Morgunblaðið - 27.03.1966, Side 31
Sunnucfagttr 27. marz 1966
MORGU N BLAÐIÐ
31
Laxness viS píanóið.
Ýmsar breyfing-
ar á Fálkanum
Sigvaldi Hjálmarsson tekinn við
ritstjórn blaðsins
SIGVALDI Hjálmarsson, rit-
stjóri, hefur tekið við ritstjórn
vikublaðsins Fálkans. Hafa ýms-
ar breytingar verið gerðar á
blaðinu og nýir þættir teknir
upp.
— Dæmdar
Framhald af bls. 32
miskabætur, eða 45 þúsund kr.
alls. Þá var ábyrgðarmaðurinn
dæmdur í 4.500 kr. sekt og 12
daga varðhald til vara, birtingar-
kostnað að upphæð 6 kr. og til
að greiða málskostnað að upphæð
12 þúsund krónur.
Ummæli blaðsins voru dæmd
ómerk og ábyrgðarmanni gert
að birta forsendur dómsins og
dómsorð í blaði sínu.
Ekki tók dómurinn til greina
fjárkröfur á hendur ábyrgðar-
manninum.
í blaðinu, sem kemur út á
mánudag, er myndafrásögn um
Halldór Laxness, sem nefnist:
„Hvernig vinnur Nóbelsská'ld-
ið?“, þá hefst nýr dálkur, sem
nefnist „Svarthöfði segir“, sagt
er frá heimsókn í Húsmæðra-
loennaraskóla íslands, þá er grein
er nefnist „Er hugsanaflutningur
vísindaleg staðreynd?“, þáttur er
nefnist „í sviðsljósinu“, frásögn
er nefnist „Maðurinn, sem dó
ellefu sinnum", birt er saga eftir
Agatha Christie, Ófeigur Ófeigs-
son, læknir, ritar þáttinn „Líf og
heilsa“, þá er fróðleiksgrein, er
nefnist „Sendibréf úr fortíðinni".
Loks má geta þess, að fram-
haldssagan í blaðinu er frá
herragarði í Dölum í Svíþjóð og
Kristjana Steingrímsdóttir skrif-
ar þáttinn „Kvenþjóðin“.
Ýmis'legt fleira efni er í næsta
tölublaði Fálkans, t.d. krossgáta,
skrítlur og stjörnuspá.
— Kaldur sjór
Framhald af bls. 32
var þó klakastangl skammt
norður af Sléttu. Eftir það
vék ísjaðarinn frá, því vindur
hélzt lengst af austurlægur
þar í grenndinni. Fyrir rúmri
viku eða 17. marz lá jaðarinn
90 sjómílur norður af Rauðu-
núpum. En um síðustu helgi
mun ísbrúnin hafa byrjað að
færast suður á við undan norð
vestan strekkingi, sem þarna
var. Síðan hefur norðangarð-
urinn á þriðjudag og miðviku
dag hert á rekinu suður á bóg
inn. Það eina, sem hindrað
getur að ísinn leggist að land
inu núna er að austanátt geri
þarna samfleytt í nokkra
daga. Þá mundi þetta dreifða
ísrek safnast að megin ísnum
á ný og reka vestur á bóginn.
— Hefur verið mikil úr-
koma, fyrst allur þessi snjór
hefur safnast?
— Úrkoma í vetur hefur
ekki verið sérlega n‘— >• e
landinu. En það sem hefur
snjóað, hefur lítið tekið upp
fyrir norðan og austan, því
engar teljandi hlákur hafa
verið. Ég sá í bréfi úr Laxár-
dal fyrir skömmu, að ekki
hefðu komið nema tveir blot-
ar síðan um nýjár. Og þegar
sagt er blotar, þá hefur rétt
aðeins linnt. í vetur hefur
vindur verið á norðaustan og
gengið á með éljum því á
Norðausturlandi er hafáttin
norðaustur. Og hefur því
alltaf bætt á snjó. Strax fyrstu
viku vetrar byrjaði að snjóa,
en snjór var ekki svo mikill
um nýjár. Hefur síðan snjóað
öðru hverju. Frostakaflar
voru miklir í nóvember og
desember. Ég man sérstak-
lega eftir að skömmu fyrir
jól var 25 stiga frost norður
í Aðaldal, sem er mesta frost
á láglendi í vetur. Hér fyrir
sunnan hafa komið nokkuð
mörg hörð veður í vetur og
jafnvel um allt land. Síðast
norðangarðurinn á þriðjudag.
