Morgunblaðið - 14.04.1966, Qupperneq 1
32 siður
i
EFRJ myndin sýnir (t.h. oliu-
flutningaskipið „Manuela“,
undan Beira. Þá sést á mynd-
inni brenka freigátan ,,Ber-
wick", sem kom í veg fyrir
olíuskipið. Ekki kom til
neinna átaka, og sneri „Man-
uela“ burt frá Beira.
Neðri myndin sýnir olíu-
skipið „Johanna V“, sem legið
hefur í höfn í Beira, en skipið
hefur innanborðs oliu. sem
talið hefur verið, að dæla eigi
til Rhódesiu. — AP.
De Gaulle neitar að.
veita USA frest
París og London, 13. apríl.
— (AP-NTB) —
DE GAULLE, Frakklands-
forseti, tilkynnti í dagfrönsku
stjórninni, að hann gæti ekki
séð, að nein ástæða væri til
þess að veita Bandaríkjun-
um lengri frest en þann, sem
hann hefði ákveðið, til að
flytja bandarískt herlið af
franskri grund.
Frestur sá, sem forsetinn
hefur sett, rennur út 1. apríl
1967. Hefur Bandaríkjastjórn
tilkynnt frönsku stjórninni,
að hún treysti sér ekki til að
ljúka brottflutningi hersins
innan þessa tíma.
Það var Yvon Bourges, upplýs-
ingamálaráðherra, sem kunn-
gerði þessa ákvörðun forsetans í
dag.
Framhald á bls. 31.
Búddatrúarmenn
samningsþýðari
— en krefjast kosninga innan hálts árs
Olíustríðið heldur áfram
Aiimikið fjón varð á Saigon-flugvelíi
Saigon, 13. apríl. (AP-NTB)
LEIÐTOGAR Búddatrúar-
manna hafa tilkynnt, að þeir
muni senda fulltrúa til loka-
beita sér fyrir því, að ráð-
stefnan samþykki yfirlýs-
ingu, þar sem kveðið verði á
um frjálsar kosningar í land-
,,Johanna V" heimahafnariaust — S-Afríka kann að segja sig
úr SÞ, fái iandið ekki að hafa „hlautlausar" skoðanir
Durban og Beira, 13,
— (AP-NTB) —
GRÍSKA oiíuflutningaskipið
„Manuela“, sem ekki komst
til hafnar í Beira á Mozam-
bique, lagðist í dag að
bryggju í Durban í S-Afríku,
eftir að hafa legið þar á ytri
höfninni í hálfan annan sólar-
hring.
Ekkert hefur enn verið um
það sagt, hvar ætlunin er að
skipa á land olíu þeirri, sem
skipið flytur, og vera mun
um 15.000 tonn.
Talsmaður hafnaryfirvald-
anna í Durban, sem að því
var spurður, hvert olían ætti
að fara, sagði í dag, að sér
á Rhódesíumálinu
apríl.
ræða
hefði verið bannað að
málið við fréttamenn.
„Manuela“ er í eigu sama
olíufélags og olíuflutn-
ingaskipið „Johanna V“, sem
legið hefur í höfn í Beira und
anfarna daga. Það skip hefur
Fram'hald á bls. 31. i
fundar ráðstefnu þeirrar, sem
nú stendur í Saigon. Er þar
fjallað um leiðir til að binda
endi á ófremdarástand það,
sem ríkt hefur í innanríkis-
málum.
Hafa leiðtogar trúarhreyf-
ingarinnar sagt, að þeir muni
inu innan sex mánaða.
Hins vegar er haft eftir áreið-
anlegum heimildum, að fáist slák'
yfirlýsing ekki samiþykkt, muni
Búddatrúarmenn grípa til allra
til-tækilegra ráða til að steypa
stjórn Ky, forsætisráðherra.
Ky, sem sagður er sannfærður
um, að stjórn hans muni standá,
hefur látið flytja herlið til Sai-
gon, kunni að -koma þar til átaka.
Engin opinber yfirlýsíng hefur
þó verið gefin út um herflutn-
inga þessa.
