Morgunblaðið - 29.10.1965, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 29. október 1965
MJög Jöfn keppni í fyrri
fíálfleik en ísl. liðið féll
saman í þeim siðari
Rut og Sigríður Sigurðardóttir
fá bezta dóma fyrir leik sinn
ÍSLENZKA kvenalandsliðið tapaði fyrri landsleik sínum við
Dani í keppninni um það hvort liðanna öðlist rétt til þátt-
töku í lokakeppninni um heimsmeistaratitil í handknattleik
kvenna, en sú keppni fer fram 7.—13. nóv. n.k.
Urslit leiksins í gær urðu þau að Danir unnu með 16 mörk-
um gegn 9 og það er meiri munur en svo að hægt sé að gera
sér nokkrar vonir um að ísl. stúlkurnar hefni fyrir ósigur-
inn í síðari leiknum sem fram fer á laugardaginn.
Leikurinn í gær var skemmtilegur og framan af mjög jafn.
Mikil stemning var ríkjandi í húsinu og húsið sem rúmar á
annað þúsund manns var næstum fullsetið og er það óvenju-
leg aðsókn að kvennahandknattleik í Danmörku, segir frétta-
maður Mbl. á leiknum. Sigríður Sigurðardóttir átti sérlega
glæsilegan leik í fyrri hálfleik en var síðan „lögð í einelti"
af danska liðinu og eftir að hennar naut ekki lengur við var
broddurinn úr ísl. liðinu Rut Guðmundsdóttir í markinu,
sýndi hún og sérstaklega góða markvörzlu, varði m.a. glæsi-
lega vítakast. —
★ tsl. kallkór og grískur.
Á þessa leið segir Poul Prip
Andersen ritsjóri íþróttafrétta
Berlingske Tidende frá leiknum
en hann var þar fréttamaður
Mbl. Og hann segir ennfremur:
Meðal áhorenda voru margir
fslendingar sem hér búa og
kváðu oft við kallkórar: „Áfram
ísland“. Þá var í röðum á'horf-
enda allt gríska landsliðið í knatt
spymu, sem lék við Dani á mið-
vikudag (jafntefli varð 1—1).
Grikkirnir hvöttu ísl. stúlkurn-
ar mjög. Þeir búa á sama hóteli
og ísl. stúlkurnar og vildu hvetja
þær til dáða móti Dönunum.
Þetta setti skemmtilega stemn-
ingu í salinn.
ísland nær forystu.
Danimir skoruðu mjög fljótt
mark og sóttu alistíft um stund.
En ísl. stúlkurnar vörðust vel og
•áttu sínar sóknarlotur. Er
skammt var liðið á leik jafnaði
Sigrí'ður Sigurðardóttir með'
Frá leiknum í gær. Frida Jensen kemst í skotfæri á línunni og ísL stúlkumar fá ekki vai-izt.
A Jafn leikur-
En þá náðu fsL stúlkurnar aft-
ur valdi á leiknum og skoruðu
tvö mörk í röð (Sigrún Guð-
mundsdóttir og Sigríður Sig.).
Síðan náðu Danir að skora, 6—4
Hér er grísk-íslenzk vinátta á mynd. Það er kvennagullið
Sidiris í gríska landsliðinu og tvær ísl. stúlknanna, Vigdís Páls
dóttir (í miðið) og Sigrún Guð mundsdóttir. Þau höfðu það að
asmeiginlegu markmiði að sigra Dani — en hvorugum aðilan-
um tókst það.
og enn minnkaði Sigríður bili'ð í
6—5. Danir ná aftur 7—5 en
Sylvía Hallsteinsdóttir skorar
svo staðan er 7—6. ísl. liðið var
í sókn er flautað var til leikhlés.
★ Sigríður elt
Sigríður Sigurðardóttir var
langbezt íslendinga 1 þessum
hálfleik og vöktu langskot henn-
ar hrifningu og almenna athygli.
Eftir hlé höfðu Danir endur-
skipulagt leik sinn. Ein fékk það
hlutverk að gæta Sigríðar hvert
sem hún fór. Tókst henni að
slíta Sigríði úr tengslum við
aðrar í liðinu og þar með var
broddurinn úr ísl. li'ðinu.
Danska liðið átti þrjú stangar-
skot í upphafi síðari hálfleiks en
tókst svo þar á eftir að skora
þrjú mörk ísspð svo staðan varð
10—6. Var þá útséð um úrslit
leiksins. Vigdís Pálsdóttir skoraði
svo 7. mark íslands en danska
liðið nær að skora svo staðan
er 11—7. Þá tókst Sigríði Kjart-
ansdóttur að skora 11—8 en
næstu fjögur mörk skora Danir
svo staðan er 15—8. Þá skorar
Elín GuÖmundsdóttir fyrir ís-
land, en Danir höfðu síðasta orð-
ið, svo leik lauk 16—9.
