Morgunblaðið - 09.12.1965, Blaðsíða 22
22
MORGU N BLAÐIÐ
i
Fimmtudagur 9. des. 1965
— Utan úr heimi
biskupunum með ókvæðisorð-
um, sakaði þá um að verzla
með Krist og hrópaði: „|>ið
elskið gullið en guð ei“ o. s.
írv. Sumir biskupanna gáfust
þá upp, en 36 þeirra voru alls
ekki á þvi, heldur fundu sér
annan fundarstað skammt frá
og héldu áfram að kjósa um
biskupana.
Stephanopoulos skipaði
þeim í nafni laganna að hætta.
Konstantín, konungur, gaf út
tilskipun, þar sem bundinn
var endi á störf þingsins, en
einn biskupanna reif tilskip-
tinina við móttöku. Dóms-
málaráðuneytið sendi biskup-
unum viðvörun, þar sem sagði,
að þeir fremdu refsiverð at-
hæfi með því að kjósa hina
nýju biskupa eða færa bisk-
upa milli embætta — en þeir
létu sig viðvörunina engu
•kipta heldur sendu biskupa
áfram út og suður til starfa í
hinum nýju embættum sínum.
Söfnuðirnir, sem jafnan fagna
nýjum biskupum með því að
•yngja „verðugur, verðugur“,
•ungu nú „óverðugur, óverð-
ugur. ...“ og heiftarleg slags-
mál brutust út víða milli
•tuðningsmanna biskupanna
og andstæðinga.
Loks létu biskuparnir und-
an síga, a.m.k. um stundar-
eakir, þegar stjórnin lagði
íram frumvarp, þar sem svo
var kveðið á, að biskupaþing-
ið skyldi leyst upp og annað
myndað í staðinn, skipað
biskupunum, sem hlýðnazt
höfðu stjórninni — og að end-
urbætur yrðu gerðar á launa-
greiðsluháttunum. Uppreisn-
arbiskuparnir svöruðu með
því að heita eilífri útskúfun
hverjum þeim biskupi, er sam
þykkti að sitja á stjórnskip-
uðu biskupaþingi — og stjóm-
inni hótuðu þeir bannfæringu.
Ennfremur hótuðu þeir að
loka öllum kirkjum landsins
og banna prestum að fram-
kvæma giftingar og skirnir.
Ráðstefna um lána-
mál stúdenta
,t
LAUGARDARINN 27. nóv. s.l.
gekkst Stúdentaráð Háskóla ís-
lands fyrir hringborðsráðstefnu
í setustofu Gamla garðs. Var
þar fjallað um lánamál ís-
lenzkra stúdenta og m.a. lögð
til grundvalar fjölrituð greinar-
gerð Þóris Bergssonar, cand.
act., Könnun á kostnaði við nám
stúdenta við Háskóla Islands og
ísl. námsmanna erlendis. Full-
trúar í stúdentaráði og í viðbót
tveir fulltrúar frá hverju deilda
félagi og fulltrúar stúdenta í
stjórn lánasjóðs og úthlutunar-
nefnd hans nú undanfarið, sátu
ráðstefnuna. Inngangserindi
fluttu þeir Hörður Einarsson,
stúd. jur., og Þórir Bergsson, og
skýrðu þeir frá ástandi og horf-
um £ þessum málum, einkum
að því er varðar stúdenta hér
heima; einnig röktu þeir nokk-
uð fyrirhugaðar skipulagsbreyt-
ingar á allri stjórn Lánasjóðs
ísl. námsmanna.
Nokkrar umræður spunnust
um ýmis atriði í greinargerð
Þóris, en þessi könnun á fjárhag
stúdenta sem gerð var á vegum
Lánasjóðs ísl. námsmanna, er sú
fyrsta sem um er talandi sinnar
tegundar hérlendis og því algert
brautryðjendaverk. Þær tölur,
sem þarna koma fram, sýna ljós
lega, að eðlileg fjárþörf stúd-
enta hér er allmiklu meiri en
nemur venjulegum sumartekj-
um og námslánum samanlagt.
