Morgunblaðið - 18.11.1965, Page 28
Lang stæista og
fjölbreyitasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
264. tbl. — Fimmtudagur 18. nóvember 1965
Ollu fé slátrað
á bæ í Skagafirði
Wokkror kindur reyndust vera
með garnaveiki
Sauðáriiraki, 17. nóvemiber.
í ÐAG var lógað óllu sauðfé á
bænnm Brennigerði, Staðar.
hreppi, Skagafirði, en þar hafði
fyrir nokkru orðið vart við
garnaveiki.
Héraðsdýralæknirinn á Saiuð-
árkróiki, Steinn Steinsson, tjáði
fréttamanni blaðsins, að iíkur
bentu til þess, að fimm kindur
Ibóndans af 74, sem lógað var,
íbefðu verið með veikina, þó ekki
f'ulirannsakað enn, Auk þess var
8 kindum slátrað nú fyrir
nokkru, en þær þóttu grumsam-
legar og reyndust sjö af þeim
veikar.
1 dag var nokkrum kindum
slátrað af næstu bæjum, en þær
reyndlu&t heilbrigðar. Að öðru
leyti saigði dýralæknirinn heilsu
far 'búpenin.gis mjög gott. — Jón.
Skortur á svart-
olíu yfirvofaudi
á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 17. nóvember:
HÉR F.K að verða skortur á svart
olíu fyrir sildarverksmiðjuna,
sem starfar nú allan sólarhring-
inn.
Ef ekki rætist fljótlega úr má
búast við að verksmiðjan verði
að grípa til venjulegrar gasolíu,
sem ætluð var veiðiskipunum og
er einnig talsvert dýrari og minni
hitagjafi.
Olíufélögin bera því við, að
þau hafi ekki skip til flutninga
á svartolíu sem stendur, en hafa
iofað bót og betrun. — Einar.
Ný kirkja fyrirhuguð
í Laugarásnum
ÁSPRESTAKALL er að undir-
búa hugmyndasamkeppni um
kirkju fyrir sóknina. Ekki hefur
kirkjunni endanlega verið valinn
staður, en til grt'ina munu koma
tveir staðir í Laugarásnum. Mun
kirkjan annað hvort standa á há-
hæðinni e'ða við svokaliaðan
Biskupsstein, milli Laugarásveg
ar og Vesturbrúnar, að því er
sóknarpresturinn, sr. Grímur
Grímsson, upplýsti Mbl. um í
gær.
Ákveðið hefur verið að þarna
verði kirkja og safnaðarheimiii.
Sjálí kirkjan verði ekki stór,
rúmi 250—300 mcnns, enda ekki
líkindi til áð söfnuður á þessum
stað verði stærri en 5000 manns.
Sóknarnefnd hefur valið af
sinni hálfu menn í dómnefnd fyr
Gluggogægir
sendur heim
til föðurhúsu
Neskaupstað, 17. nóv.
UNDANFARIN kvöld hefur
fólk hér í bænum orðið vart
við, að einhver ókunnur mað-
ur hefur lagzt á glugga á
heimilum og kíkt inn.
Svo var komið, að kvenfólk
þorði ekki að vera eitt heima
á kvöldin vegna ágangs þessa
gluggagægis.
Lögreglan hér reyndi að
fylgjast með athöfnum þessa
manns og stóð hann svo að
verki í gærkvöldi við þessa
þokkalegu iðju.
Reyndist maðurinn vera
ungur Reykvíkingur og var
hann í dag sendur flugleiðis
heim til föðurhúsanna.
— Ásgeir.
ir hugmyndasamkeppnina, þá
I>ór Sandholt, arkitekt, Hjört
Hjartarson og Henry Hálfdánar-
son. Og Arkitektafélagið hefur
valið af sinni hálfu arkitektana
Guðmund Þór Pálsson og Geir-
harð Þorsteinsson.
líarður árekstur varð í fyrrakvöld við Skeiðhól í Hvalfirði (svonefndan Staupastein). Femt slas-
aðist og bílamir skemmdust mikið. — Ljósm. M!bl.: Sv. Þ.
