Morgunblaðið - 14.04.1966, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. april 1966
Herbergi óskast
Ungur, reglusamur maður
óskar eftir góðu herbergi.
Þeir, sem vilja sinna þessu,
hringi í sima 41815 milli
kl. 4—6 í dag.
íbúð
Reglusöm, einhleyp kona,
sem viimur úti, óskar eftir
1—2ja herbergja íbúð. Fyr-
irframgreiðsla, ef óskað er.
Uppl. í símum 35221 og
31177.
100 þúsund kr. óskast
í 1 ár. Góð fasteignatrygg-
ing. Tiliboð sendist Mbl.
fyrir nk. miðvikudag,
merkt: „Lán — 9003“.
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu í Reykja-
vík, Kópavogi eða Hafnar-
firði til 1. nóverwber nk.
Uppl. í síma 37161.
Matvöruverzlun
óskast til kaups eða leigu.
Tilboð sendist Mbl. fyrix
16. þ. m., merkt: „9041“.
Óskum eftir að ráða pilt
17—19 ára með brlpróf
til léttra starfa.
Chrysler umboðið
Vökoll, Hringbraut 121.
Sími 10600.
Nemi — Húsasmíði
Get tekið nema strax, ekki
yngri en 18 ára. Nöfn
ásamt frekari uppl. leggist
á afgr. Mbl. fyrir laugard.,
merkt: „Nemi — 9091“.
Fimm manna bíll óskast
gegn fasteignatryggðu
skuldabréfL Uppl. milli
8—9 e. h. í síma 15050.
íbúð
Óskum eftir 2—5 henb.
íbúð fyrir 14. maí. Þrennt
í heimili. Sími 10752.
Skrifborð, stólar
til fermingargjafa. Sent
meðan á fermingu stendur.
Húsgagnaverzlunin Búslóð
við Nóatún. Skni 18520.
Vön verksmiðjustúlka
óskast strax.
Nærfataverksmiðjan Lilla,
Víðimel 64. Sími 15104.
íbúð til sölu
5 herb. Sérinaig. og sérhiti.
Til greina kerreur skipti
á 2ja—3ja herb. íbúð í
blokk. Uppl. í sáma 41470.
íbúð
Tvö herb., eldhús og bað
með húsgöngum og búslóð
til leigu í sex mánuði.
Tilboð sendist Mibl., merkt:
„tbúð 9043“.
16 ára skólastúlka
óskar eftir vinnu yfir
sumarmánuðina. M a r g t
kemur tU greina. Uppl. í
sima 37561.
Chevrolet
eldri árgangur, til sölu.
Upplýsingar í síma 35553.
Kisa lærir á ritvél
Þessa mynd af ketti, sem er að læra á ritvél, fengum við aðsenda
á dögunum. Eigandi kisunnar, segir í bréfi, að hann langi til að
sýna okkur, hvemig kisa hans lærir á ritvél. „Hún fer svolítið
skakkt að því, finnst ykkur ekki?“ Við þökkum fyrir myndina, en
undir bréfið var skrifað: Kisuvinur. z
FRÉTTIR
Hjálpræðisherinn: Fimmtudag
kl. 20:30. Almenn samkoma.
Heather Goffin frá Englandi tek
ur þátt. Söngur og vitnisburðir.
Allir velkomnir. Föstudag: Hjálp
arflokkur.
Hringkonur, Hafnarfirði. Aðal
fundur Hringsins verður haldinn
í Alþýðuhúsinu mánudaginn 18.
apríl kl. 8.30. Venjuleg aðalfund-
arstönf. Spilað verður Bingó.
Konur fjölmennið. Stjórnin.
Fíladelfía, Reykjavík. Almenn
samkoma í kvöld kl. 8:30. Ás-
grímur Stefánsson og Daniel
Jónasson tala.
Skemmtifundur verður hald-
inn í Réttarholtsskóla fimmtu-
dagskvöld kl. 8:30. Mæður fé-
lagskvenna og konur í sókninni,
60 ára og eldri, sérstaklega boðn
ar. Stjórnin.
Mæðrafélagið. Fundur verður
í Aðalstræti 12 íöstudaginn 15.
apríl kl. 8:30. Mörg áríðandi
félagsmál á dagskrá. Sýndar
skuggamyndir og myndir frá 30
ára afmælishóíi félagsins verða
til sýnis á fundinum.
Félag austfirzkra kvenna held-
ur skemmtifund fimmtudaginn
14. apríl að Hverfisgötu 21 kl.
8:30 stundvíslega. Spiluð verður
félagsvist.
Borgfirðingafélagið í Reykja-
vík. Munið félagsvistina í kvöld
kl. 8 í Tjarnarbúð. Mætið stund-
víslega og takið með ykkur
gesti.
Kvenfélag Bústaðasóknar.
