Morgunblaðið - 22.03.1966, Blaðsíða 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. marz 1966
SÍMI3-11-60
mfiif/m
Volkswagen 1965 og ’66.
W—""BÍLALCICAN
rALUR P
Z2#í22
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 220 22
bílaleican
íERÐ
Daggjalð kr. 306
— pr. km kr. 3.
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstrætl 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Simi 14970
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 5ÍMAR 21190
eftir lokun slmi 40381
Rúðuþurrku-
mótorar
fyrir:
Simca Ariane
— 1000
Renault Dauphine
— R-8
— Estafette
Peugeot 404
Varahlutaverzlun
*
Jdh. Olafsson & Co.
Brautarholti 2.
Sími 1-19-84.
BOSCH
Þurrkumótorar
Brœðurnir Ormsson
Lágmúila 9- — Sími 38820.
• PESTIN
Og hér er stutt bréf um
ólyktina í borginni:
„Kæri Velvakandi.
Pestin í Reykjavík er orðin
óþolandi. Dauninn leggur nú
yfir miðborgina svo til alla
daga — og skiptir ekki lengur
máli hver vindáttinn er. Þessi
pestarbæli eru í öllum áttum.
Furðulegt er, að heilbrigðis-
eftirlitið skuli ekki láta þetta
mál til sín taka. Erlendis er
fyrir löngu búið að skera upp
herör gegn öllu slíku — og t.d.
í Bretlandi, sem frægt hefur
verið fyrir sót og óþef, er geng-
ið það hart fram í þessum mál-
um, að verksmiðjum er gefinn
ákveðinn frestur til þess að
koma lagi á sín mál, að öðrum
kosti er starfsemin stöðvuð að
tilhlutan stjórnarvalda. Þannig
hafa verksmiðj uborgirnar
hreinsað til hjá sér vegna kröfu
almennings um hreint loft.
En við, sem hingað til höfum
búið við hreint og tært loft
verðum nú að una við að vit
okkar séu fyllt af óþef. Þetta
er öfugþróun — hér verður að
taka í taumana. — Lyktnæmur.
• HÆTTULEGT
Hér er bréf um vörubíla.
Kæri Velvakandi.
Drepið var á það í bréfi til
þín nýlega, að lögreglan ætti
að taka úr umferð alla þá vöru-
bíla, sem ækju með fullfermi
af möl, grjóti eða sandi — án
þess að hafa skjólborð. Ég hef
margsinnis séð þessa stóru
flutningavagna akandi á mik-
illi ferð, bæði hér í bænum —
og úti á þjóðvegum, með full-
fermi en án skjólborða. Skapar
þetta mikla hættu fyrir önnur
farartæki á vegunum, veldur
ekki aðeins hættu af skemmd-
um, 'heldur getur það líka ver-
ið lífshættulegt fyrir þá, sem í
bílunum eru. Ég hef séð stóra
hnullunga þeytast frá þessum
flutningabílum og hef oft verið
að hugleiða hvílík mildi það er,
að slysin hafi ekki orðið fleiri
af völdum þessa kæruleysis
vörubílstjóra — en raun hefur
orðið. Lögreglan þarf að gefa
vörubílunum meiri gaum.
Sannarlega er þörf á að knýja
bílstjórana með einhverjum
ráðum til þess að hafa skjól-
borð við flutninga.
— Ferðalangur“.
• SLÆM REYNZLA
Ökumaður skrifar eftir-
farandi:
„Kæri Velvakandi.
Á sunnudagskvöldið varð ég
fyrir óhugnanlegri reynslu. Ég
var á leið í bíó laust fyrir kl.
