Morgunblaðið - 29.10.1965, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 29. október 1965
Ndbelshafarnir í
eðlis- og efnafræði
NÓBELSVERÐLAUNIN í eðl-
is- og efnafræði voru veitt
einura japönskum og þremur
bandariskum visindamönnum.
Eðlisfræðingamir þrír hlutu
verðlaunin fyrir framlag
þeirra til kvantafræðinnar, en
talið er að uppgötvanir þeirra
muni hafa djúptæk áhrif á
hin ýmsu svið atómvísinda,
og jafnframt gera mönnum
kleift að framleiða mun
smærri rafeindareikna en
hingað til. Efnafræðingurinn
hlaut verðlaunin fyrir rann-
sóknir á blaðgrænu og fyrir
framleiðslu á ýmsum mikil-
vægum gerfiefnum.
Eðlisfræðingarnir, sem verð
launin hlutu eru Japaninn
Sin-itiro Tomonaga, 59 ára
prófessor við háskólann í
Tokyo. Tomonaga hefur unn-
ið sjálfstætt að rannsóknum
sínum, og ekki haft neitt sam-
band við bandarísku vísinda-
mennina, en hefur þó komizt
að sömu niðurstöðu og þeir.
Tomonaga er annar Japaninn
sem Nóbelsverðlaun hlýtur.
Dr. Richard P. Feynman er
47 ára og hlaut menntun sina
í tækniskólanum í Massa-
chusetts og tók þar doktors-
próf árið 1942. Á stríðsárun-
um vann hann við kjarnorku-
rannsóknir í Los Alamos í
New Mexico. Hann starfar nú
við tækniskólann í Pasadena
í Californíu. Dr. Julius
Schwinger er einnig 47 ára,
hlaut menntun sína í Colum-
bia-háskólanum í New York
en starfar nú við Harvard-há-
skólann.
Kvantafræðin er ein grein
eðiisfræðinnar, en grunvöll-
inn að henni lagði danski vis-
indamaðurinn Niels Bohr og
samstarfsmenn hans; rússnesk
bandaríski vísindamaðurinn
George Gamow, sem kurrnur
er fyrir snjallar bækur fyrir
almenning um vísindi, og rúss
neski vísindamaðurinn
Landau, sem hlaut Nóibels-
verðlaunin íyxir nokkrum ár-
um.
Kenningar Bohrs voru með
al annars þær, að ljós eða
rafgeislar hefðu sömu bylgju-
eiginleika og rafeindageislar.
Hvernig mátti það vera að raf
eind gæti samtímis vðrið
bylgja og efnisögn? í>etta er
spurning, sem leitað hefur á
atómvísindamenn síðan kenn-
ing Bohrs kom fram. 1 þessu
sambandi hafa þremenning-
arnir, sem í ár hlutu Nóbels-
verðlaunin, unnið við að rann
saka rafeindir og geislabeltið
sem umlyk’ur kjarnannn. Vís-
indamenn þessir hlutu verð-
launin m.a. fyrir uppgötvun
vísindalegra aðferða til að
reikna út og mæla víxlverk-
un mili rafeinda og geisla-
belta. Aðferðir þeirra hafa
haft djúptæka þýðingu fyrir
rannsóknir á ýmsum sviðum
atómvísindanna. Vísindamenn
imir unnu sjálfstætt að rann-
sóknum sínum og án nokk-
urrar beinnar samvinnu hvor
ir við aðra ,en komu þó fram
með sömu niðurstöður og
kenningar.
Dr. Feynman kveðst reynd-
ar oft hafa hitt dr. Schwinger
Dr. Richard P. Feynman
ward inngöngu í hinn merka
skóla Massachusetts Institute
of Technology. Fljótlega kom
í ljós að hann hafði óvenju-
legar gáfur til að bera og að-
eins tvítugur að aldri lauk
hann þaðan doktorsprófi. Við
efnafræðirannsóknir hefur
á ráðstefnu og þeir þá skipzt
á skoðunum, en um samvinnu
milli þeirra hafi aldrei verið
rætt. Feynman kveðst ekkert
hafa vitað um Tomonaga eða
verk hans fyrr en árið 1949.
Um framlag sitt til kvanta-
fræðinnar segir Shcwinger, að
rannsóknir hans séu eingöngu
fræðilegar og komi ekki til
með að hafa mikla hagnýta
þýðingu. Menn eru yfirleitt á
annarri skoðun um þetta mál,
því talið er að niðurstöður
Nóbelshafanna muni leiða til
þess, að hægt verði í framtíð-
inni að byggja mun smænri
rafeindareikna og ýmis elekt-
rónisk tæki en hingað tiL
Þegar það fregnaðist, að
Bandaríkjamanninum Ro'bert
Burns Woodward hefði verið
veitt Nóbelsverðlaunin í efna
fræði fyrir árið 1965, vakti
það óskipta ánægju meðal vís
indamanna. í tvo áratugi hef-
ur verið litið á dr. Woodward
sem undramann á sviði efna-
fræðinnar og í jafn langan
tíma hefur hann þótt líklegur
til að hreppa Nóbelsverðlaun-
in. Dr. Woodward starfar við
efnarannsóknarstofu í Har-
vard-háskólanum og til hans
hafa vísindamenn flykkst víðs
vegar að til að fá tækifæri til
að vinna undir stjóm þess
manns, sem að margra áliti
er merkasti efnafræðingur
heimsins. Útnefning hans að
þessu sinni kom því fáum á
óvart og töldu margir að þessi
heiður hefði hlotnazt honum
vonum seinna.