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavik heldur
skemmti- og fræðslufund mánu-
daginn 18. apríl kl. 8:30 I Lind-
arbæ uppi. Dagskrá: Keppni
milli austan og vestanvatna-
Jónas steinsmiður Þorsteins
son í Reykjavík sagði frá:
— Ég átti góðan, vel gef-
inn og vandaðan góðkunningja
í Reykjavík, er Þórður hét,
sem hneigðist þó um of að
óminniselfum Bakkusar. sem
margir fleiri góðir drengir.
Óttuðust menn að hann mundi
skjótt eyðileggja sig. Mig sár
langaði til að hindra þá ógaefu.
Ég hafði oft greitt úr peninga
vandræðum hans og þó minna
en mig langaði til og skyld-
ugt var. í maí 1906 töluðum
saman. Sýndi ég honum alvar
lega hvern enda þetta drykkju
háttalag hans hlyti að hafa,
og bað hann að sjá að sér i
tíma. Tók hann því ágætlega.
Ég bjó þá i herbergi með
einum félaga mínum.
Þegar ég vaknaði næst3
morgun og ætlaði að klæða
mig, varð ég allt í einu kveik-
máttlaus og þung og ömurleg
utanað komandi áhrif gripu
mig og gagntóku með leiðind
um og óhægð. Sagði ég félaga
mínum að ég gæti ómögutega
klætt mig, lá svo vakandi og
gat hvorki hreytft legg né lið,
unz svo bráir af mér að get
litið á klukkuna, og var hún
þá rétt hálfníu. Vildi ég þá
risa upp, en hneig máttvana
niður atftur. En í sömu and-
rá heyri ég lokið upp útidyra
hurðum, þeim skeilt aftur, svo
gengið upp tröppur og kippt
upp stofuhurðinni, og inn kom
Þórður vinur minn. Hann
gekk rakleitt til mín, laut að
mér og hvíslaði að mér nokkr
um orðum, sem ég gleymdi í
brað, en grunur segir mér að
rifjast muni upp með tíman-
um. Svo snýst hann frá mér
og út úr stofunni, og ég heyri
skóhljóðið og gangdyninn of-
an tröppumar, út og otfan á
veginn frá húsinu og hverfa í
fjarlægð. Og á sama augna-
bliki er ömurleikinn og mátt-
leysið horfið og ég eins og
þegar ég er bezt ástígs. Byrja
ég að klæða mig í snatri. En
áður en ég var alklseddur, kom
inn maður og sagði mér þau
tíðindi, að 'hann Þórður vinur
minn, sem var nýtfarinn frá
mér, hetfði hengt sig klukkan
rúmlega hálfniu. Ég leit á
klukkuna, hana vantaði fimm
minútur í _ tíu þegar ég var
klæddur. Ég grennslaðist ít-
arlega eftir þessu og fékk sönn
un fyrir því, að Þórður hefði
farið heim frá verkamönnum
sínum ki. hál.fníu, en klukkan
tæplega níu var hann örendur,
öldungis á >ama tíma og hann
birtist mér. Þetta gerðist í
næsta húsi við mig. Undarleg
ur þótti mér Þórður er hann
kom inn til mín, en ekki vissi
ég fyr en á eftir að það hatfði
verið svipur hans. Ég veið
aldrei svo gamall, að ég
gleymi þessu, og fyrir það
etfa ég ekkj hin merku sann-
indi ýmsra fyrirbæra sem
hafa gerzt og eru ematt að
gerast og munu gera3t.
Drottinn opna varlr mínar, svo aS
munnur minn kunngjöri lof þitt
(Sálm. 51, 17).
í dag er fimmtndagnr 14. april og
er það 104. dagur ársins 1966.
Eftir lifa 261 dagnr. Tíbúrtiusmessa.
Árdegisbáflæði kl. 1:35.
'Síðdegisháflæði kl. 14:35.
Nætur-
vörður vikuna 9. apríl til 16.
april er í Vesturbæjarapóteki
Næturlæknir í Keflavík 14.
apríl til 15. apríl Kjartan Ólafs-
son sími 1700, 16. til 17. apríl
18. apríl Guðjón Klemenzson
smi il57, 19. apríl Jón K. Jóhanns
son simi 1800 20. april Kjartan
Ólafsson simi 1700.
Nætnrlæknir í Hafnarfirði að-
faranótt 15. apríl er Hannes
Blöndal sírni 50745.
L/pplýsingar um læknaþjón-
ustu í borginnl gefnar í sim-
svara Læknafélags Reykjavikuz,
Símin er 18888.
Slysavarðstofan i fleilsnvernð
arstöðinni. — Opin allan sóLir-
bringinn — siml 2-12-39.
Kopavogsapótok er opið alla
virka daga frá kl. 9:15—20. lang-
ardaga frá kl. 9:15—16, helgidagn
frá kl. 13—16.
