til greina mánaðarlega,
en framleiðsluráði landbúnaðar
ins hefur fundizt erfitt að
reikna út breytingar á birgðum
og ákveða nýtt verð með svo
stuttum fresth Mikilverðasta
breytingin á lögum um verð-
lagningu búvara 1960 var verð-
trygging, sem bændur fengu
með útflutningsuppbótunum. Út
flutningstryggingin hefur gert
fært að greiða bændum að fullu
það verð sem 6 manna nefndin
ákvað bændum, sem ekki tókst
áður, meðan bændur báru sjálf
ir hallann af því, sem út var
flutt. Útflutningsuppbæturnar
hafa oft verið gerðar að um-
talsefni. Þykir ýmsum, að ríkis
sjóði sé bundinn þungur baggi
með þessu lagaákvæði. Útflutn-
ingsuppbætur urðu á síðasta
verðlagsári 184 millj. kr. og er
gert ráð fyrir, að á yfirstand-
andi verðlagsári fari þær nokk
uð yfir 200 millj. Útflutnings-
uppbæturnar geta þó aldrei far
ið yfir 10% af heildarverðmæti
landbúnaðarframleiðslunnar. Er
það vissulega hemill, sem kem-
ur í veg fyrir, að sú upphæð
sem varið er í þessu skyni
hækki úr hófi fram. Niður-
greiðslurnar eru orðnar háar og
þungar í skauti fyrir ríkissjóð.
f>að er misskilningur, sem stund
um kemur fram, að niðurgreiðsl
urnar komi bændum einum við
og séu jafnvel nokkurs konar
styrkur til þeirra. Það er þó
ljóst, að niðurgreiðslurnar eru
gerðar af efnahagslegum ástæð-
um í því skyni að hafa hemil á
verðlaginu og dýrtíðinni. Það
er ástæðulaust að gera lítið úr
því framlagi, sem íslenzkur
landbúnaður nýtur. Það er einn
ig varasamt að mikla það fyrir
sér, sem til landbúnaðar er var
ið og halda því fram, að til land
búnaðarins megi rekja mestan
bann vanda, sem við er að stríða
hverju sinni í dýrtíðar- og efna-
hagsmálum. Það hefur oft verið
til þess vitnað, að aðrar þjóðir
verja miklum fjárhæðum til
landbúnaðarins og jafnvel tiltölu
lega meira heldur en íslending-
ar gera. Um leið og þetta er
sagt, er sjálfsagt að viðurkenna,
að brýna nauðsyn ber til, að
finna leiðir til þess að lækka
framleiðslukostnað landbúnaðar-
vara. Það ber brýna nauðsyn til
að vinna úr landbúnaðarvörun-
um innanlands og gera þær þann
ig verðmætari, áður en þær eru
fluttar út. Verði það gert, mun
sá vandi, sem um er rætt í sam-
bandi við landbúnaðinn fara
minnkandi og hverfa, þegar tím-
ar líða.
Framleiðslan í landbúnaðinum
hefur aukizt verulega vegna
mikillar ræktunar, aukins véla-
kosts og góðæris. Mjólkurfram-
leiðslan ætti að miðast að mestu
leyti við þarfir landsmanna. Það
er óhagstætt að flytja út mjólk-
urafurðir. En í góðæri getur orð-
ið nokkur umframframleiðsla,
eins og nú á sér stað. Ég hygg
þó, að það sé almenn skoðun
bænda, að nauðsyn beri til að
haga framleiðslunni í samræmi
við það, að ekki þurfi að flytja
út mjólkurafUrðir sem nokkru
nemur. Er margt sem bendir til,
að vöxtur mjólkurframleiðslu
verði minni næstu árin heldur en
verið hefur. Bændur keppa nú
að því að auka kjötframlei'ðslu
og er það áreiðanlega, eins og
sakir standa miklu heilbrigðara
fyrir þjóðarbúið, að svo verði.
Meðgjöf með sauðfjárafurðum á
erlendum markaði er miklu lægri
heldur en af mjólkurafurðum.
Möguleikarnir til þess að fá betri
markaði fyrir sauðfjárafurðir
eru einnig miklu meiri heldur
en á öðrum framleiðsluvörum
landbúnaðarins. Að þessum mál-
um er nú unnið og það haft í
huga, að sauðfjárframleiðslan
muni aukast mikið á næstu árum.
