Morgunblaðið - 10.02.1966, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.02.1966, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 10. febrúar 1966 MORCUNBLAÐIÐ 7 ÚR ÍSLEMZKIIM ÞJÓÐSÖGUIM „Nú koma útilegumenn heim, og kvartar nú prestsdóttir mjög undan hinum unga manni, og hann á sama hátt undan henni; segist nú ekki fleiri haust muni verða heima, þá aðrir fari í leitir, heldur muni hann fara líka, hvað sem hver segi. Líður nú fram til næsta hausts, svo að ekki ber til tíðinda. Þá fara úti- legumenn að húast í fjárleit- ir, og segir fyrirliðinn hinum unga manni enn að vera heima, en hann kveður þvert nei við og prestsdóttir neitar því líka; segist hún vel geta ein verið þennan tíma, hann verði ekki langur. Það verð- ur útúr, að útilcgumenn fara allir, en prestsdóttir verður ein heima. l»á fer hún eins að öllu og unglingspilturinn hafði ráðlagt og stígur á bak með töskuna fyrir aftan og keyrir hestinn eitt högg. Þá rennur hann af stað sem hvat legast. — Að lítilli stundu liðinni sér hún, hvar allir útilegumenn riða að henni. Hún heyrir, að hinn ungi maður kallar og segir, að svona hafi henni verið varið, nú ætli hún að svíkja þá og segja til þeirra, og verði þeir nú líklega drepnir. Þeir ríða nú sem mest þeir geta, og verður unglingspilturinn fljótastur og hefir nærri náð henni, þegar leiti bar á milli þeirra og hinna mannanna, Þá slær hann á hest prests- dóttur, svo hann hleypur á- kaflega. En hún hafði gleymt því af hræðslu. Hinn ungi maður hvetur þá að ríða eftir henni, og Það gjöra þeir, þang að til þeir ganga af öllum hestum sínum dauðum. Þá fara þeir eftir henni á fæti, en hún ríður undan og það alla leið niður í byggð; þar kem- ur hún að höfuðbóli einu, og býr þar sýslumaður. Prest- dóttir segir honum frá óför- um sínum og að útilegumenn séu hér á hælum sér. Sýslu- maður lætur taka hesta og elta þá sem skjótast. Þeir náðust fljótt og eru nú settir í varðhald. (Eftir handriti Þorvarðar Ólafssonar). íslenzkt þjóðerni standi ekki traustari fótum í þjóðarsálinni, en svo, að því sé hætta búin af samskiptum við erlendar tækninýjungar, sem þó á bráð- um að innleiða hér á landi. Man ég þó ekki betur en einn af ritstjórum Fjölnis, hér áður, hafi lagt á sig langa suðurgöngu til að kynnast menningu annarra þjóða, svo að hann gæti flutt heim með sér sitthvað, sem ís- landi mætti að gagni koma. Þannig voru nú íslenzkir stúd- entar á 19. öld óragir við að flytja inn í landið erlend áhrif. Satt bezt að segja finnst mér, sagði storkurinn, að víða væri nú bitastæðara í verkefnum hjá íslenzkum sfcúdentum til heilla landi og lýð, heldur en að vera að vekja upp þessa sjónvarps- grýlu. Bráðum fáúm við sjálf- sagt tækifæri, eftir Því sem tækni fleygir fram, að stilia á erlendar sjónvarpsstöðvar, en máski er það líka meiningin að banna fólki að horfa og hlusta á þær? Ja, það er aldrei að vita upp á hverju menningarvitar kunna upp á að finna. S'kyldi vera meiningin að reisa ein- hvern Berlínarmúr til varnar þjóðerninu? Akranessferðir me8 sérleyfisbifreiS- um ÞÞÞ. Frá Akranesi mánudaga, þriSjudaga, fimmtudaga og laugar- daga kl. 8, miðvikudaga