Morgunblaðið - 10.02.1966, Blaðsíða 12
12
MORQUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. febrúar 1961
EITT IMESTA AFREKIÐ I
SÖGU GEIIMRAIMINISÖKNA
Þegðr tókst að láta Luna-9 lenda m|úklega á tunglinu
Lítið var vitað um útlit Luna-9, og hafa eingöngu verið birt-
ar teikningar af flauginni. Neðsta myndin sýnir hugmynd-
ir Tass-fréttastofunnar rússnesku um flaugina, en hinar
tvær eru úr vestrænum blöðum. Á miðmyndinni er ör, sem
sýnir hvar teiknarinn telur að Ijósmyndavélinni hafi verið
komið fyrir.
MIKIÐ hefur verið ritað
um síðasta afrek sovézkra
vísindamanna, það að láta
tunglflaugina Luna-9 lenda
mjúklega á tunglinu og
senda þaðan ljósmyndir og
aðrar markverðar upplýs-
ingar. Sumir telja þetta
mesta afrek í stuttri sögu
geimvísindanna, aðrir telja
tunglskotið jafn merkan á-
fanga og fyrsta Sputnik-
hnöttinn, fyrstu mönnuðu
geimferðina eða stefnu-
mót Gemini-6 og Gemini-7
úti í geimnum.
Og vissulega er það afreks-
verk að senda gervihnött á
þyngd við bandariska bifreið,
hlaðinn viðkvæmum rannsókn
artækjum, út í geiminn, fyrst
á braut umhverfis jörðu, síð-
an áleiðis til tunglsins með
um tíu þúsund kílómetra
hraða, og loks eftir nærri
fjögur hundruð þúsund kíló-
metra ferð að kveikja á hemla
flaugum hnattarins á nákvæm
lega réttu sekúndubroti þann-
ig að hnötturinn lendi mjúk-
lega á tilætluðum stað. Ef
kveikt hefði verið of snemma
á hemlunum, hefði hnötturinn
ekki lent heldur farið áfram
um geiminn. Og ef of seint
hefði alheimur ekki fengið að
sjá myndirnar af yfirborði
tunglsins, jafn merkar og þær
virðast vera. Þá hefði hnött-
urinn annaðhvOrt splundrazt
í lendingu, eða tæki hans orð-
ið óvirk.
Fallhlífar óvirkar
Eins og kunnugt er nota
Bandaríkjamenn fallhlífar til
að draga úr lendingarhraða
geimskipa sinna, og talið hef-
ur verið að Rússar notuðú
sömu aðferð, þótt ónákvæmari
fréttir berist frá þeirra til- *
raunum. En fallhlífar duga
skammt á tunglinu. Þar er
ekkert gufuhvolf, og viðnám
ekkert. Fallhlífar eru þar ó-
virkar. Þessvegna er talið full-
vist að hemlaeldflaugar hafi
vrið notaðar, þótt ekki hafi
verið frá því skýrt opinber-
lega.
Þegar Luna-9 var skotið á
loft frá Sovétríkjunum mánu-
daginn 31. janúar, var skotsins
aðeins lítillega getið í fréttum.
Þá höfðu sovézlpr vísinda-
menn þegar gert fjórar til-
raunir til að láta tunglflaug
lenda mjúklega, en þær allar
mistekizt. Þrír Luna-hnettir
lentu með of miklum hraða á
tunglinu á síðasta ári, Og sá
fjórði fór framhjá. Og (þegar
svo Luna-9 lagði af stað, var
skotið ekki talið nein stór-
frétt. Og sovézk yfirvöld til-
kynntu ekkert fyrirfram um
það að reyna ætti „mjúka“
lendingu á tunglinu, þótt sú
st&ðreynd væri á allra vitorði
vegna fyrri tilrauna.
Hiustað frá Jodrell Bank
Sovézkir vísindamenn eru
ekki þekktir af því að gefa
of miklar upplýsingar um til-
raunir sínar, en í sambandi
við ferðir Luna-9 skýrðu þeir
frá því að hnötturinn sendi
Myndirnar tvær á þessari
síðu og þeirri næstu, eru
settar saman úr nokkrum
myndanna, sem sové/.kum
visindamönnum tókst að
ná frá Lunu-9, og gefa
heildarsýn yfir stórt svæði,
upplýsingar sínar til jarðar á
183.538 megariðum. Þessa
bylgjulengd nota Bandaríkja-
menn ekki í geimhlustunar-
stöðvum sínum, en það gera
Bretar hinsvegar í Jodrell
Bank stöðinni við Manchester.
Svo sir Bernard Lovell, for-
stöðumaður Jodrell Bank,
stillti risaloftnet stöðvar sinn-
ar á sendingar hnattarins. Og
iþað var hann, sem fyrstur
skýrði umheiminum frá því
sögulga afreki, að tekizt hefði
að ná til jarðar ljósmyndum
teknum á yfirborði tunglsins.
Luna-9 lenti á tunglinu á svo-
Fyrri tilrisunir Rússa
með tunglflaugar
SOVÉZKIR vísindamenn
reyndu fyrst að láta tungl
flaug lenda mjúklega á
tunglinu í maí 1965. Nefnd
ist sú flaug Luna-5, og
rakst á tunglið með of
miklum hraða, þvi heml-
arnir verkuðu ekki.
Næst kom svo Luna-6,
sem fór framhjá tunglinu
í 160 þúsund kílómetra
fjarðlægð og hélt áfram
út í geiminn.
Talið er að litlu hafi
munað að næsta tunglskot
tækist. Luna-7 lenti á
tunglinu hinn 7. október
s.l., en eftir það bárust
engar upplýsingar frá
hnettinum. Töldu sérfræð-
ingar að kviknað hafi í
hemlunum skúndubroti of
seint með þeim afleiðing
um að tæki hnattarins hafi
laskazt.
— Loks lenti svo Luna-8 á
tunglinu 6. desember, og
lauk þeirri tilraun svipað
og með Luna-7, því ekkert
heyrðist frá flauginni eft-
ir að hún lenti.
Sir Bernard Lovell og John Davies, prófessor, skoða tungl-
myndir í Jordrell Bank rannsóknarstöðinni.