9 í bíl mínum (Volkswagen),
er strætisvagn hafði nærri
kálað mér — tvívegis — á
Skúlagötunni. í bæði skiptin
ók ég samhjiða honum (á tvö-
faldri akbraut) er hann sveigði
skyndilega inn á mina akbraut
án tillits til þess að annar bíll
var þar fyrir. Varð ég að hemla
til þess að fá ekki ferlíkið beint
yfir mig, en ég er þess fullviss,
að stjórnandi strætisvagnsins
sá mig í bæði skiptin, en hefur
eðlilega talið, að ég mundi
fremur hemla en að láta aka
yfir mig. í skjóli þess hegðaði
strætisvagnsstjórinn sér eins og
idíót, og ég sé ekki betur jn
að hann sé hættulegur um-
hverfinu. Þessi vagn var merkt-
ur Álfheimum, númer tuttugu
og eitt. — Ökumaður.
• S-AFRÍKA
Bréf um viðskiptin við
S-Afriku:
„í dag eru liðin sex ár frá
Sharperville-morðunum, en 21.
marz 1960 höfðu Afríkumenn
safnazt saman í Sharperville í
Suður-Afríku til að mótmæla
friðsamlega' hinum illræmdu
vegabréfslögum ríkisstjórnar-
innar. Lögreglulið Verwoerds-
stjórnarinnar myrti á svívirði-
legasta hátt 69 Afríkumenn úr
hópnum en margir hlutu skot-
sár.
Ekki er úr vegi á þessum
degi að fara frekar nokkrum
orðum um Suður-Afríku. Al-
kunnugt er það ófremdar-
ástand, sem þar hefur ríkt í
mannréttindamálum síðustú ár-
in og sem hefur valdið þvi að
málefni landsins hafa stöðugt
verið á dagskrá hjá Sameinuðu
þjóðunum. Þrátt fyrir vilja-
yfirlýsingar nær allra aðila í
samtökunum um ráðstafanir,
sem ættu að duga, ef fram-
kvæmdir yrðu, til þess að koma
á frelsi og lýðræði í landinu til
handa öllum landsbúum, hefur
sorglega lítið miðað í rétta átt.
Stafar það fyrst og fremst af
linku og undandrætti við að
framkvæma vilja Allsherjar-
þingsins.
Þeir, sem bezt vita um ástand
þessara mála, telja að aðeins
utanaðkomandi aðgerðir, eins
og algert viðskiptabann, muni
geta bjargað Suður-Afríku frá
tortimingu blóðugs kynþátta-
stríðs, og megi ekki dragast
lengi að koma í framkvæmd
slíkum aðgerðum.
Viðskipti íslendinga við Suð-
ur-Afríku nema ekki hárri
fjárhæð árlega, en þau eru
stjórnarvöldum lögreglulríkis-
ins mikilsvirði, eins og állt er í
pottinn búið. Þessum viðskipt-
um eigum við að hætta og
leggja þannig okkur hlut fram
til stuðnings þeim öflum, sem
vilja leysa vandann í landinu
og koma þar með í veg ifyrir
blóðugt kynþáttastríð, er gæti
haft ófyrirsjáanlegar afleiðing-
ar, ekki eingöngu fyrir S-
Afríku heldur alla álfuna og
víðar.
21. — 3. — 1966
Einar Hannesson".
• SÖGULESTUR
„Ég er roskinn maður og
helzta dægrastytting mín á
kvöldin a.m.k., er að hlusta á
Ríkisútvarpið. Yfirleitt er ég
ánægður með það, en mér leið-
ist þessi sífellda hljómiist. Það
er hávaði, sem ég kann ekki að
meta.
Líklega er það ekki rétt, sem
ég hef heyrt ungt fólk segja,
að það láti sér ekki nægja
Ríkisútvarpið til kvöldskemmt-
unar. Þá eru bióin, kaffihúsin
og dansstaðirnir meira við þess
hæfi.
Er ekki hægt að miða efnis-
val útvarpsins á kvöldin við
óskir og hæfi aldraðs fólks. Og
þvi ekki að leita álits hlustenda
um efnisval með fyrirspurn-
um? Sögulestur er áreiðanlega
vinsæll, þó hætt sé við að vand-
fenginn verði lesari sem kemst
í nokkurn samjöfnuð við Helga
Hjörvar. En samt er vafalaust
hægt að fá sæmilega lesara
(ekki konu) og útvarpsstjóri er
bókfróður maður, og honum er
vel treystandi til að velja góðar
sögur. Af nógu er að taka, eink-
um af þýddum sögum.
