Morgunblaðið - 22.03.1966, Page 16
19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞrifSjudagur 22. marz 1966
JllírripilttM&ISril*
Súkarnó og Suharto.
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 95.00
I lausasölu kr.
17ins og kunnugt er hefur
kommúnistamálgagnið að
undanförnu flutt gróusögur
um vafasaman undirbúning
við Búrfellsvirkjun og jafn-
vel talið sig vita að leggja
þyrfti í aukinn kostnað til að
tryggja rekstur Búrfellsvirkj
unar. Allt er þetta úr lausu
lofti gripið og vísvitandi ó-
sannindi, eins og Ijóst er af
fréttatilkynningu, sem Lands
virkjun hefur sent frá sér.
Þar er á það bent, að út-
reikningar byggðir á nýjustu
lýsingum dr. Deviks, norsha
eðlisfræðingsins, sem hér hef-
ur rannsakað ísamyndanir,
sýni, að orkuskortur vegna
ísa yrði aðeins um 1% af
áætlaðri heildarorkusölu
Landsvirkjunar, en ástæða
sé til að ætla að þessir út-
reikningar séu um of varkár-
ir og orkuskorturinn verði
þeim mun minni.
Dr. Gunnar Sigurðsson, yf-
irverkfræðingur Landsvirkj-
unar, skýrir og frá því í við-
tali við Morgunblaðið, að at-
huganir Norðmannannahefðu
ekki gert annað en staðfesta
það, sem vitað var um þessi
mál hérlendis, enda hefur
ekkert óvænt fram komið í
skýrslum þeirra, gagnstætt
því sem kommúnistamálgagn-
ið hefur haldið fram .
Auðvitað hafa menn frá
upphafi gert sér grein fyrir
því, að ísamyndanir væru í
Þjórsá, og hafa virkjunar-
áætlanir að sjálfsögðu verið
við það miðaðar. Sjálfsagt
var samt talið að gera allar
þær athuganir, sem hugsan-
legt væri og tilraunir. Hafa
þær athuganir og tilraunirn-
ar einmitt staðfest, að sú
virkjunartilhögun, sem ákveð
in er, sé hin heppilegasta.
Andstæðingar stóriðjufram
kvæmda og stórvirkjunar
hafa reynt að tína til marg-
háttuð „rök.“ Einna líklegast
til árangurs fannst þeim lengi
vel að halda því fram, að
virkjunarkostnaður myndi
fara langt fram úr áætlunum,
vegna hækkandi verðlags inn
anlands. Þær fullyrðingar
féllu um sjálfa sig þegar opn-
uð voru tilboðin í virkjunina,
en 4/5 hlutar kostnaðarins
eru á föstu verði, svo að sýnt
er, að áætlanir standast full-
komlega og engin ástæða til
að ætla að virkjunarkostnað-
urinn verði hærri en upphaf-
lega var gert ráð fyrir.
Þá var gripið til ósanninda
um ísmyndanir og stanzlaust
á þeim hamrað, líklega að
undirlagi Sigurðar Thorodd-
sens, verkfræðings, sem
finnst fram hjá sér gengið,
og var svo klaufskur, þegar
hann lét fyrst frá sér heyra
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðaistræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
um þetta mál, að auglýsa að
afstaða hans byggðist á póli-
tísku mati.
Um áramótin hrakti Jakob
Gíslason raforkumálastjóri
þennan ósæmilega málflutn-
ing í ágætri grein. Sljákkaði
þá nokkuð í „Þjóðviljanum.“
En brátt var tekið til við iðj-
una á ný. En nú liggja stað-
reyndir málsins fyrir, svo að
um þær verður ekki deilt.
Hins vegar gera víst fæstir
ráð fyrir því að kommúnist-
ar virði þær fremur en sann-
leikann almennt.
Úrtölumenn munu vafa-
laust búa sér til röksemdir,
svo mikið kapp sem lagt er á
það að hindra, að íslending-
ar hefji stóriðju og stórvirkj-
anir.
RÆÐA DANSKA
FORSÆTISRÁÐ-
HERRANS
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Danmerkur, flutti
ágæta og athyglisverða ræðu
á árshátíð íslenzkra blaða-
manna síðastliðið laugardags-
kvöld. Bar ræða hans öll vott
einlægum hlýhug og góðum
skilningi og velvild í garð ís-
lands. — Forsætisráðherrann
kvaðst líta á heimboðið hing-
að til lands sem nýja stað-
festingu á hinum nánu tengsl-
um, sem eru milli íslands og
Danmerkur. Hann kvaðst
vilja nota tæikfærið til þess
að hylla íslenzku þjóðina,
vegna þess hvernig hún hefði
komið til móts við Dani og
sýnt viija á að draga fjöður
yfir liðna atburði.
