Morgunblaðið - 27.03.1966, Qupperneq 28
28
MORGUNBLADIÐ
Sunnudagur 27. marz 1966
SUZANNE EBEL:
ELTINGALEIKUR
Hann reyndist hafa á réttu að
standa. Við fórum hvort til síns
húsbónda og báðum um einnar
viku sjúkraleyfi. Og í heimi, sem
ber virðingu fyrir magaveiki,
taugaslappelsi og andlegri á-
reynslu, við vinnu, sem Kaninn
heldur fram, með nokkurri
hreykni, að drepi menn fimm-
tuga, urðu okkur engin vandræði
úr því að fá leyfið. Og húsbóndi
minn var svo áhyggjufullur, að
ég sárskammaðist mín, rétt sem
snöggvast.
En ég hafði gaman af að aka
út í sveit, á þeim tíma, sem ég
hefði átt að vera í skrifstofunni.
Við ókum til Banibury siðdegis
í indælasta vetrarveðri. Banibury
var viðkunnanlega líflegur stað-
ur með glæsilega búðarglugga
og við fengum inni í gistihiúsi
þar, sem var hálfgamalt og hálf-
nýtt.
Við tókum upp dótið okkar,
fengum okkur tebolla og athug-
uðum síðan vandlega kortið yfir
nágrennið.
— Við skulum nú fyrst finna,
hvar þessi staður er. >að er eins
gott að vera ekki áttaviltur, sagði
Rod, þar sem hann sat við arin-
inn í salnum með glerhála gólf-
inu.
— Gott og vel.
— Stökktu ekki svona upp.
Við förum eftir eina eða tvœr
mínútur. Það er rétt eins og þú
vildir láta hleypa í þig raf-
straumi við þvottaskálina.
Þessi hrottalega gamansemi
kom illa við mig. Þetta var eng-
inn barnaleikur, sem við vorum
að fást við. En samt var það rétt
eins og þegar menn eru að leita
að fjársjóðum, þegar við ókum
eftir aðalgötunni fram hjá rauð-
leitu húsunum.
□---------------------------□
13
□—--------------------------n
Við fórum gegnum þorpið
Aynhoe, og Rod athugaði vand-
lega kortið, sem lá á hnjánum
á honum. Eftir að hafa farið fyr-
ir ein tvö eða þrjú horn, sáum
við heljarmikið járnhlið.
Þetta var reisulegt gamalt hús
með forskála og fallegum lín-
um eins og mörg hús frá þeim
tíma. Grasfletirnir voru vel hirt
ir, og allt húsið ríkmannlegt,
með sedrustrjám milli grasbal-
anna. Og húsið var þegar allt
uppljómað.
— Nú ætlar það að fara að
VOLKSWACEN
Hér á landi er Volkswagen tvímælalaust
vinsælasti, eftirsóttasti og mest seldi bíll-
inn, enda er hann vandaður og sígildur
bíll, en ekkert tízkufyrirbæri. Volkswagen
er því örugg fjórfesting og í hærra end-
ursöluverði en nokkur annar bill.
Sjólfstæð sneril-fjöðrun þ hverju hjóli
skiptir vagnþunganum réttilega ó öxla
og legur.
Hjólin gripa betur í veginn og veita
góða spyrnu við erfiðustu aðstæður, i
snjó, aur, sandi eða leðju.
Kraftur aflhjólanna er þvl fullnýttur.
--------------- ® -------------------
Komið, skoðið og reynið Volkswagen.
HEILDVERZLUNIN
HEKLA hf
Sími'
2/240
Laugavegi
170-172
bera á borð, sagði Rod. — Við
skulum flýta okkur heim og búa
okkur uppá.
Klukkan var um sjö þegar við
komum aftur til Goldenhurst
Court. Það var straumur af bíl-
um á undan okkur, og stígur-
inn var svo yfirfullur, að þetta
var eins og útiskemmtun að sum
arlagi. Þetta var allt afskaplega
hátíðlegt. Ég var í nýjum kjól,
sem ég hafði keypt vegna ein-
hvers boðs fyrir viðskiptamenn,
síðum og úr svörtu flaueli og ég
hafði látið setja upp á mér hár-
ið. Ég hafði líka notað nœstum
heilt glas af ilmvatni og ákveðið
að vera með herðaslagið mitt úr
minkaskinni.
Þegar Rod sá mig, kinkaði
hann kolli. Hvort þetta þýddi, að
ég liti vel út, en þetta væri bara
klæðaburðurinn, sem hann bygg
ist við af stúlku eins og mér,
sagði hann ekkert um.
Við snerum bílnum inn á braut
ina að húsinu, lögðum honum
við hliðina á öðrum bílum og
gengum hægt að aðaldyrunum,
sem fólkið streymdi inn um. All-
ir voru vel búnir. Ég var hissa
á sveitafólki — ég sem bjó sjálf
í einu herbergi í Kensington.
Þarna var það daglega í reið-
fötum og allskonar kumaraleg-
um vaðmálsfötum, en svo var
það á einni svipstundu komið í
fínustu samkvæmisföt. Og stúlk-
urnar voru líka með blómlegan
hörundslit. En raddirnar í þeim
komu mér til að hrökkva í kút.
Enginn veitti okkur neina
minnsfcu eftirtekt. Við slangruð-
um inn í stóran sal með viðar-
þiljum, þar sem hljómsveit frá
Jamaica lék viðeigandi tónlist.
— Kampavín? sagði Rod og gekk
yfir að næsta skenkilborði.
Ég settist niður og leit í íkring
um mig. Klæðaburður minn
gerði mig ósýnilega — ég leit
út alveg eins og allar hinar. Og
tvö hundruð manna samkvæmi
var of fjölmennt til þess, að hús-
bændurnir tækju eftir manni,
sagði ég við sjálfa mig.
— Það er naumast þetta er
fínt hjá Jock Eastman! sagði ein
unglingsstúlkan með rödd, sem
fór í taugarnar á mér, og stanz-
aði við leigubekkinn, sem ég sat
á, til þess að ná sér í vindling.
— Euphrate hefur aldrei fyrr
haldið veizlu.
— Hver í ósköpunum er Eup-
hrate? hvíslaði Rod í eyrað á
mér, um leið og hann rétti mér
glas.
— Hún hlýtur að vera ung,
svaraði ég. — Engin yfir tví-
tugt mundi dirfast að ganga með
svona nafn.
Andartaki síðar sáum við fólk,
sem hlaut að vera Eastman-fjöl-
skyldan, því að það gekk um
kring og heilsaði gestunum. East
man var með heljarmikinn, lið-
aðan hárbrúsk, hvítan að lit, en
hinsvegar var andlitið ekki eitt
þetsara jarðeigenda-andlita, sem
sjá má í viskí-auglýsingum. Kon
an hans var lágvaxin, ósmekk-
Tökum upp á morgun:
BARNASKÓ
Brúna og hvíta.
Stærðir: 19—27.
□-------------D
VAÐSTÍGVÉL
Barna
Telpna
Drengja
Kvenna
□------------D
SKÖHÚSIÐ
Hverfisgötu 82 — Sími 11-7-88.
Bankastræti. — Sími 2-21-35.
Grensásvegi 50.
Ungbarnaskó
hvíta.