46 skip mei tæp
50 þúsund mál
GOTT veður var á síldarmiðun-
um á þriðjudag og aðfaranótt
miðvikudags oig góð veiði á svip-
uðum slóðum og áður.
Samtals fengu 40 skip sam-
tals 49.350 mál.
Sigurborg SI 1500, Víðir II.
GK 700, Brimir KE 800, Akurey
RiE 1500, Vigri GK 1200, Faxi
GK 1300, Sæþór OF 900, Arnar
RE 1000, Guðbjörg GK 1000,
Hólmanes SU 1250, Gullberg NS
900, Bára SU 1000, Björg NK
1000, Snæfell EA 1400, Gróitta
RE 1000, Barði NK 1050, Heimir
SU 1100, Akraiborg EA 1100, Snæ
fugl SU 1050, Oddgeir ÞH 1200,
7 manna nefnd fjallar
um afurðasölulöggjöf
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frcttatilkynning frá
landbúnaðarráðuneytinu:
Það er yfirlýstur vilji ríkis-
stjórnarinnar að samstarfi verði
aftur komið á milli framleiðenda
og neytenda um verðlagningu
landbúnaðarvara.
Fyrir því hefur landbúnaðar-
ráðwneytið hinn 10. þ. m. skipað
nefnd sjö manna, er hafi það
verkefni að leita eftir samkomu-
lagsgrundvelli milli frapaleiðenda
og neytenda, sem afurðasölulög-
gjöfin yrði byggð á, og koma
fram með tillögur í því efni.
í nefndina voru skipaðir þessir
menn:
Ólafur Björnsson, prófessor,
formaður nefndarinnar, tilnefnd-
ur af ríkisstjórninni, Hannibal
Valdimarsson, alþingismaður, til-
nefndur af Alþjóðasambandi ís-
lands, Vilhjálmur Hjálmarsson,
fyrrv. aliþingismaður, tilnefndur
af Stéttarsambandi bænda, Gunn
ar Guðbjartsson, formaður Stétt-
arsambands bænda og Einar Ól-
afsson, bóndi, Lækjarhvammi,
tilnefndir af Framleiðsluráði iand
búnaðarins, Sæmundur Ólafsson,
framkvæmdastjóri, tilnefndur af
Sjómennafélagi Reykjavíkur, og
Otto Schopka, viðskiptafræðing-
ur, tilnefndur af Landssambandi
iðna ðarmanna.
Jarðgasið eystra ekki
talið hafa hagnýtt gildi
Egilsstöðum, 17. nóvember.
NÝLEGA hafa borizt jarðhita-
deild raforkumálaskrifstofunnar
umsagnir sérfræðings, frá Lund-
únaháskóla um niðurstöður rann
sókna á jarðgasi, sem fundizt hef-
ur í Lagarfljóti og nágrenni þess.
Sérfræðingurinn telur litlar
líkur á, að jarðgasið hafi hagnýtt
gildi, en segir jafnframt, að nán-
ari rannsókna sé ef til vill þörf.
Þá hvetur hinn brezki sér-
fræðingur til mikillar varúðar
við frekari rannsóknir, t. d. bor-
un, þar sem mikil sprengingar-
hætta stafar af þessari gasteg-
und.
Þá hafa verið hér á ferð menn
frá raforkumálaskrifstofunni til
að gera frekari athuganir á jarð-
gasinu. — Steinþór.
Helga RE 1100, Hafþór R)E 450,
Björgvin EA 1200, Þórður Jóns-
son EA 1200, Sveinibjörn Jakobs-
son SH 800, Hannes Hafstein EA
1200, Höfrungur III. AK 600,
Vonin KE 1200, Ingiber Ólafssom
II. GK 16001 Reykjaborg RE
1300, GulMaxi NK 1200, Helga
Guðmundsd. BA 1300, Stapafell
SH 500, Helgi Flóventss. ÞH
1300, Framnes ÍS 800, Krossanes
SU 600, Ásbjöm RE 1000, Reykja
nes GK 900, Ól. Friðbertsson ÍS
500, Fróðaklettur GK 1450,
Gtiðm. Péturs ÍS 1500, Bjartur
NK 1600, Siglfirðingur SI 800,
Siguirkafi GK 800, Loftur Baid-
vinssom EA 1200 og Sigurvon RE
1300 mál.