Bændur munu einnig vinna að
því, að framleiðslan verði fjöl-
breyttari, þannig að neytendur
hafi meira úrval og þær raddir,
sem tala um innflutning á kjöti,
hjaðni. Það kemur vitanlega ekki
til mála að flytja inn erlent
kjöt. Það eru nógir möguleikar
til þess að hafa innlent kjöt af
bezta tagi á markaðinum, og þar
sem bændur hafa nú fullan hug
á því, mun þess ekki langt að
bíða, að breyting sjáist í þá átt.
Með því að stuðla að bættum hag
landbúnaðarins með ræktun,
eins og gert hefur verið sein-
ustu árin með fullkomnum véla-
kosti og tækni, er augljóst, að
búin stækka og möguléikar land
búnaðarins verða meiri og betri
en fyrr. Landbúnaðarinn mun
þróast og eflast eftir því, sem
ræktunin eykst og framleiðslan
vex. Framlag ríkisins til rækt-
unarmála mun halda áfram um
langa framtíð, enda er ræktun-
arframla-gið ekki miðað vi# hags-
muni hvers einstaklings heldur
verði það framlag í varasjóð fyr-
ir framtiðina sem þjóðin öll mun
njóta góðs af. Framlög til út-
flutningsuppbóta munu ekki
verða um alla framtíð, en hlýtur
þó að vera um sinn, þangað til
landbúnaðurinn er komin á það
stig, að framleiðslan geti trufl-
unarlaust gengið með því, að
njóta innanlandsmarkaðarins og
þess verðs, sem næst á erlend-
um mörkuðum. Ég er sannfærð-
ur um, að sá tími kemur, að land
búnaðarvörur verða fluttar út
úr landi með góðum árangri,
þótt ríkissjóður leggi ekki fram
fé til þeirra mála. Þegar það
er haft í huga, er vitanlega sjálf-
sagt að halda áfram að auka
framleiðslu þeirra vara, sem
hagstæðast er talið að flytja út
og auka ræktun og framfarir 1
landbúnaði. Fólkinu fjölgar, neyt
endahópurinn stækkar, tæknin
verður meiri og framleiðslu-
kostnaðurinn lækkar. Þetta
styrkir aðstöðu landbúnaðarins
og verður til þess, að allir, einn-
ig þeir, sem nú efast um gildi
landbúnaðar á íslandi, verða
sannfærðir um, að gullið, sem
grafið er úr íslenzkri gróður-
mold er þjóðinni jafn mikils
virði og þau verðmæti, sem aðr-
ir atvinnuvegir veita.
Lög þau, sem ákvarða reglur
um verðlagningu landbúnaðar-
vara urðu ekki framkvæmd á
þessu hausti, vegna þess að Al-
þýðusamband íslands neitaði
að tilnefna fulltrúa í 6 manna
nefndina eins og lög gera ráð
fyrir. Er óskiljanlegt, hvernig
á því stendur, að Alþýðusam-
bandið tók þessa afstöðu. Haust-
ið 1964 varð fullt samkomulag
um verðlagningu búvara. Full-
trúar neytenda og bænda sömdu
um það verðlag, sem bóndinn
skyldi fá. Það varð einnig sam-
komulag um heildsöluverð og
smásöluverð. Það varð fullt sam
komulag um dreifingarkostnað-
inn haustið 1964, en oft er tal-
að um, að hann sé óeðlilega hár.
Þar sem samkomulag náðist á
fyrra ári, er erfitt að skilja,
hvers vegna Alþýðusambandið
skerst úr leik, áður en á þaij.
reyndi, hvort samkomulag gæti
orðið á þessu hausti. Út af fyrir
sig er þýðingarlaust að ræða um
það, hvers vegna Alþýðusam-
bandið fór þessa leið og afsalaði
sér þannig réttinum til þess að
hafa áhrif á verðlagið í haust.
Það, sem máli skiptir, er fram-
haldið í þessum málum. Bráða-
birgðalögin, sem gefin voru út til
þess að bjarga málinu, miðast
við það ástand, sem brotthlaup
Alþýðusambandsfulltrúans úr 6
manna nefndinni skapaði.