Móðursystir mín,
guðrCn sesselja jensdóttir
húsmæðrakennari, Faxaskjóli 16,
andaðist á Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík 7. þ. m.
Fyrir hönd vandamanna.
__ Henry Halfdánarson.
Maðurinn minn
GESTUR ÞÓRÐARSON
frá Borgarholti,
andaðist að Vífilsstöðum 8. þ. m.
Jónína H. Sigurðardóttir.
Maðurinn minn og faðir okkar,
SIGURÐUR BJÖRNSSON
skipasmiður, frá Siglufirði,
sem andaðist 3. þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 10. desember kl. 10,30 f.h. — Athöfn-
inni í kirkjunni verður útvarpað.
Kristjana Sigurðardóttir og börn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
GUÐRtJNAR ÁRNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Sæmundur Eiimundarson, Sigurður Sæmundsson,
Guðmundur Sæmundsson, Matthías Sæmundsson,
Hreiðar Sæmundsson, Þuríður Ámadóttir.
Þökkum af alúð auðsýnda samúð og vináttu við frá-
fall og jarðarför,
VILHELMÍNU guðnýjar vilhjálmsdóttur
Haga, Sandgerði.
Sérstaklega þökkum við Jóni K. Jóhannssyni, lækni og
starfsfólki sjúkrahúss Keflavíkur fyrir umhyggju og
góða hjúkrun meðan hún dvaldi í sjúkrahúsinu. —
Einnig þeim konum, sem reyndu að létta henni dvölina
þar með heimsóknum.
Sigurbjörg Einarsdóttir,
Bjarni Jónsson, Einar Guðmundsson,
Óiafur Guðmundsson, Sæmundur Vilhjálmsson,
Ólafur Vilhjálmsson.
Þessi könnun skapar algerlega
nýjan gnmdvöll fyrir baráttu
stúdenta fyrir auknum námslán
um sér til handa, eins og nærri
má geta. Stjórnum deildafélag-
anna var á ráðstefnunni falið að
gera athugasemdir við niður-
stöður könnunarinnar og koma
þeim áleiðis til stjórnar lána-
sjóðsins og nefndar þeirrar, sem
nú vinnur að endurskoðvminni
á skipulagi sjóðsins.
Á ráðstefnunni var einnig
rætt um möguleika á að hefja
baráttu fyrir beinum náms-
styrkjum til stúdenta hér
heima, en slíkir styrkir eru nú
veittir íslenzkum námsmönnum
erlendis ásamt lánunum. Beindi
ráðstefnan því til Stúdentaráðs
að frekar yrði athugað um fær-
ar leiðir í þeim efnum.
Ráðstefnu þessa sátu um 30
stúdentar og form. Stúdenta-
ráðs, ,Björn Teitsson, stud. mag.
stjórnaði henni.
Elizabeth Cíty, N-Carolina,
SLÖKKVILIÐSMENN í bænum
Elizabeth City hafa dag hvern
síðan 22. júní í sumar þurft að
dæla 50—70 lítrum af benzíni
upp úr holu, um 100 metra frá
miðbiki bæjarins. Upptök þess-
arar undarlegu benzínlindar
hafa ekki fundizt enn þrátt fyr-
ir itarlegar athuganir. Eigendur
benzínstöðvar £ nágrenninu telja
sig ekkert benzín missa úr geym
um sínum, og þykir mönnum
mál þetta hið furðulegasta.
Formannaráð
stefna I.INI.S.f.
DAGANA 13. og 14. nóv. sl.
var haldin i húsi hins islenzka
prentarafélags í Reykjavík, for-
mannaráðstefna aðildarfélaga
Iðnnemasambands íslands, með
sambandsstjórn. Þátttakendur
voru formenn iðnnemafélaga
víðsvegar á landinu og fulltrú-
ar þeirra.