— Talað hefur verið um að
þið hafið séð fyrir og aðvarað
um fleiri af þessum ofsaveðr-
um í vetur en oft áður.
— Það má vera að við höf-
um séð óveðrin meira fyrir,
svaraði Jónas. Kannski stafar
það af sömu ástæðu og hjá
veðurglöggu körlunum í
gamla daga. Þegar einsýnt
var, sáu þeir veðrin fyrir, en
síður þegar var óstöðug veðr-
átta. Það koma kaflar, þegar
veðurspár rætast nokkuð vel.
Veður hreyfist þá reglulegar
og eðlilegar, að manni finnst.
En í fyrra var tekin upp sú
regla, að þegar búizt er við
stormi eða 9 vindstigum, þá
er það tekið fram í byrjun
hverrar veðurspár. Má vera
að fólk taki betur eftir því,
sé orðið þreytt á að hlusta
þegar áliðið er lestrinum.
— Það er þá ekki það, að
þið séuð farnir að fá betri
upplýsingar, t. d. frá gerfi-
hnöttum?
— Nei, við hagnýtum lítið
upplýsingar frá gerfihnöttum,
erum ekki farnir að fá þær
ennþá fyrr en svo seint og í
formi, sem erfitt er að hag-
nýta sér. En ég .býst við að
þróunin verði sú, að stærri
stöðvarnar noti mikið upp-
lýsingar frá gerfihnöttunum
og spá þá fyrir stærri svæði.
Hlutur fslands í norrænu menn-
ingarvikunni í Strassburg ágætur
NORRÆNU menningarvikunni,
sem staðið hefur yfir í Strass-
burg undanfama viku á vegum
Loltleiðir geio nt
stsrismnnnablnð
LOFTLEIÐIR hafa hafið út-
gáfu blaðs fyrir starfsfólk sitt.
Er því ætlað að flytja fréttir á
milli deilda og starfsmanna fé-
lagsins og er áætlað, að það komi
út annan hvern mánuð.
Blaðið er aðallega skrifað á
ensku, en að nokkru á íslenzku.
Heitir það Loftleiðir New Letter.
Enska er notuð vegna hinna fjöl-
mörgu erlendu starfsmanna.
Ritstjórn blaðsins annast Sig-
urður Magnússon, blaðafulltrúi,
og Helga Ingólfsdóttir.
Fundur í flugmanna-
deilunni á mánudag
ENN er allt við hið sama í
kjaradeilu flugmanna, en fundur
verður með sáttasemjara og flug
mönnum, flugvirkjum og vlug-
vélstjórum á mánudag n.k.
- 'iiliögur Frakka
Framhald af bls 1
stjórn varnaihers Atlantshafs-
bandalagsins. Aðeins hafa borizt
beinar yfirlýsingar frá fjórum
ríkjum af fjórtán, Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Ítalíu og V.-
Þýzkalandi.
Viðbrögð franskra ráðamanna
við orðsendingu bandarisku
stjórnarinnar hafa verið mis-
jöfn, vegna tveggja atriða eink-
um.
í fyrsta lagi mun Johnson,
Bandaríkjaforseti, hafa lýst þvi
yfir, að hann óski eftir sam-
eiginlegri stjórn varnarmála,
svo framarlega sem um sé að
ræða þátttöku fleiri landa en
Bandaríikjanna sjálfra.