Hlustandi".
• TÆKNIATRIÐI
„Kæri Velvakandi.
Ég vona að þér ljáið þessum
línum rúm í dálkum yðar. Að
mínu áliti fjalla þær um mál-
efni, sem ekki er ómerkilegra
en ýmislegt annað er þar birt-
ist. En það, sem mér liggur á
hjarta er þetta: 1 Morgunblað-
inu í dag (25. feb.) er þess get-
ið að hingað sé kominn fransk
ur kvartett í boði Ríkisútvarps-
ins, og haldi hljómleika í há-
tíðasal Háskólans mánudaginn
28. febrúar. Síðar í frásögninni
segir svo: „Þungamiðja á efnis-
skrá Parísarkvartettsins eru
allir barrokkmeistarar Evrópu
frá 17. og 18. öld. Úrval þeirra
bitist á háskólahljómleikum,
nefnilega Frakkinn Couperin,
Englendingurinn William
Young og Þjóðverjar Telemann
og Bach.“
Fyrr á árum þótti það goð-
gá hin mesta að trúa ekki því
sem „stóð á prenti“, en hvað á
ég að halda? Ef ég væri viss
um að þessir löngu liðnu meist
arar birtust í hátíðasal Háskól-
kvöld, mundi ég óðara kaupa
mér aðgöngumiða, því ég get
ekki neitað því að mér þætti
forvitnilegt að sjá þá.
Það lítur einnig út fyrir -ð
hægt sé að kaupa hina látnu
meistara í smábútum. Síðastlið
ið sumar kom ég í bókaverzlun
hér í borginni, og þar heyrði
ég konu segja við afgreiðslu-
stúlkuna: „Er nokkuð til a£
Shakespeare?“
Er þetta e.t.v. aðeins orðið
tækniatriði? Ég bara spyr.
Virðingarfyllst,
Skundi.“
• ÞJÓFNAÐUR
Hér er bréf utan af landi:
„Kæri Velvakandi.
Ég stunda kaupmennsku ut-
an Reykjavíkur. Ég skrifa sjald
an í blöð, en sé mig þó neydd-
an til þess að reyna að koma
á framfæri kvörtun, eða öllu
heldur að vekja athygli á alvar
legu atriði.
Fyrir skemmstu fékk ég fatn
aðarsendingu frá útlöndum, en
þegar kassinn barst mér í hend
ur — úr skipi — kom í ljós, að
úr honum hafði öllu verið rænt
að þremur flíkum undanskild-
um. Það færist stöðugt í vöxt,
að slíkur „tollur" sé tekinn af
vörusendingum — og þótt vör-
urnar séu þjóftryggðar bætir
sú trygging. ekki allan skaðann.
í fyrsta lagi fá viðskiptavinirn-
ir ekki þann varning, sem oft
er búið að lofa þeim — og þeir
eru í þörf fyrir. í öðru lagi
verður verzlunin af viðskipt-
um. Skipafélögin þurfa að taka
harðar á þessu. Þetta er farið
að ganga einum of langt.
— Kaupmaður."
• LAUGARDALUR
í gær kom fram sú til-
laga hjá einum af bréfriturum
Velvakanda, að íþróttahöllin i
Laugardal hlyti nafnið „Leik-
skálinn í Laugardal." Ágætt
væri að fá fleiri tillögur um
ans næstkomandi mánudags- nafngift.
Bótagreiðslur almanna-
trygginganna í Beykjavík
Mælzt er til þess, að bóta verði vijað í marzmánuði
eigi síðar en laugardagnn 26. þ.m., þar eð nauðsyn-
legt er að hefja undirbúning að útborgun bóta í
aprílmánuði fyrr en venjulega vegna páskahátíðar-
innar.
Útborgun ellilífeyrís hefst mánudaginn 4. apríl.
Tryggingastotnun ríkisins