íslendingar þakka hinum
danska forsætisráðherra þessi
drengilegu og hreinskilnis-
legu ummæli. Orð hans um
hin dýrmætu menningaráhrif,
sem á öllum tímum hafa bor-
izt milli Danmerkur og ís-
lands, eru íslenzku þjóðinni
einnig mikils virði. Hann
kvað íslenzku handritin vera
ímynd einhvers þess dýrmæt-
asta, sem Dönum hefðu bor-
izt. Þau hefðu opnað þeim
heim íslendingasagna, og af
þeim hefðu Danir öðlazt
þekkingu á frelsishugmynd-
um Norðurlandabúa til forna,
og sameiginlegum hugsunar-
hætti þeirra.
íslendingar taka einnig
undir þau ummæli Jens Otto
Krags, að þróun hinnar góðu
og nánu sambúðar milli ís-
lenzku og dönsku þjóðarinn-
ar muni halda áfram, og sam
skiptin milli þessara þjóða
verða æ nánari. íslendingar
líta á Dani sem nánustu vina-
þjóð sína og hafa einlægan á-
í Indó-
nesíu
EKKI er, allt sem sýnist í
Indónesíu þessa dagana. Eftir
októberbyltinguna á síðasta ári,
kvisaðist það út í Djakarta, að
Súkarnó væri annaðhvort dauð-
ur, alvarlega veikur, í fangelsi
eða flúinn. En hann kom fram
á sjónarsviðið skömmu síðar og
í síðasta mánuði var hann kom-
inn í essið sitt, farinn að egfa
út stórorðar yfirlýsingar og allt
virtist vera komið í sama horf
og áður. í síðustu viku ýttu svo
hershöfðingjar landsins Súkamó
til hliðar og tóku öll völd í sínair
hendur með samþykki hans.
Hershöfðingjarnir höfðu sann-
arlega yfir ýmsu að kvarta.
Efnahagur landsins var og er í
mesta ólestri, kommúnistar höfðu
verið settir inn í stjórnina og
Súkarnó hafði vikið Abdul
Nasution. úr stjórninni, en hann
er aðalleiðtogi and-kommúnista
í Indónesíu. Það var Nasution
sem stjórnaði aðförum að bylt-
ingarmönnunum í október sl.
Þrátt fyrir brottvikningu Nasuti-
ons, héldu harshöfðingjarnir að
sér höndum. Stúdentar og and-
kommúnistar stofnuðu aftur á
móti til óeirða til að mótmæla
gerðum stjórnarinnar. Stúdent-
arnir brutust inn í opiniberar
byggingar og einnig inn í kín-
verska sendiráðið, en herinn lét
þá að mestu afskiptalausa. Þetta
afskiptaleysi kom heiminum ein-
kennilega fyrir sjónir, en nú hef-
ur komið á daginn, að herinn
undir stjórn Suhartos, var í raun
inni hlynntur aðgerðum stúd-
entanna. Óeirðirnar voru liður í
vel útreiknaðri áætlun hersins
um að ná völdunum í sínar hend-
ur, en alilt skyldi fara löglega
fram. Þegar óeirðirnar höfðu
skapað hið mesta öngþveiti í
Djakarta, lagði herinn úrslita-
kostina fyrir Súkarnó: annað-
hvort að víkja öilum kommún-
istum úr stjórninni og láta
handtaka dr. Subandrio, eða láta
öll völd í hendur hersins. Af
tvennu illu valdi Súkarnó síðari
kostinn, en krafðist þess að
verða áfram forseti landsins.
Hersihöfðingjarnir höfðu í raun-
inni aldrei ætiað að setja
Súkarnó „alveg af“, þeir vildu
hafa goðin áfram á stalli og láta
þannig líta út sem þeir væru að-
eins að vernda stjórnarskrána
með því að taka völdin.
Maðurinn, sem stóð á bak við
Iþessi átakalausu valdaskipti var
Suharto, sem er 4ö ára gamall.
Hann er hershöfðingi og kom.
huga á að treysta sem bezt
gömul og ný tengsli milli þjóð
anna. Þess vegna taka allir
íslendingar undir lokaorð for
sætisráðherrans, er hann
mælti á þessa leið:
„Á umbrotatímum finna
menn betur til ættartengsla.
Ef til vill er sannleikurinn sá,
að íslendingar og Danir
standa hvorir öðrum nær en
nokkru sinni fyrr. Við skul-
um styrkja þessi tengsl,
ganga til móts við sameigin-
lega framtíð Norðurlanda-
þjóðanna og annarra Evrópu-
þjóða, og sameiginlegt tak-
mark okkar skal vera aukin
verzlun landa á milli, vöxtur
menningarinnar oe friður
landa á milli“.
fyrst fram á sjónarsviðið er hin
misheppnaða bylting var gerð í
október sl. Suharto hefur verið
forsetanum tryggur þjónn, þó
hann hafi ekki alltaf verið fylgj-
andi hinni vinstrisinnuðu stefnu
Súkarnós. Ekki varð það til
að bæta samkomulag þessara
manna, er Suharto sá lík sex
and-kommúnistisikra hershöfð-
ingja, sem myrtir höfðu verið í
októberbyltingunni.