Formaður I.N.S.I., Gylfi Magn
ússon, setti ráðstefnuna og á-
varpaði fundarmenn. Fundar-
stjóri var síðan kosinn Sigurður
Jensson og ritari Ingi Torfason.
Flutt var skýrsla um störf
sambandsstjómar og kom þar
fram að unnið er að stofnun
nýrra iðnnemafélaga í Reykja-
vík, Hafnarfirði og Vestmanna-
eyjum. Þá hafði stjórn sam-
bandsins rætt um kjarabætur til
handa hárgreiðslunemum, við
stjóm Félags hárgreiðslumeist-
ara, en árangurslaust. Ýmislegt
fleira kom fram í skýrslu stjórn
arinnar og mátti marka að starf
semin stendur í miklum blóma.
Fyrir ráðstefnunni lágu fjöl-
mörg hagsmunamál iðnnema og
bar þar hæzt frumvarp það til
laga um iðnfræðslu, er nú ligg-
ur fyrir Alþingi. Urðu mjög
fjörugar umræður um frum-
varpið. Kom fram í umræðun-
um að iðnnemar telja það
standa í ýmsu til mikilla bóta,
þó þar mætti ýmislegt til betri
vegar færa. svo sem að gengið
er framhjá iðnnemum um þátt-
töku í Iðnfræðsluráði. Einnig
lagði ráðstefnan áherzlu á að
allir iðnskólar verði dagskólar og
að námstími reiknist eftir
klukkustundafjölda en ekki ára
fjölda. Þá taldi ráðstefnan á-
stæðu til að breyta kennslufyrir
komulagi iðnskóla ,þannig að
iðnnemar fái nokkru víðtækari
menntun til undirbúninga
tæknináms.
Annað aðalmál ráðstefnunn-
ar var kjarabarátta iðnnema.
Var ákveðið að koma á fót
nefnd, sem hafa skal það verk-
efni að leysa úr deilumálum
við meistara hvar sem er á land
inu og vinna að samningsrétti
iðnnema. Var lögð höfuðáherzla
á eftirfarandi atriði varðandi
kjarabaráttuna.
1. Að nemar fái prósentutölu
af kaupi sveina hækkaða til sam
ræmis við það sem prentnemar •
hafa þegar fengið.
2. Prósentuhlutfall sé látið
gilda jafnt á ákvæðisvinnu og
tímavinnu.
3. Iðnnemar fái aðild að
sjúkra- og lífeyrissjóðum.
A ráðstefnunni kom fram
mjög hörð gagnrýni á Iðn-
fræðsluráð og eftirlit með iðn-
námi. Lýsti ráðstefnan furðu
sinni á seinagangi þeim sem rík-
ir í störfum ráðsins.
Fjórða mál ráðstefnunnar var
samstarí iðnnemafélaganna og
ýmis innri mál sambandsins.
Var stjórninni falið að koma á
fót landsmóti iðnnema á næsta
sumri og vinna á annan hátt að
kynnum þeirra.
Ráðstefnunni var slitið kl,
18,30 á sunnudagskvöldið, en
það sama kvöld gengst Iðn-
nemasambandið fyrir veglegri
skemmtun að Hótel Sögu, til
ágóða fyrir Herferð gegn hugri,
og voru á skemmtuninni um
það bil 400 manns. Flytur Iðn-
nemasambandið öllum þeim
fjölda þakkir sínar svo og
skemmtikröftunum, sem allir
komu fram án endurgjalds.
(Frá Iðnnemasamb. íslands).
Kvæði Jónasar Hallgrímssonar
Ljósprentuð útgáfa
Handritastofnunar
íslands.
Einar Ól. Sveinsson
og
Ólafur Halldórsson
sáu um útgáfuna.
Verð í skinnbandi
krónur 725,00.
Aðalumboð:
Bókaútgáfa
Menningarsjóðs
i eigln-
handar-
riti