og föstudaga kl. 12, sunnudaga kl. 4. Frá Kvík alla daga kl. 5:Í0, ncma laugardaga kl. 2 og sunnudaga kl. 21:00. Afgreiðsla f UmferSarmiðstöðinnl. H.f. Jöklar; Drangjökull fór í gær- kvöldi frá Charleston til Le Havre London og Rotterdam. Hofsjökull er 1 Liverpool, fer þaðan á morgun til Dutolin. Langjökull kom í gær- kveld til Vigo fré CSiarleston, fer þaðan væntanlega í kvöld til Rott- erdam ag London. VatnajökuM fór í fyrrakvöld frá Norðfrði til London, Rotterdam og Hamborgar. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Noröurlandshöfnum á vesturleið. Esja fór frá Rvík kl. 17 :(K) í gær vestur um land í hringferð. Herjólfur fer frá Vestmannayjum í dag til Homa- fjarðar. Skjaldtoreið er á Vestur- landahöfnum á suðurleið. Herðu- breið er I Rvik. eð sólin hefði shinið 1 angun á honum, þegar hann kom út í tfroststilluna 1 gærmorgun, og það gladdi hans gamla hjarta, Ihvað vökln hjá fuglunum á Tjörninni hafði látið undan eíga að undanförnu. Það er reglu lega gaman að sjá ánægjuna Bkína útúr hverju andarauga, og svanirnir synda stoltir inn i vík- úr ísbreiðunnar sem nú hopar fyr ir hækkandi sól, dag frá degi. Grá igæsirnar spankúlera tígulega á tjarnarbakkanum, og eiga mik- ið undir sér. Allt er í vorhug, enda er vorsins ekki langt að bíða, þótt því miði hægt á stund- vm, Þá eru samt vormerkin aug- ijós. Þarna við vökina hitti ég mann, sem var í vorskapi, enda einn af vormönnum íslands. Storkurinn: Skapið í þér er allt í sykri og rjóma, maður minn? Maðurinn í vorskapinu: Ann- að hvort væri. Nú eru íslenzk ir sfcúdentar loks að vakna, og hafa sennilega vaknað með and- fælum, því að ekki dugði minna en að rumska við Alþingi við fótaferðina, og minna það á þau sahnindi, sem maður hélt að væri öllum íslendingum augljós, og það frá árdögum, að það væri lífsnauðsyn að vemda ís- lenzkt þjóðerni um aldur og ævi. Gott er, að þessi herör skuli vera skorin upp, en hitt er lakara, að stúdentarnir telja, að Skipadild S.Í.S.: Arnarfell fór í gær frá Gloucester til Rvíkur. Jókul- fell fór í gær frá Hul'l til Rvúkur. Dísarfeild fór 8. þm. frá Antwerpen til Reyðarfjarðar, No rðu rlandsihafna og Rvíkur. Litlafell fór í gær frá Rvík til Húsavíkur. Helgafell er í Álaborg. Hamrafell fór í gær frá Hafnanfirði til Aruba. Stapafell er væntanlegt til Ólafsvíkur 11. þm. Mælifell er á Fáskrúðsfirði. Solheim er væntanlegt til Fáskrúðsfjarðar í dag. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: Katla er í Kristiansand. Askja er í Reykjavík. Hafskip h.f.: Langá fer frá Rvík í dag til Vestur- og Noröurlands- hafna. Laxá fer frá Hamfoorg í dag til Rvíkur. Rangá er 1 Rvík. Sedá er á leið til Akureyrar. Munjð BlindraVinafélag íslands Kerlingar skattyrðast út af silungi Reykjavíkurtjöm er sagt að hafi verið til forna full af veiði baeði silungi og sjó- birtingi, eða laxi. Einu sinni bjuggu tvær kerlingar sín hvorum megin við tjörnina. Gengu þær samtímis niður að tjörninni til þess að skola úr sokkunum sínum, en fóru svo að s'kattyrðast út af veið- inni í tjöminni, sem báðar vildu eiga. Út úr þessu lenti í heitingum milli þeirra, en íþá hvarf