Spariskír-
teini ríkis-
sjóðs upp-
seld
Fyrir tveimur dögum var hafia
sala verðtryggðra spariskírteina
rikissjóðs í öðrum flokki þessa
árs. Nam flokkur þessi 28 milljón
um króna.
Sala skírteinanna hefur gengið
mjög greiðlega og eru þau nú
uppseld hjá öllum söluaðilum.
Hefur ekki verið hægt að sinna
öllum pöntunum um skírteini.
Eins og kunnugt er seldi ríkis-
sjóður verðtryggð spariskirteini
fyrir 47 millj. króna sl. vor,
Sömuleiðis voru seld spariskír-
teini fyrir 75 millj. kr. í des-
ember 1964. Hefur ríkissjóður
þannig selt spariskírteini fyrír
samtals 150 millj. króna frá
byrjun desember sl. árs.
Ók aftur undir vörubíl
HARÐUR árekstur varð um kl.
19.30 á móts við bæinn Borgar-
tún við Akranes. Þar ók ungur
piltur fólksbíl aftur undir kyrr-
stæðan vörubíl, sem var þar
vinstra megin á þjóðveginum.
Fólksbíllinn er talinn svo til ó-
nýtur eftir áreksturinn og fjaðra
hengsli á vörubílnum brotnuðu.
Hentist hann áfram 5—6 metra
við höggið.
Pilturinn, sem ók fólksbilnum,
skarst á enni og kinn og var gert
að sárum hans í sjúkrahúsinu á
Akranesi, en honum var leyft að
fara heim að aðgerð lokinni.
Um það leyti er áreksturinn
varð mætti fólksbíllinn bláleitum
Bedford-vörubil og er ökumaðúr
hans beðinn að hafa samband við
lögregluna á Akranesi.
Ranaslysið
STÚLKAN, seim beið 'bana í bíl-
slysirau við Litlu-Fellsöxl í Skila-
mannahc.rppi, sl. þriðjudag, héit
Margrét Halldórsdóttir, til heim-
iiis að Hagamel 27, Reykjavik.
Margrét fæddist 16. janúar
árið 1940 í Norður-Þingeyjair-
sýslu. Hún starfaði í skrifstofiu
Hótel Borgar í Reykjavík.
19 ára piltur hefur
gefið sig fram
NÍTJÁN ára piltur hefur gefið
sig fram hjá bæjarfógetaem-
bættinu í Hafnarfirði og skýrt
frá því, að hann hafi lent í á-
flogum að Hlégarði við hafn-
firzka piltinn, sem lézt s.l.
sunnudag vegna áverka á höfði,
að því er talið var. Um dánar-
orsök er ekki unnt að fullyrða
enn, þar sem krufningarskýrsla
hefur ekki borizt embættinu.
Sá, er gaf sig fram, telur sig
og hinn látna hafa lent í áflog-
um upp úr kl. eitt aðfararnótt
sUnnudags. Ber pilturinn, að
hann hafi ekki átt upptökin að
áflogunum og hið sama ber vitni
einnig.
Hann gaf sig fram þegar hann
las frásagnir blaðanna um lát
piltsins og að það væri talið
stafa af áverka á höfði, er hann
hefði hlotið vegna hnefahöggs.
Sem fyrr segir verður ekki
ljós dánarorsök hafnfirzka pilts-
ins fyrr en niðurstaða krufning-
ar liggur fyrir.
Miklar vitnaleiðslur hafa far-
ið fram í rannsókn málsins og
fjöldi dansgesta, sem voru að
Hlégarði umrætt kvöld, hefur
verið yfirheyrður.
Að ósk rannsóknarfulltrúans
í málinu verður nafn hins látna
pilts ekki birt að svo stöddu.