Morgunblaðið - 22.03.1966, Síða 10
10
MORGU N BIAÐIÐ
Þriðjudagur 22. marz 1966
Frú Krag brosir til Gylfa 1». Gislasonar, ráðherra.
Pressuballsgestir dönsuðu af miklu fjöri til kl. 3:30.
einhver áhrif vitum við ekki,
en Jens Otto Krag óskaði
næsta dag, að fá keypt mál-
verk eftir Kjarval, en lista-
maðurinn átti ekkert til að
sýna honum.
Dönsku forsætisráðherra-
hjónin fóru í leið til hófsins
í stutta heimsókn til Sigurðar
Bjarnasonar, ritstjóra og Ólaf-
ar Pálsdóttur, myndhöggvara,
að Útsölum á Seltj arnarnesi.
Höfðu allir tekið sér sæti, er
gestir Pressuballsins gengu í
salinn og að háborði.
Á matseðli, hvítum silki-
borða með dönsku og íslenzku
fénalitunum var fréttatilkynn
ing frá yfirmatsveininum, sem
tilkynnti á frönsku súpu „úr
bréfakassa lesenda", víkinga-
skip undir reyktum laxasegl-
um með blandaða ávexti hafs
ins, rjúpur með góðar fréttir
og ísinn í formi Surtseyjar-
líkans með logandi í gígnum.________________„__jSpBiL ...
Var þessi ágæti matur fram Séð yfir veizlusalinn. Danskir sjón varpsmenn kvikmynda háborðið. — Ljósm.: Bragi.
Við háborðið, talið frá vinslri: Bjarni Benediktsson, forsaetisráðherra, frú Helle Virkner
Krag, Sigurður Bjarnason, veizlustjóri hófsins, frú Sigríður B jörnsdóttir, Jens Otto Krag, for-
sætisráðherra og frú Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvarL — Ljósm.: Gunnar Rúnarsson.
um heiðursgéstina sem aðra,
og að venju gantast með ís-
lenzk stjórn- og dægurmál.
Var skemmtiatriðum mjög vel
tekið.
Að lokum var dansað af
miklu fjöri við undirleik
hljómsveitarinnar Lúdó til kl.
3:30. En um nóttina bar veit-
ingahúsið gestum Víkinga-
skip með ávöxtum, er stóð
frammi á sviði.
Dönsku forsætisráðherra-
hjónin fóru þó heim fyrr,
enda höfðu þau lagt upp í ís-
landsferðina eldsnemma sama
morgun. Á sunnudagsmorgun
hafði verið áformuð Þingvalla
ferð, en vegna veðurs féll hún
niður, og óku dönsku sendi-
herrahjónin þeim nokkuð um
Reykjavík og nágrenni og var
m.a. komið að forsetasetrinu á
Bessastöðum, þar sem Páll Ás
geir Tryggvason tók á móti
þeim. Þá sátu Kraghjónin há-
degisverðarveizlu dr. Bjarna
Benediktssonar, forsætisráð-
herra í Ráðherrabústaðnum.
Síðdegis hafði Jens Otto
Krag stuttan blaðamanna-
fund í Nausti, sem skýrt er
frá annars staðar. Og að því
Framhald á bls. 23
PRESSUBALLIÐ var í Lídó á
laugardag. Var þar þéttskip-
að hús glæsilega búinna veizlu
gesta, þeirra á meðal heiðurs-
gestirnir forsætisráðherrahjón
Danmerkur, Jens Otto Krag
og frú Helle Virkner Krag,
sem höfðu gert íslenzkum
blaðamönnum þann heiður að
koma um langan veg til að
sitja hóf þeirra.
Gestirnir tóku að streyma
að kl. 7 um kvöldið og mátti
sjá að sögusagnir um kaup á
dýrindis kjólum fyrir Pressu-
ball gátu vel haft við rök að
styðjast. Anddyri og salur í
Lídó hafði verið skreytt undir
stjórn Gunnars Bjarnasonar,
leiktjaldamálara, með mál-
verkum eftir íslenzka málara,
dönskum og íslenzkUm fána-
borðum og blómaskreytingum
frá Hendrik Berndsen. Hvort
stóra málverkið eftir Kjarval
á endaveggnum beint á móti
heiðursgestunum hefur haft
Karitas Bjargmundsdóttir h afði heppnina með sér. Frú Helle
Virkner Krag dró handa henni happdrættisvinninginn, vetr-
arferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar fyrir tvo.
tvo með Gullfossi til Kaup-
mannahafnar. Hafði hún í
gær samband við Mbl. og bað
um að skila þakklæti sínu til
þeirra, sem að þessum glæsi-
lega vinningi stóðu. Tók hún
við vinningnúm úr hendi frú
Krag. Þá söng Jón Sigur-
björnsson, óperusöngvari
nokkur erlend lög og síðan
með hljómsveitarundirleik
lög úr söngleikjum eftir Jón
Múla Árnason. En að lokum
skemmti Ómar Ragnarsson
og hafði gamanmál bæði á
íslenzku og dönsku, þar sem
m.a. var fléttað inn í létt grín
borinn. Það brá þó nokkrum
skugga á annars vel heppnað
ball, að þjónusta gekk seint
og máltíðin dróst mjög á lang
inn, m.a. vegna þess óhapps að
matarlyfta úr eldhúsi í kjall-
ara upp í salinn stöðvaðist.
Formaður Blaðamannafé-
lagsins, Emil Björnsson, setti
hófið og bauð dönsku forsætis
ráðherrahjónin velkomin,
sagði m.a., að vafamál væri að
annar danskur ráðherra
hefði náð meiri vinsældum á
íslandi.. Nafnið Jens Otto
Krag væri þegar tengt menn-
ingarsögu Islendinga og ráð-
herrans yrði ætíð minnst á ís-
landi, sem forsætisráðherra
þeirrar stjórnar í Danmörku,
sem fór með völd þegar
dönsku lögin um afhendingu
handritanna voru samþykkt.
Afhenti Emil síðan Sigurði
Bjarnasyni, ritstjóra, veizlu-
stjórn.
Ræðu kvöldsins flutti Jens
Otto Krag og var vel fagnað
af veizlugestum. Er ræðan
birt í heild annars staðar í
blaðinu. En frú Helle Virkner
Krag dró í happdrætti kvölds
ins, úr númerum á aðgöngu-
miðum, og kom í ljós að vinn-
inginn hreppti Karitas Bjarn-
mundsdóttir, Álfheimum 70,
en hann er vetrarferð fyrir
PRESSUBALL