Er talið, að ummæli þau, sem
Andre Malraux lét hafa eftir
sér í gær, föstudag, á þann veg,
að sú spurning, sem svar þurfi
að fá við, sé sú, bvort Atlants-
hafsbandalagið eigi að vera
varnartæki Evrópu, eða Banda-
ríkjanna einna sé svar við þess-
um þætti yfirlýsingarinnar. Mal-
raux situr í írönsku stjórninni.
' í öðru lagi mun Jo'hnson, for-
seeti, hafa lýst því yfir, að sæti
Frakklands í bandalaginu muni
framvegis standa autt, ef vera
skyldi, að stjórn landsins ákvæði
síðar að taka upp þráðinn, þar
sem nú hefur verið frá hortfið.
Talsmenn frönsku stjórnarinn-
ar hatfa látið hafa eftir sér,
í þessu sambandi, að Bandaríkja-
forseti virðist ekki hafa skilið
til fullnustu, að ákvörðun sú,
sem De Gaulle hefur nú tekið,
sé endanleg, og muni engin
breyting verða á síðar. Séu þessi
ummæli Bandaríkja'forseta á
þann veg, að jafngildi næstúm
því, að hann vilji blanda sér í
frönsk innanríkismá'l, með því
að reyna að hafa áhritf á and-
stæðinga De Gaulle, svo að þeir
sameinist á þingi gégn forsetan-
um. Þingkosningar fara fram í
Frakklandi næsta ár.
Strassborgarháskóla lýkur í dag. vikunni í Strassbourg. Og við-
Dr. Sigurður Þórarinsson, jarð- | staddir opnunina voru Henrik
ingur, flutti þar tvo fyrirlestra. Sv. Björnsson, sendiherra íslands
Hann er kominn heim og leitaði
Mbl. frétta hjá honum af menn-
ingarvikunni.
Sigurður sagði, að mikið hefði
verið um að vera á norrænu
menningarvikunni og hún hefði
verið mjög fjölbreytt. í hei'ld
hefði þáttur íslands verið ágæt-
ur, einkum kannski hvað snerti
málverk og bækur. Þarna var
norræn listasýning, bókasýning í
háskólabókasafninu, skugga-
myndasýningar frá Norðurlönd-
unum, sem gengu allan daginn,
svo og stöðogar kvikmyndasýn-
ingar í kvikmyndahúsi í borg-
inni o. fl. Tóku íslendingar þátt
í öllu, að undanskildri kynningu
á mat frá þátttökuþjóðunum í
ákveðnu veitingahúsi.
Sigurður Þórarinsson flutti tvo
fyrirlestra, sem voru vel sóttir.
Var annar fluttur í landfræði-
deild háskólans og fjallaði um
sögu íslands í ljósi landfræði-
legra staðreynda. Og hitt var al-
mennur fyrirlestur um Surts-
eyjargosið. Sýndi Sigurður með
honum Surtseyjarkvikmynd Os-
valds Knudsens, sem vakti að
vanda athygli. Sagði Sigurður að
hver Frakki virtist þek'kja til
Surtseyjar og vita að blaðamenn
Paris Match stigu þar fyrstir á
land og hefðu Frakkar mikinn
áhuga á Surtseyjargosinu. Gerð
hefur verið ein kopía af Surts-
eyjarkvikmyndinni með frönsk-
um texta á vegum Evrópuráðs-
ins.
Sigurður Hafstað, sendiráðs-
ritari, hafði undirbúið þátttöku
íslands í norrænu menningar-
Jörgensen
Framhald af bls. 32
lega glaður yfir að vera á
íslandi, segja má að ísland
sé mitt annað föðurland, því
að hingað sigldi ég í hálfa
öld og hér á ég marga og
kæra vini.
— Hafið þér nú alveg hætt
störfum?
Já, nú er ég bara heima og
nýt hvíldarinnar og hugsa til
íslands og hins ágæta fólks
er það byggir.
— Haldið þér að þetta sé
í síðasta skipti sem þér kom-
ið hingað?
— Nei, það vona ég ekki.