Þá er frá því skýrt í Saigon
í dag, að tjón það sem varð,
er skæruliðar Viet Cong gerðu
árás á flugvöllinn við Saigon í
gær, sé ekki eins mikið og talið
var í fyrstu.
Vitað er, að sjö bandariskir her
menn létu lifið í árás þessari, og
rúmlega 150 særðust. Þá voru
tvær herflutningaflugvélar eyði-
lagðar, og þyrlur. Ekki hefur
fengizt staðfest, hve margar
þyrlur ónýttust, en í sumum
fregnum segir, að þær hafi verið
iþrjátíu. *
Her nað ar ley ndarmál
á botni Stössen vatns?
fræðingar rannsakað ná-
kvæmlega og ljósmyndað alla
hluta flaksins.
Flugvélin, sem féll í vatnið,
var sprengjuþota af gerðinni
Yak-25, og sérstaklega er
ætluð til að flytja kjarnorku-
sprengjur. Er hún sögð ákaf-
lega hraðfleyg.
Brezkir sérfræðingar íeita
enn í Stössenvatni, og óstað-
festar fregnir herma, að þotan
hafi haft að geyma nýtízku
tæki, sem mikil leynd hvílir
yfir. Munu því hlutar af flak-
inu enn vera á botni vatnsins.
Berlín, 13. apríl — NTB.
YFIRVÖLD brezka hergæzlu-
svæðisins í Berlín afhentu í
dag fulltrúum sovézka hers-
ins leifar þotu þeirrar, sem
féll í Stössenvatn í V-Berlín
fyrir skemmstu.
Flakið, eða það, sem af
því hefur fundizt, var afhent
úti á miðri Havelánni, sem
skiptir löndum.
Flakið var flutt á brezkri
ferju, og sett um borð í bát,
sem sovézku yfirvöldin sendu
á vettvang.
Áður höfðu þó brezkir sér-
Sjálfstæðar varnir styrkja
samstöðuna
Pompidou, forsœtisráðherra Frakka,
„heimsœkir44 þingið og rœðir
varnarmál Vesturlanda
París, 13. apríl — (AP-NTB)
FORSÆTISRÁÐHERRA
Frakklands, Georges Pompi-
dou, sagði í ræðu í franska
þinginu í dag, að sá dagur
myndi koma, að Bandaríkin
myndu telja de Gaulle, Frakk
landsforseta, „framsýnan
leiðtoga tryggs bandalags-
ríkis“.
Pompidou lýsti því jafn-
framt yfir, að franska stjóin-
in væri reiðubúin til þess að
taka upp viðræður við önnur
ríki í Atlantshafsbandalag-
inu, 14 að tölu, þá einkum og
sér í lagi Bandaríkin og V-
Þýzkaland, um það, á hvern
hátt franskur herafli yrði
skilinn frá her bandalagsins.
• Það vakti nokkra athygli, er
Pompidou sást á þrngi í dag, en
þangað hefur forsætisráðherraain
ekki vanið kömu<r sinar, síöan
forsetakosningarnar fóru fram í
desember s.i.
• Fyrir dyrum standa nú þriggja
daga umræður um varnarmál
Frakka, og er m.a. gert ráð
fyrir, að utanríkisráðherrann,
Couve de Murville, taki til máls.
Búizt er við, að hann muni þá
sérstaklega ræða þá yfirlýsingu
ba.ndarisku stjórnarinnar, að
hún treysti sér ekki tii að Ijúka
flutningi bandarísks herliðs frá
Frakklandi innan þess tíma, sem
Frakkar hafa nefnt í þvi sam-
bandi. 1. apríl 1967.
• Pompidou gagnrýndi harðlega
sameiginlegar hervarnir, og kvað
þær geta leitt til þess, að Frakk-
land yrði þátttakandi að styrjöid
sem iandinu væri með öllu óvið-
komandi. Hins vegar sagði hann,
að sjálfstæðar varnir Frakka
myndu alls ekki verða Þrándur
Fjamhald á bls. 31.