Morgunblaðið - 14.04.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.04.1966, Blaðsíða 10
10 MORCU N B LAÐID Fimmtudagur 14. apríl 1966 J.W. Fulbright og gagnrýni hans á stefnu stjórnar USA. Á þessari mynd, sem tekin var eitt sinn er þeir ræddust viS, Fulbright öldungadeildarþingmaður og Lyndon B. Johnson forseti, er eftirfarandi áletrun frá forsetanum: Til Bill — ég sé að ég hef ekki verið mjög sannfærandi — Lyndon B. John- son. • MARGT hefur að undan- förnu verið skrifað um bandaríska öldungadeiidar- þingmanninn James William Fulbright, formann utanríkis- málanefndar Bandaríkjaþings. Fulbright hefur, sem kunnugt er, skipað sér í fremstu röð þeirra sem halda uppi gagn- rýni á stefnu Lynddns B. John sons, forseta, í utanríkismál- um og þá einkum stefnu hans í Víetnam. Grein sú, er hér fer á eftir í íslenzkri þýðingu birtist fyrir skömmu í banda- riska vikuritinu U.S. News & World Report. Utanríkismálanefnd öld- ungadeildar Bandaríkjaþings hefur ávallt verið ein af virt- ustu og áhrifamestu samkund um hins bandaríska þing- heims. Og sú hefur verið föst venja, að formaður nefndar- innar hafi á tímum erfiðleika nána samvinnu við forseta ríkisins og utanríkisráðherra um hin mikilvægustu atriði, er varða stríð og frið. Á árunum eftir heimsstyrj- öldina síðari veitti Arthur heitinn Vandenberg, repúblik- ani frá Miohigan, demókrat- anum Truman, forseta, stuðn- ing í ýmsum mikilvægum mál um, svo sem varðandi stofnun Sameinuðu þjóðanna, Atlants- hafsbandalagsins, skipulagn- ingu Marshall-áætlunarinnar og hann studdi þá stefnu, er Truman vildi fylgja til að hefta framgang kommúnism- ans. Walter heitinn George, demókrati frá Georgíu, veitti repúblikanum Eisenhower, for seta, stuðning þegar Formósu samþykktin var á döfinni — þegar kínverskir kommúnist- ar hótuðu innrásinni 1955 og síðan í Súez-átökunum árið 1956. En nú virðist annað uppi á teningnum. Tímar samstarfs virðast liðnir. Nú er svo kom- ið að ágreiningur er ríkjandi meðal demókrata sjálfra um stefnu stjórnarinnar. Haft er eftir sérfræðingi einum um utanríkismál, er starfað hefur bæði í utanríkis ráðuneytinu og á þingi: „Ó- hætt er að fullyrða, að í sögu Bandaríkjanna hefur formað- ur utanríkismálanefndar þings ins aldrei fyrr á stríðstímum verið svo algerlega andsnúinn forseta úr eigin flokki“. Svo að segja frá þeim degi, sem Lyndon B. Johnson tók við forsetaembætti í Banda- ríkjunum hefur núverandi for maður nefndarinnar, J. W. Fulbright, haldið uppi nær stöðugri opinberri gagnrýni á meðferð stjórnarinnar á utan- ríkismálum. Fulbright, sem nú stendur á sextugu, hefur haldið all- margar ræður, þar sem hann hefur ráðizt á framkvæmd styrjaldarinnar í Suðaustur- Asíu, fordæmt íhlutun Banda- ríkjanna í Dominikanska lýð- veldinu, og látið í Ijós vantrú á tilraunum stjórnarinnar til að einangra stjórn Castros á Kúbu með pólitísku og efna- hagslegu banni. Formaðurinn er málsvari aukinna samskipta við komm- únísku stórveldin, Sovétríkin og Rauða-Kína. Hann er því hlynntur, að „brúa“ bilið milli Bandaríkjanna og leppríkja Sovétríkjanna í Austur-Evr- ópu. Fyrirrennarar Fulbrights í formannsstöðunni reyndu eft- ir megni að jafna ágreinings- málin sem risu innan nefnd- arinnar og starfa á þeim svið- um, er samhugur var fyrir hendi — og aðstoða þannig framkvæmdavald ríkisins við mótun utanríkisstefnunnar. Undir stjórn Fulbrights hefur nefndin hinsvegar — að því er mörgum finnst — orð- ið vettvangur