Morgunblaðið - 14.04.1966, Síða 7
7
Fimmi*dagur 14. aprfi 1966
MORCU NBLAÐIÐ
Fram nú, allar í röð!
Það er eins með sauðkindina og mannsskepnuna, að hún er nösk með að komast upp á lagið að |
velja það heldur, sem þægilegra er. Þarna er hópur kinda að ganga á hitaveitustokk í ná-
grenni borgarinnar, sem sjálfsagt er ólíkt huggulegra en iskaldur snjórinn. Væntanlega fer einhver
forustusauður fyrir fénu, sem hefur gefið þá fyrirskipun: „Fram nú, allir í röð!“
Akranessferðir með sérleyfisbifreið-
um ÞÞÞ. Frá Akranesi mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugar-
daga kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4. Frá Rvík alla
daga kl. 5:30, nema laugardaga kl
2 og sunnudaga kl. 21:00. Afgreiðsla
i Umferðarmiðstöðinni.
Flugfélag íslands hf. Millilandaflug:
Gullfaxi fór til Osló og Kaupmanna-
hafnar kl. 08:00 í morgun. Væntanleg
tir aftur til Rvíkur kl. 22:36 í kvöld.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Patreks
fjarðar, Kópaskers, Þórshafnar, Vest-
mannaeyja (2 ferðir), og Egilsstaðá.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá
Rvík kl. 13.00 í dag austur um land í
hringferð. Esja er í Rvík. Herjólfur
fer frá Rvík kl. 21:00 í kvöld til Vest-
mannaeyja og Hornafjarðar. Skjald-
br.eið er á Húnaflóahöfnum á austur-
leið. Herðubreið er á Austurlandshöfn
um á norðurleið.
Skipadeild S.Í.S.: Amarfell fór 11.
þ.m. frá Rvík til Gloucester. Jökulfell
er í Rendsburg. DísarfeU er í Zand-
voorde. Litlafell væntanlegt til Rvíkur
á morgun. Helgafell losar á Eyjafjarð-
arhöfnum. Hamrafell fór í gær frá
Hamborg til Constanza. Stapafell fer
frá Rvík í dag áleiðis til Norðurlands
hafna. Mælifell fer í dag frá Rotter-
dam áleiðis til Sas van Ghent. Fer
þaðan til Zandvoorde og síðan til
Rvlkur.
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka-
foss er frá Hull 15. til Rvíkur. Brúar-
foss fór frá Stykkishólmi í dag 13. til
Patreksfjarðar, Tálknafjarðar. Þingeyr
ar, Flateyrar, Súgandafjarðar og ísa-
fjarðar. Dettifoss fer frá Grimsby 14.
til Rotterdam, Rostock og Hamborgar.
Fjallfoss fer frá Reyðarfirði í dag 13.
til Stöðvarfjarðar, Norðfjarðar og
Seyðisfjarðar. Goðafoss fór frá NY
13. til Rvíkur. Gullfoss kom til Rvíkur
11. frá Leith og Kaupmannahöfn. Lag-
arfoss fór frá Patrekefirði 13. til
Hafnarfjarðar og Rvíkur. Mánafoss iór
fná Reyðarfirði 9. til Ardrossan og
Manchester. Reykjafoss fór frá Akur-
eyri 11. tál Zandvoorde, Riem, Ant-
werpen og Hamborgar, Selfoss fór frá
NY 7. til Rvíkur. Skógafoss fer frá
Antspils í dag 13. til Turku. Kotka og
Rvíkur. Tungufoss fór frá Antwerpen
12. til Rvíkur. Askja fór frá Eskifirði
12. til Rvíkur. Katla fer frá Akureyri
í dag 13. til Sauðárkróks, Skagastrand
ar og Vestfjarðahafna. Rannö fer frá
Ólafsvík í dag 13. til Akraness. Gunn-
vör Strömer kom til Rvíkur 10. írá
Kristiansand. Annet S. fór frá Helsing
borg 9. til Rvíkur. Anne Presthus fór
frá Hamborg 12. til Rvíkur. Echo fer
frá Dieppe 13. til Hafnarfjarðar. Vin-
land Saga fer frá Kaupmannahöfn 14.
til Gautaborgar, Kristiansand og
Rvíkur. Utan skrifstofutíma eru skipa
fréttir lesnar í sjálfvirkum símsvara
2-14-66.
H.f. Jöklar: Drangajökull er í River-
port, Nova scotia, fer þaðan væntan-
lega í kvöld til North Sidney. Hofs-
jökull fór í gær frá London til Dubl-
in. Langjökull er 1 London, fer paðan
væntanlega í kvöld til Las Palmas og
Sao Vieente. Vatnajökull er 1 Rvík,
fer þaðan væntanlega í fyrramálið til
Akraness og Keflavíkur.
Hafskip h.f.: Langá fór væntanlega
frá Stralsund í gær til Nörköping.
Laxá er í Vestmannaeyjum. Rangá er
á leið til Hull. Selá er í Rvík. Elsa F
er í Antwerpen. Star lestar í Gauta-
borg. Ottopreis lestar í Hamborg 14.
til Rvíikur.
Pan Ameriran þota kom frá New
York kl. 07:20 1 morgun. Fór til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl. (>8:00.