Framvegis veröur teklð á mðtl pelm,
er gefa vUJa blðð t Blððbaokann, sem
bér scglr: Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtndaga og föstudaga frá kl. 9—11
fJi. oe 2—4 e.n. miðvikudaga frá
kl. 2—8 ejr. Laugardaga fra kl. 9—11
1Ji. Sérstök atbygU skal vakln á mlð-
vlkudögum. vegna kvðldtlmans.
Holtsapótek, Garðsapótek, Soga
veg 108, Laugarnesapóte.k og
Apótek Keflavikur eru opin alla
virkp. daga kl. 9. — 7„ nema
laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgi
daga frá kl. 1 — 4.
Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á skrifstofutíma 18222. Nætur
og helgidagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta AA samtak
anna, Hverfisg. 116, sími 16373.
Opin alia virka daga frá kL 6-7
OrS iifsins svarar i sima 10000.
St ’. St/. 59664147 - VUI. - 7.
I.O.O.F. 11 = 14731481/4 = 9. 0.
I.O.O.F. 5 = 1474148)4 = 9. I.
K HELGAFELL 59664157 VI. 2.
kvenna. Kynning á síldarrétt-
um. Sextettsöngur. Fjölmenmð
og takið með ykkur gestL Stjórn-
in.
Storkurinn sagði
að sól hetfði skinið sunnan, þeg-
ar hann glennti upp skjána í gær
morgun, honum til mikillar gleði
og hughreystingar, því að allt-
atf er mér heldur verr við þennan
kulda, en óþarft er að taka það
fram, að eiginlega er ég ættað-
ur sunnan úr Afríku, og hef
stundum elt ferðamenn á Safari
ferðum, því að auðvitað geta þeir
ekki fremur en aðrir verið án
storksins.
Ekki var ég fyrr kominn á
áfangastað. en mér bárust 2
myndir í hendurnar, frá einum
stéttarbróður mínum á öðru
blaði nokkurs konar páska-
kveðja. og birti' ég myndirnar,
sem eiga vist að vera myndir af
okkur storkihjónunum, sennilega
teknar af einhverjum HOF-fótó-
grafnum.
En sem ég flögraði niður
Bankastrætið um 10 leytið, sá
ég mann, sem gaut til mín horn-
auga.
Storkurinn: Hvað er mí á
seyði, maður minn?
Maðurinn, sem gaut til min
homauga: Finnst þér þetta vera
hægt, storkur góður? Sjáðu þessa
hópa fólks, sem híma utan við
aðaldyr bankanna, hér í nágrenn
inu. Finnst þér þetta ekki kuída
leg gestrisni af þeim almáttku
bankayfirvöldum? Véit ég þó
ekki betur en þær ágætu stofn-
anir lifi á því að lána út til þessa
fólks sparifé hinna aðsjálnu, og
svo er þeim ekki einu sinni boð-
ið inn, en látnir hima þarna í
höm eins og útigangshross, þar
til opnað er. Væri ekki hægt að
opna einhvem biðsal fyrir 10,
fyrst svona mikil ös er? Á þetta
máski í framtóðinni að vera ein-
hvers konar lúgumenning, eins-
konar söluop, sem áttu að hindra
unglinga í að híma á sjoppum?
Hvað á það líka að þýða, a3
opinbera svo einkamál manua,
því að ailir sem um göturnar
fara, vita í hvaða skyni þessi
bið er? Máski þeir láti sig hafa
það að setja upp stöðumæla fyr-
ir fólkið? Eru þeir ekki alltaf að
byggja stærri og veglegri hus
fyrir bankastarísemina? Var
þeim máski ekki ætlað að vera
fyrir viðskiptavinina?
Ja, ekki veit ég, maður minn,
sagði storkurinn, en ég held það
væri heillaráð að þú færir með
vandkvæði þín í Umtferðarnefnd
ina. Hún kynni að komast að
þeirri niðurstöðu, að það stafaði
umferðarhætta af þessu, og
henni væri vel trúandi til bess,
að leggja blátt bann við svona
mannsöfnuði á aðalumferðar-
götum bæjarins, og með það
flaug storkurinn upp á hring-
snúningsklukkuna á Útvegs-
bankanum, en hún sýnir, eins
og kunnugt er, islenzkan sumar-
tíma öðrumegin, en falldaga vixl-
anna hinumegin, og hugsaði sitt.
só NÆST bezti
Einn af hinum ágætu borgurum Keflavíkurbæjar ferðast oft um
götur bæjarinns á reiðhjóli. Eitt kvöld kom hann í heimsókn til
vinar síns, og ræddu þeir saman fram eftir kvöldinu og voru lítið
eitt við skál. Er hann nú hugði til heimferðar var komið hið versta
veður, rok og rigning. Þá segir vinur hans:
„Það kemur ekki til máia að þú farir gangandi heim í þessu
veðrL ég hringi auðvitað á bíl handa þér“.
„Nei, nei, ég vil ekki sjá bíl“, svaraði hinn, „ég sem á þetta fína
hjód heima, ég fer bara befm og sæki það'f. f '«•