Morgunblaðið - 10.02.1966, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.02.1966, Qupperneq 14
14 Fímmtudagur 10. febrúar 1960 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Rits t j órnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 95.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. FRAMTIÐ TOGARA ÚTGERÐAR MORCUNBLADID í Mið-Afríku er lítið land og heitir Burundi. Þar ræður ríkjum kóngur einn, Mwarn- butsa IV., hörundsdökkur og hávaxinn og hefur fjögur ár um fimmtugt. M'wambtusa IV er alvaldur í ríki sínu og er af þegnum sínum talinn guð- legrar náttúru. Mwambutsa kóngur er mað ur félagslyndur og gefinn fyr ir gleðskap ýmiskonar. Hann er snjall trommuleikari og manna slyngastur í teninga- spili. Þá er ótalin sú list sem kóngi er kærust og hann iðk- ar tíðast en það er hin göf- uga danslist. Sjálfum þykir kóngi sem þar geri ekki aðr- ir betur, en af meðfæddu lít- illæti og hógværð er hann fús til að miðla öðrum af þekkingu sinni og eyddi m.a. einhverju sinni síðdegisstund og snöggtum betur þó við að kenna vestrænum blaðamönn um £ höfuðborg ríkis hans, Bujumbura, að dansa tvist eins og vera ber. Þá hefur kóngur 3urundi einnig næmt auga fyrir kven- legri fegurð og ekki síður þótt stúlkan sé Ijósari á hör- imd en sjálfur hann og þegn- ar hans. Því var það, að er kóngur eitt kvöld í fyrra leit nektardansmeyna Josy Velle- vour á sviði í einum nætur- klúbba Parísarborgar þótti honum sem slíkt augnayndi Mwambutsa kóngur lífvarða hans. Kóngurinn í Burundi og konan hans væri betur komið í sinni vörzlu og falaði Mlle. Velle- cour til suðurferðar með sér. Svo fór fortölum kóngs að hin rauðhærða franska feg- urðardís hélt með homim suður til Burundi og var þar sýndur allur sómi þótt ekki væri hún í orði kveðnu drottning landsmanna og því síður að lögum — en hver spyr að slíku þegar kóng- urinn er guð og á alls kost- ar við hvern sem er? Og Josy Velecour fékk því líka framgengt að sett yrði upp nýtízkulegt eldhús handa sér í bleikrauðri höllinni í Bujumbura og sundlaug í hallargarðinum og ekki sveikst kóngur heldur um að fara með henni á bíó og á skemmtistaði á kvöldin. En það hrökk skammt er frá leið, því er Josy fékk innsýn í stjórnmál Burundi leizt henni ekki á blikuna. Og lái henni hver sem vill. Burundi hlaut sjálfstæði 1961, en hafði áður lotið Belgum. Síðan hafa tveir for- sætisráðherrar landsins verið ráðnir af dögum og sá þriðji særður hættulega. Loks kom svo málum s.l. haust að óður múgur Bahutu-manna sat um höllina i Bujumbura í níu stundir samfleytt. Þá fannst Josy Vellecour sér ekki til setunnar boðið. Hún beitti öllum hinum sögufrægu fortöluhæfileikum franskra kvenna og tókst um síðir að sannfæra alvald Burundi um að hann gæti allt eins vel stjórnað landi sínu þótt hann dveldist sjálfur erlendis, til dæmis í Sviss. Og Josy og kóngurinn héldu sem leið lá norður til Genf- ar. Þangað kominn baðst kóngur landvistarleyfis og stendur nú í símaskrá borg- arinnar rétt eins og hver ann- ar óbreyttur útlendingur. Og þeim var ekki fjár vant skötu hjúunum, því með vissu milli bili lét kóngur senda sér í pokaskjatta dálít- Framhald á bls. 10 ¥ tilefni af hálfrar aldar af- mæli Félags ísl. botn- vðrpuskipaeigenda ritaði Loft ur Bjarnason, útgerðarmað- ur, ítarlega grein um störf félagsins og sögu togaraút- gerðar á íslandi. í grein þess- ari, sem birtist í gær, á af- mælisdegi félagsins, rifjar höfundur upp bæði sigra og erfiðleika togaraútgerðarinn- ar frá fyrstu tíð og getur þeirra, sem verið hafa í far- arbroddi Félags ísl. botn- vörpuskipaeigenda, en for- menn þess hafa verið Thor Jensen, Ólafur Thors, Kjart- an Thors og Loftur Bjarna- son. Á tímamótum sem þessum er eðlilegt, að menn virði fyr- ir sér stöðu togaraútgerðar- innar nú, og beri hana sam- an við það, sem áður var, og dylst engum að hagur togar- anna er nú með því lakasta sem hann hefur verið, þótt oft áður hafði verið hart á dalnum. Loftur Bjarnason leggur á það ríka áherzlu, að nauðsyn- legt sé að heimila togveiðar í ríkara mæli en nú er gert inn an fiskveiðitakmarkanna og telur það úrræði helzt til bjargar togaraútgerðinni. Um þetta hafa orðið nokkrar um- ræður, en þó minni en ætla hefði mátt, svo mikið sem í húfi er. Togaramenn halda því fram, að botnvarpan sé síður en svo hættulegra veiðarfæri en ýmis önnur, og andúðin á henni byggist fyrst og fremst á því, að hún var það veið- arfæri, sem útlendingar not- uðu