Morgunblaðið - 29.10.1965, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 29. október 1965
Grímur Hákonarson, fyrrv.
skipstjóri — Minning
í DAG verður til moldar bor-
inn Grímur Hákonarson fyrrum
skipstjóri. Hann fæddist 1. sept-
ember 1887 að Dísastöðum í Flóa.
Foreldrar hans voru hjónin Kat-
rín Ögmundsdóttir og seinni mað
ur hennar, Hákon Grímsson.
ÍÞau bjuggu að Dísastöðum' um
langt árabil fyrir aldamót, en
fluttust til Reykjavikur vorið
Í902. Grímur, sem þá var á 15.
ári fluttist, ásamt þremur syst-
kinum með foreldrum sínum
suður. Hann réðist þá um vorið
sem vormaður út á Seltjarnar-
nes, og heillaðist þegar af sjón-
um. Hann minntist þess á efri ár
um, að þegar hann horfði á skút-
urnar koma lensandi inn flóann
fyirir fullum seglum í útrænunni
um Jónsmessuleytið, velti hann
'því fyrir sér, hvort sér myndi
nokkurntíma auðnast að komast
þar um borð sem háseti. Það
tókst nú von bráðar. Hann réðist
á kúttera, fyrst sem kokkur og
síðar háseti, og stundaði sjóinn
á kútterum allar vertíðir fram til
vorsins 1911. Þá vildi hann
breyta til .og fór austur í firði
ásamt öðrum ungum manni, Jóni
Sigurðssyni, og þeir réðu sig á
lítinn mótorbát frá Seyðisfirði og
voru einu hásetarnir á bátnum.
Seinna sigldu þeir báðir stærri
skipum. Jón Sigurðsson varð síð-
armeir skipstjóri á glæsilegasta
skipi íslenzka kaupskipaflotans
m.s. Gullfossi. Hélzt góð vinátta
með þeim félögum æ síðan.
Um haustið fór Grímur aftur
til Reykjavíkur, en í stað þess að
ráða sig á skip að nýju, settist
hann nú á skólabekk. Þeir tóku
sig til, Grímur og yngri bróðir
hans, Guðbrandur (síðar vél-
stjóri á skipum Eimskipafélags
íslands, dáinn fyrir mörgum ár-
um) og innrituðust í Flensborg-
arskólann um haustið, en á þeim
árum var það algengt að full-
þroska menn hæfu nám í Flens-
borgarskólanum. Þeir luku báðir
gagnfræðaprófi vorið 191?, og
það er til marks um góðar gáf-
ur Gríms, ástundunarsemi hans
og einbeittni, að hann varð næst
efstur á _gagnfræðaprófi þetta
vor. Hann gat vel sætt sig við það
þótt hann yrði ekki efstur, jafn-
vel þótt sá sem það sæti skipaði
væri drenghnokki innan við
fermingu. Sá heitir Jón Helga-
son (prófessor í Kaupmanna-
höfn).
Haustið 1913 innritaðist Grím-
ur í Stýrimannaskólann í Reykja
vík og brautskráðist vorið eftir
með ágætum vitnisburði.
Grímur var skipverji á islenzk
um togurum í mörg ár, og höfðu
þeir Grímur og eldri bróðir hans,
Ólafur, afburða sjómaður, sem
enn er við góða heilsu, og vel
minnugur, oft gaman af að rifja
upp eitt og annað frá þeim ár-
um, bæði skemmtilega og alvar-
lega. viðburði, og minningar um
skipsfélaga og skipstjórnarmenn.
Skipstjórar sem Grímur var
með sem háseti og stýrimaður og
minntist ávallt með hlýjum hug
voru: Kristinn Magnússon, Ellert
Schram, Guðmundur Guðmunds-
son frá Nesi, síðar bóndi á Mó-
um, Halldór Þorsteinsson og Pét-
ur Maack.
Skipstjóri var Grímur um
skeið á togara sem hét Klemen-
tína, eign Proppé-bræðra. En ár-
ið 1927 fluttist hann til Banda-
ríkjanna og þaðan stundaði hann
sjóinn í 18 ár, fyrst frá Glou-
cester í eitt eða tvö ár, en síðan
frá Boston, lengst af skipstjóri
á togurum.