persónulegra deilna og akademískra rök- ræðna, og er nefndin þrí- eða fjórklofin. Haft er eftir einum nefndar- manna: „Bill (Fulbright) er skólamaður, miklu fremur en stjórnandi. Hann var — og er Fulbright. raunverulega ennþá háskóla- rektor — en hann er ekki ýkja mikilhæfur stjórnandi“. Og haft er eftir reyndum sérfræðingi í utanríkismálum: „Ef Fulbright hefði þá for- ystuhæfileika, sem Vanden- berg hafði, hefði hann orðið stórkostlegur formaður. Hann hefur flestum meiri þekkingu á utanríkismálum. En Ful- bright hefur alltaf róið einn á báti í öldungadeildinni. Hann hefur aldrei verið þátttakandi í innsta hring, ef svo mætti segja“. — ★ — En hver er Fulbright öld- ungadeildarþingmaður og hvað vakir fyrir honum? Formaðurinn hefur viður- kennt, að með því að vekja athygli almennings á skoðun- um sínum sé hann að reyna að „hafa áhrif á utanríkis- stefnu Bandaríkjanna,,, sem hann telur mótaða af „nokkr- um einstaklingum innan stjórnarinnar". Engu að síður sýna atkvæða greiðslur á þinginu, að Ful- bright mælir fyrir munn minna en fjórðungs nefndar- manna — sem eru nítján tals- ins, að meiri hluta demókrat- ar, eða þrettán talsins. Og stuðningsmenn hans á þinginu sjálfu eru hlutfallslega enn færri. Fulbright er af auðugu fólki kominn. Hann er frá Fayette- ville í Arkansas og hann var rektor háskólans i Arkansas i tvö ár — 1939—41. Hann er afar vel menntaður maður, hefur fjórar háskólagráður, frá Oxford, háskó,'’num í Ar- kansas og lagadeilu George Washington-háskólans. — Á þingi hefur hann starfað í 24 ár — 2 ár í fulltrúadeildinni og 22 ár í öldungadeildinni. Áður en hann tók við emb- ætti formanns utanríkismála- nefndarinnar hafði hann ver- ið formaður banka- og gjald- eyrisnefndar þingsins. Þegar Fulbright tók við for ystuhlutverki í utanríkismál- um þingsins árið 1959, sagði „The Wasihington Evening Star“: Hinn nýi formaður er víðförull Arkansas-búi, sem er „frjálslyndur" erlendis en öllu íhaldssamari heima fyr- ir. í innanríkismálum skipar hann sér yfirleitt í flokk með Suðurríkjamönnum". „Hann er bæði fluggáfaður og geðugur maður, en mennta manns sjónarmið hans eru ýmist mikils virt eða lítils, eftir því hver í hlut á. Sumir hafa kvartað um að hann haldi sig í hæfilegri fjarlægð frá fólki, aðrir segja að hann sé latur“. Nefnd verkalýðssamtak- anna, er fjallar um pólitíska uppfræðslu hefur bent á, að Fulbright hafi á 88. þinginu, 1963—64, aðeins greitt at- kvæði með 36% þeirra til- lagna, er þau mæltu með. Og helztu samtök frjállslyndra „Americans for Democratic Action" segja, að hann sé 36% frjálslyndur. Hann greiddi at- kvæði gegn Mannréttinda- frumvarpinu árin 1957, 1960 og 1964. Og árið 1956 undir- ritaði hann mótmælaskjal Suðurríkjanna gegn því að hæstiréttur Bandaríkjanna gæti fyrirskipað samskólun hvítra og blakkra. Þessi afstaða kann að hafa kostað hann embætti utanrík- isráðherra í stjórn Kennedys. Var nafn hans ofarlega á lista yfir þá, er komu til greina í það embætti, þar til forystu- menn mannréttindahreyfing- ar blökkumanna beittu sér gegn skipan hans. Sjálfur hef- ur Fulbright hinsvegar stað- hæft, að hann hafi aldrei haft áhuga á embætti utanríkisráð herra, hvorki undir stjórn Kennedys né Johnsons. Hefur hann sagt í viðtali, að hann sé að upplagi og skaplyndi alls ekki hæfur í það embætti. . — ★ —1 Það er reyndar ekkert nýtt, að ágreiningur sé með Ful- bright og forseta Bandaríkj- anna. Hann gagnrýndi öðru hverju