mest, er þeir voru hvað aðgangsharðastir á fiskimið- um okkar. Það mun skoðun fiskifræð- inga, að togaramenn hafi þarna nokkuð til síns máls, og ef svo er, ætti vissulega að vera hægt að ræða þetta mál hleypidómalaust og reyna að finna á því farsæla lausru Togaraútgerðin hefur áður verið öflugasti þáttur útgerð- arinnar, og áreiðanlega eig- um við framtaksmönnum á því sviði meira að þakka en flestum öðrum, sem við at- vinnusögu landsins hafa kom ið. Það eitt er þó auðvitað ekki nægileg rök fyrir því, að áfram eigi að halda tog- araútgerð, ef hún væri nú orðin úrelt. En sannleikurinn er sá, að togaraútgerð hefur áður átt í miklum erfiðleik- um hér á landi, en síðar hef- ur komið í ljós, hve arðvæn- leg hún var, og hve mikinn hag þjóðarheildin hafði af þessum atvinnurekstri. Og engin ástæða er til að ætla annað en svo muni einnig geta farið aftur, að við verð- um að byggja afkomu okkar meira á togaraútgerð en öðr- um veiðum. Dýrmæt reynsla okkar á því sviði má þess vegna ekki undir neinum kringumstæðum glatast. Á tímamótum í sögu Félags ísll botnvörpuskipaeigenda óskar Morgunblaðið þess, að á ný geti tekist að styrkja togaraútgerðina, svo að hún fái skipað þann sess í at- vinnulífi þjóðarinnar, sem henni ber. Má þá gjarna minnast þess, að um langt skeið bjó togaraútgerðin við skarðan hlut, og ættu þeir, sem að öðrum þáttum út- vegsins standa, að hafa það hugfast, að togaramenn undu því ástandi, meðan hlaupa þurfti undir bagga með bátaútgerðinni. SKATTALÖGIN ]l/fagnús Jónsson, fjármála- ráðherra ræddi um skatta- og tollamál á Varðarfundi í fyrrakvöld, og gat hann þar helztu úrbóta, sem gerðar hafa verið í skattamálum á síðustu árum. Má þar eink- um nefna eftirfarandi: Vinna við eigin húsnæði hefur verið gerð skattfrjáls. Helmingur af tekjum giftra kvenna, sem vinna utanhúSs, er undanþeginn skatti. Heim- ilt er mönnum að verja allt að 10% af tekjum til menn- ingar- og mannúðarmála, og eru þær þá frádráttarhæfar. En mikilvægustu breyting- arnar eru þó fólgnar í stór- felldri lækkun þess hundraðs hluta tekna, sem menn þurfa að greiða í skatta. Áður nam skattheimtan allt að 90% af heildartekjum, en nú er hún hæst 57% til ríkis- og sveit- arfélaga, og nær þó raunar aldrei þeirri upphæð, vegna margháttaðra frádráttarheim ilda. Af þessum gjöldum nemur tekjuskattur á ein- staklinga frá 9—27%. Miklar umbætur hafa einn- ig verið gerðar á skatt- greiðslu félaga. Þau greiða nú fastan tekjuskatt til ríkis- sjóðs, 20%, og raunverulegar skattgreiðslur félaga geta ekki farið yfir 43%. Þá hafa félögin heimild til að leggja 25% af hreinum tekjum í varasjóð, og einnig er leyfi- legt að greiða 10% arð af hlutafé, og er sá arður frá- dráttarbær hjá félaginu, sem hann greiðir. Fjármálaráðherrann benti á, að svo vel væri búið að fé- lögum, að því er skatta varð- ar, að fyllsta ástæða væri til þess að menn beittu sér fyrir stofnun fjársterkra félaga, en hér hefði það tíðkazt, að fé- lög væru með sáralitlu hluta- fé, og þess vegna nytu þau ekki góðs af þeim ákvæðum, sem ætluð eru til að örva al- menningsþátttöku í atvinnu- rekstri. Fleiri merkar breytingar hafa verið gerðar á skatta- lögum. Þannig er t.d. í lögum sú regla, að tekjuskattur skuli breytast samkv. skatt- vísitölu, sem fjármálaráð- herra ákveður árlega, svo að skattþungi aukist ekki, þótt kaup manna hækki vegna dýr tíðar og almennra kauphækk ana. Þarf því ekki stöðugt að vera að breyta skattalögun- um af þeim sökum. Loks er svo þess að geta, að á næsta ári er hugmyndin að hefja innheimtu skatta jafnóðum og tekna er aflað. Þetta er mjög vandasamt í fram- kvæmd, og hefur krafizt mikils undirbþnings, en vænt anlega munu menn fagna þeirri breytingu, er hún kem- ur til framkvæmda. Óhætt er að fullyrða, að beinir skattar á íslandi eru ekki hærri en í nágranna- löndunum. Þess vegna á líka að vera unnt að uppræta skattsvik, þótt það gerist að sjálfsögðu ekki á einu augna- bliki, heldur þurfi nokkur ár til að koma mönnum í skiln- ing um, að fyllsta alvara er að komast fyrir hin víðtæku skattsvik, sem hér hafa lengi viðgengizt. Breyting til hins betra í því efni er ekki þýðingar- minni en aðrir þættir við- ’ reisnarinnar, því að til lengd- ar verður heilbrigt þjóðfélag ekki byggt á lögum og laga- framkvæmd, sem lætur undir höfuð leggjast að kom- ast fyrir rætur jafn víðtækr- ar spillingar og skattsvikin hafa verið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.