Eins og áður er sagt, veik
Súkarnó Nasution úr stjórn
Dr. Subandrio
sinni 21. febrúar, er forsetinn
endurskipulagði hana. Á þeim
tíma setti Súkarnó ýmsa komm-
únista inn í stjórnina og einnig
höfuðleiðtoga múhameðstrúair-
manna, Undanfarnar vikur hef-
ur Suharto setið á leyniilegum
fundum með Nasution og öðrum
and-kommúnistiskum hershöfð-
ingjum og er talið að Nasution
UMMÆLI PÉT-
URS OTTESENS
Árið 1905 var hin fræga
bændaför farin, og hefur
bændum að vonum löngum
gramist, að sú för skyldi við
þá kennd. En sagan endur-
tekur sig. Nú hafa nokkrir
menrt gert bændastéttinni
þann grikk að samþykkja á
búnaðarþingi andmæli gegn
stóriðju. Um það sagði Pétur
Ottesen, stjórnarmaður -Bún-
aðarfélags íslands:
„Ég tel alveg fráleitt að
bændastétt þessa lands geri
nokkuð til þess að hamla á
móti aukinni fjöibreytni í at-
hafi átt hugmyndina að leggja
úrslitakostina fyrir Súkarnó.
Súkarnó, sem oftsinnis hafði
gefið út stórorðar stríðsyfirlýs-
ingar vegna uppþotanna, og sagt
m. a. að hann myndi ekki „hopa
um tommu, ekki einu sinni
millimetra*1 varð að gefa sig.
Fyrsta verkefni Suhartos var
að banna „Partai Kommunis
Indonesia“. Komimúnistaflokkur-
inn í Indónesíu er sá stærsti ut-
an Kína og Sovétríkjanna. Stjórrx
Indónesíu hefur opinberlega til-
kynnt, að í októberbyltingunni
hafi 87 þúsund meðlimir flokks-
ins verið dreppnir, en ýmsar
aðrar heimiildir telja að tala
þessi sé allt of lág og að meira
en 100 þúsund hafi verið drepnir.
Stúdentaóeirðunum var fyrst
og fremst stefnt gegn hægri
hönd Súkarnós s. s. dr. Suibandr-
io. Suibandirio hefur ávallt verið
einlægur talsmaður Sukarnos og
hringsnúist með honum á hverju
sem hefur gengið. Andkommún-
istarnir hafa haldið >ví fram, að
það hafi einkum verið fyrir til-
stilli Subandrios, að kommún-
istarnir voru teknir inn í stjórn-
ina. Hann er sagður hafa kapp-
samlega unnið að því að styrkja
stjórnmálaleg tengsl við Peking.
Því hefur einnig verið haldið
fram, að þegar Indónesía hefur
sent fulltrúa á ráðstefnur er-
lendis, hafi Subandrio ávalit séð
svo um, að kommúnistar eða
menn hlynntiir kommúnistum
væru sendir.
Eins og fram kom í úrslita-
kostunum, sem hershöfðingjarnir
lögðu fyrir Súkarnó höfðu þeir
fullan hug á að fjarlægja
Subandrio. Strax og Suharto
hafði tekið við völdum, voru
Subandrio og 16 aðrir ráðherrar
settir í stofufangelsi í höill
Súkarnós í Bogar. Stúdentarnir
tóku þetta ílla upp og heimtuðu
að Subandrio yrði tafarlaust
dreginn fyrir dómstóla. Þeir
álitu að Subandrio væri enn í
aðstöðu til að undirbúa gagn-
Framhald á bls. 25
vinnulífi þjóðarinnar. Engum
ríður meira á því en bænd-
um að kaupgeta geti ríkt í
landinu. Þeir hafi í stórvax-
andi mæli vöru að selja, og
meðan erfiðleikar eru á vöru-
sölu til annarra landa, þá er
það undirstaða vaxandi þró-
unar í landbúnaðinum, að
fyrir hendi sé jafnan örugg
kaupgeta og sem tryggast og
fjölbreyttast atvinnulíf.
Þær stórframkvæmdir, sem
rætt er um ,verða án efa rík-
ur þáttur í atvinnuöryggi
landsins“.
Færi betur að þessi andi
Péturs Ottesens, andi fram-
sýni og stórhugs, fengi að
ríkja í samtökum bænda, en
ekki hugsunarháttur úrtölu-
og afturhaldsmanna.
UNDIRBÚNINGUR
B ÚRFELLS VIRKJUNAR