Morgunblaðið - 09.03.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.03.1966, Blaðsíða 2
2 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 9. marz 1966 Viggo Starcke gagn- rýnir Sigurð Úlason r — fyrir blaðauimnæli um handritamálið Kinkaskeyti til Mbl. Kaupmannahöfn 8. marz. UNDIR fyrirsögninni „Hvað ssegja menn á íslandi“ ritar "Viggo Starcke, fyrrum ráðherra »g svarinn andstæðingur afhend- 3ngar handritanna í Árnasafni, kjallaragrein í Berlingske Tid- ende í dag. Fjallar greinin um viðtal við Sigurð Ólason, hrl., sem birtist í dagblaðinu „Tím- anum“ 16. janúar s.l. Starcke hefur grein sína með l>ví að segja „að ekki viti allir ihvað sé að gerast á íslandi." Starcke bæti við: „Aðeins fáir vita, að Alþingi íslendinga lét setja 19ð9 nefnd, sem skyldi styðja ríkisstjórnina þar til hand- ritamálið væri leyst á þann hátt, að viðunandi vaeri fyrir ísland. í>essi nefnd hefur ekki verið kvtödd til í langan tíma, en hún hefur heldur ekki verið lögð niður.“ f>á segir Starcke enn fremur: „Sérhvert handrit, sem er í dönskum söfnum, er þar með fullum lögfræði og siðferði- legum rétti.“ Þessu næst ræðir Starcke náið ura ummæli Sigurðar Ólasonar, sem „eru sögð á ábyrgð hans sjálfs, en sem meðlimur íslenzku handritanefndarinnar er hann ekki prívatmaður.“ Eftir að hafa rakið umimæli Sigurðar, segir Starcke að lok- um: „Ef dæma skal af upplýsing- um Sigurðar Ólasonar virðist á- kvörðun um þetta erfiða og vandasama mál hafa verið tek- in með samblandi af kvöld- verðarspillingu (middagskorr- uption) og rökkurdiplómat! (tusmörkediplomati). Við fáum að vita að alþýða manna á Is- landi hefur ekki mikinn áhuga á handritunum. Engu að síður hafa menn lagt málið fram á þeim grundvelli að hér væri um að ræða þjóðarmetnaðarmál sem hafi geysilega þýðingu. Við fá- um að vita, að hin raunverulega þýðing handritanna er ekki mik- il, en að þau eigi að nota til þess að fullnægja þjóðlegum tiLfinningum. Vissulega vekja danskir dómstólar grun, þar eð gefið er í skyn að danskir dóm- arar muni láta persónulegar og þjóðmetnaðarlegar hvatir hafa áhrif á sig. „Því er lýst yfir að samning- ur sá og sáttmáli, sem íslenzka ríkisstjómin hefur tekið við, stríðir gegn vilja Alþingis og samþykkt, og að ríkisstjórn ís- lands hafi ekki heimild til að falla frá réttinum til þess að hafa uppi nýjar afhendingar- kröfur, þegar fyrsta hlassinu hefur verið ekið í hús. I>að er í sjálfu sér ágætt er Sigurður Ólason, eftir allar hinar gagn- Framhald á bls. 21 Johnson setur de Gaulle stólinn fyrir dyrnar Talið að málaleitan Frakklandsforseta hafi algjörlega verið vísað á bug Washington, 8. marz. — AP — NTB: JOHNSON, Bandaríkjaforseti, hefur tilkynnt de Gaulle, Frakk- landsforseta, að haldi de Gaulle fast við hugmynd sína um grund valiarbreytingu á skipan herja NATO í Frakklandi, kunni það að hafa djúptæk áhrif á sam- skipti Frakka og Bandaríkjanna. Jafnframt er forsetinn sagður hafa gert de Gaulle grein fyrir því, að Bandaríkjastjórn muni ekki fallast á að bandarískt lið, sem staðsett er í Frakklandi á vegum NATO, verði sett undir franska stjórn. Svar Bandaríkjastjórnar kom seint á mánudagskvöld, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að bréf frá de Gaulle barst til Hvíta hússins. í svarinu segir, að Bandaríkjamenn muni frem- ur flytja stöðvar sínar og lið frá Frakklandi en að setja þær undir franska yfirstjórn, líkt og de Gaulle vill. í svarinu segir Bandaríkja- stjórn ennfremur, að hún muni ræða þetta mál við bandamenn sína, líkt og öll önnur mál varð- andi NATO. Er þannig haldið op inni leið til samninga, þ.e. ef Frakkar hafa þá hug á því að semja. Bréf de Gaulle barst frá sendi herra Bandaríkjanna í París um miðjan dag í gær. Mun Dean Rusk utanríkisráðherra og aðrir ráðamenn hafa verið á fundi með Johnson forseta jafnskjótt og bréfið hafði verið þýtt. Um kl. 19 að staðartíma (23 að ísl. tíma) kvaddi George W. Ball, aðstoðarutanríkisráðherra, franska sendiherrann í Washing- Islenzkir sjónvarpsmenn sjón- vörpuðu frá kosningum — í Danmörku í gær — Forstöðumaður námskeiðsins hælir þeim fyrir