Morgunblaðið - 22.03.1966, Page 23

Morgunblaðið - 22.03.1966, Page 23
Þriðjuctagur 95. marz 1966 MORCUNBLAÐID 23 Guðmundur Sæm undsson húsusmíðameistari, kveðja HANN VAR fæddur að Nikulás- arhúsum í Fljótshlíð 10. -febrúar 1891, og var því liðlega 75 ára er hann lézt. Guðmundur ólst upp í foreldrahúsum, var hann næst yngstur af stórum barna- hóp og mun hafa þurft að taka til hendi strax og þroski leyfði. Ættarfylgja þessa fólks var mik il handlægni, dugnaður og lífs- gleði og fór Guðmundur ekki var hluta af henni. Guðmundur gift ist heitkonu sinni Guðbjörgu Sveinsdóttur frá Grjótá í Fljóts- hlíð og voru þau um tíma á Lágafelli í Mosfellssveit, en síð- an fluttu þau til Reykjavíkur. Þar stundaði hann aðallega tré- smíði og vann mest að húsabygg- ingum. En sveitabúskapurinn átti hug hans allan og fluttu þau nú að Grímsstöðum í Landeyjum. Þar stundaði hann trésmíðar eftir því sem tími vannst til frá bú- skapnum. Eftir átta ára dvöl þar fluttust þau búferlum að Eyði-Sandvík í Flóa. Húsakostur var þar mjög lélegur, en Guð- mundur byggði þar snoturt íbúð arhús og reisti peningshús. Komu þau hjón þar upp góðum bú- stofni og vegnaði vel með sinn stóra barnahóp, fimm syni og fimm dætur. ' Þar andaðist Guðbjörg og var hennar sárst saknað, enda var hún hin ágætasta kona. Guðmundur bjó áfram og kom sér nú vel hve barngóður hann var og umhyggjusamur heimilis- faðir. Síðar giftist hann eftirlif- andi konu sinni Margréti Krist- jánsdóttur frá Hnífsdal. Þessi unga kona tók nú að sér vanda samt starf, þar sem var uppeldi barna Guðmundar, þeirra er ung voru, en leysti það svo vel af hendi að fá dæmi munu um slíkt. Bjuggu þau nokkur ár í Eyði- Sandvík, en fluttu síðan til Reykjavíkur. Þá bjuggu þau um skeið í Kópavogi, en síðast að Þórsgötu 21 í Reykjavík. ' Þau eignuðust fjórar dætur. Guðmundur vann við smíðar eft ir að hann hætti búskap. Síðustu árin vann hann í Landssmiðj- unni. Heilsa hans var nú tekin að bila og þurfti hann að gang- ast undir marga uppskurði og dvelja á sjúkrahúsum lengri og skemmri tíma. Öllu þessu tók hann æðrulaust og með þeirri karlmennsku, sem honum var svo eiginleg. Hann andaðist á sjúkrahúsi Hvítabandsins aðfara nótt 15. marz sl. 'Fyrir handan vetrarkvöldin sé ég glampa á sólartjöldin. Mikla drottning láðs og lagar ljóssins móðir skin mér háttl Kom að nýju úr austurátt. Um mér, Brjóttu rökkurvöldin. (E. Ben.) Ég votta eftirlifandi konu hans, börnum, systkinum og öðr um ástvinum mína innilegustu samúð. Ásgeir Guðmundsson. Xil mlnnlngar um Guðmund Sæmundsson frá vinkonu hans og frænku. Nú hér cr liðinn dagur dáðaríkur, við drjúpum höfði klökk, er honum lýkur. Og minningarnar milt um hugann streyma, þau minjagull, sem ávallt munum geyma. En drengur góður: er þitt aðalsmerki. Það ávallt sýndir þú, í hverju verki. Og listræn hönd þín lék í löngu starfi, að liðnum degi skilar dýrum arfi. Þín ástúð sönn í hlýjum heimaranni, og höfðingslund, var rík hjá sæmdarmanni. En ástvinirnir áttu hlutinn stærsta, í elsku þinni, um samfylgd fagra og glæsta. Nú vinir þakka þér á kveðjudegi, og þjóðin blessar störf, sem gleymast eigi. í þínum dáðum, þar fór allt að vonum, því þú varst einn af íslands traustustu sonum. Sv. Sv. —Alþingi Framhald af bls. 8 á hendur Seðlabankans. Hér væri ekki rétt á mál- um haldið. Stöð ugt væri að færa verkefni Seðlabankans lengra en ætlast hefði verið til í upphafi. Nauð- synlegt væri að að skilja hlut- verk hans sem mest frá hlutverki viðsjripta- bankanna. Heppilegra væri einn ig að byggja þannig upp að stofnlánasjóðirnir yrðu sem mest aðgreindir frá viðskiptabönkun- um. Bjami Benediktsson forsætis- ráðherra, sagði að tillögur þær