Það er almennt álitið, að tek-
izt hafi að leysa hnútinn með
bráðabirgðalögum á sanngjarn-
an hátt. Þannig að bændur geti
unað sínum hlut og neytendur
geti ekki með réttu talið, að bog-
Ingólfur Jónsson
inn hafi verið spenntur of hátt.
Samkv. 1. gr. bráðabirgðalag-
anna er kveðið svo á, að á verð-
lagsárinu 1965—1966 skuli byggt
á verðlagsgrundvelli, er Hag-
stofa íslands reiknar eftir verð-
lagsgrundvelli haustsins 1964,
Við laun bónda og sjúkrasjóðs-
gjald bætist geymd hækkua
samkv. bókun í fundargerðabók
6 manna nefndarinnar 24. febrú-
ar 1965 og við þéð hvoru tveggja
skuli bætt viðbót, sem er að
hundraðshluta jöfn þeirri hækk-
un, er verður á bótaupphæðum
almannatrygginga á síðari hluta
árs 1965. En bótaupphæðir
þessar miðast við þær hækkanir,-
sem orðið hafa á kaupi verka-
manna. Með þessari viðmiðun
var bóndanum tryggð hækkun
búsafurða að þessu sinni. Þá er
gert ráð fyrir samkv. 1. gr., a3
við aðkeypta vinnu bætist hlut-
fallsleg hækkun. Við fjárhæðir
vinnuliða þannig reiknaðar, bæt-
ist verðlagsuppbót sbr. ákvæði 4.
gr. laga nr. 63 1964 um verð-
tryggingu launa. Aðrir útgjalda-
liðir verðlagsgrundvallar 1964
skulu færðir fram til verðlags á
hausti 1965 og eftir þeim reglum,
sem gilda, þegar grundvelli hefur
ekki verði sagt upp. Sama gildir
um tekjuliði verðlagsgrund-
vallar. Verðlag á ull og gærum
í verðlagsgrundvelli 1965—1968
skal vera meðalútflutningsverð
þessara afurða 1964—1965 að frá-
dregnum áföllnum kostnaði, er
útflutningur á sér stað samkv.
mati Hagstofunnar. Þá er Hag-
stofan hefur reiknað verðlags-
grundvöll landbúnaðarvara sam-
kv. 1. gr. þessara laga afhendir
hún hann nefnd þeirri, er um
ræðir í 2. gr. frv. til frekari með-
ferðar. Samkv. 2. gr. skal skipa
þriggja manna nefnd til þess að
færa verðlagið út samkv. þeim
grundvelli, sem Hagstofan hefur
fundið. í nefnd þessari eiga sæti
ráðuneytisstj. landbrn. forstjóri
Efnahagsstofnunarinnar og fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráða
landbúnaðarins. Nefndin varð
sammála um verö á einstökum
vörum til bóndans. Hún varð
einnig sammála um heildsölu- og
smásöluverð. Meðalverðhækkun
til bænda varð samkv. þessu
11.2%. Var verðhækkunin all-
miklu meiri á kjöti, á kostnað
mjólkurver’ðsins. Eins og fram
kemur, er ljóst, að verðlagið á
þessu hausti er í samræmi við
það verð, sem ákveðið var með
samkomulagi haustið 1964. Þær
verðhækkanir, sem orði'ð hafa á
rekstrarvörum og kaupgjaldi á
verðlagsárinu, hafa verið teknar
til greina og bóndinn því fengið
það bætt. Fáir munu hafa ætlazt
til, að haldið væri á málunum
á annan veg. Þar sem samkomu-
lag varð um búvöruveröið milli
framleiðenda og neytenda á s.L
ári, verður að ætla, að almennt
sé litið svo á, að verðlagningin
að þessu sinni hafi verið sann-
gjörn fyrir báða aðila, framleið-
endur og neytendur.
Eins og áður er að vikið, voru
bráðabirgðalögin útgefin til þess
áð leysa vanda, sem boðið var
heim með því að gera 6 manna
nefndina óstarfhæfa. Það er yfir-
lýstur vilji ríkisstj. að gera til-
raun til að koma aftur á sam-
starfi milli framleiðenda og
neytenda um verðlagningu land-
búnaðarvara. Þess vegna hefi ég
skrifað Stéttarsambandi bænda,
Framh. á bls. 17