harðlega aðgerðir Tru- mans og Eisenhowers. Stefna Kennedys virtist honum meira að skapi. En sá, er hann hafði alltaf mesta trú á var Adlai heitinn Stevenson, fyrrum aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Veitti Fulbright honum full- an stuðning í baráttunni fyr- ir forsetaembættinu 1952 og 1956. Eftir kosningarnar 1946, þegar repúblikanar unnu meirihluta á þingi, hvatti Ful- bright Truman til að segja af sér og fá forsetaembættið í hendur repúblikana. Og hann spáði því að demókratar gætu ekki sigrað í kosningunum 1948 hvern svo, sem þeir byðu fram. í fyrstu ræðu sinni í öld- ungadeildinni árið 1945 talaði Fulbright um óttan við komm únismann sem „öfluga hleypi- dóma“. Hann sagði: „Tilraunir Rússa með sósíal isma er tæpast róttækari mið- að við nútímaaðstæður en sjálfstæðisyfirlýsing Banda- ríkjanna var á dögum Georgs konungs III“. Fulbright varð manna fyrst ur til þess að fordæma Mc- Carthy-ismann og talaði um fordæmingu öldlungadeildar- innar á aðgerðum McCarthys sem eitt af mestu afrekum deildarinnar. í upphafi stjórnartímabils Kennedys árið 1961 fékk hann talið forsetann og landvarna- ráðherrann, Robert McNam- ara, á að hætta við fyrirætl- anir um fræðslu hermanna um baráttuaðferðir kommún- ismans. Og í ræðu, sem Ful- bright hélt í háskólanum i Norður-Carolínu árið 1964, sagði hann, að kalda stríðið hefði orðið til þess, að Banda- ríkjamenn ýktu sjúklega fyr- ir sér hættuna af árásarstefnu kommúnista erlendis og undir róðri þeirra og sviksemi heima fyrir. í málum, er varða Kúbu, hefur Fulbright ýmist verið afar friðsamur eða afar her- skár. Árið 1961 var hann einn þeirra fáu, sem vöruðu Kenne dy forseta við innrásinni á Svínaflóa. Næsta ár hinsveg- ar, i eldflaugadeilunni haust- ið 1962, hvatti Fulbright til þess, að innrás og beinar loft- árásir yrðu gerðar á Kúbu til þess að tryggja brottflutning sovézku eldflauganna þaðan. Fulbright hefur beint harðri gagnrýni að yfirmönnum hers ins og gagnrýnt einnig starf- semi CIA, bandarísku leyni- þjónustunnar erlendis. Hann hélt því fram árið 1964, að hvorki bandaríska þjóðin né bandaríska þingið hefði nokkra stjórn á hermálum sín um. Fulbright hefur verið and- vígur loftárásunum á Norður- Víetnam og auknum herafla Bandaríkjanna í Suður-Víet- nam. Hann hefur hvatt til þess, að bundinn verði endi á styrjöldina og gengið til samn inga þar sem hann gerir ráð fyrir að báðir deiluaðilar yrðu að gera miklar tilslakanir. — Hann er því hlynntur, að öll Suðaustur-Asía verði hlut- laust svæði og nýlega lýsti hann þeirri skoðun sinni, að Bandaríkjamenn ættu að hætta að sporna við inngöngu Kína í samtök Sameinuðu þjóðanna. Og hver eru viðbrögðin við þessu öllu? Fregnir frá heimaríki Ful- brights herma, að þar séu ekki margir fylgjandi skoðun- um hans. Hinsvegar séu menn sammála um að hann hafi rétt til þess að láta í ljós þær skoð anir, sem honum sýnist. Og stjórnin í Washington hefur vaxandi áhyggjur af markmiðum og áhrifum utan- ríkismálanefndar öldunda- deildar Bandaríkjaþings. Vöruafgreiðsla okkar er flutt að ÁRMÚLA 1. Inngangur um baklóð. I. MMINHI t ttllttl It, Fjölvirkar skur-ðgröfur I AVALT TIL REIÐU. Sími: 40450 Vanur, traustur bifreiðastjóri óskast við útkeyrslu á vörum vegna forfalla. — Einnig vantar nokkra menn til afgreiðslustarfa í vöru- geymslu grænmetisverzlunar landbúnaðarins. — Upplýsingar í síma 13200 á skrifstofutima.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.