Ég vona að ég geti komið
hingað á hverju ári meðan
heilsa og ástæður leyfa. Ég
vil biðja yður fyrir beztu
kveðjur til allra minna f.)>l
mörgu vina hér á íslandi. Mér
líður alltaf vel á Islandi og
Islendingar eru dásamlegt
fólk.
í París og Pétur Eggerz, fasta-
fulltrúi íslands hjá Evrópuráð-
inu,
— Albert og Otto
Framhald af bls. 12
ing í eðlisfræði setti vísinda-
menn í, fyrir tveim áratugum.
I upphafi þessa máls var einn-
ig minnzt á þann vanda, sem
helgazt hefur af aukinni sér-
hæfingu, eins og hún birtist í
sérhverri' öflugri visindagrein.
Einstein og Hahn höfðu þrátt
fyrir fjarska ólík vinnubrögð,
víðari útsýn yfir hin ýmsu svið
eðlisfræðinnar en eftirmenn
þeirra. Þar við bætist skylt
vandamál, sem þessir menn
leystu ólikt betur en visinda-
menn okkar tíma. Ég leyfi mér
að vitna í orð Einsteins sjálfs
um þetta efni: „Það er mjög
mikilvægt, að almenningur fái
tækifæri til þess að kynnast
af eigin raun viðleitni og ár-
angri í visindalegum rannsókn-
um. Það nægir ekki að einstak-
ar niðurstöður hljóti viðurkenn
ingu fárra sérfræðinga, sem ein
ir hafi rétt til þess að notfæra
sér þær til framgangs vísind-
anna. Takmörkun vísindalegrar
þekkingar, sem aðeins fáeinir
útvaldir eiga aðgang að, veikir
heimspekilegan anda þjóðarinn
ar og leiðir til andlegrar fá-
tæktar". Gamall kennari minn
og fyrrverandi samherji Ein-
steins um viðurkenningu á af-
stæðiskenningunni, Rolf Nevan-
linna, tók eitt sinn enn dýpra
í árinni, er hann sagði: „Það er
unnt að útskýra fyrir greindu
fólki án vísindalegrar þekking-
ar, höfuðatriði sérhverrar vís-
indagreinar. Ef það er ekki
unnt, er eitthvað bogið við þá
sömu vísindagrein.“ Ég vildi
ekki trúa þessum orðum, þar
til ég heyrði Nevanlinna sanna
staðhæfingu sína með því að út
skýra fyrir greindu alþýðufólkr
í Zúrich höfuðatriði afstæðis-
kenningarinnar, í fyrirlestrum
á einu háskólamisseri.
Við vísindalegum arfi Ein-
steins og Hahns tóku fræði-
menn, sem borið hafa vísindin
langt fram á leið. Þrátt fyrir
aukna einangrun þeirra frá al-
mennri þekkingu fjöldans, hef-
ur aldrei verið eins gaman að
lifa lífi vísindamanns eins og
á okkar dögum. Við skulum
vona, að nútíma fræðimenn
muni ávaxta sitt pund eins vel
og Einstein, Hahn og samtíma-
menn þeirra, að þeir geti síð-
an tekið sér í munn andláts-
orð þess fyrrnefnda, „Meine
Arbeit ist getan.“ — „Ég lauk
hlutverki minu.“
,t,
Bróðir minn
lézt 25. marz.
ÁRNI JÓNSSON
frá Hafnarfirði,
Egill Jónsson.
Útför eiginmanns míns og föður okkar
ÓLAFS BLÖNDAL
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. marz
klukkan 10,30. — Athöfninni verður útvarpað.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær, föstu
dag, að þegar Frakkar hefðu
lagt fram tillögur sínar um
framkvæmd breytinganna, þá
myndu ríki Atlantshafsbandalags
ins hafa um það samvinnu, á
hvern hátt yrði bezt haft sam-
startf við Frakkland framvegis.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknar-
stofnanir.
Guðfinna Blöndal,
Ingunn Blöndal Davis,
Björn A. Blöndal.