Gat hann sér þar sem annars-
staðar góðan orðstír, bæði meðal
þarlendra mahna og íslendinga,
en á þeim árum voru margir ís-
lendingar í Boston, sem stunduðu
sýómennsku og á stríðsárunum
voru þar einnig allmargir ís-
lenzkir námsmenn. Attu margir
þessara manna úr báðum hóp-
unum hauk í horni þar sem Grím
ur var, og þött Grímur væri að
upplagi hlédrægur og virtist
fremur fáskiptinn -um annarra
hagi, þá hafði hann mikla
ánægju af því að umgangast
landa sína í Boston og einatt
verða þeim að liði á einn og
annan hátt. Minnist sá er þetta
ritar þess, að dr. Helgi Briem,
sem á stríðsárunum var aðal-
ræðismaður íslands í New York,
skoðaði Grím Hákonarson sem
einskonar fulltrúa sinn í Boston.
Það gat komið fyrir, að ræðis-
mannsskrifstofan í New York
þyrfti að leita upplýsinga um ís-
lenzka menn í Boston, og þá var
gjarnan leitað til Gríms. Hann
vissi um flesta íslendinga sem
þangað komu og þar dvöldu, og
honum mátti treysta fullkomlega.
Þótt Grímur dveldist þetta
lengi í Bandaríkjunum og gerð-
ist amerískur þegn, þá fór svo,
að 'hann fluttist aftur heim til
íslands.
Eftir um það bil áratugs dvöl
í Ameríku fór hann að undir-
búa heimkomu sína. Hann' bað
þá hálfbræður sína, Kjartan
Ólafsson múrara og Kristján
bónda í Bár að svipast um eftir
jörð fyrir sig, því að hann hugð-
ist taka sér hvíld frá sjónum
þegar heim kæmi. Þeir bræður
keyptu fyrir hann jörðina Auðs-
holt í Ölfusi og Kjartan réðist
í miklar byggingaframkvæmdir
á jörðinni fyrir bróður sinn.
Byggt var 40-kúa fjós og stór
hlaða, allt úr steinsteypu.
Grímur kom alkominn heim
árið 1945 og settist að í Auðs-
holti, en Kjartan hafði þá rekið
þar bú í nokkur ár fyrir bróður
sinn, og ráðið þangað starfsfólk,
.þar á meðal bústýru, Ólöfu Jóns-
dóttur frænku Gríms.
Grími farnaðist vel í Auðs-
holti og stjórnaði hann búi sínu
af miklum myndarbrag og frá-
bærri snyrtimennsku. Árið 1959
brá hann búi og fluttist til
Reykjavíkur. Hafði hann þá set-
ið að búi sínu í 14 ár, og var nú
kominn yfir sjötugt. Eftir að
hann fluttist til Reykjavíkur
starfaði harm við segla- og segl-
dúkasaum meðan heilsa entist.
Hann veiktist alvarlega fyrir um
það bil þremur árum, og gekk þá
undir mikinn uppskurð. Fékk
eftir það allgóða heilsu aftur, en
fyrir um það bil hálfu ári tók
heilsu hans að hraka á ný, og
var auðsætt að hverju stefndi.
Hann andaðist að morgni 24.
október eftir stutta legu á Landa
kotsspítala.
Ólöf frænka Gríms fluttist með
honum frá Auðsholti til Reykja-
víkur ,og stóð fyrir heimilinu
áfram önnur kona, sem réðist til
Gríms nokkru eftir að hann sett-
ist að í Auðsholti hafði með sér,
þegar hún kom þangað, dreng á
öðru ári. Hún féll frá nokfcrum
árum seinna, en drengurinn,
Gunnar Þórisson, sem nú er um
tvítugt, var áfram hjá þeirn
Ólöfu og Grími. Hann hefur alla
tíð verið mjög hændur að fóstra
sínum og virt hann mfkils, og
er fráfall Gríms sár missir bæði
honum og Ólöfu, sem nú er orð-
inn öldruð.
Hér hafa verið rakin í fáum
dráttum æviatriði Gríms Hákon-
arsonar. Hann var frábaer mann-
kostamaður, sem allir er honum
kynntust báru óbifandi fcraust til.
Hann kom allsstaðar fram til
1 góðs, og þeir eru orðnir fjölmarg
ir, sem notið hafa göfuglyndi
hans og margskonar liðsinnis, þar
á meðal og ekki sízt sá sem þess-
ar línur ritar.