er fram hefðu komið hjá Ey- steini Jónssyni væru athyglisverð ar, og bæri að kanna þær í nefnd. Vék ráðherra síðan að ræðu Lúðvíks Jósefssonar og sagði, að ekki væri til þess ætlast að Seðlabankinn færi að blanda sér í einstakar lánveitingar. Meg Emil Björnsson, formaður B1 aðamannafélagsins og frú Álf- heiður taka á móti Jens Otto Krag forsætisráðherra í Lídó. — Pressuball Framhald af bls. 10 búnu hittu forsætisráðherra- hjónin blaðamenn og leikara niðri i Nausti í boði Gylfa Þ. Gíslasonar, sem gegnir utan- ríkisráðherrastörfum. Eftir að hafa setið kvöldverðarboð hjá sendiherra Dana í Reykja vík, voru þau við sýningu á Gullna hliðinu í Þjóðleikhús- inu. Kvaðst leikkonan Helle Virkner hafa haft af því mikla ánægju, en hún hafði búið sig undir með því að lesa leikritið á dönsku. í gærmorgun kl. 8 héldu þessir góðu gestir, Jens Otto Krag og frú Helle Virkner Krag til Kaupmannahafnar með Gullfaxa Flugfélags ís lands. inbreyting frumvarpsins væri sú, að Framkæmdasjóður fengi ekki að lána einstaklingum og fyrir- tækjum. Um málefni Fram- kvæmdasjóðs mundi fjalla til þess kjörin sjóðsstjórn og mundi hún taka ákvarðanir um lán- veitingar, en ekki Seðlabankinn Samkvæmt frumvarpinu ætti öl-l lánveiting til fjárfestingasjóð- anna að fara beint um þeirra hendur, Framkvæmdasjóður ætti að keppa við þá, að svo miklu leyti sem væri innan við verk- svið hvers um sig. Ráðherra sagði að benda mætti á vegna þess er fram hefði komið í ræðu Eysteins Jónssonar, að til væri Ferðamálasjóður sem hefði það hlutverk að lána til ferðamála og gististaða. Hitt gæti verið spurning hvort menn vildu hafa heimild til að veita úr Fram- kvæmdasjóði lán til þeirra, er engin fjárfestingarsjóður næði til. Hannibal Valdimarsson (K) tók m./jg undir það er fram hafði komið í ræðu Lúðvíks Jós- efssonar og sagði það ranga stefnu að færa ýmsa þætti við- skiptamála yfir til Seðlabankans. Að lokum tóku svo aftur til máls Lúðvík Jósefsson og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, en síðan var málinu vísað til annarrar umræðu og fjárhags- nefndar. Randver Þorláksson í hlutverki Argans. — ímyndunarv. Framhald af bls. 17. ar án alltof mikils tillits til hversdagslegs raunsæis, enda er það 'iingu viðurkennd staðreynd að hinir klassísku gamanleikir Moliéres, Holbergs og sporgöngu- manna þeirra henta bezt leik- glöðu skólafólki, sem ekki hefur til að bera reynslu eða tækni þjálfaðra leikara. Eins og kunnugt er, ber Arg- an hinn ímyndunarveiki hita og þunga dagsins í leiknum, og var hann í góðum höndum. Randvers Þorlákssonar úr fjórða bekk. Hann skapaði merkilega húg- tæka og heilsteypta manngerð sem vakti mikla kátínu, enda þótt röddin brygðist endrum og eins. Framganga hans og lát- bragð var með ágætum, skop- legt og hnitmiðað. Svipað má segja um túlkun Rannveigar Jóhannsdóttur úr fjórða bekk á öðru aðalhlut- verki leiksins, Toinette vinn- konu. Leikur hennar var léttur, kankvís og yfirleitt öruggur, og framsögn hennar var bæði skýr og hljómmikil. Bryndís Guðbjartsdóttir úr fjórða bekk lék Béline, hina kaldrifjuðu seinni konu Argans, og skilaði henni þokkalega, þó ekki tækist henni að sýna inn- rætið með sannfærandi hætti. Hins vegar tókst Ingibjörgu Jó- hannsdóttur úr fjórða að bregða upp hugnæmri mynd af hinni góðu og hjartahreinu Angelique, dóttur Argans, enda stendur sú kvengerð væntanlega nær hjarta ungra stúlkna en hin kald rifjaða norn. Hjá báðum þessum leikendum spillti upplestrartónn sums staðar framsögninni. Af öðrum leikendum er sér- stök ástæða til að nefna tvo sveina úr þriðja bekk, þá Stefán Unnsteinsson og Ómar Valdi- marsson, sem báðir brugðu upp skemmtilegum myndum af þeim