Morgunblaðið - 22.03.1966, Qupperneq 21
"Þriðjudagur 22. marz 1966
MORGU NBLAÐIÐ
21
Herflutningar
beggja vegna
landamæra Guineu
og Fílabeinsstrandarinnar
Dakar, 21. marz — NTB
Haft er eftir áreiðanlegum
Gin- og
klaufaveikin
breiðist út
Kaupmannahöfn, 2il. marz
— NTB
J Gin- og klaufaveikin í
Danmörku hefur nú breiðzt
I út í átt til Hróarskeldu.
Sl. laugardagskvöld fannst
I sjiúkdómstilfelli á bænum
Vindinga í nágrenni Hróars-
keldu og hefur öllum húsdýr-
um á bænum, 19 að tölu, ver-
| ið slátrað. Dyralæknar hafa
lýst svæðið hættusvæði og
I/ bannað er að flytja hvers
jj konar landibúnaðarafurðir
I þaðan.
heimildum í Dakar, að öflugur
her hafi verið sendur til landa-
mæra Fílabeinsstrandarinnar —
og hafi þeir „forsetarnir“ Sekou
Toure og Kwame Nkrumah,
kannað liðið í gær, Hinum meg-
in landamæranna er einnig her
viðbúinn sendur þangað af for-
seta Fílabeinsstrandarinnar Felix
Houphouet Boigny. Segir í frétt
frá Monroviu í Liberiu, að í þeim
her sé m.a. ein frönsk herdeild.
Herflutningar þessir til landa-
mæranna munu hafa farið fram
í síðustu viku. Þá tilkynnti
Sekou Toure, að hann mundi
ekki hika við að senda her inn
í Ghana ef með þyrfti og sagði
að þjóð Guineu væri viðþúin
átökum.
Her Guineu telur, að sögn,
7.800 manns, þar af eru 4.300
manns í landher, flugher og flota
— hitt eru lögreglulið og ýmsar
sérdeildir, er hafa hlotið þjálfun
í vopnaburði.
I»au sem sáu um uppsetningu myndannaá t.v. Ingólfur Mar-
geirsson, Margrét Reykdal, Sverrir Haraldsson, listmálari, Hrafn-
hildur Stefánsdóttir og Bjarki Zófaniíasson.
Múlverkasýning
nemenda í
LISTAFÉLAG Menntaskólans
gengist i þessari viku fyrir „Lista
viku“, þar sem á hverju kvöldi
verður eitthvað á dagskrá, sem
varðar listir. Einn liður í þess-
ari viku er sýning á myndlist
nemenda, en þar sýna um 20
menntaskólanemar olíumálverk,
vatnslitamyndir, skúlptúr og
teikningar, en í vetur hefur lista
íélagið gengizt fyrir teikninám-
skeiðum og hefur Sverrir Har-
aldsson listmálari leiðbeint á
þeim. Ennfremur er á sýning-
unni sýnishorn af starfsemj Ljós
myndaklúbbs Menntaskólans, og
eru þar ljósmyndir eftir þrjá
klúbbfélaga.
Sýning þessi var opnuð í gær-
kvöldi fyrir nemendur skólans,
en sýningin verður opnuð al-
menningi kl. 20 í kvöld. Sýn- ,
MEISTARA Jóns Vídalíns var
minnzt með gúðsþjónustu í
öllum kirkjum landsins sl.
sunnudag, en 300 ár eru liðin
frá fæðingu hins mikla kenni-
manns og ræðuskörungs. Þá
var minningarathöfn í hátíða-
sal Háskólans síðar um dag-
inn. Flutti dr. Steingrímur J.
Þorsteinsson prófessor þar er
indi um Vídalín og guðfræði-
stúdentar sungu undir stjórn
dr. Róberts A. Ottóssonar. Kl.
9 um kvöldið var haldin há-
tíð í Skálholtskirkju, sem
helguð var minningu Vída-
lins.
Biskup íslands, hr. Sigur-
björn Einarsson, endurvígði
Garðakirkju á Álftanesi þenn
an dag í tilefni þriggja aldar
minningar meistarans.
Mikið fjölmenni var við
enduivígslu Garðakirkju á
Álftanesi. Voru þar viðstadd-
ir éllefu prestar Kjalarness-
prófastsdæmis, auk fyrrver-
andi biskups, Ásmundar Guð-
mundssonar. Gengu prestar og
biskupar í skrúðgöngu til
kirkjunnar ásamt sóknar-
nefnd. Vígsluvottar voru sr.
Garðar Þorsteinsson sóknar-
presturinn, sr. Björn Jónsson
úr Keflavík, sr. Kristinn Ste-
fánsson og sr. Bjarni Sigurðs-
Garöakirkja á Álftanesi
Meistara Jóns minnzt um land
allt á sunnudag
Garðakirkja d Alftanesi endurvígð í til-
efni þriggja aldar minningar hans
son Mosfelli. Fyrir altari þjón
uðu biskupinn og sr. Garðar
Þorsteinsson. Eftir vígsluat-
höfnina hélt formaður sóknar-
nefndar, Óttar Proppé, ræðu í
félagsheimili sveitarinnar á
Garðaholti, og rakti bygginga
sögu kirkjunnar.
Garðakirkja á Álftanesi var
byggð árið 1879, að tilhlutan
sr. Þórarins Böðvarssonar. Var
hún þá með veglegustu kirkj-
um á landinu. Árið 1914 var
hún síðan lögð niður og stóð
ónotuð og vanrækt í 52 ár.
1953 hóf kvenfélag sveitarinn
ar endurbyggingu og viðreisn
kirkjunnar og 1960 var sér-
stök sókn mynduð þarna að
nýju og leit sóknarnefndin á
það, sem höfuðverkefni sitt að
endurreisa kirkjuna. Arki-
tekt við endurbygginguna var
Ragnar Emilsson og kirkju-
smiður Sigurlinni Pétursson.
Ragnar Emilsson arkitekt
teiknaði einnig altari, skírn-
arfont og predikunarstól og
smíðaði þau Friðgeir Krist-
jánsson Selfossi, en Ríkarður
Jónsson myndhöggvari skar
þau út. Er predikunarstóllinn
helgaður minningu meistara
Jón Vídalíns og setning úr
einni ræðu hans skorinn í
hann.
Á hátíðinni í Skálholts-
kirkju flutti dr. Steingrímur
J. Þorsteinsson erindi um Jón
Vídalín. Biskupinn las upp úr
verkum hans og dr. Róbert A.
Ottósson stjórnaði söng Skál-
holtskórsins og guðfræðistúd
enta, forsöngvari var Kristinn
Hallsson. Þá var almennur
söngur og bænagjörð, sem
sóknarpresturinn í Skálholti,
sr. Guðmundur Ó. Ólafsson,
annaðist.
Þess má geta, að dr. Stein-
grímur J. Þorsteinsson pró-
fessor, flutti í útvarp erindi í
tveimur hlutum um líf og
starf meistara Jóns. Fyrri hlut
inn var fluttur á sunnudags-
kvöld og nefndist Ævi og At-
hafnir. Seinni hlutinn var
fluttur í gærkvöldi, og nefnd
ist Kennimaðurinn.
Frá athöfninni í Garðakirkju
ingin mun a.m.k. verða opin dag
lega frá því kl. 20—22.
UPP ÚR hádeginu snjóaði
víða suðvestan til á landinu,
og var það lægðin út af Faxa-
flóa, sem því olli. Var gert
ráð fyrir að hún hi-eyfðist
austur yfir landið í nótt, svo
að í dag yrði vestlæg átt og
bjart með köflum en frost um
allt land eins og í gær.