Væntanleg frá Kaupmannahöfn og
Glasgow kl. 19:20 1 kvöld. Fer tU
New York kl. 20 00.
Hafskip h.f.: Langá fór frá Stral- I
sund í gær til Nörrkoping. Laxá er
í Reykjavík. Rangá kemur til Hull
í dag. Selá fór frá Rvík 1 gær til
Belfast og Hamborgar. Elsa F er 1
Antverpen. Star lestar í Gautaborg. j
Ottopreis lestar í Hamborg til Rvík-
ur.
Spakmœli dagsins
Líferni manns er alltaf kröft-
ugra en ræða hans. >egar ein-
hver er metinn, þá eru gerðir
hans reiknaðar í krónum, en orð
hans í aurum. — Spurgeon.
GAMALT oc con
Huldumaður og bóndadóttir
Hann: Margt býr í þokunni,
þokaðu úr lokunni,
lindin mín ljúf og trú.
Hún: Fólkið mín saknar,
og faðir minn vaknar,
hann vakir svo vel sem þú
VfSUKORiXI
Lífsins endadægur.
Brestur fjalla-brákuð-eik,
bol af fallin verjan.
,.Ellin hallar öllum leik“.
Á mig kallar ferjan.
St. D.
í fyrravetur var þátturinn Kaupstaðirnir keppa-
Nú í vetur er svo: Sýslurnar svara.
Næsta vetur kemur röðin sjálfsagt að hreppunum. Ég er að velta ]
því fyrir mér, hvort það sé rétt hermt, að það sé þegar búið að |
velja næsta þætti heiti: HREPPARNIR HALDA KJAFTI!
SAMI JRAUÐGRAUT-
UR í SÖMU SKÁL
3&C .
Reiðhestar til sölu
Upplýsingar í síma 13494
eftir kl. 7.30 á kvöldin.
Til sölu sumarbústaður
sem hægt er að flytja á
bil; þeir sem eiga land,
tilvalið. Sími 32326 eftir
kl. 7.
Til sölu
vegna brottflutnings eikar
borðstofuborð og stólar,
sporöskjulagað sófaborð, —
einnig búsáhöld o. fl. —
Selst ódýrt frá kl. 6—9.
Sími 14368.
Tveir Spánverjar
óska eftir 1—2 herb. í tvo
mán. Uppl. í skrifstofu
Hjálpræðishersins, — sími
13203. Petro Bertol.
Keflavík — Suðurnes
Kínverska hunangið og
sólarsafinn komið aftur.
Pantanir óskast sóttar. Ut-
sæðiskartöflur væntanleg-
ar, Smáraborg, sími 1777.
Kemisk fatahreinsun
fatapressun, blettahrdinsun
Efnalaugin Pressan
Grensásvegi 50. Sími 31311.
Góð bílastæði.
Kaupið 1. flokks húsgögn
Sófasett, svefnsófar, svefn-
bekkir, svefnstólar. 5 ára
ábyrgð. Valhúsgögn, Skóla
vörðustíg 23. — Simi 23375.
Forhitarar
Til sölu örfá stykki af for-
hituirum, sem skila mjög
góðri nýtni og taika aðeins
lítið veggpláss. Uppl. í
sima 36415.
Takið eftir
Saumum skerma og svunt-
ur á barnavagna. Höfum
áklæði. Sendum í póst-
kröfu. öldugötu 11, Hafnar
firði. Sími 50481.
Til sölu
nýinnfluttur Opel Reikord,
árgerð 1962. Uppl. í síma
16084.
Keflavík — Njarðvík
íbúð óskast til leigu. —
Upplýsingar í síma 2424.
Stúlka eða miðaldra kona
óskast í viist.
Grímur Jónsson, héraðs-
læknir í Laugarási.
Klæðum og gerum við
bólstruð húsgögn. 1. flokks
vinna. Sækjum og sendum.
Valhúsgögn, Skólavörðu-
stíg 23. Sími 23375.
A T H U G I Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu,
ei langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum-
MIMIR
Vornámskeið
Hefst mánudaginn 18. apríl nk. og stendur yfir til
maíloka. Kennt verður tvisvar í viku, tvær stundir
í senn. Einkum verður lögð áherzla á það er við-
kemur ferðalögum til útlanda. ENSKA, DANSKA,
ÞÝZKA, FRANSKA, ÍTALSKA og SPÁNSKA.
ÍSLENZKA fyrir útlendinga.
Næst síðasti innritunardagur.
IVIálaskólinn IViímir
Brautarholti 4 — Sími 1-000-4, kl. 1—7 e.h.
Atvinna
Tvær stúlkur vantar til afgreiðslustarfa í biðskýli í
Hafnarfirði. Ennfremur tvær stúlkur á veitinga-
stofu í Hafnarfirði. — Upplýsingar í síma 13992
milli kl. 6 og 8 e.h.
Ibúð
Lokið «c nú mikilli „uaglasupu" gerð sem blotið helir nainið „Alþý ðubandalag“.
Einhleyp kona, sem vinnur úti allan daginn óskar
eftir 2ja til 4ra herb. íbúð til leigu. — Tilboð send-
ist afgr. Mbl. fyrir 23. þ.m., merkt: „íbúð — 8805“.
Nýtt — Nýtt
Hollenzkar
sumardragtir
með samsvarandi
buxum og blússum
Bernhafð Laxdal
Kjörgarði.