dugnað og leikni I Kaupmannahöfn, 8. marz. Einkaskeyti til Mbl. HIÐ komandi íslenzka sjónvarp „þjófstartaði“ í sambandi við sveitastjórna kosningarnar í Danmörku í dag, ef svo mætti segja. Þeir 10 íslenzku sjónvarps- menn, sem nú eru á nám- skeiði í Kaupmannahöfn, voru í dag að æfa það, sem á fagmálinu er nefnt „out- side broadcasting“ eða „út- varp utan dyra“, og því var það á vissan hátt ís- lenzkt sjónvarp, sem sent var frá kjörstað til sjón- varpshússins í Gladsakse, en þaðan var það sent um landið allt. Kjörstaður sá, sem íslend- ingarnir sjónvörpuðu frá, var Ráðhús Kaupmannaihaifnar. — Forstöðumaður námskeiðsins fyrir íslenzku sjónvarpstækni- mennina, Daninn M. Jacob- sen, var þeirrar skoðunar að bæja- og sveitaístjómarkosn- ingarnar væru ágætt tæki- færi til þess að sjónvarpa ut- an dyra, þ.e. sjónvarpssend- ingu frá einhverjum stað ut- an sjónvarpssalanna, og voru íslendingarnir að sjálfsögðu mjög áhugasamir. Til þessa hafa þeir, sem á námskeiðinu hafa verið frá því fyrir jól, aðeins verið við sjónvarpsæfingar innan veggja sjónvarpsbvggingarinn ar en nú áttu sjónvarpsmynd- ir þeirra að fara í fyrsta sinn fyrir augu nokkurra milljóna manna. Miahael Jacobsen hrósar ís- lenzku sjónvarpsmönnunum fyrir hinn mikla á'huga þeirra og verklega leikni, sem þeir hafa öðlazt á tiltölulega skömmum tíma. Svíar hafa gefið Islending- um gamlan sjónvarpssendinga bíl sem sjónvarpsmennirnir munu hafa með sér heim til íslands og nota sem fasta tæknideild, sem starfa mun við sjónvarpshúsið þar. íslendingarnir sendu sjón- varpsmyndir í fjögur skipti í dag, og stóðu sendingarnar í um eina mínútu í senn. — Rytgaard. ton á sinn fund, og afhenti hon- um svar Johnson. Benda hin skjótu viðbrögð í Washington til þess að búizt hafi verið við bréfi Frakka um langan tíma, og ennfremur þykir ljóst, að John- son hafi með viðbrögðum sínum viljað sýna de Gaulle svart á hvítu hver væri afstaða Banda- ríkjanna til NATO. Bill Moyers, talsmaður Hvíta hússins, sagði í dag að bréfa- skipti forsetanna yrðu ekki gerð opinber í heild að svo komnu máli. Asgrímssýiting framlengd um 2 daga VEGNA mikillar aðsóknar að sýningunni á myndum Asgríms Jónssonar í Bogasalnum og fjölda áskorana verður sýning- in, sem átti að ljúka í gær- kvöldi, framlengd um tvo daga. Er allra síðasti dagurinn því á fimmtudag. Er sýningin opin kl. 14—22 á daginn. AKRANESI, 8. marz. — Gagn- fræðaskólanemi, Erling Viðar Sigurðsson, fór með litla fingur og vísifingur vinstri handar í vél hefil í smíðatíma í skólanum á 10. tímanum í morgun. Hann fór þegar til læknis, sem gerði að sárum hans. — Oddur. ■ Allmiklar framkvæmdir eru |fyrirhugaðar við Elliðaárvog. i Þegar hefur verið hafizt . handa um að breyta ósi ánna, 'vegna vegargerðar í Ártúns- ) höfða. Tangi sá, sem sést á imyndinni, mun veita ánum . meðfram l(>fðanum, fast við ' land, að Grafarvogi. Siðar ) mun ætlunin að fylla að imestu upp sjálfan voginn, , vestan árfarvegsins. Hefur 'verið unnið að byrjunar fram ) kvæmdum að undan (,rnu. Ljósm. Sv. Þ.) Maður slasast lær- og mjahma- brotnaði LAUST eftir kl. 18 í gærdag var sendiferðabifreið ekið á mann á Miklubraut við Stakkahlíð. Ók bifreiðin vestur Miklubrautina, en maðurinn gekk út á gang- braut frá norðri til suðurs. Öku- maðurinn sagði að hann hefði þegar reynt að stöðva bifreiðina, en ekki tekizt sökum þess að fóthemill gekk í botn og þrátt fyrir síendurteknar hemlanir tókst honum ekki að stöðva. — Voru hemlarnir óvirkir. Maðurinn, sem fyrir bifreið- inni varð, hlaut mikil meiðsl, lær brotnaði og mjaðmabrotnaði, en ekki talin lífshættulega meidd- ur. — I fyrrinótt var bifreið ekið á aðra við Gnoðarvog og lenti hún á þeirri þriðju og skemmdust allar, en hin síðasta minnst. Hér leikur grunur á að um ölvun hafi verið að ræða. LÆGÐIN á Grænlandshafi bar með sér bliku yfir Vest- urland í gær, og í dag ætti að vera votviðri og hiti vel yfir frostenanki. Á Norður- og N- austurlandi var að létta til en um leið herti þar frostið. í dag ætti að verða frostlaust í þeim héruðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.