Blessuð veri minning hans.
Guðmundur Marteinsson.
GRÍMUR Hákonarson, skipstjóri,
var búsettur í Bandaríkjunum á
árunum 1927 til 1945, en þá flutt-
ist hann aftur heim. Þegar sá
sem þetta ritar fór til náms til
Cambridge í Massachusetts 1944
báðu margir starfsbræður föðir
míns sem var togaraskipstjóri,
að heilsa honum Grími, ef ég sæi
hann. Sem betur fór sá ég Grím
og sá hann oft. Hann bjó í Boston
þar sem sem hann var togara-
skipstjóri í mörg ár. Ég var ekki
sá eini af námsmönnunum sem
kom oft á fund Gríms, því að
hann og hans heimili var alltaf
opið öllum okkar. Það að vera
í návist hans var alltaf róandi og
sefjandi. Ég man ekki eftir því
að við hefðum nokkurn tíma
komið á fund Gríms öðru vísi en.
hann byði okkur út að borða og
þá var ekki skorið við nögl sér,
því að meiri höfðingja Var ekki
hægt heim að sækja. Það er
margur námsmaðurinn frá Bost-
on og Cambridge sem hefir borð
að sína beztu máltíð vestan hafs
á kostnað Gríms. Oft varð ég var
við að Grímur lcgði mikið á sig
til hjálpar öðrum, og þá efcki
hvað sízt löndum hans sem voru
hjá honum á skipinu eða stund-
uðu sjó frá Boston og nágrenni.
Fyrir hönd okkar nómsmann-
anna og einnig fyrir hönd allra
hinna sem kynntumst honum
vestan hafs, vil ég þakka Grími
einstaklega góða viðkynningu og
þakka honum hans fórnfúsa starf
við að gleðja aðra og hjálpa yfir
torfærur, sem of erfitt var fyrir
margan að komast yfir óstuddur.
Nú hefur Grímur kvatt sína
jarðnesku meðbræður hinztu
kveðju. Hafi einhver átt stóra
innistæðu til að taka með sér til
æðra lífs, þá var það Grímur
Hákonarson.
Blessuð sé minning hans.
V. E. Maack.
island
(Lag eftir V. Schiött)
Vor eyjan kær, þín ískrýnd fjöll
oss unað bjartan veita,
hve sær og vatna fögur föll
þig fagurlega skreyta.
Þig gyllir svo hin glaða sól
með glæstri vorsins blíðu
að hýrt þín grænu brosa ból
með blómaskrauti fríðu.
Þá lýsa vötn og ljóma fjöll,
þá leiftrar fönnin prúða,
þú ljúf og fögur ljómar öll
í ljóssins bjarta skrúða.
Hér gefist oss hin góða tíð
og gróður vel þig skreyti
oss veitist Drottins blessun blíð
mjög björt að öllu leyti.
Sr. Finnbogl Kristjánsson.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 16
lag dugi skammt. Það var
einmitt í landbúnaðarmálun-
um sem Frakkland hefur átt
erfiðast með að samræma
stefnu sína stefnu hinna
ríkja Efnahagsbandalagsins.
Eitt er víst: stöðnun Efna-
hagsbandalags Evrópu heldur
áfram, á meðan að málum
er svona farið, Á þessu ári
munu engar ákvarðanir
verða teknar varðandi banda
lagið vegna fjarveru Frakka.
Vonir margra um samein-
ingu Vestur-Evrópu, sem fyr
ir nokkrum árum virtist ekki
svo langt undan, virðast eins
og nú er komið jafn langt
frá því að rætast og nokkru
sinni fyrr, frá því að svo-
nefnt Efnahagsbandalag Ev-
rópu var stofnað
/
19 6 6
TOYOTA
TOYOTA - GLÆSILEGUR, ÞÆGILEGUR, VANDADUR
JAPANSKUR BÍLL í GÆÐAFLOKKI. HENTAR JAFNT
SEIVI EINKABÍLL EÐA LEIGUBÍLL.
o
JAPANSKA BIFREIÐASALAN
Ármúla 7 - Sími 34470 0^0
Bilreiðasýning í Háskólabíói
Laugardag og sunnudag