al'lur silungur úr tjöminni, eða varð að pödd- um og hornsílum, og aldrei hefir verið nein veiði í henni siðan, nema hvað stundum hafa fengist þar álar. — Sagt er að nykur sé í Reykjavíkur- tjöm annað árið, en hitt árið í Hafravatni í Mosfellssveit. Er því svo varið, að undir- gangur er þar á milli, og fer nykurinn eftir honum úr Hafravatni og í Reykjavíkur- tjörn, og úr tjörninni í vatn- ið. Þykjast Reykvíkingar hafa tekið eftir ógurlegum skruðn- ingum, brestum og óhljóðum í tjörninni, þegar hún er undir ísi, en þó eru að því áraskipti, því að brestirnir koma af þvi, að nykurinn gerir hark um sig undir ísnum og sprengir hann upp, þegar hann er í tjörninni. En þegar nykurinn er í vatninu, er allt með felldu í tjörninni. Innréttingar í svefnherbergi og eldhús; sólbekkir, ísetning á hurð- um. Sími 50127. Vil leigja tveim stúlkum stórt berbergi. Upplýsing- ar að Digranesvegi 58, Kópavogi. Ekki svarað í síma. Skútugam Lækkað verð. Margar teg- undir. Nýir litir daglega. Þorsteinsbúð, Snorrabr. 61 og í Keflavík. Hringprjónar Bandprjónar, heklunálar; allar stærðir. Þorsteinsbúð, Snorrabr, 61 og í Keflavík. Hvítur, gulur, grænn og bleikur ítalskur lopi í barnateppi, komin aftur. Þorsteinsbúð, Snorrabr. 61 og í Keflavík. Pappadiskar og drykkjarmál í litum og stærðum fyrir Þorrablót, fyrirliggjandi. Ólafsson & Lorange Klapparst. 10 - Sími 17223 Traktor með ámoksturstækjum, óskast. Uppl. í símstöðinni Vogar. Bílskúr og geymsluhúsnæði, með aðgangi að snyrtiherbergi, í s«ð-austurbænum, til leigu nú þegar. Upplýsing- ar í sima 19992. Hafnarfjörður - Atvinna Duglegur maður óskast 1 byggingarvinnu. Gott kaup. Uppl. í síma 51296. Gunmlaugnr Ingason- Keflavík 3ja til 4ra hrb. íbúð óskast til leigu. Skilvís greiðsla. Uppl. í síma 51970. Opel Reckord ‘64 4ra dyra til sölu af sérstökum ástæðum. Til sýnis á rakara- stofunni Dalbraut 1 í dag og á morgun frá kl. 12—6. Upplýsingar í síma 36858. Verzlunarhúsnæði til leigu Til leigu eru nokkur verzlunarpláss í verzlunar- húsi í þéttbýlu hverfi í Austurborginni. Til greina koma flestar tegundir verzlana, en í húsinu verða 12 — 15 verzlanir. Húsnseðið mun leigt til lengri tíma. Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgreiðslu Mbl. fyrir hádegi á laugardag merkt: „8561“. Öllum fyrirspumum mun svarað. Húseignin nr. 7 við Smiðjustíg eign dánarbús Sigríðar Árnadóttur, kennslukonu, er til sölu. Ein íbúð er laus til afnota í húsinu. — Tilboð, þar sem greinir kaupverð, útborgun og greiðsluskilmála að öðru leyti, sendist undirrituðum skiftaráðanda samkvæmt arfleiðsluskrá, fyrir 20. þessa mánaðar. Kristján Guðlaugsson, hrl. Sóleyjargötu 33, Reykjavík. Atthagafélag Sandara heldur árshátið sína í Múlakaffi laugardaginn 12. febrúar. Hefst með bórðhaldi (þorramat) kl. 8 stundvíslega. Skemmtiatriði annast leikararnir Emilía Jónas- dóttir, Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson. Rómantríóið leikur. Aðgöngumiðar verða í kjörbúðinni Nóatún við Há- tún, fimmtudag og föstudag. Miðar og borðpantanir í Múlakaffi laugard. kl. 2—4. Stjórn og skemmtinefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.