Liðin
Og þegar á leið leikinn komu
yfirburðir danska liðsins vel í
ljós. Sigurinn hefði raunar getað
orðið stærri, ef Rut Guðmunds-
dóttir í markinu hefði ekki átt
syo stórkostlegan leik sem hún
sýndi. Hún stóð í markinu allan
leiktímann og varði oft með sér-
legum glæsibrag. Undir leikslok
varði hún m. a. vítakast með
glæsibrag. Það var ekki um að
sakast vi'ð hana þó danska liðið
sigraði.
Framhald á bls. 31.
glæsilegu langskoti og litlu síðar 5—2.
náði hún forskoti fyrir ísland
með öðru slíku. Það var eina
skiptið í leiknum sem ísland
hafði forystu.
AÍlur hálfleikurinn var mjög
vel leikinn af báðum liðum ,og
var yfirleitt jafn. Danska liðið
jafnaði 2—2 og skoraði síðan
þrjú næstu mörk svo staðan var
Toni Rösseler skoraði 5 mörk Dana. Héx lyftir hún knettinum
yfir Rut, sem kemur fnam móti henni. — Myndir Norðfoto.
Leikaðferðin mistókst og
liðið náði aldrei sínu bezta
— VIÐ erum óánægð með
úrslit leiksins og allan gang
hans af okkár hálfu, sagði
Sigurður Bjamason, farar-
stjóri ísl. kvennalandsliðsins,
er við náðum tali af honum
í gærkvöldi á Grand hótel þar
sem landsliðið býr. Sigurður
var þá nýkomin úr kaffisam-
sæti er liðinu var haldið í
Lyrigby-höllinni. Þar voru
ræður haldnar eftir leik og
fjórir nýliðar ísl. liðsins fengu
sitt landsiiðsmerki. í því hófi
talaði Ásbjörn Sigurjónsson af
íslands hálfu og mæltist vel.
■ — Við erum mjög ánægð
með móttökurnar, en óánægð
sem fyrr segir með gang leiks
ins. Stúlkurnar vom taugaó-
styrkar og tókst aldrei að
sýna þann leik sem þær þó
vissulega eiga að geta. Allt of
lítil 'hreyfing var á liðinu.
—- Við höfðum æft sérstak-
lega ákveðna leikaðferð fyrir
þennan leik. Liðinu gekk
mjög illa að ná henni þegar
til leiksins var komið. Það
skorti fyrst og fremst á hreyf-
inguna í liðinu.
— Og Sigríður lögð í ein-
elti?
— Já, algerlega í síðari hálf
leik. Tókst Dönum að slíta
hana úr tengslum við liðið
að mestu. Hún var þó óhepp-
in líka. Henni tókst að kom-
ast inri á línu en hitti ekki
markið. Einnig reif hiún sig
lausa tvívegis Og komst út í
homin í skotfæri en mistókst
að skora.
Sigurður sagði að ísl. liðið
hefði bæði verið heppið og
óheppið. Óheppið með áður-
nefnd mistök hjá Sigríði en
heppið t.d. að Danir áttu fjög
ur hörkuskot í stangir.
— Og nú hafið þið sýnt öll
trompin. Eruð þið þá ekki
svartsýn fyrir síðari leikinn?
— Við ætlum að breyta til.
skipulagðrar og fyrirfram
ákveðinnar leikaðferðar. Þær
eiga að leika frjálst, nota ein-
staklingskraftana. I leiknum.
nú skoraði Sigurlína t.d. ekk-
ert mark og Sylvia aðeins eitt.
Þessar stúlkur eru vanar að
brjótast í gegn á eigin spýtur
og skora mörg mörg í hverj-
um leik. Sigrúnu Ingölfs tókst
heJdur aldrei að brjótast í
gegn nú. Margar sendingar
mistókust og liðið missti
knöttinn. En danska liðið
skoraði aðeins tvívegis úr
hxaðupphlaupum, en þau hafa
verið sterkasta tromp liðsins.
— Þið eruð miklir vinir
grísku knattspyrnu landsliðs-
mannanna?
— Já, þeir búa hér á sama
hóteli. Þeir buðu okkur á
landsleikinn og við lærðum að
hrópa „Áfram Grikkland" á
grísku og gerðum það óspart.
Svo buðum við þeim á okkar
leik og þeir komu og hróp-
uðu á íslenzku „Áfram ís-
land“.
Sigurður lét vel yfir dvöl-
inni hjá Dönum. Meðal áhorf-
enda að leiknum í gær var
Gunnar Thoroddsen sendi-
herra, og hann hefur boðið
liðinu til hádegisverðar á
sunnudaginn. öllum líður vel
og biðja fyrir kveðju hejm.