16 ára gamall fékk Wood-
Dr. Sin-itiro Tomonaga
Dr. Robert Burns Wootlward
Dr. Julius Schwinger
Woodward sýnt ótrúlega hug-
kvæmni og snilld og hefur
honum oft verið líkt við skák
meistara sem skipuleggur
marga leiki fram i tímann.
Rannsóknir hans hafa ein-
kennzt af stefnufestu og ör-
yggi, en hans höfuðstarf hefur
Framhald á bls. 22.
Áætlunarbílar ekki
sjoppur
í gær var í dálkum Vel-
vakanda rætt um sóðaskapinn,
sem virðist svo víða áberandi
hjá okkur. f>ar var aðeins drep
ið á nokkur atriði, en að sjálf-
sögðu nær þessi löstur miklu
viðar.
Tökum t.d. opinber farar-
tæki, og þá áætlunarbíla. Yfir-
leitt þrífa bílstjórarnir bíla
sína, þó undantekningar séu
þar á. >að sér maður, þegar lagt
er upp að morgni. En hve langt
hefur verið ekið, þegar bíllinn
er orðinn allur útataður í papp-
írssnifsum, tómar gosdrykkja-
flöskur rúlla eftir gólfinu og
drasli er hrúgað ósnyrtilega
upp í netunum? Auk þess eru
sætin í bilum, sem ekki eru
nema nokkurra mánaða gamlir,
iðulega þegar orðin blettótt og
iila farin.
Ég var nýlega staddur í Dan-
mörku og ferðaðist þar dálítið
um í stórum langferðabílum
með hópi af fólki. Heitt var í
ve'ðri og víða stanzað. Það var
því ekki óeðlilegt, að fólkið
fengi sér ís eða gosdrykk, til að
svala þorstanum. En svo ætluðu
margir með þetta inn í bílana,
eins og siður er á íslandi. —
Nei, því miður, þa'ð er ekki
leyft að vera með mat og drykk
í bílunum, sögðu bílstjórarnir.
Þið verðið að borða á'ður en við
leggjum af stað. Við stönzum
við veitingastaði, ef fólk er
svangt, en vi’ð getum ekki leyft
það að vagnarnir séu notaðir
sem matarstaðir.
Þetta skildu að sjálfsögðu
allir, þegar þeim hafði verið á
það bent. Og í rauninni kærir
enginn sig um áð sitja í sætum,
blettuðum af matarleifum með
kóka kóla blettum éða sinnepi
og tómatsblettum eftir pylsu-
át. í rauninni ættu íslenzkir
langferðabílstjórar að taka upp
þennan sið hinna dönsku
kollega sinna. Áætlunarbílar
eru ekki neinar sjoppur.
Orðið blautt
og dimmt
Fyrsta óveðurskaflanum á
þessu hausti virðist nú aflétt
og komið sæmilegasta véður
aftur. En skelfing hefur þetta
viku slagveður breytt miklu.
Áður en það dundi yfir okkur
var fallegt haustveður, gulnað
lauf í görðum, tært loft og
haustmild veðrátta. Nú, þegar
hægt er að líta aftur í kring-
um sig fyrir vatnsvéðri og rign
ingu, er allt orðið blautt, svart
og eitthvað leiðinlegt. Það hef-
ur dimmt yfir.
^ Annað hvort allt
eða ekkert
Þegar svo er komið, er
tími kominn til að fara að búa
um sig inni við, sitja í hlýjunni
og lesa bækur éða sækja leik-
hús, hljómleika og listsýningar.
Leiksýningar og listaverkasýn-
ingar getur maður sótt þegar
maður hefur tima til og bezt
hentar. Aftur á móti er það
verra með hljómleikana. Þá
verður að ákveða að haustinu
og sækja allt sem upp á er boð
fð og þau kvöld, sem ákveðin
eru hverju sinni, eða missa af
öllu. Þetta er óneitanlega mikill
ókostur og útilokar bæði þá,
sem ekki hafa efni á að sækja
svo marga hljómleika og það
kostar ekki svo lítið hjá stórum
fjölskyldum, og einnig þá, sem
vinna oft á kvöldin og geta
ekki ákveðið að haustinu hvaða
kvöld þeir kunna áð hafa laus.
Fyrir nú utan það að þetta tek-
ur alveg valfrelsi af fólki bæði
um hljómlistina og listamenn-
.ina. Ég er einn af þeim, sem
hefi gefizt upp á að reyna að
sækja hljómleika, þar sem
morgunblöð eru unnin á kvöld
in og því ekki hægt að binda
sig fyrirfram. Þá sjaldan ég
hefi reynt að komast á hljóm-
leika hjá Sinfoníuhljómsveit-
inni t.d. og það er aúðvitað
þegar þeir hafa upp á eitthvað
að bjóða, sem girnilegt er, hefi
ég ekki getað fengið miða
nema stundum í verstu sætum.
Þetta fyrirkomulag er víst
nauðsynlegt, til að hljómsveit
eins og Sinfóníuhljómsveit geti
starfáð, en fyrirkomulagið
„annað hvort skal það allt í ykk
ur eða ekkert" er samt ákaflega
hvimleitt.
Þegar um fasta frumsýning-
armiða í leikhúsum er að ræða,
gegnir öðru máli. Þá geta þeir
sem vilja og hafa tækifæri til
látið skammta sér leikrit og
daga. Þeir fá sér fasta frum-
sýningarmiða (og er reyndar 1
sjálfsvald seW hvort þeir sleppa
þeim, ef illa stendur á), en hin
ir sjá þá bara áðrar sýningar og
velja sjálfir.
Kaupmenn - Kaupfélög
Nú er rétti timinn til að panta
Rafhlöður fyrir veturinn.
Bræðurnir Qrmsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.