Diafoirus-feðguim. Stefán lék Diafoirus eldra með sérkenni- legu fasi og góðum raddblæ sem hæfði hlutverkinu vel, en Ómar skapaði kostulega og frumlega marmgerð úr aulabárðinum Tóm- asi, verulega hnyttilega mann- lýsingu. Ásbjörn R. Jóhánnesson (ir fjórða bekk vakti ennfremur at- hygli fyrir örugga framkomu og skýra framsögn í hlutverki Bér- aldes, bróður Argans, en hann átti eins og fleiri leikendur dá- lítið erfitt með hendurnar á sér. Ung telpa, Sigurborg Matt- híasdóttir, lék Loison litlu dóttur Argans á skemmtilegan hátt. Aðrir leikendur voru: Kristj- án Karlsson úr fjórða bekk (Cléante), Elías Ólafsson úr öðrum bekk (Purgon), Flosi Kristjánsson úr öðrum bekk (Fleurant) og Sigurður Tómas- son úr þriðja bekk (Bonnefoy). Flautuleikararar voru Guðrún Markúsdóttir úr þriðja bekk, Aðalheiður Vilhjálmsdóttir og Þórhildur Blöndal, báðar úr fjórða bekk. Píanóleikari var Marta Ólafsdóttir úr þriðja bekk. Leikmyndina, sem bæði var smekkleg og stílhrein, gerði Þor- valdur Jónsson, en sönglag í öðrum þætti samdi Jón S. Jóns- son. Leikendum, leikstjóra og leik- tjaldamálara var innilega fagnað í leikslok og barst þeim fýöldi blómvanda. Þýðanda er ekki get- ið í leikskrá, hvernig sem á því stendur. Sigurður A. Magnússon. Vantrauststill- aga og útvarps* umræður FJÓRIR þingmenn Framsóknar- flokksins og kommúnista lögðu í gær fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina. Flutningsmenn eru: Eysteinn Jónsson, Lúðvík Lækkoðir innflutningstollar nf húsum og húsnhlutnm f GÆR var lagt fram á Alþingi' stjórnarfrumvarp um breytingu á tollskrá og fl. Kemur m.a. eft- irfarandi fram í greinargerð frumvarpsins: Eins og opinber- lega hefur verið tilkynnt, hefur ríkisstjórnin ákveðið að beita sér fyrir lækkun á innflutningstoll- um af húsum og húshlutum. Toll ar af húsum og húshlutum eru nú samkvæmt tollskrárlögum ýmist 50% eða 60%, eftir því, hvort um er að ræða hús úr járni og stáli eða timbri. Tollur af byggingavörum er ýmist 35%, 40% eða 50%, ef um er að ræða vörur, sem einnig eru framleidd ar hér í landinu, svo sem sam- sett gler, saumur og fleira. Þeg- ar tillit er tekið til þessa, þótti ekki rétt að fara með hinn al- menna toll af húsum og húshlut- um neðar en í 40%, þar eð óeðli- legt þykir að fullunnin vara sé lægra tolluð, heldur en efnivaran til framleiðslu hennar. Er því á þessu stigi gert ráð fyrir, að toll- ur af húsum og húshlutum verði lækkaður í 40%. Þá er lagt til í frumvarpinu, að tollur af sem- enti lækki úr 35% í 20%. í frum- varpinu er einnig að finna nokkr ar tæknilegar leiðréttingar og staðfestingar á þegar gerðum úr- skurðum. Jósefsson, Ólafur Jóhannesson og Hannibal Valdemarsson. Gert er ráð fyrir að útvarpsumræður fari fram um vantraustið nú í vikulokin eða í byrjun næstu viku. Þess má geta, að Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn höfðu fyrir síðustu helgi borið fram sk um, að útvarpsumræða færi fram í neðri deild við fyrstu umræðu frumvarps um staðfest- ingu á samningi um byggingu álverksmiðju. Er auðséð, að sú ákvörðun stjórnarflokkanna hef- ur orðið tilefni þess, að stjórnar andstæðingar flytja nú van- trauststillögu og óska útvarps- umræðna um hana. Veðurblíða í Vík VEÐURBLÍÐA hefur verið hér undanfarna daga með töluverðri rigningu annað kastið. Allur snjór er horfinn nema í ein- staka fannstæðum. Klaka er far- ið að leysa úr jörð, en hann var með meira móti og eru vegir farnir að þyngjast. Á Mýrdals- sandi var allmikið leysingarvatn í gær og hefur grafið talsvert úr veginum þar, en hann hefur þó hvergi lokazt og er leiðin til Kirkjubæjarklausturs ágætlega fær. — Sigþór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.